Dagur - 31.07.1986, Blaðsíða 7
Skjöldur: „Við vinnum svo mik-
ið að við gerum ekkert annað um
helgar en að rúnta, skemmta
okkur og sofa.“
Ari: „Sko, mitt mottó þegar ég
kem heim úr vinnunni er það að
ég legg mig fram að kvöldmat.
Svo er misjafnt hvað við Skjölli
gerum eftir kvöldmatinn, við
löbbum oft niður í bæ, rúntum
eða eitthvað."
- Er það stefnan hjá ykkur að
hafa það gott í sumar og njóta
lífsins?
„Já“. Ari: „Ég fer til Bandaríkj-
anna í sumar sem skiptinemi í
eitt ár og ég ætla að reyna að
njóta lífsins og hafa gaman af
þessu - maður verður að prófa
eitthvað nýtt.“
- Þið eruð ekkert að safna fyr-
ir skólann?
Skjöldur: „Jú, jú við fáum svo
mikið kaup að við skiljum bara
helminginn eftir fyrir skólann."
Ari: „Það fer svo mikill pening-
ur hjá mér í þessa Bandaríkja-
ferð að ég verð sennilega blank-
ur þegar ég fer aftur í skólann."
- Nú er verslunarmannahelg-
in framundan, hvað er ætlunin að
gera þá?
„Það er spurning . . . Það eru
þrír staðir sem koma til greina:
Fljótsdalur, Þjórsárdalur eða
Vestmannaeyjar. Við erum ekki
alveg búnir að gera það upp við
okkur hvert við ætlum."
- Þið saknið ekki Atlavíkurinn-
ar?
„Júhú, okkur er búið að langa
til Atlavíkur og við vitum um
marga sem langar þangað. Það
mundu örugglega flestir fara í
Atlavík ef eitthvað væri um að
vera þar.“
- Nokkuð að lokum?
Skjöldur: „Dalvík er toppstað-
ur, Frankie goes to Dalvík."
Ari: „Ég fer hingað út á Dalvík
til þess að hitta gamla kunningja
og fjölskyldufólk sem ég hef bara
ekki séð í mörg ár.“
Halldór K. Jónsson
og Kristinn Jakob
Björnsson
- Hvað á að gera um verslun-
armannahelgina?
„Það á kannski að fara í
Vaglaskóg."
náð langt í júdóínu? sem æfði mig og Gauta Sig-
„Nei, ég er búinn að vera í mundssen nemanda minn á
fjögur ár og er kominn með Laugarvatni nýlega, að Gauti
svart belti, - orðinn 1. dan. væri alveg á vel góðum stand-
Maður verður bara að taka ard á Evrópu mælikvarða,
þetta af krafti.“ aðeins fjórtán ára. Þetta sýnir
- Hvartakið þið próf í júdó? ab við erum greinilega á réttri
„Ég þurfti alltaf að taka próf leið.“
fyrir sunnan en núna eftir að ~ Heldur þú að júdóið eigi
ég er kominn með svart belti sér einhverja framtíð hérna,
þá má ég gráða menn alveg eru& ©kki í harðri sam-
upp í punkt - upp að því belti keppni við hinar íþróttagrein-
sem ég er með. Þetta sparar arnar?
okkur náttúrlega ómælda -Það er vissulega mikil sam-
fjármuni því áður þurftum við keppni milli íþróttagreina, sér-
alltaf að fara suður til að taka staklega þegar það eru litlir
þessi hærri belti.“ peningar í boði til að halda
- Er svipuð þjálfun og upp- íþróttum gangandi. En okkur
bygging hérna í júdóinu hjá hefur gengið mjög vel, það
ykkur og gerist annars staðar? hefur engin íþrótt á Akureyri
„Já, en að visu mótast okkar ne& eins góðum árangri og við
júdó svolítið af því að ég var undanfarið ár-dramb í þessu.
búinn að þjálfa í tvö ár áður en Uppgangur hjá okkur er gífur-
ég sá júdó annars staðar á lega mlklll svo framtíðin er
landinu, þannig að við förum greinilega okkar. Það eru 80
að mörgu leyti svolítið öðruvísi manns sem stunda júdó hérna
að en aðrir. Þjálfunin hefur °g erum næststærsta
samt gengið mjög vel þannig júdófélag á landinu.“
að við breytum henni ekkert. ~ 9^ ert Þu aðalgæinn á
Svona til marks um það á bak við þetta allt saman?
hvaða standard við erum, þá „Aðalgæinn? - Segjum
sagði einn tékkneskur þjálfari Þaö “
, Halldór: „Fyrst þaö verður ekk-
ell í Atlavík verður sennilega far-
ið til Vestmannaeyja."
- Eruð þið búnir að skemmta
ykkur mikið í sumar?
Jakob: „Nei, ekki mikið. Maður
hefur aðalleaa verið á sjó.“
Halldór: „Eg er á sjó á sumrin
og reyni að slétta úr klaufunum
þess á milli en er svo í skóla á
veturna."
- Eigið þið ykkur eitthvert
sérstakt tómstundagaman?
Jakob: „Bassaleik."
Halldór: „Það er það sama
hér.“
- Eruð þið þá í hljómsveit?
