Dagur - 11.06.1986, Síða 11

Dagur - 11.06.1986, Síða 11
11. júní 1986 — DAGUR — 11 Þingvallabökin - Handbók um helgistað þjóðarinnar eftir Björn Þorsteinsson sagnfræðing Bókaklúbbur Arnar og Örlygs hefur gefið út Þingvallabókina - Handbók um helgistað þjóðar- innar eftir prófessor Björn Þor- Aldan- Voröld gaf 20 þús. Kvenfélagið Aldan-Voröld í Öngulsstaðahreppi hefir sent kirkjunni kr. 20.000,00. En nú stendur yfir mikil viðgerð á þess- um forna og sögufræga helgi- dómi. Kemur því slíkur ræktar- skapur sér harla vel. Verður kirkjan öll klædd utan að nýju, aurstokkar endurnýjaðir og ann- að lagað, sem laga þarf. Mun þetta að sjálfsögðu kosta mikið fé. Þess má geta í leiðinni, að kirkjan hefir reynst mörgum góð til áheita. Hafi kvenfélagið Aldan-Vor- öld heilar þakkir fyrir sínæ rausnarlegu gjöf. Megi því jafnan ganga allt í haginn. Sóknarnefnd og sóknarprestur. steinsson sagnfræðing. Efni bókarinnar er mjög fjölbreytt. Þar er að finna sagnfræði, nátt- úrufræði, staðfræði, sögur og ljóð. Sérstakur kafli er um Þing- vallavatn eftir Sigurjón Rist vatnamælingamann og annar um gróður á Þingvöllum eftir Ingólf Davíðsson grasafræðing. Ásgeir S. Björnsson lektor ritstýrði verkinu. í Þingvallabókinni eru mörg yfirlitskort. Eitt þeirra er af þeirri útsýn sem getur að líta af efri barmi Almannagjár og eru nöfn fjallahringsins skráð á kortið. Örnefnakort er að finna í bókinni þar sem merkt er við 62 örnefni á Þingvöllum. Sérstök litmynd var tekin úr lofti yfir þingstaðinn. Á hana eru merktar 32 þingmanna- búðir auk fjölda örnefna. Þá er og loftmynd í lit sem sýnir leiðir og stíga á Þingvöllum sérstaklega ætluð þeim sem vilja skilja farar- tækið eftir, leggja land undir fót og njóta útivistar í guðs grænni náttúrunni. Einnig er vert að geta þess að í bókinni eru litmyndir teknar úr lofti af Birni Rúrikssyni sem hafa það megin verkefni að sýna jarðfræði Þingvalla. Auk framangreindra korta og mynda eru rúmlega 50 aðrar myndir og teikningar í bókinni, flestar í litum, og margar frá fyrri öldum og því hinar sögulegustu. Þingvallabókin er byggð á kafla um Þingvelli sem upphaf- lega kom út í bókinni Landið þitt ísland, U-Ö, en efni hans hefur verið stórlega aukið og endur- bætt. Margir hafa lagt verkinu lið sitt og má þar sérstaklega nefna þá Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti sem er manna stað- fróðastur á Þingvöllum, séra Ei- rík J. Eiríksson fyrrum þjóð- garðsvörð og séra Heimi Steins- son núverandi þjóðgarðsvörð. Þingvallabókin er prentuð í Prentstofu G. Benediktssonar en bundin í Arnarfelli hf. Kápu- mynd tók Páll Jónsson en kápuna hannaði Sigurþór Jakobsson. Þingvallabókin er handhæg ferðabók í sterku bandi. Hún er eins og áður segir gefin út af Bókaklúbbi Arnar og Örlygs en fæst einnig í bókabúðum. Til sölu Tilboð óskast í jörðina Hólkot í Ólafsfirði en hún er í um 3ja km fjarlægð frá kaupstaðnum. Margir möguleikar í búskap eða sem sumarbústaðaland. Hef kaupanda að einbýlishúsi við Ægisgötu eða Hríseyj- argötu. Vestursíða: Raðhúsaíbúð á tveimur hæðum með bílskúr, samtals um 150 fm. Skipti. Kringlumýri: Einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr. Hamarstígur: 4-5 herb. íbúð, afhending strax. Sólvellir: 3ja herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýli, ásamt bílskúr. Háhlíð: Mjög stór raðhúsaíbúð í byggingu, ath. skipti. Hólabraut: 4-5 herb. íbúð á efri hæð í tvíbýli. Eyrarlandsvegur: 5 herb. íbúð á neðri hæð. Tjarnarlundur: 2ja herb. íbúð. Afhending strax. Dalvík: Einbýlishús á tveimur hæðum samtals 104 fm. Fæst á mjög góðum kjörum. Furulundur: 3ja herb. íbúð á efri hæð, í tveggja hæða raðhúsi, 76 fm. Norðurgata: Einbýlishús á tveimur hæðum. Eiðsvallagata: 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Höfðahlíð: 3ja herb. eldra einbýlishús. 35 fm nýr sumarbústaður í vaðlaheiði. Skarðshlíð: 4ra herb. íbúð á fyrstu hæð, laus strax. Gránufélagsgata: Einbýlishús, hæð, ris og kjallari. Grunnflötur ca. 63 fm. Norðurgata: Efri hæð og ris, í tvíbýli. Afh. strax. Lyngholt: 3ja herb. neðri hæð. Símsvari tekur við skilaboðum allan sólarhringinn. Fasteignasalan hf Gránufélagsgötu 4, efri hæð, sími 21878 Opið frá kl. 5-7 e.h. Hreinn Pálsson, lögfræðingur GuAmundur Jóhannsson, víðskiptafræðingur Hermann R. Jónsson, sölumaður-------------- Norðlendingar seldist upp samdægurs ferðavelta Utsýnar ATH. Þetta tilboð hcfur ekki áhrif á verð annarra ferða. Það gildir aðeins fyrir pantanir á nokkrum viðbótarsætum í ákveðnum ferðum og sæti sem losna vegna forfalla með stutt- um fyrirvara. En ferð þín er tryggð fyrir þetta verð um leið og Útsýn tekur á móti staðfestingargjaldi. Enn er tækifæri fyrir þig að komast hjá rigningu og kulda í sumarleyfinu. -v- ,5 vo a?t e»»s »W° 19.^ a6.\ V«Vfet 3ja \v iWV» _vvs>° L»*° & '•v . „v. - ^ •v - ' f^ytt Ferðaskrifstofa Akureyrar h/f RÁÐHÚSTORGI 3 SÍMI 96-25000 Verðið er miðað við hreinlega og góða gistingu, eins og jafnan í Útsýnarferðum. [ íbúð fyrir 2 eða hótel með baði og morgunverði. Innifalið er flutningur milli flugvallar og gististaðar, aðstoð fararstjóra og aðgangur að allri dagskrá FRÍ-klúbbsins.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.