Dagur - 31.07.1986, Síða 6
6 - DAGUR - 31. júlí 1986
A hverju hafa unglingar nútím-
ans áhuga og hvaö gera þeir í
tómstundum sínum? - Hefur
þetta fólk aðeins áhuga á að
stunda skemmtanalífið og leika
sér eða sækist það frekar eftir
því að komast í snertingu við
æðri málefni?
- Og hvert ætla svo blessuð
börnin um verslunarmannahelg-
ina sem loksins fer í hönd?
Verslunarmannahelginni hefur
svo sannarlega verið beðið eftir.
Margir sækja Ijúfar minningar til
Atlavíkur (Alkavíkur), sem gert
hefur garðinn frægan undanfarin
ár, því þá upgötvaði fólk allt í
einu þessa draumavík og um leið
að Austfirðir væru til. Menn létu
sig ekki muna um að keyra hálf-
ónýta vegi þangað, í eigin bíl eða
með rútu. Sjaldan var stoppað á
leið til Víkur og útsýnið fór oft fyrir
ofan garð og neðan, sérstaklega
eftir því sem líða tók á ferðina.
Þegar komið var loks á leiðar-
enda varð að draga upp stóra
seðla til að komast inn á svæðið.
Veðurguðirnir voru misjafnlega
blíðir í þessum túrum en fólk fékk
þó alltaf að njóta náttúru staðar-
ins og það er náttúrlega fyrir öllu.
Ungt fólk sem ætlaði að
skemmta sér og eignast góðar
minningar í nærveru frábærra
skemmtikrafta lét veðrið ekkert
á sig fá. - Sumir voru nú samt
orðnir þreyttir á rigningunni og
drykkjuskapnum þegar líða tók á
helgina og vildu fara að drífa sig
í bað. Þá þurfti að fara til Egils-
staða og bíða í ösinni sem þar
hafði myndast á baðstöðunum
Helgin leið og haldið var heim
- nú var oftar stoppað á leiðinni,
Allt um áhugamál og
verslunarmannahelgina
enda margir hálf bílveikir. Það
var gott að koma heim aftur og fá
sér að borða, þetta hafði verið
lífsreynsla útaf fyrir sig. Nóg um
Atlavík.
Um daginn þegar við skrupp-
um til Dalvíkur töluðum við við
nokkra unglinga, sem þar voru
staddir á balli, um áhugamál
þeirra og áform þeirra um næstu
helgi „Versló".
Ásdís Ósk Valsdóttir
17 ára, Dalvík.
- Hver eru þín áhugamál?
„Það er bara allt milli himins og
jarðar."
- En áttu þér einhverjar tóm-
stundir utan vinnu?
„Nei, ég bara slappa af.“
- Hvar vinnurðu?
„Ég vinn á frystihúsi KEA hér á
Dalvík."
- Er gott að vera þar?
„Það er alveg magnað."
- Notarðu sumarkaupið til
þess að njóta lífsins eða ertu að
safna fyrir skólaútgjöldum?
„Éa er að safna fyrir skólann."
- I hvaða skóla ert þú?
„Ég er í MA og fer á stærð-
fræðibraut."
- Ertu búin að fara í ein-
hverjar útilegur í sumar?
„Já, ég skraþp í Vaglaskóg um
daginn, ég myndi kalla það
svona hálfgerða útilegu."
- Hvað á svo að gera um
verslunarmannahelgina?
„Ég hugsa að ég geri ekki
neitt. Mig langar til Vestmanna-
eyja en ég hef ekki efni á því að
fara þannig að ég hugsa að ég
fari bara ekki neitt.“
Jón Skjöldur Karls-
son og Ari Theódór
Jósepsson.
- Segið okkur fyrst frá áhuga-
rriálum ykkar?
Ari: „Hjá mér er það bara allt
fyrir neðan belti.“
Báðir í kór: „Það er vinna,
skemmta okkur og prófa eitthvað
nýtt, nú svo að velta bílnum."