Halldór: „Ekki eins og er.“
Jakob: „Ég er bara í kókhljóm-
sveit, við komum saman hérna
nokkrir á Dalvík af og til.“
- En áhugamál?
Halldór: „Helsta áhugamál mitt
núna er að fljúga. Ég leigi mér
vél.“
Jakob: „Aðaláhugamál mitt er
að stunda teygjur."
Fjóla Magnúsdóttir
- Ertu búin að plana verslun-
armannahelgina?
„Ég er að hugsa um að fara í
Vaglaskóg. Það ætlar um helm-
ingur héðan frá Dalvik þangað,
helmingurinn af þeim sem eitt-
hvert ætla. Ég held að hinn helm-
ingurinn ætli til Vestmannaeyja."
- Er þá eitthvað sérstakt um
að vera í Vaglaskógi?
„Nei, það verður ekkert sér-
stakt um að vera þar. Þetta er
bara ódýrasta leiðin til að
skemmta sér um verslunar-
mannahelgina á almennilegan
hátt. Hvort sem fólk skellir sér
svo á ball á Laugar eða hvað það
gerir!
- Fórstu í Atlavík í fyrra?
„Nei, ég lá heima með lungna-
bólgu í fyrra en ætlaði í Atlavík
annars.“
- Sérðu eftir að hafa misst af
því?
„Alls ekki, ég frétti af Atlavík
eins og hún var í fyrra og mig
langaði alls ekki til að vera þar.“
- Áttu þér eitthvert áhuga-
mál?
„Já, helst áhugamál mitt er
Ijósmyndun. Ég tek myndir hérna
( kring því það er mjög stórbrotið
umhverfi sem við höfum hérna."
- Eru eitthverjir klúbbar starf-
ræktir hér og þá kannski Ijós-
myndaklúbbar?
„Nei, það er í skólanum. Ég er
ekki lengur í skóla hérna og tek
þess vegna mínar Ijósmyndir hér
og þar um bæínn og í umhverf-
inu í kringum hann.“
- Hefur þú eitthvers staðar
komið þessum Ijósmyndum á
framfæri?
„Nei, ég hef reyndar ekki gert
það ennþá en ég ætla að gera
það.“
- Hvað gerir þú á sumrin?
„Ja, ég er svona hálfgerður
heimshornaflakkari. Ég er hérna
svona annað slagið og hef búið
hér alla mína tíð en hef svo verið
hér og þar um landið. Undanfarið
hef ég verið að vinna í frystihús-
inu hér og á Sæluhúsinu og tek
svo myndir í frístundum."
- Er algengt að unglingarnir
hérna vinni í frystihúsinu?
„Já, það er t.d. mjög mikiö um
það að skólakrakkar komi og
vinni í frystihúsinu yfir sumarið,
það er mest upp úr því að hafa.“
- Hvað gera krakkarnir sér
annars yfirleitt til dundurs?
„Það er mjög mikið um íþróttir
hérna, sérstaklega frjálsiþróttir.
Svo erum við með kvennafót-
boltalið og það er mikið um að
krakkar fari og syndi í sundlaug-
inni hérna þótt hún sé lítil."
31. júlí 1986 - DAGUR - 7
^spurning vikunnac.
Guðni Friðriksson:
Þetta er auðvitað ofboðslegur
yfirgangur hjá Bandaríkjamönn-
um og ég er hlynntur áframhald-
andi hvalveiðum innan skynsam-
legra marka.
Ingvar Guðnason:
Hvalveiðar (slendinga hafa orðið
til að stefna stofninum í hættu. Ég
er fylgjandi verndun dýrastofna,
en finnst að við eigum að nýta þá
skynsamlega. Þvinganir Banda-
ríkjamanna eru algerlega óhæf-
ar.
Sverrir Valgarðsson:
Mér finnst sjálfsagt að nýta þenn-
an stofn rétt eins og aðra stofna í
sjónum og held við höfum ekki
ofnýtt hvalastofninn. Bandaríkja-
menn eru þarna að skipta sér af
hlutum sem þeir eiga ekkert að
skipta sér af. Mér finnst þeir vera
farnir að ganga ansi langt þegar
þeir eru farnir að reyna að hafa
áhrif á hugsanir og skoðanir
manna út í heimi með þvingun-
um.
mm .
Hrafnhildur Hauksdóttir:
Mér finnst þetta hálf skrýtið allt
saman. Ég held að sé allt í lagi
með hvalveiðarnar, stofninn hafi
ekki vera ofnýttur. En íslending-
arnir verða auðvitað að geta selt
afurðirnartil að geta haldið þess-
um veiðum áfram. Þetta er bölv-
uö frekja í Bandaríkjamönnum.
Sveinbjörn Ragnarsson:
Ég er hlynntur þeim. Mér finnst
sjálfsagt að hafa kvóta á veiðun-
um, en ég held að sé mjög slæmt
fyrir íslendinga að missa þessa
tekjulind algerlega. Ég tel Banda-
ríkjamenn illa í stakk búna að
vera með hótanir þegar frést hef-
ur af háhyrningadrápi þeirra í
sambandi við túnfiskveiðarnar.
Hvað finnst þér um hvalveiðar
íslendinga og síðustu afskipti
Bandaríkjamanna af þeim?
___ (Spurt á Sauöárkróki)