Dagur - 29.05.1986, Blaðsíða 10
40 - ÐAGUR - 29. mat'1986
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Skólaslit
verða í Akureyrarkirkju laugardaginn 31.
maí kl. 13.30.
Skólameistari.
Handavinnusýning
vistfólks á Dvalarheimilinu Hlíð
sunnudaginn 1. júní kl. 14-17.
Margt fallegra muna.
Til sölu verða heklaðir dúkar, prjónles o.fl.
Kaffiveitingar. Verid öll velkomin.
Embætti skattstjóra
Norðurlandsumdæmis eystra,
er laust til umsóknar og veitist frá 1. júlí 1986.
Umsækjandi skal hafa lokið prófi í lögfræði, hag-
fræði eða viðskiptafræði eða vera löggiltur endur-
skoðandi eða hafa aflað sér sérmenntunar eða sér-
þekkingar um skattalöggjöf og framkvæmd hennar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist tekjudeild fjármálaráðuneytisins,
merktar: „Staða 260“ fyrir 10. júní 1986.
Fjármálaráðuneytið 27. maí 1986.
Auglýsing numer 1
Höfum opnað á ný
eftir breytingar
Komið og skoðið sumarvörurnar
í glæsilegri verslun.
Svala- og tjaldhúsgögn í miklu úrvali.
Svefnpokar, tjalddýnur, grill, borð, stólar,
diska- og hnífaparasett (stál) í tösku fyrir 4 til 6.
Opið laugardaga 9-12.
Eyfjörö 1
Hjatteyrargötu 4 simi 22275
vrsA
HVÍTASUntlUKIRKJAM V/5KARÐ5HLÍÐ
Hvítasunnusöfiiuðurinn
50 ára
Hátíðarsamkomur verða í tilefni 50 ára
afmælis safnaðarins föstudaginn 30. maí,
laugardaginn 31. maí, sunnudaginn 1. júní og
mánudaginn 2. júní og hefjast kl. 20.00.
Aðalræðumaður verður Garðar Ragnarsson
frá Danmörku.
Mikill og fjölbreyttur söngur, meðal annars
æskulýðskór Fíladelfíu í Reykjavík.
Samkomur halda svo áfram hvert kvöld til 8. júní
og hefjast klukkan 20.00.
Allir eru hjartanlega velkomnir á samkomurnar.
Hvítasunnukirkjan v/Skarðshlíð
(Vestan við Veganesti)
Uam inrl ofi nn
„ner sit íiiP eg og
get ekk i annað“
„Hér stend ég og get ekki
annað,“ er sagt að Marteinn
Lúter hafi sagt er hann stóð
frammi fyrir furstum Þýskalands.
Þannig fer og hverjum þeim
sem opnast fyrir orði Biblíunnar.
Það er ekki sjálfgefið að orð
Guðs nái til okkar mannanna.
Við sjáum það til dæmis að eft-
ir krossfestingu Jesú gátu læri-
sveinarnir ekki skilið hvað hafði í
rauninni gerst. Það var ekki fyrr
en Jesús hafði birst þeim eftir
upprisuna og tengt saman spá-
dóma Biblíunnar og þá atburði
sem gerst höfðu, að „hugskot
þeirra lukust upp“ og þeir skildu
hvað Guð var að gera fyrir menn-
ina.
Eftir það voru þeir beðnir að
fara til Jerúsalem og bíða, þar til
þeir íklæddust krafti frá hæðum.
Síðan gerðist það á hvítasunnu-
dag að þessi kraftur kom og þeir
menn sem áður voru hræddir og í
felum komu fram með djörfung
og predikuðu Jesúm, upprisinn
og upphafinn, iðrun og fyrirgefn-
ingu syndanna, fyrir trú á Jesúm
Krist.
Þessi kraftur er enn jafn virkur
og kemur fyrir: Predikun orðsins,
lestur þess og bæn.
Þegar Lúter las Biblíuna (sem
þá var aðeins til á latínu) opnaði
hún hugskot hans og sýndi hon-
um að kirkjan (kaþólsk) var
komin langt út fyrir ritninguna og
kenningu Jesú og þessi kraftur
orðsins gaf honum kjark til að
festa hinar 95 staðhæfingar gegn
aflátssölu á dyr hallarkirkjunnar.
Hann lýsti því yfir sem sinni
skoðun að þegar kristinn maður
lenti í andstöðu við skoðanir
kirkjuþings gæti hann haft rétt
fyrir sér ef hann byggði á Biblí-
unni, heilagri ritningu. Því að all-
ir menn væru jafnir fyrir Guði og
ekki þyrfti prestsfund til að öðl-
ast náð Guðs.
Kirkja er (á að vera) það fólk
sem trúir á Jesúm sem frelsara
sinn og hefur samfélag hvert við
annað, en ekki stofnun sem heyr-
Níels Gíslason.
ir undir hóp manna sem skipaðir
eru af valdhöfum.
