Dagur - 31.07.1986, Page 9
31. júlí 1986- DAGUR -9
samþykkt stjórnar Byggðastofn-
unar frá ísafjarðarfundinum
ásamt greinargerð. Pessi sam-
þykkt er skýr og hún táknar tíma-
mót í afstöðu opinberra stofnana
til uppbyggingar opinberrar
þjónustu úti á landi. Greinar-
gerðin útskýrir vel hvað við er átt
með einfaldri ályktun. Ég er ekki
í vafa um að flestir Akureyringar
og aðrir Norðlendingar munu
skilja mikilvægi þessa máls þegar
þeir gefa sér tíma til að kynna sér
það. Vonandi verður þessi sam-
þykkt til þess að öflug stjórn-
sýsluútibú eða stjórnsýslumið-
stöð verði sett upp á Akureyri
sem geri Akureyringum margfalt
meira gagn en Byggðastofnun ein
sér. Sérstaklega vona ég þó, að
samþykktin leiði til þess að auka
megi opinbera þjónustu á veikari
stöðum en Akureyri er.
Ályktun stjórnar Byggðastofn-
unar hljóðar svo: Stjórn Byggða-
stofnunar beinir því til ríkis-
stjórnarinnar að finna þarf hag-
kvæmar leiðir til að efla og bæta
þjónustu ríkisins á landsbyggð-
inni. Leggur stjórnin til að komið
verði á samstarfi opinberra aðila
um starfsaðstöðu á ákveðnum
stöðum. Byggðastofnun lýsir sig
reiðubúna til að hafa forystu um
undirbúning slíks samstarfs.
Samþykktinni fylgir eftirfar-
andi greinargerð:
„Innan stjórnkerfis ríkisins á
Byggðastofnun að starfa sem
málssvari landsbyggðarinnar og
leggja fram þekkingu á ástandi
einstakra byggða, landshluta og
landsbyggðarinnar sem heildar.
Hlutverk Byggðastofnunar á
landsbyggðinni er að aðstoða
heimaaðila við þróunarstörf og
áætlanagerð eða vinna þessi störf
sjálf eftir atvikum. í slíkri starf-
semi er nálægð sú, sem felst í því
að hafa „mann á staðnum“ mjög
æskileg. Einnig er nauðsynlegt
fyrir starfsemi stofnunarinnar að
hafa sem nánasta snertingu við
og þekkingu á atvinnustarfsemi
og mannlífi á landsbyggðinni.
Það samræmist hlutverki
Byggðastofnunar að hafa for-
göngu um athuganir á hvernig
bæta megi starfsemi ríkisins úti á
landi án þess að það verði of
dýrt. Mikil nauðsyn er að fjölga
þjónustustörfum á landsbyggð-
inni. Auk þess getur bætt þjón-
usta ríkisins úti á landi sparað
einstaklingum sem fyrirtækjum
og sveitarfélögum verulegt fé og
bætt aðstöðu þeirra. Ekki er
heldur vafi á að við það að starfa
nær vettvangi mun þjónusta
ríkisins batna. Þá er það meðal
markmiða Byggðastofnunar að
auka þróunarstarfsemi úti á
landi.
Nú er rekin þróunarstarfsemi
af ýmsu tagi úti á landi, aðallega
á vegum landshlutasamtaka
sveitarfélaga, þróunarfélaga og
ferðamálasamtaka landshlut-
anna. Ríkið kostar ýmiss konar
ráðgjöf svo sem í iðnaði og land-
búnaði. Þessi starfsemi er á eng-
an hátt samræmd og mætti gera
hana miklu virkari með samræm-
ingu og samstarfi á hverju svæði
auk þess sem draga mætti úr
kostnaði. Ýmsum ríkisstofnun-
um, sem nú reka takmarkaða
starfsemi utan höfuðborgarinnar,
gæti hentað, að taka þátt í slíku
samstarfi til að bæta þjónustu
sína við landsbyggðina.
Skynsamlegt er að gera tilraun
með slíkt samstarf. Reynist það
vel, getur það síðar náð víðar,
allt eftir því sem við á. Lands-
byggðinni getur orðið styrkur af
slíkri samvinnu og einnig getur
hún orðið fjárveitingavaldinu,
öðrum ríkisstofnunum og
Byggðastofnun til hagræðis
vegna þess að mál landshluta
sveitarfélaga og fyrirtækja yrðu
mun betur undirbúin en nú er
þegar þau eru lögð fyrir þessa
aðila.“
_Jþróttir.:
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Knattspyrna:
Hvemig fækka
má gulum spjöldum
- Athugasemdir frá einum áhugasömum
Knattspyrnulög KSÍ eru lög
sem margir leikmenn mættu
kynna sér betur en raun er.
