Dagur - 10.06.1986, Síða 5
10. júní 1986 - DAGUR - 5
„Auðvitað
/ / • M
- sagði Bjami Hafþór Helgason sem
vann samkeppnina um Reykjavíkurlag
með lagi sínu „Hún Reykjavík“
„Ég er auðvitað mjög ánægður
með þennan sóma sem mér er
sýndur. Við getum orðað þetta
sem svo að við landsbyggðar-
menn höfum gefið höfuðborg-
inni þetta lag í afmælisgjöf,“
sagði Bjarni Hafþór Helgason,
sem á föstudagskvöldið vann
samkeppni á vegum Reykja-
víkurborgar um svo kallað
Reykjavíkurlag. En keppni
þessi var í tilefni af 200 ára
afmæli Reykjavíkur. Lagið
hans Bjarna Hafþórs heitir
Hún Reykjavík.
Bjarni Hafþór sagðist hafa átt í
fórum sínum hluta af grind í
þessu lagi, „og ég fór að velta því
svolítið fyrir mér, eins og ég geri
stundum þegar ég glamra á
píanóið sem ég er með á afborg-
unarlausu langtímaláni frá for-
eldrum mínum. Nú, mér datt í
hug að senda þetta lag í keppnina
og lauk þá við að gera sjálft lagið.
Þegar því var lokið heimsótti ég
mágkonu mína sem er borin og
barnfæddur Vesturbæingur og
við veltum fyrir okkur í sanjein-
ingu andanum í höfuðborginni,
sérstaklega Austurstrætinu og
stemmningunni þar. Eftir þessar
samræður okkur settist ég niður
og samdi textann. Það var nokk-
uð erfitt skal ég segja þér. Það er
erfitt að búa til texta sem krefst
þessarar tegundar af stemmningu.
Eins var dálítið strembið að láta
textann falla vel að laginu eins og
það var orðið.“
- Var þetta ekki dálítið spenn-
andi?
„Jú, það var mjög spennandi
að sitja þarna innan um þekkta
landsliðspoppara og fylgjast með
upplestri úr umslögum. Það var
sérstök tilfinning.“
- Getur þú lýst henni nánar?
„Það held ég ekki. Einhver
orðaði það við mig af hverju ekki
hefði verið tekið við mig viðtal á
staðnum. Ég þakka guði fyrir að
það var ekki gert, það hefði
örugglega farið framhjá mér og
ekki komið eitt einasta orð af viti
út úr því.“
- Þú fékkst 100 þúsund krónur
í verðlaun. Heldurðu að þú verð-
ir ekki í vandræðum með að eyða
þessum peningum?
„Nei. Ég reikna með að þessi
peningur verði notaður í að
borga, borga, borga og borga!
Annars sagði konan mín að ef ég
ynni til verðlauna þá skyldi ég
nota þau til kaupa á hljóðfæri,
því eins og ég sagði áðan þá á ég
ekkert hljóðfæri, átti einu sinni
kassagftar sem er löngu farinn yfir
móðuna miklu. Það er bara
spurning hvort það sé á mína
nánustu leggjandi að ég sé að
berja á hljóðfæri meira en góðu
hófi gegnir. Án gamans, það er
alltaf nóg hægt að gera við þessa
peninga, gluggaumslögin hjálpa
manni til þess,“ sagði Bjarni Haf-
þór Helgason að lokum. -mþþ
Tónlistarskólinn:
Martin Berkofsky og
Anna Málfríður
- halda tónleika í kvöld
Píanóleikararnir Martin Ber-
kofsky og Anna Málfríður Sig-
urðardóttir halda tónleika í sal
Tónlistarskólans á Akureyri
þriðjudagskvöldið 10. júní og
hefjast tónleikarnir kl. 20.30.
A fyrri hluta tónleikanna leika
þau píanóverk fyrir fjórar hendur
eftir Franz Schubert og á meðal
þeirra er „fantasía“, sem Schu-
bert samdi 13 ára gamall, og er
það fyrsta verkið sem hann samdi
fyrir fjórhendur. Eftir hléið leik-
ur Martin Berkofsky eitt stór-
brotnasta og um leið fegursta
verk sem samið hefur verið fyrir
píanó, en það er h-moll sónatan
eftir Franz Liszt.
Anna Málfríður kenndi píanó-
leik við Tónlistarskólann á Akur-
eyri um árabil og hefur leikið á
fjölmörgum tónleikum, bæði sem
einleikari og í samleik með
öðrum.
Martin Berkofsky er tónlistar-
unnendum að góðu kunnur og
hefur hann haldið tónleika við
mikla hrifningu og lofsamlega
dóma víða um heim. Hann hefur
verið leiðbeinandi á sumarnám-
skeiðum við Tónlistarskólann á
Akureyri, og stendur einmitt
eitt slíkt yfir þessa dagana, með
þátttöku píanónemenda víða af
landinu.
Píanótónleikarnir á þriðju-
dagskvöld eru haldnir til fjár-
öflunar fyrir píanónámskeiðið.
Martin
Berkofsky
er einfalt!
„Ánægðir viðskiptavinir‘ ‘
Nú hefur Skipadeild Sam-
bandsins stórbætt þjón-
ustu sína við Norðlend-
inga og ráðið markaðs-
fulltrúa á Akureyri.
Skipadeild Sambandsins
hvetur viðskiptamenn
sína og aðra sem áhuga
hafa, að kynnast kostum
þeim og kjörum sem nú
bjóðast í flutningum.
Skipadeild Sambandsins
Helgi Sigfússon markaðsfulltrúi
sími 21400 og 22397 • Telex: 2195