Dagur - 29.05.1986, Blaðsíða 6

Dagur - 29.05.1986, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 29. maí 1986 TAKIÐ EFTIR! Óskum eftir tilboði í húseignina Sóivelli í Flatey á Skjálfanda. Húseignin verður til sýnis dagana 2.-9. júní nk. og er fólk beðið að snúa sér til Gunnars Guðmundssonar í Útibæ í Flatey, en hann mun leiðbeina fólki. Skriflegum tilboðum sé skilað fyrir 17. júní til Einars Njálssonar Samvinnubankanum Húsavík eða til undirritaðra. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Þingvallastræti 10, Akureyri, 28. maí 1986. Júlíana Guðmundsdóttir og Njáll B. Bjarnason. Björn Sigurösson • Baldursbrekku 7 • Símar 41534 • Sérleyfisferðir • Hópferðir • Sætaferðir • Vöruflutningar Húsavík-Akureyri-Húsavík Daglegar ferðir 1. júní-31. ágúst Sunnud. Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. 19.00 08.00 13.30 08.00 13.30 03.00 13.30 FráHúsavík 21.00 16.15 16.15 16.15 16.15 17.00 16.15 FráAkureyri Sérstakur vöruflutningabíll á þriðjudögum. Afgreiðsla á Húsavík: Flugleiðir, Stóragarði 7 sími 41580 og 41140 Farþegaafgreiðsla Akureyri: öndvegi hf. Hafnarstræti 82 sími 24442 Öll vörumóttaka á Akureyri: Ríkisskip við Sjávargötu sími 23936. Ath. Vörur berist á Ríkisskip 2 klukkustundum fyrir auglýsta brottför. Sérleyfishafi. X B Húsavík X B Sigurgeir Aðalgeirsson 5. sæti B-listans „Efla ber það framhaldsnám sem nú er á Húsa- vík, í tenglsum við Menntaskólann á Akureyri. “ x-b Dalvík x-b Hulda Þórsdóttir 4. sæti B-listans. Við teljum mjög brýnt að halda áfram byggingu tengiálmu við Kríiakot því með tilkomu hennar er möguleiki á bættri þjónustu í dagvistarmálum á Dalvík. H-af erlendum vettvangL Snjóbyssa í Ölpunum; fjallabændurnir eru lítið hrifnir. hávaöi í sviss- nesku Olpunum - Snjóbyssur í skíðalöndin - Umhverfisvemdarmenn gagnrýna vélvæðingu „Við látum snjóa fyrir ykkur til miðnœttis, “ stendur á aðvörunarskiltum fyrir ferðafólk í Savognin í Graubunden (Suður-Sviss). En á vornóttum þegar skilt- in eru uppi - og stundum líka um nóvembernœtur - dettur engum í hug að fara snemma að sofa. Hávaðinn er geigvænlegur, þeg- ar tíu háþrýsti-snjóbyssur spúa 4500 mínútulítrum af vatni á 3,5 km langar skíðabrekkurnar allt frá dalbotni og upp í miðjar hlíðar. í frostinu - bestar eru aðstæð- urnar við 9 stig - breytist vatns- úðinn samstundis í snjó. Þessi snjór er þéttari og grófkornaðri en sá sem náttúran býr til. Og hann loðir betur saman. Skíða- fólkið í Savognin fullyrðir, að hann sé miklu betri til skíða- iðkunar. Fimmtán cm þykkur gervisnjór er álíka þéttur fyrir og fjórum sinnum þykkari náttúru- snjór. Til þess að undirbúa 100 m breiða skíðabrekkuna undir skíðatímann að haustinu drynja snjóbyssurnar tíu án afláts í 16 nætur. Við það eyða þær 1000 kílówöttum á klukkustund, sem er álíka og raforkunotkun í 5000-6000 manna bæ. Ef kvartað er yfir þessari geysilegu orkunotkun, réttlæta forystumenn ferðaiðnaðarins hana m.a. með samanburði við aðrar íþróttagreinar: „Hver kvartar," spyr Leo Jeker, for- stjóri skíðalyftanna í