Dagur - 17.07.1986, Side 2

Dagur - 17.07.1986, Side 2
2 - DAGUR -17. júlí 1986 _v/'ðfa/ dagsins. ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI Sl'MI: 24222 ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 40 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT P. ÞÓRSDÓTTIR, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. leiðari.________________________ Að viðhalda vítahringnum Meðal þeirra röksemda sem andstæðingar þess að Byggðastofnun yrði flutt til Akureyr- ar hafa borið við er sú, að ekki sé til staðar úti á landi sú þekking sem starfsmenn slíkrar stofnunar þurfi að hafa. Rétt er að leiða hug- ann lítillega að þessari röksemd. Fyrir það fyrsta reyndi ekki nægilega á það hvort einhverjir starfsmenn stofnunarinnar voru alls ófúsir til að flytjast búferlum og af þeim sökum hefur þessi fullyrðing ekki við nægjanleg rök að styðjast. í öðru lagi var eng- an veginn útséð með það að ekki væru til vel menntaðir og hæfir menn, bæði í Reykjavík og á Akureyri, sem hefðu viljað takast á við verk- efnið og búa jafnframt á Akureyri. Þessar rök- semdir eru því fyrirsláttur og lýsa því ljóslega að stjórnvöld hafa engan vilja til að breyta því ástandi sem skapast hefur í byggðaþróun. Þá má gjarnan velta því ögn fyrir sér hvaða áhrif slíkur hugsunarháttur hefur almennt. Menntunarkerfið hér á landi er þann veg upp byggt> að þeir sem leita sér langskólanáms verða að sækja það til Reykjavíkur. Vegna þess að ekki hefur verið nægilega hugsað fyr- ir því að setja upp þjónustustofnanir út um landið, þar sem langskólamenntunar er kraf- ist af starfsmönnum, neyðist vel menntað fólk til að setjast að í Reykjavík, jafnvel þó það hefði mun meiri hug á því að setjast að í heimahögunum. Með því viðhorfi að ekki sé nægilega mikið af menntuðu starfsfólki á Akureyri til að takast á við þau verkefni sem Byggðastofnun á að annast, eru menn ein- faldlega að sætta sig við þennan vítahring og viðhalda honum. Ef einhver stofnun á landinu hefur það hlutverk að snúa þessu dæmi við þá er það Byggðastofnun. Hún hefur brugðist gjörsamlega í þessu grundvallarmáli. Akureyringar og landsbyggðarfólk almennt berst nú fyrir öðrum réttindamálum, sem er kennsla á háskólastigi víðar en í Reykjavík og þjónustumiðstöðvar fyrir Húsnæðisstofnun út um landið. Vafalaust verða sömu rökin not- uð og varðandi flutning Byggðastofnunar, að ekki sé nægilega menntað fólk annars staðar en í Reykjavík. En hvernig er við öðru að búast þegar öllum stofnunum sem þarfnast sérhæfðra og vel menntaðra starfsmanna er sjálfkrafa holað niður á einu landshorni, eins og um eitthvert náttúrulögmál sé að ræða? Þennan vítahring þarf að rjúfa. HS Flugkennarar Flugskóla Akureyrar. Talið frá vinstri: Sigurbjörn Arngrínisson, Baldvin Birgisson, Jóhann Skírnis- son, Armann Sigurðsson. „Okkar tímar em þeir langódýrustu á landinu“ - segir Jóhann Skírnisson, flugkennari hjá Flugskóla Akureyrar „Við erum með tvær vélar í daglegri kennslu. Það eru Tomahawk flugvélar sem eru sérhannaðar til kennsluflugs og þetta eru mjög góðar vélar. Svo höfum við aðgang að ann- arri vél til blindflugs, fjögurra sæta vél sem er búin öllum nútímablindflugstækjum auk þess sem hún er með loran-c og þetta er splunkunýtt verk- færi, '86 módel. Auk þessa höfum við aðgang að tveggja hreyfla vél og þannig mætti lengi telja. Það má því segja að við getum kennt hérna allt það sem okkur langar til,“ sagði Jóhann Skírnisson þegar Dag- ur hafði samband við hann til að forvitnast aðeins um Flug- skóla Akureyrar, en Jóhann er einn fjögurra flugkennara við skólann. „Svo má líka benda á að við- hald á vélunum er það sama og á vélum FN. Það er gott að