Dagur - 19.08.1986, Blaðsíða 1
69. árgangur Akureyri, þriðjudagur 19. ágúst 1986 152. tölublað
FILMUHUSIÐ
Hafnarstræti 106 Sími 22771 Pósthólf 198
gæðaframköllun
Filman inn fyrir
kl. 10.45.
Myndirnar tilbúnar
kl. 16.30.
Opið á'
laugardögum
frá kl. 9-12.
Botnfiskkvóti hrefnubáta endurskoðaður:
„Síld er og hefur verið í kvóta-
kerfinu og síldarbátar hafa
hlotið skerðingu í botnfísk-
veiðum vegna sfldarveiðanna.
Hrefnubátarnir hafa aldrei
verið skertir í botnfískveiðun-
um vegna hrefnuveiðanna,
þannig að til beinna bóta kem-
ur ekki,“ sagði Þórður Eyþórs-
son hjá sjávarútvegsráðuneyt-
inu. Engin hrefnuveiði verður
stunduð á þessu ári og eru
hrefnuveiðisjómenn við
Eyjafjörð óhressir með að geta
Bæjarsjóður
Akureyrar:
Kvenna-
athvarfið
Ákveðið var á bæjarráðs-
fundi fyrir helgi að veita
Kvennaathvarfínu í Reykja-
vík styrk að upphæð 100 þús-
und krónur úr Bæjarsjóði
Akureyrar.
Kvennaathvarfið á í miklum
fjárhagsörðugleikum og má
telja víst að peningarnir komi
sér vel. Tillagan um fjárstuön-
ing til kvennaathvarfsins kom
frarn á síðasta bæjarstjórnar-
fundi og var þá vísað til bæjar-
ráðs til afgreiðslu.
ekki fengið hrefnunni skipt og
fengið þorskkvóta í staðinn.
„Það er hægt að skipta síldinni
yfír í þorskkvóta, en ekki
hrefnunni,“ sagði Gunnlaugur
Konráðsson á Árskógsströnd.
„Botnfiskkvóti hrefnuveiði-
sjómanna verður endurskoðað-
ur. Þegar einsýnt er að þeir fara
ekki á hrefnuveiðar verður farið
ofan í viðmiðunarárin 1981-83,
en þá voru allir þessir bátar á
hrefnuveiðum yfir sumarmánuð-
ina. Við munum athuga hvað
hliðstæðir bátar að stærð og stað-
setningu voru að gera á þessum
tíma. Það yrði síðan fellt inni í
þeirra hrefnuveiðimánuði. Þá eru
þeir komnir með sama grunn og
aðrir bátar búa við í dag. Þeir
munu því sitja við sama borð.“
Þórður sagði að líta mætti svo á
að þeir sem stunduðu hrefnu-
veiðar hafi haft ákveðin forrétt-
indi þar sem aðrir hefðu ekki haft
aðgang að þessum veiðum.
„Menn vilja ekki framlengja
þessi forréttindi eftir að
hrefnuveiðar leggjast af með ein-
hverjum kvóta sem er umfram
það sem aðrir bátar hafa. Það
væri að framlengja forréttindin.
Þess vegna verður kvóti
hrefnuveiðibátanna endur-
skoðaður og þeir fá kvóta á sama
grunni og aðrir bátar við Eyja-
fjörð,“ sagði Þórður.
Þórður bætti því við að litlar
botnfiskveiðar hefðu verið í
Eyjafirði yfir sumarmánuðina,
þannig að í raun myndi endur-
skoðunin ekki hafa í för með sér
umtalsverða hækkun á
neina
kvóta.
-mþþ
Mikið var um dýrðir í höfuðborginni í gær, þegar haldið var upp á 200 ára afmæli hennar. Veðrið lék við borgarbúa
enda var mikið fjölmenni í miðborginni, þar sem hátíðarhöldin fóru fram. Mynd: Róbert Ágústsson.