- Hver er ykkar tómstundaiðja
utan vinnutíma?
Jón Skjöldur Karlsson og Ari Theódór Jósepsson.
Halldór K. Jónsson og Kristinn Jakob Bjórnsson.
Maður að nafni Jón Óðinn Óðinsson, kallaður Ódi, er
viðmælandi okkar í þetta sinn. Pilturinn hefur einn síns
liðs og kauplaust, annast þjálfun júdódeildar KA síðast-
liðin þrjú ár, - geri aðrir betur.
- Hvað er júdó?
„Hvað er mikið pláss í blað-
inu? Það er erfitt að svara
þessu í stuttu máli en eins og
júdó er iðkað í Evrópu þá er
það bara iþrótt sem byggir á
mjög ströngum reglum þar
sem mönnum er refsað harð-
lega gegn hverju broti.“
- En á þessi íþrótt sér ekki
einhvern sérstakan tilgang?
„Þetta er fyrst og fremst
iþrótt sem byggir á sama
hátíðlega prinsip og aðrar
íþróttir þ.e. að göfga hugann
og bæta líkamlegt ástand. Svo
getur þetta líka verið ákveðinn
lífsstíll, þegar menn taka þá
heimspeki með sem fylgir
þessu og þá getur þetta verið
með sjálfsvarnarívafi en það
er að vísu mikið að hverfa.“
- Hvaðan er júdó upprunn-
ið?
„Það er upprunnið i Japan
og þýðir: Hin mjúka list.“
- Eru einhverjar sérstakar
kröfur gerðar til þeirra sem
stuna júdó?
„Nei, nei, það fer bara eftir
því hvað maður ætlar sér að
ná langt. Þetta er bara eins og
með aðrar (þróttir að ef menn
ætla að ná góðum árangri þá
þýðir ekkert að fara á fyllerí
um hverja helgi, maður verður
að vera bindindismaður og
taka þetta alvarlega. Annars er
náttúrulega hægt að „jogga“ í
þessu og þá þarf maður ekki
að neita sér um neitt.“
- Er þetta dýrt sport?
„Nei, þetta er ódýrt, það er
bara búningurinn sem kostar
um 2000 kr.“
- Er gott að stunda aðrar
íþróttir með fram júdóinu?
„Já, vissulega. Ef menn æfa
t.d. af krafti yfir veturinn þá
getur verið gott, til að mýkja
sig upp og fá smá tilbreytingu,
að vera í einhverju léttu sprikli
yfir sumarið meðfram æfing-
um.“
- Er þetta mest iðkað yfir
veturínn?
„Já, keppnistímabilið er þá.“
- Eru bara karlmenn i
þessu?
Jón Óðinn Óðinsson.
það er svolítið af
og verður vonandi
Við höfum bara ekki
veríð nógu kvensælir.“
- Segðuokkurnúaðeinsfrá
„beltaröðinni".
„Alþjóðlega beltaröðin er
þannig að þú byrjar með hvítt
belti og svo gult, orange,
grænt, blátt, brúnt og loks
svart. Þegar þú ert komin (n)
með svart belti kallastu fyrsti
dan, síðan er haldið áfram
með það þangað til maður er
orðinn sjötti dan. - Þá fær
maður rautt-hvitt belti og held-
ur því þangað til tíunda dan er
náð en tíundi dan ber svo rautt
belti sem er nokkurs konar
tákn um fullkomnun.
Prófstigin taka yfirleitt menn
komnir yfir fertugt og það hafa
sjö orðið 10. dan í heiminum. -
Það eru þrjátíu ár síðan sá síð-
asti var 10. dan, þeir hafa allir
verið komnir yfir nírætt sem
hafa náð þessum titli og þess
vegna ekki beint keppnis-
menn.“
- Þarf maöur þá ekki að
byrja mjög snemma til að geta