Savognin, „þótt flóðlýsingin á Letzigrund- leikvanginum í Zúrich eyði yfir 3000 kílówöttum?" Og því er ekki að neita, að þetta eina sveitaþorp við aðal- veginn upp í Julier-skarðið gæti alls ekki boðið upp á öruggan skíðasnjó, ef snjóbyssurnar væru ekki. Skíðafólkið myndi leita annað, ef ekki væri hægt að skíða niður á dalbotninn. Með hjálp frá byssunum er það hægt í 100 daga, í stað 40 ella. Skíðatíminn hefst 2-3 vikum fyrr og stendur fram yfir páska. Þessi vetur virðist styðja rök- semdir Jekers. Jafnvel í janúar varð skíðafólkið víða annars staðar í landinu að þræla fót- gangandi upp í brekkurnar. Skíðalyfturnar voru þar reknar með tug milljóna króna halla, meðan allt var í fullum gangi í Savognin. „Byssurnar eru okk- ar snjótrygging,“ segir Jeker. Aðrir skíðastaðir í Sviss hafa ekki lokað augunum fyrir því sem er að gerast í Savognin. Heil tylft af þeim hefur nú einnig sett upp snjóbyssur - í Zermatt, Saas Grund og Thyon í Wallis, hjá Flums í St. Gallen, á Corvatsch og í Scuol í Enga- din. Tugur í viðbót er í undir- búningi. Ekki er raunar alls staðar látið snjóa á ákveðið svæði eins og í Savognin og Zermatt. Minni skíðastaðir kjósa fremur hreyf- anlega blásara, sem nota and- rúmsloftið í stað háþrýstilofts. Þeim er þá komið fyrir á snjó- troðurum. Sá útbúnaður er ein- faldari, ekki nálægt því eins orkufrekur, og sparar einnig dýran uppsetningarbúnað umhverfis skíðasvæðið. En þó þarf að leiða til hans raflögn, og vatnslögn með nægu köidu vatni. Gagnstætt háþrýstibyss- unum mynda blásararnir stund- um skafla, sem þarf þá að jafna úr á eftir. Tækjaframleiðendurnir og viðskiptavinir þeirra sjá auðvit- að aðeins kostina við þjónust- una: „Gervisnjórinn,“ segja þeir, „verndar grassvörðinn á vorin fyrir skemmdum af skíða- köntum og snjótroðurum. Og þar sem öruggt snjólag hylur allar hindranir svo sem grjót og trjástubba, dregur hann stór- lega úr slysahættu." En umhverfisverndarmenn eru annarrar skoðunar. Aust- urrískir og svissneskir vísinda- menn hafa sýnt fram á, að þétt- ur og samþjappaður gervisnjór- inn á sléttuðum skíðasvæðunum liggur miklu lengur frameftir vori en snjórinn annars staðar. Hann tefur þá vorgróðurinn um allmargar vikur, sem er alvar- legur hlutur fyrir fjallabændur. Rannsóknir í Waadtlands-ölp- unum hafa sýnt, að heyfengur minnkar um Vi tonn á hektara, sem er næstum 30% af því sem ella mætti gera ráð fyrir. Eftir fyrirspurn á svissneska þinginu ætlar landsstjórnin í Bern að láta gera nákvæma rannsókn á eðlisbreytingum gróðurlendis vegna snjófram- leiðslunnar. Landsstjórnin hef- ur líka beint þeim tilmælum til fylkisstjórna, að þær veiti hér eftir leyfi fyrir gervisnjóbúnaði aðeins í undantekningartilvik- um, því að „það sé grundvallar- atriði, að ferðamannaiðnaður- inn taki fullt tillit til náttúrunn- ar.“ Á suraum skíðasvæðum er hins vegar síðbúinn vorgróður- inn í sjálfu sér engin rök gegn snjóbyssunum - einfaldlega af því að það er hvort eð er enginn gróður eftir!

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.