Dagur - 10.06.1986, Side 9
10. júní 1986 - DAGUR — 9
Leó Örn Þorleifsson leikmaður 6. flokks KA í knattspyrnu og Davíð Jóhannsson formaður KRA fyrir framan nýju
„Hefur vantað sigur-
vilja í liðið til þessa“
- segir Baldvin Guðmundsson markvörður Þórs - Þórsarar
fá Eyjamenn í heimsókn í kvöld í 1. deildinni
Þórsarar fá Eyjamenn í heim-
sókn í kvöld í 1. deildinni í
knattspyrnu. En leik liðanna
sem átti að fara fram þann 24.
maí síðastliðinn var frestað þá
vegna Reykjavíkurleikanna í
knattspymu.
Eyjamenn sitja á botni deildar-
innar eftir fjóra leiki, hafa aðeins
fengið eitt stig. Þeir gerðu jafn-
tefli heima gegn UBK fyrir
skömmu. Þórsarar eru ekki langt
Baldvin Guðmundsson markvörður
Þórs.
undan Eyjamönnum þeir eru í
næstneðsta sæti einnig eftir fjór-
ar umferðir og hafa fjögur stig.
Unnu Val hér heima í fyrsta leik,
gerðu jafntefli við Víði úti en
töpuðu fyrir Fram í Reykjavík og
nú um helgina fyrir KR á heima-
velli.
Það er því ljóst að útlitið er
ekkert allt of bjart fyrir Þórsara
og því síður fyrir Eyjamenn. Það
má því búast við miklum baráttu-
leik í kvöld. Til greina kom að
leikurinn færi fram á Akureyrar-
vellinum en þar sem tíðarfar hef-
ur verið afleitt nú síðustu daga
hefur leikurinn verið færður á
grasvöll Þórs við Glerárskóla.
Hvar svo sem leikið verður dugir
Þórsurum ekkert annað en sigur í
kvöld ef þeir ætla að blanda sér í
toppbaráttuna eins og til stóð í
upphafi móts.
Dagur hafði samband við
Baldvin Guðmundsson markvörð
Þórs og spurði hann út í leikinn i
kvöld.
„Leikurinn leggst ágætlega í
mig. Þó þykja mér það slæmar
fréttir ef við fáum ekki að leika á
aðalvellinum. En hvar sem leikið
verður verðum við að vinna
leikinn. Hingað til hefur okkur
vantað þann kraft og þann vilja
sem þarf til þess að vinna sigur og
því er staðan ekki betri en hún
er. Aðalástæðan fyrir þessu held
ég að sé, að okkur gekk vel í
fyrra og því haldi mannskapurinn
að þetta komi af sjálfu sér í ár.
Málið er bara ekki svona einfalt.
Þó okkur hafi gengið ágætlega í
fyrra þá hjálpar það okkur
ekkert í ár. Við verðum að hafa
fyrir hlutunum. Það vantar alla
grimmd og ákveðni í liðið í dag.“
- Hvað með framhaldið, ertu
bjartsýnn á góðan árangur Þórs í
sumar?
„Ef góður árangur á að nást þá
þarf hugarfar leikmanna mikið
að breytast. Ef það gerist getum
við náð langt. Þó á ég ekki von á
betri árangri en í fyrra. Við erum
með marga unga leikmenn sem
hafa litla reynslu í hinni hörðu
baráttu 1. deildar. En í knatt-
spyrnu getur allt gerst og maður
bara vonar það besta. Þetta er þó
fyrst og fremst spurning um
hugarfar og vilja til þess að gera
hlutina,“ sagði Baldvin Guð-
mundsson.
Eins og áður sagði fer leikur
Þórs og ÍBV í kvöld fram á gras-
velli Þórs og hefst kl. 20. Eru
bæjarbúar hvattir til að mæta og
hvetja Þórsliðið til sigurs.
Colin
farínn
Cokin Thacker enski varnar-
maðurinn sterki sem leikið
hefur með knattspyrnuliði KS
undanfarin ár er farinn heim til
Englands.
Colin sem hefur verið einn
besti leikmaður KS í 2. deildinni
varð að yfirgefa landið snögglega
af persónulegum ástæðum og er
óvíst hvort hann leikur meira
með KS-liðinu í sumar. Siglfirð-
ingar binda þó miklar vonir við
að hann verði mættur sem fyrst í
slaginn á ný.
„Höfum sett
á 1. deild
stefnuna
a
—segir Þorvaldur Þorvaldsson þjálfari kvennaliðs KA í knattspyrnu
ny
IsKAíl
íí
Kvennalið KA sem spilaði í 1.
deild á síðasta keppnistímabili
féll þá og leikur í 2. deild í
sumar. Keppnin í 2. deild
kvenna er hafin og er leikið í
Akureyrarmótið í knattspyrnu:
Keppt um nyja glæsi-
lega bikara
Stjórn Knattspyrnuráðs Akur-
eyrar hefur fengið nokkur
fyrirtæki hér í bæ til þess að
gefa bikara sem keppt verður
um í sumar í Akureyrarmótinu
í knattspyrnu. Bikarar þessir
vinnast ekki til eignar og verð-
ur keppt um þá árlega næstu
10 árin. Þeir eru allir eins,
mjög glæsilegir og koma allir
flokkar félaganna til með að
keppa um þá.
