Dagur - 20.08.1986, Qupperneq 1
69. árgangur Akureyri, miðvikudagur 20. ágúst 1986 153. töiublað
Hætta á vatnsskorti í
haust á Sauöárkróki
Ástand í neysluvatnsmálum
Sauðkrækinga er slæmt um
„Erfitt að
ná endum
saman“
„Ég vissi um þessa skerðingu
á lánum frá Byggðastofnun
strax í vor. En það verður erf-
itt að láta enda ná saman við
áramót,“ sagði Stefán Þórð-
arson sveitarstjóri á Grenivík
í samtali við Dag.
Grýtubakkahreppur fær lán
frá Byggðastofnun upp á 1,3
milljónir, en samkvæmt reglum
hennar hefði hreppurinn átt að
fá 2,2 milljónir. Bundið slitlag
var lagt á 700 metra vegarkafla
og er því lokið. Stefán sagði að
einnig ætti að vinna við jarð-
vegsskipti og hefjast fram-
kvæmdir við það nú bráðlega.
„Pað verður erfitt að fjár-
magna þetta. Við erurn með öll
spjót úti að útvega okkur fé, en
það hefur ekkert komið út úr
því ennþá,“ sagði Stefán. -mþþ
þessar mundir og er talin veru-
leg hætta á vatnsskorti í haust.
Páll Pálsson veitustjóri sagðist
ekki muna eftir svo litlu rennsli
úr lindunum á þessum tíma árs
og nú er. Við mælingar í síðustu
viku fengust 32 sekúndulítrar, en
rennslið er venjulega 45 lítrar.
Á vegum Steinullarverksmiðj-
unnar er nú unnið að virkjun
grunnvatns og sagðist Páll vonast
til þess að þeim framkvæmdum
yrði lokið fyrir sláturtíð, til að
forða því ófremdarástandi sem
þá gæti skapast í neysluvatnsmál-
unum. Hann kvað fyrirtæki í
bænum nota það mikið vatn, að
Sauðárkrókur væri langt fyrir
ofan venjulega vatnsnotkun mið-
að við önnur bæjarfélög. Stein-
ullarverksmiðjan notar geysilega
mikið vatn við sína framleiðslu
allan sólarhringinn og þegar slát-
urhúsið byrjar í haust eykst
vatnsnotkun enn. Páll kvað
ástandið hafa verið slæmt í fyrra,
en miklar rigningar seinni part
sumars hefðu bjargað málunum.
Ástæðuna fyrir minna vatni nú
kvað hann vera lítinn snjó í vetur
og vor, litla úrkomu og þurrkatíð
í sumar.
Siglufjörður:
Nýr bæjarstjóri
tekinn til starfa
Nýr bæjarstjóri tók til starfa á
Siglufirði um miðjan ágúst af
Óttari Proppé fyrrverandi
bæjarstjóra.
Nýi bæjarstjórinn heitir ísak
01;
Jóhann Ölafsson og var hann
áður skrifstofustjóri hjá Vél-
stjórafélagi íslands. Hann tók
stúdentspróf frá MR og las síðan
þjóðhagfræði við Kaupmanna-
hafnarháskóla. ísak Jóhann er 36
ára gamall, alinn upp á Akureyri.
Hann sagði í samtali við blaðið
að sig hefði alltaf langað til að
fara út á landsbyggðina og verið
fljótur til þegar þetta starf
bauðst. Kona ísaks er Jóna
Ragnarsdóttir og eiga þau 5 ára
dóttur. -þá
Einar Einarsson framleiðslu-
stjóri hjá Steinullarverksmiðj-
unni sagði verksmiðjuna iðulega
hafa orðið fyrir vatnsskorti við
framleiðsluna og hefði þetta
skapað mikla erfiðleika í sam-
bandi við vinnsluna, en vatnið er
notað til að kæla niður bræðslu-
ofninn. Hefur nú verið gripið til
þess ráðs að byggja safnbrunn við
verksmiðjuna og er meiningin að
nýta yfirborðsvatn sem til fellur.
