Dagur - 04.06.1986, Blaðsíða 3

Dagur - 04.06.1986, Blaðsíða 3
4. júní 1986 - DAGUR - 3 Skólaslit á Króknum Fjölbrautaskólanum á Sauðár- króki var slitið fyrir skömmu við hátíðlega athöfn í íþrótta- húsinu. Jón Hjartarson skóla- meistari gerði grein fyrir starfi vetrarins og talaði auk þess nokkuð um uppbyggingu skólans. Kom fram í hans máli óánægja með hvað fjármagn til skólans er af skornum skammti og hlutur ríkisins þar bágur. Einnig nefndi skólameistari nýjung sem skólinn hefur á prjónunum. Nýlega fékkst leyfi frá heilbrigðismálaráðu- neytinu fyrir að skólinn útskrifí sjúkraliða í samvinnu við Sjúkrahús Skagfírðinga. Fjöldi nemenda við skólann á þessu skólaári var 342 í dagskóla og hafa þeir aldrei verið fleiri. Auk þess stunduðu 120 nám í kvöldskóla og öldungadeild. Meðal 30 stúdenta sem útskrifuð- ust frá skólanum í ár var sá eitt hundraðasti. Hæstu einkunn á stúdentsprófi fékk Stefanía Hjördís Leifsdóttir frá Keldudal. Auk stúdentanna útskrifuðust fimm með almennt verslunar- próf, einn af heilsugæslubraut, einn úr meistaraskóla og sex af iðnnámsbrautum. Kennarar við skólann í vetur voru 22 og var sú tala í lágmarki, því ekki tókst að ráða kennara í stærðfræði og eðlisfræði. Skólameistari er eins og fyrr segir Jón Hjartarson. -þá. Brunaviðvörunarkerfi fyrir skip og hús. éSlUMRÁr J ÞJÓNUSTA MEÐ LOF- HÁÞRÝSTI- OG RAFMAGNSVÖRUR i y Furuvöllum 1 • 600 Akureyri ■ Simi 96-26988 Frá 1. júní höfum við opið í hádeginu VébdeiU KEA Símar 21400 og 22997 Hrossasala Danskur hestakaupmaður verður á Akur- eyri og skoðar hross í Breiðholtshverfinu í kvöld, miðvikudagskvöldið 4. júní frá kl. 20. Hann vill kaupa þæg, frekar stór, tölt- geng hross á 30-50 þúsund. Félag hrossabænda. Sjöfn merkir vömr - sem eru hættulegar. - „Allir sitja við sama borð“ segir Þorsteinn Ólafsson „Réttilega höfum við verið gagnrýndir fyrir að merkja ekki vörur frá okkur sem inni- halda hættuleg efni og erum ánægðir yfír því að unnið sé að þessum niáluin nú,“ sagði Þor- steinn Ólafsson efnaverkfræð- ingur hjá Sjöfn. Samkvæmt ákvörðun Hollustu- verndar ríkisins var Geisli, sem er framleiddur í Sjöfn settur á bannlista, þar sem ekki var var- úðarmerking á umbúðunum. Hins vegar var á þeim innihaldslýsing. „Pað eru vinnubrögð Hollustu- verndar sem við viljum gagnrýna. Það eru vörur á markaðnum frá innlendum framleiðendum sem innihalda sömu efni, en eru ekki merktar með innihaldslýsingu, en þær eru látnar afskiptalausar," Stjórn Kennarasambands ís- lands hefur sent frá sér ályktun þar sem mótmælt er ummæl- um menntamálaráðherra Sverris Hermannssonar um styttingu skólaskyldunnar og skólaársins. Stjórn KÍ varar við þessum hugmyndum og bendir á að stytt- ing skólaskyldu dragi úr almennri menntun í landinu þar sem hætt væri við að þeim ungmennum fjölgaði til muna sem færu á mis við þá menntun sem tvö síðustu ár grunnskólans veita og misstu auk þess rétt til framhaldsnáms. Stjórnin bendir á að í þeim löndum þar sem almenn mennt- sagði Þorsteinn og átti þar við Rúðuúða frá Frigg, en bæði þessi hreinsiefni innihalda isopropan- ol, sem er mjög skaðlegt. „Það virðist því sem Hollustuvernd hafi tekið út vörur sem voru merktar með innihaldslýsingu, en ekki varúðarmerkjum og þar með sleppt vörum sem geta