Allir sem orð Guðs fær að tala
til sjá og finna hvað „þjóð“-
kirkja og ríkistrú eru fráleit hug-
tök einfaldlega vegna þess að
einn getur ekki skrifað nafn ann-
ars í „lífsbókina“. Það getur Guð
einn.
Með þessum orðum er ég ekki
að alhæfa um þjóðkirkju íslands.
Ég veit að innan hennar er víða
lifandi starf sem byggir á orði
Guðs. En mér finnst það eigi að
vera persónuleg ákvörðun hvers
og eins í hvaða söfnuði hann vill
starfa, til að geta haldið áfram
því verki sem Lúter hóf, þ.e.a.s.
að leiða kirkju Krists á rétta
braut.
Ef honum finnst að sá söfnuð-
ur sem hann tilheyrir sé staðnað-
ur og leiði aðeins af sér sinnu-
leysi, þá getur hann ekki staðið
þar, frammi fyrir Guði sínum og
svarað í einlægni spurningunni:
Hví fórstu ekki eftir orði mínu
fremur en mannasetningum?
Þetta er ástæða þess að svo
margir sem orð Guðs talar til
leita sér að samfélagi, þar sem
Biblían er notuð sem grundvöllur
allrar breytni og til leiðsagnar í
öllum mannlegum málum.
Það má vera öllum ljóst sem
leiða að því hugann að það var
ekki mögulegt fyrir Lúter að færa
allt það í lag sem búið var að
rangsnúa. Því hefur Guð á ýms-
um tímum vakið upp menn til að
opinbera það ljós trúar sem falið
hafði verið undir mælikeri stofn-
ana og þeirra sem afneita krafti
trúarinnar.
í öðru bréfi Tímóteusar segir:
„Þeir hafa á sér yfirskin guð-
hræðslunnar en afneita krafti
hennar." (2. Tím. 3:5). Það er
stórkostlegt að fylgjast með því
nú á síðustu tímum hvernig Guð
er að endurlífga söfnuð sinn og
skiptir þá ekki máli hvað hann
kallast, heldur starfar hann alls
staðar þar sem orðið (Biblían) er
lesið með opnum huga.
Dæmi um það er EXPLO, ’85
þar sem um 100 kirkjudeildir og
söfnuðir, sem boða Jesúm Krist
sem frelsara mannkynsins, tengd-
ust saman með notkun gervi-
tungla. Þar fór fram námskeið
fyrir þá sem finna þörf á því að
boða öðrum trú og byggja sig og
aðra upp í henni.
Það eru nú um níu ár síðan orð
Guðs og kraftur talaði til mín,
með þeim hætti að ég tók afstöðu
og fann þann sem ég vil að líf
mitt tilheyri. Ég fann mér samfé-
lag í Hvítasunnukirkjunni hér á
Akureyri og hefi eignast yndisleg
trúsystkin.
Um þessa helgi er haldið upp á
50 ára starf Hvítasunnusafnaðar-
ins hér og vil ég í því tilefni bjóða
þér, sem lest þessa grein, að
koma og kynnast því hvernig við
komum saman og eigum virki-
lega ánægjulegar stundir. Guð
blessi þig.
Níls Gísluson.
Lykillinn að velheppnuðu sumarleyfi:
Opnunartími Eddu hótelanna
Nú líður að því að fyrstu Eddu
hótelin sem aðeins eru starfrækt
aö sumrinu, verði opnuð. Hótel
Edda í Valhöll á Þingvöllum hef-
ur þegar veriö opnað og um mán-
aðamótin bætist Hótel Edda,
Flókalundi í hópinn. Hótel Edda
á Laugum í Sælingsdal tekur til
starfa 6. júní en síðan verða
hótelin opnuð koll af kolli og 20.
júní geta ferðamenn nýtt sér
þjónustu 20 Eddu hótela víðs
vegar um landið.
Hér á eftir fer listi yfir Eddu
hótelin og opnunartíma: Hótel
Edda Flókalundi (30. maí),
Hótel Edda Laugum, Sæl. (6.
júní), Hótel Edda Reykholti (8.
júní), Hótel Edda Skógum (9.
júní), Hótel Edda Hrafnagili (11.
júní), Hótel Edda Húsmæðra-
skólanum Laugarvatni (11. júní),
Hótel Edda Menntaskólanum
Laugarvatni (12. júní), Hótel
Edda Nesjaskóla (12. júní),
Hótel Edda Stórutjörnum (13.
júní), Hótel Edda Eiðum (13.
júní), Hótel Edda Reykjum (13.
júní), Hótel Edda Hallormsstaö
(14. júní), Hótel Edda Húnavöll-
um (15. júní), Hótel Edda Akur-
eyri (18. júní), Hótel Edda Laug-
arbakka (20. júní).
Auk þess eru Eddu hótel starf-
rækt á hótelum sem opin eru allt
áriö, Hótel ísafirði, Hótel Borg-
arnesi, Hótcl Hvolsvelli og Hótel
Eddu Kirkjubæjarklaustri.