Dagur - 04.06.1986, Blaðsíða 11
Náttúrugripasafnið á Akureyri:
Hefur gustað meira um
safnið en oftast áður
Ársskýrsla Náttúrugripasafns-
ins fyrir árið 1985 hefur nýlega
borist blaðinu (8 bls. í fjölrit-
uðu formi), en þetta er 34.
starfsár þess (stofnað 1951). í
formála skýrslunnar segir
m.a.: „Á þessu ári hefur gust-
að meira um Safnið en oftast
áður, og er það auðvitað já-
kvætt út af fyrir sig. Hæfíleg
gagnrýni er nauðsynleg hverri
stofnun, og allt er betra en
þögnin og afskiptaleysið, sem
oftast hefur einkennt afstöðu
Akureyringa til þessarar stofn-
unar.“
Minnst er á afstöðu nokk-
urra bæjarfulltrúa til Safnsins,
og að stjórn þess hafí neyðst til
að skýra afstöðu sína og
starfsmanna þess, í greinar-
gerð sem birtist í blaðinu 6.
nóv. 1985.
„Þar kemur fram, að þróun
Safnsins hefur verið í fullu sam-
ræmi við þá stefnu, sem mótuð
var af Safnnefndinni um 1970, en
í henni áttu m.a. nokkrir bæjar-
fulltrúar sæti, og reglugerð Safns-
ins frá 1973, sem Bæjarstjórn
Akureyrar staðfesti.
Það verður því að teljast yfir-
lýst stefna bæjaryfirvalda á Akur-
eyri, að reka hér náttúrufræði-
stofnun, er gegni því þríþætta
hlutverki að vera a) sýningarsafn,
b) vísindaleg rannsóknastofnun,
c) upplýsinga- og þjónustustofn-
un. Þessum hlutverkum hefur
Safnið reynt að sinna, eftir því
sem takmarkað starfslið og allt of
þröngt húsnæði hafa leyft og gef-
ið tilefni til.“
í formálanum kemur einnig
fram, að núverandi forstöðumað-
ur Safnsins, Helgi Hallgrímsson
náttúrufræðingur, mun segja
forstöðumannsstarfinu lausu á
þessu ári.
Breytingar á starfsliði Safnsins
voru þær helstar, að Elín Gunn-
laugsdóttir grasafræðingur (frá
Kristniboðsfélag kvenna
á Akureyri:
Þakkir tii
velunnara
Kristniboðsfélag kvenna á Akurr
eyri þakkar öllum velunnurum
sínum fyrir gjafir til kristniboðs-
ins á liðnu ári. Alls söfnuðust
249.606 kr. Auk þess sem félags-
konur gáfu komu inn á fórnar-
samkomum kr. 88.106. Börn og
unglingar KFUM og K gáfu kr.
10.721. Minningargjafir voru kr.
36.000. Ágóði af kaffi og muna-
sölu var 57.824 og aðrar gjafir
námu kr. 23.876.
Verkefnin í kristniboðsstarfinu
í Kenýa og Eþíópíu eru óþrjót-
andi. Gjafirnar héðan hafa gert
kristniboðunum okkar kleift að
hjálpa mörgum í þeirra líkam-
legu og andlegu neyð. Það er
þakkarefni að fá að taka þátt í að
hjálpa þeim sem líður illa. Gott
er að mega reikna með stuðningi
Akureyringa einnig á þessu ári.
Drottinn launi ykkur öllum eftir
auðlegð sinni.
Fyrir hönd Kristniboðsfélags
kvenna, Ingileif Jóhannesdóttir
formaður, Grenivöllum 14,
Kjellrun Svavarsson gjaldkeri,
Akurgerði lc, Hanna Stefáns-
dóttir ritari, Brekkugötu 9.
Hofi í Hörgárdal), var ráðin
starfsmaður í fullt starf frá 1. júní
1985, en Jóhann Pálsson grasafr.,
sem gegnt hafði hlutastarfi, hætti
1. október og fluttist til Reykja-
víkur. Þá var forstöðumaður
Safnsins aðeins í Vi starfi frá 1.
júní.
Eitt helsta verkefni starfs-
manna Náttúrugripasafnsins á
árinu 1985, var skráning nátt-
úruminja í Eyjafirði og samning
skýrslu um það efni, eins konar
náttúrulýsingar fyrir þetta svæði.
(Sjá frétt í blaðinu 17. apríl
1986). Einnig var unnið að gróð-
urfarskönnun í umdæmi Akur-
eyrar og gróðurkorti af bæjar-
landinu, sveppasöfnun og rann-
sóknum íslenskra stórsveppa
o.fl. Voru þessi verkefni styrkt af
ýmsum aðilum.