verið skaðlegar. Það réttlátasta í svona könnun hefði verið að taka vöru- flokka til athugunar í stað þess að velja vöru af handahófi," sagði Þorsteinn. Vart þarf að taka fram að á markaðnum hafa verið og eru vörur sem eru lítið sem ekkert merktar. Jafnvel er um að ræða vörur með merkingar á arabísku, sem mjög fáir skilja. „Þegar þetta var látið viðgangast, hikuðum við un er talin góð og íslendingar bera sig saman við er a.m.k. 9 ára skólaskylda. Verði af styttingu skólaskyldunnar munu unglingar á hinu viðkvæma gelgjuskeiði standa frammi fyrir afdrifaríku vali og ábyrgð sem þeir hafi ekki þroska til að axla. í ályktun Kennarasambandsins segir ennfremur að KÍ hafi um áraraðir lagt áherslu á nauðsyn þess að grunnskólalögin frá 1974 nái fullri framkvæmd. Því vari stjórnin við öllum hugmyndum um styttingu skólaskyldunnar og skólaársins sem hvort tveggja væri stórt skref aftur á bak í þró- un skólamála á íslandi. gk-. í sambandi við merkingar á okk- ar vörum, því það sama á að ganga yfir allar vörur, hvort sem þær eru innlendar eða innfluttar. En nú erum við að vinna að merkingum á öllum okkar vör- um, svo ekki verði hjá komist að sjá hvort um hættuleg efni geti verið að ræða. Það skal tekið fram að við erum að sjálfsögðu ánægðir með að tekið sé á þess- um málum, en viljum að réttlæti sé framfylgt þannig að allir sitji við sama borð, hvað þetta varð- ar,“ sagði Þorsteinn. Kolbrún Haraldsdóttir hjá Holl- ustuvernd ríkisins sagði að Geisli frá Sjöfn hefði lent á þessum lista, sem valinn var af handahófi. „Þeir hafa brugðist mjög vel við og erum við ánægð með það,“ sagði hún. Þegar spurt var hvort Rúðuúði Frá Frigg félli ekki undir sama hatt og Geisli, sagði hún að eftir þeim upplýsingum sem hefðu fengist, innihéldi Rúðuúði ekki isopropan- ol eins og Geisli. „Ef tilteknar vör- ur innihalda ekki efni sem eru á lista yfir hættuleg efni, þarf ekki að merkja það sérstaklega,“ sagði hún. Hollustuvemd vinnur nú mikið í því að koma merkingum á hættu- legum efnum í rétt horf, „því þessi mál hafa verið í miklum ólestri. Bæði er það umtal meðal fólks og það hörmulega slys sem varð fyrir nokkru er lítið barn gleypti þvotta- efni, sem skaddaði það mikið inn- vortis,“ sagði Kolbrún Haralds- dóttir. Helgi Sigurjónsson hjá Frigg sagði að Rúðuúði innihéldi ekki isopropanol. „Það var notað fyrir um það bil 3 árum, en var síðan tekið út úr framleiðslunni. Hins vegar held ég að byrja ætti á að banna sölu á vörum sem merktar eru með hollensku, arabísku og jafnvel þýsku letri, því það skilja það fáir þýsku, að ekki sé talað um arabísku og hollensku," sagði hann. gej- Kennarar mótmæla Plöntusala í fulliun gangi ★ Barrtré, ýmsar tegundir ★ Lauftré, ýmsar tegundir, ★ Skrautrunnar, ýmsar tegundir ★ Berjarunnar, ýmsar tegundir ★ Limgerðisplöntur ýmsar tegundir, ★ Klifurplöntur, ýmsar tegundir ★ Skógarplöntur, ýmsar tegundir ★ Rósir. Leitið upplýsinga í síma 24047. Póstsendum um allt land. Aðalfundur Mjólkursamlags KEA verður haldinn fimmtudaginn 5. júní á Hótel KEA og hefst með hádegisfundi kl. 11.30. Dagskrá: Kl. 13.00. Fundarsetning. Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. ' Mjolkursamlag KEA Akureyri Simi 96-21400

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.