A fundi sem KRA bauð til fyr-
ir helgi var dregið um það hvaða
bikar yrði tengdur hvaða fyrir-
tæki. Mættu nokkrir ungir knatt-
spyrnumenn til þess að draga um
það. Einnig voru nokkrir blaða-
menn á staðnum auk stjórnar-
manna KRA. Fyrirtækin sem
gáfu bikarana drógust á eftirfar-
andi flokka:
6. flokkur: Kaffibrennsla Akureyrar.
5. flokkur: Útgerðarfélag Akureyringa.
4. flokkur: Ferðaskrifstofa Akureyrar og
Sérleyfisbílar Akureyrar.
3. flokkur: Kaupfélag Eyfirðinga.
2. flokkur: Hellusteypan.
1. flokkur: Sjóvá.
Meistaraflokkur: Kaupfélag Eyfirðinga.
Telpnaflokkur: NT umboðið.
Yngri flokkur kv: Trésmíðavinnustofan
Þór h/f.
Meistaraflokkur kv: Gullsmíðastofa Sig-
tryggs og Péturs.
Old boys: Búnaðarbanki íslands.
Firmakeppni: Bílasalan h/f.
Hver bikar verður afhentur að
loknum hverjum leik í Akureyr-
armótinu og síðan fá sigurvegar-
ar í hverju flokki afhentan verð-
launapening í lokahófi KRA í
haust.
Fyrstu leikirnir í Akureyrar-
mótinu fara fram þann 29. júní
en þá leika 6. flokkur KA og
Þórs. Eru þrjú lið í þessum
flokki, a, b og c.
Stjórn KRA skipa: Davíð
Jóhannsson formaður, Páll A.
Magnússon varaformaður, Gest-
ur Davíðsson ritari, Sveinn
Björnsson gjaldkeri og þeir Árni
Arason og Haukur Asgeirsson
meðstjórnendur. Til vara eru Páll
Leósson, Kristján Davíðsson,
Jónas Hallgrímsson, Sverrir Har-
aldsson, Níels Halldórsson og
Kristinn Kristinsson.
Stjórn KRA vill þakka fyrir-
tækjunum fyrir stuðninginn og þá
sérstaklega þeim Sigtryggi og
Pétri en þeir hafa reynst KRA
mjög vel við útvegun verðlauna í
mótum KRA.
tveimur 7 Iiöa riðlum. KA átti
að leika sinn fyrsta leik um síð-
ustu helgi gegn liði Stokkseyr-
ar en þeim leik var frestað.
Um næstu helgi leikur KA því
sinn fyrsta leik í deildinni og þá
gegn liði Grundarfjarðar.
Þjálfari KA-stelpnanna er Þor-
valdur Þorvaldsson. Dagur hafði
samband við hann og spurði hann
um komandi tímabil.
„Þetta hefur gengið mjög vel
hjá okkur í vor. Eg hef 15-20
manna hóp sem hefur æft reglu-
lega og stelpurnar hafa lagt sig
vel fram. Við höfum spilað
nokkra æfingaleiki í vor og hefur
gengið mjög vel í þeim, þannig
að ég get ekki annað en verið
bjartsýnn.
Við höfum sett stefnuna á að
endurheimta sæti okkar í 1. deild
og ég tel góða möguleika á að
það takist. Það gerist þó ekki
nema að stelpurnar haldi haus og
spili af fullri skynsemi út mótið.
Það verður erfitt að sækja lið eins
og Stokkseyri og Grundarfjörð
heim en KA-stelpurnar
komnar með góða reynslu þannig
að það á ekki að setja þær út af
laginu,“ sagði Þorvaldur.
Eins og áður sagði er leikið í 7
liða riðlum og efstu liðin í hvor-
um riðli vinna sér sæti í 1. deild
að ári en leika innbyrðis um
sigurinn í 2. deildinni.
IU I
»»m
eru
Þorvaldur Þorvaldsson þjálfari
kvennaliðs KA í knattspymu.
Staðan
Staðan í b
eftir leiki
þessi:
Reynir Á-Leiknir F
Valur Rf-TindastóII
Austri E-Leiftur
Magni-Þróttur N
riðli 3. deildar
helgarinnar
er
2:0
0:1
1:2
0:2
Leiftur
Þróttur N
Tindastóll
Reynir Á
Magni
Austri E
Valur Rf
Leiknir F
3 3-0-0 8:1 9
3 2-1-0 7:1 7
2 1-1-0 3:2 4
3 1-1-1 4:4 4
2 1-0-1 2:3 3
2 0-1-1 2:3 1
2 0-0-2 0:5 0
3 0-0-3 1:8 0
Markahæstir:
Marteinn Guðgeirsson, Þrótti 3
Óskar Ingimundarson, Leiftri 3
Sigurbjörn Jakobsson, Leiftri 3
bikarana sem keppt verður um í sumar.
Mynd: KK