Dagur - 29.05.1986, Qupperneq 7
29. maí 1986 - DAGUR - 7
„Nauðsynlegt að
Ijúka uppbyggingu
Glerárhverfis"
- segir Ásgeir Arngrímsson þriðji maður á lista
Framsóknarflokksins á Akureyri í viðtali við Dag
„Bærinn okkar hefur þanist
mjög mikið út á s.l. tuttugu
árum. En á sama tíma og bær-
inn hefur þanist út um ein 70-
80% hefur íbúum ekki fjölgað
nema um 40%,“ sagði Ásgeir
Arngrímsson sem eins og
kunnugt er skipar þriðja sætið
á lista Framsóknarflokksins í
komandi bæjarstjórnarkosn-
ingum.
„Á þeim árum þegar mesta líf-
ið var í byggingariðnaðinum seld-
ust íbúðir á Akureyri vel en þeg-
ar verðtryggingin kom til sögunn-
ar^og samdráttur í þjóðfélaginu
fylgdi í kjölfarið, dróst salan
verulega saman. Menn hættu að
byggja eða kaupa sér íbúð og síð-
an hafa íbúðir einna helst verið
keyptar á félagslegum grundvelli.
Hins vegar hefur eftirspurn eftir
húsnæði vaxið að nýju upp á síð-
kastið og það má m.a. merkja á
auglýsingum í blöðum. Ég hef þá
trú að á haustdögum, þegar ný
lög um húsnæðislán taka gildi,
lifni verulega yfir byggingariðn-
aðinum að nýju.“
- Hvar á að byggja að þínum
dómi?
„Ég er mjög á móti því að
dreifa byggðinni. Það er talað um
að byggja þurfi nýtt hverfi norð-
an Kotárgerðis og þar norður.
Þessu er ég ekki sammála. Ég tel
nauðsynlegt að leggja áherslu á
að ljúka uppbyggingu Glerár-
hverfis. Pað er svo mikil hætta á
að lokafrágangur í Glerárhverfi
dragist í mörg ár eða jafnvel ára-
tugi ef hætta á uppbyggingu þar
og hefja byggingaframkvæmdir í
nýju hverfi. Pað er afar hvimleitt
að búa efst í Glerárhverfi þegar
hvasst er, því þá er mikið mold-
rok þar og óvært fyrir börn að
vera utan dyra, að maður tali nú
ekki um óþrifnaðinn sem verður
innanhúss.
Þá vil ég nefna að nauðsynlegt
er að hefja og hraða eftir fremsta
megni ýmsum framkvæmdum í
Glerárhverfi og það á sérstaklega
við sundlaugina. Það er erfitt fyr-
ir krakka að hjóla úr Glerár-
hverfi yfir í Sundlaug Akureyrar
í misjöfnu veðri og eins er leiðin
hættuleg vegna mikillar umferð-
ar.
Brúin yfir Glerá norðan Nóta-
stöðvar er einnig mjög brýnt
verkefni. Þessar framkvæmdir
auk þeirrar uppbyggingar sem
fram fer við Síðuskóla skapa
atvinnu fyrir iðnaðarmennina og
það er af hinu góða. Grundvall-
aratriðið í rekstri bæjarfélagsins
er að atvinnan sé næg. Öðruvísi
fæst fólk ekki til að flytja hingað.
Á þetta atriði vil ég leggja höfuð-
áherslu í bæjarstjórn.“
- Hvernig finnst þér málflutn-
ingur andstæðinganna varðandi
atvinnumálin hafa verið í kosn-
ingabaráttunni?
„Mér finnsl það áberandi í
málflutningi sjálfstæðismanna og
alþýðuflokksmanna hvaö þeir
hafa lítið til málanna að leggja
hvað varðar úrbætur í atvinnu-
málum. Þeir hafa einbeitt sér að
því að rífa niður. Ég hcf hins veg-
ar margar tillögur fram að færa
sem myndu örugglega verða til
góðs. Sem dæmi má nefna að ég
Y
Ásgeir Arngrímsson.
vil fella niður aðstöðugjöld hjá
nýjum fyrirtækjum í ákveðinn
árafjölda, þá vil ég liðka til með
gatnagerðargjöld eins og
mögulegt er og fefla niður fast-
eignagjöld hjá fólki sem er að
kaupa sína fyrstu íbúð. Þetta eru
allt leiðir sem auðvelt er að fara.
