Dagur - 04.06.1986, Blaðsíða 9

Dagur - 04.06.1986, Blaðsíða 9
—íþróttiL Umsjón: Kristján Kristjánsson 4. júní 1986 - DAGUR - 9 Lands- banka- - segir Þorleifur Ananíasson fyrirliði KA í handbolta Eins og komið hefur fram í blaðinu gætu orðið miklar breytingar á handboltaliði KA fyrir komandi keppnistímabil. Dagur fékk fyrirliða liðsins á síðasta ári Þorleif Ananíasson í stutt spjall um þessi mál. „Ef menn eru að fara í skóla til annarra byggðalaga eða jafnvel til annarra landa er ekkert við því að segja þó að menn yfirgefi félagið. En ef ekki er um þannig ástæður að ræða þá veit ég ekki hverju menn eru að sækjast eftir. Við spilum í 1. deild, erum með flesta áhorfendur á leikjum okk- ar og erum með besta þjálfarann. Ég veit ekki hvað menn vilja meira,“ sagði Þorleifur. „Það hlýtur að vera helvíti hart fyrir stjórnarmenn sem leggja gífurlega mikla vinnu á sig að þurfa að horfa upp á það að missa menn til annarra félaga. Petta er svipað og að setja niður kartöflur og svo kemur einhver annar og stelur uppskerunni. Við í KA eigum að vísu unga og efni- lega stráka sem eru að koma í meistaraflokk en það er erfitt að byggja upp gott lið ef breyting- arnar eru mjög örar,“ hélt t>or- leifur áfram. - Nú var fyrrverandi þjálfari félagsins í bænum fyrir skömntu og eftir því sem næst verður kom- ist að reyna að fá menn til liðs við sitt nýja félag í Noregi. Hvað finnst þér um þannig vinnu- brögð? „Ég verð nú að segja það fyrir það fyrsta að ég vissi ekki að hann hefði verið að þessu. En ef það er rétt þá þætti mér það mjög óviðkunnanlegt ef fyrrverandi þjálfari liðsins er að koma í bæinn og læðast þar um í manna- leit. Ég er nú svo gamaldags að ég er orðinn ferlega þreyttur á öll- um þessum eilífu félagaskiptum hvort heldur sem er í handbolta eða fótbolta. En það er oft eina ráð sumra leikmanna til þess að komast í blöðin. Eitt er þó alveg ljóst að verð- um við að fá nýjan markvörð. Við eigum einn ungan og efnileg- an en hann hefur ekki enn öðlast þá reynslu sem þarf í 1. deildina. Við þurfum að geta stillt upp sterku 7 manna byrjunarliði og að eiga 1 góðan mann á bekknum. Ég tel að það myndi duga fyrir okkur. bað er ljóst að þeir Sigmar Þröstur og Erlendur Hermanns- son leika ekki með KA á næsta ári en ég á eftir að sjá að þeir hin- ir sem hafa verið nefndir í því sambandi séu farnir. Ég var nú einn af þeim sem var nefndur í því sambandi en ég ætla ekki að hlaupa undan merkjum. En ég tel bara að ég 37 ára gamall sé ekki nógu góður í 1. deildarlið KA. Hins vegar veit ég urn lið sem ég gæti örugglega komist í,“ sagði Þorleifur Ananíasson að lokum. Pess má geta að f>orleifur hefur spilað með meistaraflokki KA í 22 ár og leikið yfir 500 leiki með félaginu. hlaup N.k. laugardag, 7. júní kl. 11 fer fram Landsbankahlaup í tilefni 100 ára afmælis Lands- bankans. Þátttökurétt hafa allir krakkar sem fæddir eru 1975 og 1976. Hlaupinn verður 1.5 km. Keppt verður í einum flokki stúlkna og einum flokki drengja. Sigurveg- urum úr hvorum flokki er síðan boðið til Reykjavíkur 6. sept. til þátttöku í úrslitahlaupi. Skráning fer fram í Lands- bankanum, Strandgötu og Landsbankanum Kaupangi. Sumar- búðir ÍF Stjórn íþróttasambands fatl- aðra hefur ákveðið að starf- rækja