Hér á eftir fara nokkrar greinar
úr Knattspyrnulögum KSÍ og
vonar undirritaður að þær megi
verða leikmönnum og þeim er
knattspyrnu unna að einhverju
gagni. Kannski er mögulegt að
hægt verði að komast hjá óþarfa
gulum spöldum ef menn kynna
sér reglurnar til hlítar. Til að auð-
velda þeim er betur vilja kynna
sér einstakar reglur læt ég fylgja
með númer þeirra svo og blað-
síðutal. Þá er bara að skella sér í
reglurnar.
1. bls. 10.
Lærið lögin til hlítar. Aðeins á
þann hátt eruð þið fær um að
njóta leiksins. Ef allir leikmenn
hefðu fullan skilning á lögunum
og valdi dómarans, yrðu færri
árekstrar, sem oft leiða til þess að
leikmenn fá áminningu. Komi það
fyrir að leikmenn dragi niður
markás í þeim tilgangi að bjarga
marki, þá er það óprúðmannleg
framkoma, sem áminna ber fyrir.
2. bls. 13.
Kynnið ykkur sérstaklega hvern-
ig leikmannaskipti eiga að fara
fram. Þau verður að tilkynna
dómaranum og bíða leyfis hans
og þess að leikur sé stöðvaður.
Það sama gildir um markvarða-
skipti. Oft vill gleymast að til-
kynna leikmannaskipti, sem eiga
sér stað í leikhléi.
3. bls. 15.
Gangið úr skugga um að skór
sem þið kaupið séu í samræmi við
lögin. Athugið að úr, hringir eða
skartgripir kunna að skapa hættu
fyrir aðra leikmenn.
4. bls. 18.
Mótmælið ekki úrskurðum dóm-
ara þar sem lögin mæla svo fyrir
að áminna skuli fyrir slíkt.
Óprúðmannleg framkoma fyrir
og eftir leik, sýnd dómara eða
línuvörðum, er meðhöndluð svo
sem verið hefði í leiknum
sjálfum. Dragðu ekki að þér
athygli vegna smávægilegra
meiðsla. Dómari leyfir aðhlynn-
ingu á leikvelli ef meiðsli eru
alvarleg.
5. bls. 19.
Minnist þess að merki línuvarða
eru einungis ætluð dómaranum.
Hættið því ekki að leika fyrr en
dómarinn hefur stöðvað leikinn.
6. bls. 21.
Þegar dómari flautar, hlaupa
leikmenn mótherja gjarnan í átt
að knettinum áður en honum er
spyrnt. Aðgætið að þetta má ekki
þar sem leikur er ekki hafinn.
Hann hefst ekki fyrr en dómari
hefur gefið merki og knötturinn
hefur farið ummál sitt.
7. bls. 22.
Kynnið ykkur vel öll ákvæði
varðandi það hvernig mark er
löglega skorað.
8. bls. 28.
1. Lærðu vel hvert einasta
atriði þessarar greinar (12.
gr.) hún skiptir hvað mestu
máli fyrir þig, hún kennir
þér hvað má og má ekki þeg-
ar baráttan um knöttinn er í
algleymingi.
2. Hafðu eftirfarandi atriði í
huga, þau hjálpa þér til að
fylgja anda og bókstaf lag-
anna í leik þínum:
a) Hefndu þín aldrei þegar
þér finnst að á þér hafi
verið brotið, þá ert þú
einnig orðinn sekur, þú
gætir hlotið áminningu
eða verið settur útaf og
þín kann að bíða leik-
bann í næsta leik.
b) Stilltu þig um að kalla til
dómarans, að dæma.
Hann metur aðstæður
hverju sinni og oft kann
hann að vera að beita
hagnaðarreglu til hags-
bóta fyrir lið þitt.
c) Stilltu jafnan skap þitt.
Minnstu þess, að í knatt-
spyrnu má mótherjinn
hrinda þér með öxlinni.
Þú kynnir að detta þegar
þér er hrint, það þarf
ekki að hafa gerst neitt
ólöglegt vegna þess.
d) Láttu þér lynda úrskurð
dómarans. Lögin mæla
svo fyrir að þú skulir
áminntur látir þú í ljós
ósamþykki þitt í orðum
eða athöfnum.
e) Markverðir skyldu
kynna sér vel hver réttur
þeirra er inni á mark-
teig, það skyldu og aðrir
leikmenn gera og gæta
þess að brjóta ekki á
markverðinum.
f) Gerið aldrei tilraun til
að spyrna knettinum
þegar markvörður held-
ur honum, það er háska-
leikur.
9. bls. 30.
Verið þess minnugir að það er
óprúðmannleg framkoma að
tefja framkvæmd aukaspyrnu.
Dómurum er uppálagt að taka
strangt á hverri þeirri athöfn,
sem tefur fyrir því að leikurinn
geti hafist að nýju eftir að hann
hefur verið stöðvaður.
10. bls. 33.