Sumt af þessu hafa önnur bæjar-
félög reynt með góðum árangri
og mér finnst vel þess virði að
reyna þetta. Málflutningur hinna
flokkanna í atvinnumálum er
vægast slappur og þeir liafa engin
ráð sem duga.“
- Nú er vitað að undirstaða
góðs atvinnulífs víða eru góðar
liafnir. Hvernig er ástand hafnar-
mála á Akureyri?
„Það hefur ekki farið mjög
mikið fyrir hafnarmálunum í
kosningabaráttunni en staða
þeirra er allgóð. Á skipulagi er
gert ráð fyrir höfn norðan
Útgerðarfélagsins og tengist hún
Slippstöðinni á vissan hátt. Það
verður mjög góð lífhöfn þar sem
mörg stærri skip geta legið. Sjálf-
stæðismenn vildu úthluta heild-
verslun Valdemars Baldvinsson-
ar lóð á þessu svæði, nánar tiltek-
ið þar sem Sanavöllurinn er nú.
Ég er viss um að það hefðu verið
stórkostleg mistök að láta heild-
verslun hafa lóð á hafnarsvæð-
inu, því það veitir ekkert af þessu
plássi undir hafnaraðstöðuna.
Fyrir utan Torfunef er búið að
hanna mjög skemmtilega smá-
bátahöfn og einnig hefur komið
fram hugmynd að skemmtilegri
smábátahöfn þar sem gamla
Höepfnersbryggjan er nú. Þar
gæti skapast mjög góð aðstaða til
ýmissa tómstundaiðkana, svo
sem seglbrettasiglinga. Þá er
ónefnd smábátahöfnin sem verið
er að vinna að í Sandgerðisbót.
Ég tel að búið sé að skipu-
leggja hafnarmálin svo viðunandi
sé og næsta skref er að vinda sér
í framkvæmdir af auknum
krafti.“
- Eitthvað að lokum?
„Við framsóknarmenn ætlum
sem fyrr að vinna vel og gera
virkilega góða hluti næsta kjör-
tímabil, sérstaklega í atvinnu-
málunum. Ég skora á Akureyr-
inga að kjósa Framsóknarflokk-
inn á laugardaginn og tryggja
Kolbrúnu Þormóðsdóttur öruggt
sæti í bæjarstjórn. Þar þarf hlutur
kvenna að vera stór. Við ætlum
að gera góðan bæ betri fyrir
Akureyringa og aðra sem hér
vilja búa. BB.
Útihurðir, gluggar
og gluggagrindur
Framleidum útihurðir, glugga og giuggagrindur af
mismunandi gerðum, kaupandi getur valið um
ýmsar viðartegundir, svo sem teak, oregon pine,
mahogni, furuo.fi. Gluggaviðgerðir
Allar hurðir og gluggagrindur eru með innfræst-
um þéttilista.
Sérsmíðum eftir ósk kaupanda.
Gerum verðtilboð.
Bílskúrshurðir
Bílskúrshurðajárn
___1TRÉSMIBJAN
BDRKURf
Fjölnisgötu 1a
Akureyri
Sími 96-21909
Það kemst
tilskilaíDegi
Áskrift og auglýsingar S (96) 24222^^
' fSSiásS
•jk. SMARPVISKON L---] 10:00 /5 Wb \/
VKfeo-Vnfo
video m/þráðfj arstýringu
kr. 36.980- staðgreitt
yideo m/fiarst. kr. 36.980-
UOlClSCCir staðgreitt
JVC video m/fjarstýringu kr. 44.980-
JVC
staðgreitt
video Hi Fi. Stereo m/fjarst.
kr. 65.940- staðgreitt
Einnig gott úrval af sjónvörpum
verð frá kr. 31.330. Staðgreitt 20“
SÍMI
(96) 21400