sumarbúðir fyrir fatlaða í sumar. Verða þessar sumar- búðir á Laugarvatni og megin- áherslan lögð á íþróttir og úti- vist. M.a. verða kenndar íþróttir og leikir, farið í útreiðartúra og bátsferðir og á kvöldin verða haldnar kvöld- vökur. Svavar yfir en síðan Kristján. Að öðru leyti fór leikurinn að mestu fram á miðjunni. KA- menn börðust vel, misstu aldrei tökin á leiknum og unnu sann- gjarnan sigur eins og áður sagði. Leikurinn var nokkuð harður og fengu tveir KA-menn að sjá gula spjaldið og einn heimamað- ur. Þá braut Hinrik Þórhallsson mjög illa á einum Völsungi og varð að flytja hann á spítala. Hinrik slapp þar án þess að fá tiltal. Bestur KA-manna var Tryggvi Gunnarsson, sívinnandi allan leikinn og þefandi uppi mark- tækifæri. Hjá Völsungum stóð Birgir Skúlason upp úr, hann barðist eins og ljón allan leikinn. Dómari leiksins var Magnús Jónatansson og átti hann ekki góðan dag. HJ/KK Haldin verða tvö námskeið. Það fyrra frá 1.-11. ágúst og það síðara frá 12.-22. ágúst. Alls geta 39 þátttakendur tekið þátt í hvoru námskeiði. Kostnaður vegna þátttöku í sumarbúðunum er kr. 10.000 pr. þátttakanda. í því verði er m.a. innifalið ferðir milli Reykjavíkur og Laugarvatns, fæði, gisting og kennsla. Einnig afnot af hestum og bátum. Umsóknum um dvöl í sumar- búðunum verður að skila á sér- stökum eyðublöðum fyrir 20. júm' n.k. Þessi eyðublöð er unnt að fá á skrifstofu íþróttasam- bands fatlaðra, hjá svæðisstjórn- um um málefni fatlaðra, Ör- yrkjabandalaginu og aðildarfé- lögum þess og Sjálfsbjargarfélög- um um land allt. Ofangreindir aðilar veita einnig allar upplýs- ingar um sumarbúðirnar. „Ætla ekki að hlaupast undan merkjum, en tel mig orðinn of gamlan í 1. deildar lið KA.“ Það voru KA-menn sem höfðu betur í viðureigninni við Völsung í Mjólkurbikarnum í gærkvöld. Hér kljást þeir Erlingur Kristjánsson og Kristján Ol- geirsson um boltann. Enn skorar Tryggvi og KA áfram í bikamum Það var hart barist á Húsavík í gærkvöld er Völsungur og KA mættust í Mjólkurbikarkeppni KSÍ. KA-menn sigruðu með einu marki gegn engu og það var að sjálfsögðu Tryggvi Gunnarsson sem skoraði þetta þýðingarmikla mark fyrir KA. Leikmenn KA mættu ákveðnir til leiks og voru staðráðnir í því að selja sig dýrt. Völsungar voru aftur á móti frekar taugaveiklaðir í byrjun og það vantaði örlítinn baráttuneista í liðið. Á 20. mín. komst Tryggvi Gunnarsson einn inn fyrir vörn Völsungs eftir að rangstöðutakt- ík þeirra hafði brugðist og hann skoraði af miklu öryggi. Varnar- menn Völsungs stoppuðu þegar Tryggvi var kominn í gegn og biðu eftir flauti sem aldrei kom þar sem ékki var um rangstöðu að ræða. Eftir markið vöknuðu Völs- ungar aðeins til lífsins og Jónas Hallgrímsson framherji Völsungs fékk sannkallað dauðafæri eftir frábæra sendingu frá Kristjáni Olgeirssyni en honum brást bogalistin. KA-menn áttu einnig ágætis færi sem ekki nýttust. Völsungar mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og voru heldur frískari en KA-menn sem vörðust vel. Völsungar fengu tvö góð marktækifæri með skömmu millibili eftir hornspyrnur en mis- tókst í bæði skiptin. Fyrst skaut „Félagaskipti leikmanna oft eina ráðið til að komast í blöðin“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.