það komist að, því það er eitt af því sem hefur verið mjög slæmt hjá mörgum flugskólum. Ég myndi segja að það væru aðeins tveir skólar á landinu sem reyna að hafa viðhald vélanna og þjónustu við nemendur í góðu lagi og það erum við og svo Vesturflug í Reykjavík. Annað er lélegt myndi ég segja." - Er vinsælt að læra að fljúga? „Já, já, blessaður vertu, þetta er alltaf dálítiö vinsælt. Við erum núna með yfir 20 manns á ísa- firði, en við erum með aðra vél- ina þar. Það er stærsta verkefnið okkar núna og alveg gífurlega mikið að gera í því. Það er nú heldur minna hér cn samt sem áður höfum við alveg nóg að gera. Við erum nú ekki mjög hrifnir af að flakka mjög mikiö um landið. Við tökum að okkur stað- bundin verkefni þar sem við get- um haft góða nýtingu á einni vél en það er eiginlega allt. Auk þess kennum við ekki á einkaflugvélar eins og tíðkast sums staðar fyrir sunnan, það hefur einfaldlega ekki gefið nógu góða raun. En það er mikið spurt um þetta utan af landi sern er ekki skrítið þegar athugað er að okkar tímar eru þeir langódýrustu á landinu.“ - Nú hefur maður samt heyrt að þetta sé dálítið dýrt. Flvað segirðu um það? „Sunium finnst allt dýrt og ég get kannski viðurkennt að þetta er ekkert ódýrt. En það breytir engu um að okkar tímar eru um 600 krónum ódýrari en gengur og gerist fyrir sunnan. Einn tími kostar um 2400 krónur. Svo geta menn fengið 10% afslátt með því að kaupa tíu tíma í einu og þá kostar tíminn 2182 krónur og það er það alminnsta sem til er á landinu." - Hvað þarf maður marga tíma? „Skólalágmarkið er 15 tímar ef menn fljúga mjög stíft og eru heppnir með veður. En ef menn eru að taka einn og einn tíma þá þarf svona á bilinu 15-25 tíma. Pá eru menn komnir með eins konar æfingaleyfi. Það má segja að gamla sólóprófið sé orðið úrelt. Þetta æfingaleyfi veitir í raun lítil réttindi. Það er bundið við að fá uppáskrift hjá flugkennaranum og einnig fyrirmæli þannig að þetta er í rauninni ekkert próf heldur æfingaleyfi, eins og ég sagði áðan. Að fljúga einn er óhjákvæmilegur þáttur í flug- námi og þetta veitir mönnum réttindi til þess og þá undir ströngu eftirliti. Næsti áfangi er síðan einkaflugmannsprófið, eða A prófið eins og það var kallað, og til þess að ná því þarf u.þ.b. 70 tíma. Það veitir gríðarlega mikil réttindi, t.d. máttu fljúga 747 ef þú hefur efrii á því. En við erum með meira, við erum eiginlega meö alla kennslu hér sem menn vilja. Við erum með einkaflugmanns- og atvinnu- próf, við kennum blindflug og undirbúum menn fyrir flugkenn- arapróf og einnig tökum við menn í fjölhreyflapróf ef því er að skipta. Þá á ég við fyrir tveggja hreyfla vélar því við höf- um ekki aðgang að stærri vélum.“ - En er þetta ekkert hættu- legt? „Nei, síður en svo.“ - Geta allir tekið flugpróf? „Það þarf læknisskoðun fyrir einkaflugmannspróf og flug- nemapróf og hún er ekki ströng, að ég held. Ef menn eru sæmilega heilbrigðir á sál og líkama þá er þetta lítið mál, menn mega t.d. nota gleraugu eða linsur ef þeir hafa fulla sjón með því. Annars þekki ég þetta ekki mjög vel, það eru náttúrlega læknar sem dæma um þetta.“ - Hvað er framundan hjá Flugskóla Akureyrar? „Við reynum að halda hér áfram uppi fullum dampi, það eru engar breytingar í vændum, eða engar stórvægilegar a.m.k. Það verða alltaf einhverjar breyt- ingar milli ára.“ - Eitthvað að lokum Jóhann? „Ekki nema að ég vil leggja áherslu á að þetta er fyrir alla. Það er til saga af áttræðri konu sem var að taka blindflugstíma og þegar hún var spurð hvort henni fyndist þetta borga sig þá sagðist hún ætla að fljúga í a.m.k. 20 ár til viðbótar.“ JHB

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.