1. Bíðið allir eftir merki dóm-
arans, þegar vítaspyrna skal
tekin og aðgætið að knöttur-
inn er ekki kominn í leik fyrr
en hann hefur farið ummál
sitt, en þá fyrst má mark-
vörðurinn hreyfa sig af
marklínu og aðrir leikmenn
mega þá fyrst fara inn á víta-
teiginn eða koma nær víta-
spyrnumerkinu en 9,15 m.
2. Áðgætið vel hvað lögin segja
um áminningar ef ranglega
er farið að við framkvæmd
vítaspyrnunnar.
3. Knetti skal alltaf spyrnt fram
á við þegar vítaspyrna er
tekin.
11. bls. 34.
Hæfnisnefnd KDSÍ hefur gert þá
breytingu um túlkun á röngu inn-
varpi, að sé innvarpið tekið frá
röngum stað, þá skuli það dæmt
rangt, ef frávik er meira en 1 m
og mótherjunum þá dæmt inn-
varpið. Það er óprúðmannleg
framkoma að spyrna eða kasta
burt knetti í mótmælaskyni, finn-
ist þér að innvarp hafi verið dæmt
af liði þínu.
Áhugamaður 70198568.
Golf:
Famous
Grouse
Um helgina fer fram 36 holu
keppni á Golfvelli Akureyrar,
mótið nefnist Famous Grouse og
gefst þarna tilvalið tækifæri fyrir
þá er ekki fóru suður á landsmót-
ið til að lyfta sér upp og slá 36
holur í góða veðrinu.
2. deild kvenna:
KA rótburstaöi ÍR
Það er ekki ofsögum sagt að
segja kvennalið ÍR hafa fengið
háðulega útreið gegn KA á
Þriðjudagskvöldið var. Eigin-
lega eru orðin - háðuleg útreið
- alltof veik því KA stelpurnar
ekki bara burstuðu heldur
hreinlega átu ÍR-ingana, úrslit-
in 21-0 sanna það heldur ræki-
lega.
KA liðið fékk eina sókn í
leiknum sem stóð í 80 mínútur
eða frá fyrstu mínútu og þangað
til leikurinn var flautaður af. Á
þessum tíma skoruðu stelpurnar
21 mark en áttu auk þess 6 stang-
arskot og mýgrút annara færa til
að gera sigurinn enn stærri - en
stelpurnar höfðu ekki heppnina
með sér.
Mörkin skoruðu þær Hjördís
Úlfarsdóttir 7, Helga Finnsdóttir
5, Valgerður Jónsdóttir 3, Borg-
hildur Freysdóttir 3, F.rla Sigur-
geirsdóttir 1, Sigrún Sigurðar-
dóttir 1 og Valgerðui Brynjars-
dóttir 1.
.... i;: 'v;' ' : .*
Hjördís skoraöi sjö mörk gegn ÍR,
SRA:
Skíðaferð í Kerlingafjöll
4. deild
Eins og áður hefur komið fram
ætlar SRA að efna til skíðaferð-
ar í Kerlingafjöll dagana 22.-24.
ágúst nk. ef næg þátttaka
fæst. Ferðin er hugsuð sem
æfínga- og skemmtiferð fyrir
alla þá sem æft hafa með SRA
svo og foreldra þeirra.
Kostnaður er um fimm þúsund
krónur en í honum er innifalin
gisting, fæði og ferðir.
SRA æskir þess að foreldrar
barna yngri en 13 ára verði með í
ferðinni. Þátttökutilkynningar
þurfa að berast fyrir 7. ágúst í
síma 23008 eða 25294
Þriðjudaginn 5. ágúst kl.20
verður stjórnarfundur SRA í
íþróttahúsinu við Laugagötu og
þar verður þessi ferð kynnt.
Hægt verður að fá upplýsingar í
síma 21202 en SRA skorar á alla
sem áhuga hafa að mæta og hefja
vetrarstarfið af fullum krafti.
HSÞ-b
Þrátt fyrir 2-3 tap HSÞ-b gegn
Tjörnesi er liðið samt komið í
úrslit. Markatala liðsins er
hagstæðari en Tjörnes hefði
þurft að vinna með þriggja
marka mun til að komast
áfram.
Það var Róbert Agnarsson sem
kom HSÞ-b yfir strax á fyrstu
mínútu leiksins, en Tjörnesingar
í úrslit
náðu þó fljótt betri tökum á
leiknum og fékk liðið mikið af
góðum færum. Ekki tókst þeim
þó að skora nema þrjú mörk og
því sitja þeir eftir með sárt enni
og verri markatölu en HSÞ-b.
Mörk Tjörness skoruðu Guð-
mundur Jónsson, Aðalsteinn
Baldursson og Sigurður Illuga-
son. Fyrir HSÞ-b skoruðu þeir
Róbert og Ari Hallgrímsson.