Erindi Akurs hf. vegna Sjallans:
Akureyrarbær kaupi
10 millj. kr. hlut
Stjórn hlutafélagsins Akurs,
sem á og rekur skemmtistað-
inn Sjallann á Akureyri, hefur
ákveðið að auka hlutafé fyrir-
tækisins um allt að 40 milljónir
króna.
Norræna fiskimálaráðstefnan:
Ahyggjur af mengun hafsins
Bæjarráði Akureyrar barst
bréf frá stjórn Akurs h.f. á
dögunum þar sem leitað er eftir
því að Framkvæmdasjóður
Akureyrar taki þátt í hlutafjárút-
boði Ákurs h.f. fyrir allt að 10
milljónir króna eða 25% af fyrir-
hugaðri hlutafjáraukningu. Á
fundi bæjarráðs á fimmtudaginn
var erindi þessu vísað til atvinnu-
málanefndar til umfjöllunar.
Kvótinn verður
ekki aukinn
Norræna fiskimálaráðstefnan
hófst í gær. í tengslum við ráð-
stefnuna héldu sjávarútvegs-
ráðherrar Norðurlandanna
fund þar sem margvísleg
málefni er varða samvinnu
landanna á sviði sjávarútvegs
voru rædd. Halldór Ásgríms-
son sjávarútvegsráðherra sagði
á fundi með fréttamönnum í
gær að fundurinn hefði verið
gagnlegur. Ekki hefðu verið
teknar margar ákvarðanir, en
þessi fundur væri góð byrjun.
Ráðherrarnir lýstu yfir ánægju
sinni með að norræn samvinna á
sviði fiskveiða væri nú skipulögð
í framkvæmdanefnd norrænu
ráðherranefndarinnar á þann
hátt að haldnir séu reglulegir ráð-
herrafundir og stofnuð hefur ver-
ið embættismannanefnd til að
fjalla um fiskveiðimálefni. Mælt
var með því að nefndin tæki sam-
an yfirlit yfir rannsóknarstarf-
semi á sviði sjávarútvegs og hvatt
var til aukinnar samvinnu í
fiskeldi sem og varðandi önnur
verkefni sem máli skipta fyrir
Norðurlönd.
í ályktun sem sjávarútvegsráð-
herrarnir sendu frá sér lýstu þeir
yfir áhyggjum sínum af mengun
hafsins sem skaðar lífríki þess og
lögðu þeir á það áherslu að gert
yrði stórátak í þeim efnum.
„Sjávarútvegsráðherrar Norður-
landanna álíta að mikilvægt sé ef
takast á að varðveita lífið í hafinu
að mengun eyðileggi ekki vist-
fræðilegt jafnvægi þess,“ segir í
ályktun þeirra. Voru sjávarút-
vegsráðherrarnir sammmála um
að hvetja til að lagt yrði bann við
að sökkva eða brenna úrgangs-
efnum á hafi úti og lýstu þeir yfir
stuðningi við aðgerðir um varnir
við mengun hafsins sem nú er
unnið að innan ramma alþjóð-
legra samþykkta. -mþþ
Frá blaðamannafundi sem haldin var í sambandi við Norrænu fiskimálaráð-
stefnuna á Akureyri í gær. Mynd: rþb
Svo sem fram hefur komið í
fréttum var Sjallinn til sölu í vet-
ur en þessi fyrirhugaða hlutafjár-
aukning gefur vísbendingar um
að Akursmenn ætli sér að
grynnka á skuldum fyrirtækisins
og reka Sjallann áfram. Það á svo
eftir að koma í ljós hvort Akur-
eyrarbær vill eignast hlut í
skemmtistaðnum. BB.
Leiðrétting
Meinleg villa slæddist inn í fyrir-
sögn í blaðinu í gær þar sem sagt
var frá kennararáðningum á
Norðurlandi vestra. í fyrirsögn
sagði að kennara vantaði í flesta
skóla á landinu en átti að sjálf-
sögðu að vera í flesta skóla á
svæðinu.
Við biðjumst velvirðingar á
þessum mistökum.