Þess má geta, að Náttúrugripa-
safnið hýsir ekki einungis mikil
söfn náttúrugripa (t.d. um 50
þúsund eintök af jurtum), heldur
er þar og töluvert safn bóka og
tímarita um náttúrufræðileg efni,
ljósmyndasafn, þar sem er að
finna loftmyndir af öllu Mið-
Norðurlandi, kortasafn, og ýmis
heimildasöfn.
Safnið gefur út tímaritið Týli í
samvinnu við Bókaforlag Odds
Björnssonar á Akureyri, og
fræðilegt grasafræðitímarit á
ensku, sem nefnist Acta botanica
islandica, og hafa þau komið út
árlega undanfarin ár, auk þess
fjölrit og ársskýrslu.
í ársskýrslunni er gefið yfirlit
um fjárhag Safnsins 1985, og birt-
ir reikningarþess. Heildarútgjöld
stofnunarinnar voru um 2 millj.
kr., en þar af greiðir Akureyrar-
bær 1,3 milljónir. Hitt eru eigin
tekjur Safnsins, sem það aflar sér
með útseldri vinnu og styrkjum
ýmiss konar. Bæði tekjur og
gjöld fóru nokkuð fram úr áætl-
un, tekjur þó aðeins minna, svo
út kom um 70 þús. kr. halli á
rekstrinum.
Að lokum er rætt um tengsli
Safnsins við Lystigarð Akureyr-
ar, en þessar stofnanir hafa verið
nátengdar síðustu tvo áratugi,
haft sameiginlegt húsnæði með
sameiginlegum afnotum af skrif-
stofutækjum, bókasafni, plöntu-
safni o.fl., svo og sameiginlega
starfsmenn. Virðist því eðlilegt
og sjálfsagt að þessar tvær bæjar-
stofnanir tengist stjórnfarslega og
efnahagslega og myndi nýja nátt-
úrufræðistofnun, sem vel mætti
kalla „Náttúrufræðistofu Norður-
lands“.
Fer þá að vera tímabært að
hugsa fyrir byggingu handa þess-
ari starfsemi, í grennd við Lysti-
garðinn, eins og Safnnefndin hef-
ur gert tillögur um, þ.e. „Jónas-
arhús“, svo nefnt til heiðurs
fyrsta norðlenska náttúrufræð-
ingnum, Jónasi Hallgrímssyni
skáldi.
Vonandi sér nýkjörin bæjar-
stjórn Akureyrar sóma sinn í því,
að efla þessa menningarstofnun.
Viðskiptavinir
Hagkaups athugið
Verslunin verður lokuð á laugar-
dögum frá 01.06-01.09.
Aðra daga er óbreyttur opnunartími:
Mánudaga 9-18
Þriðjudaga 9-18
Miðvikudaga 9-18
Fimmtudaga 9-20
Föstudaga 9-19
HAGKAUP
Akureyri
■ fC juní 1986 - DAGOR ■» 11
Útihurðir, gíuggar
og gluggagrindur
Framleiðum útihurðir, glugga oggluggagrinduraf
mismunandi gerðum, kaupandi getur valið um
ýmsar viðartegundir, svo sem teak, oregon pine,
mahogni, furuo.fl. Gluggaviðgerðir
Allar hurðir og gluggagrindur eru með innfræst-
um þéttilista.
Sérsmíðum eftir ósk kaupanda.
Gerum verðtilboð.
Bílskúrshurðir
Bilskúrshurðajárn
dr
B0RKUR
1TRÉSMIÐJAN
F
Fjölnisgötu 1a
Akureyri
Sími 96-21909
Halló - Halló
Við sem byrjuðum í Gagnfræðaskóla Akureyrar
haustið 1952 (fædd '39) höfum ákveðið að
hittast 21. júní n.k.
Þeir sem ætla að vera með láti vita fyrir 10.
þessa mánaðar.
Upplýsingar gefa; Kolla,
sími 22293, Heiða, sími 21021, Ása sími 22172
og Rósa sími 21749.
Starfsmaður
óskast
til aksturs á blaðinu til blaðberanna.
Upplýsingar gefur Jóhann Karl Sigurðsson.
Strandgötu 31, sími 24222.
Okkur vantar
matreiðslumann
konu eða karl í tvo til þrjá mánuði í sumar. Fæði
og húsnæði á staðnum.
Uppl. gefur Gunnar Hilmarsson í síma 96-51151.
Hótel Norðurljós, Raufarhöfn.