Er vonast til að með þessum
hætti fáist nægjanlegt vatn fyrir
verksmiðjuna og vatn bæjarveit-
unnar verði aðeins til vara.
-þá
Bilbruni á Þórunnarstræti í gær.
Mynd: RÞB
Aukin ásókn í leiguíbúðir:
34 umsóknir um tvær
íbúðir hjá Akureyrarbæ
„Ásóknin í leiguíbúðir á veg-
um bæjarins hefur aukist gífur-
lega, enda er framboð á leigu-
húsnæði Iítið í bænum,“ sagði
Þuríður Sigurðardóttir starfs-
maður Félagsmálastofnunar í
samtali við Dag. Nýlega var
tveimur íbúðum í Smárahlíð
úthlutað og voru umsóknir um
þær 34.
Við úthlutun íbúða er farið eft-
ir ákveðnu punktakerfi, þar sem
tekið er tillit til aldurs, tekna,
fjölskyldugerðar og húsnæðisað-
stæðum. Þuríður sagði að þeir
sem sæktu um íbúðir í eigu
bæjarins væru þeir sem verst
væru settir, aldrað fólk eða ein-
stæðir foreldrar.
Akureyrarbær hefur til umráða
75 leiguíbúðir og sagði Þuríður
Framsóknarmenn á Norðurlandi eystra:
Skoðanakönnun og
lok október
próf-
kjor i
Ákveðið hefur verið að efna til
skoðanakönnunar meðal fé-
lagsbundinna framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra vegna næstu Alþingis-
kosninga. Fer skoðana-
könnunin fram skriflega dag-
ana 20. september til 5. okt-
óber. í framhaldi af skoðana-
könnuninni verður svo próf-
kjör á aukakjördæmisþingi í
lok október, þar sem valdir
verða sex efstu á listann.
Að sögn Valgerðar Sverris-
dóttur formanns kjördæmisráðs
verður félagsbundnum framsókn-
armönnum í kjördæminu send
gögn til að skrifa á nöfn þeirra
sem þeir kjósa að sjá í efstu sæt-
um á framboðslistanum. Mest má
skrifa 8 nöfn. Að þessu loknu
mun kjörnefnd ræða við þá sem
þannig veljast um það hvort þeir
vilji gefa kost á sér í prófkjörið.
Að loknu venjulegu kjördæm-
isþingi verður efnt til aukakjör-
dæmisþings þar sem prófkjörið
fer fram og þar munu eiga rétt til
þátttöku þeir sem flokksfélögin
velja á aukaþingið, en það verður
þrefalt fjölmennara en venjulegt
kjördæmisþing. Heimilt verður
öðrum en þeim sem valdir eru í
skoðanakönnuninni að taka þátt
í prófkjörinu, en þá þurfa þeir
meðmæli 25 félagsmanna í Fram-
sóknarflokknum. Eins og áður
sagði verður valið f sex efstu sæt-
in á framboðslista framsóknar-
manna í Norðurlandi eystra í
prófkjörinu. HS
misjafnt hversu margar losnuðu á
ári, en fjöldi umsókna um hverja
íbúð væri mikill. Verð á 2ja her-
bergja íbúð í nýlegu húsnæði er
4700 krónur, fyrir 3ja herbergja
íbúð 5700 og 4ra 6700. Leigu-
samningar eru gerðir til eins árs,
að sögn Þuríðar og endurskoðað-
ir að þeim tíma liðnum ef aðstæð-
ur hafa breyst. -mþþ
„Furða mig á
erindi Akurs“
- sagði Úlfhildur Rögnvaldsdóttir á fundi
bæjarstjórnar Akureyrar í gær
Á fundi bæjarstjórnar Akur-
eyrar í gær var tekin fyrir
afgreiðsla bæjarráðs á beiðni
Akurs hf. um að Fram-
kvæmdasjóður Akureyrar
keypti hlutabréf í Sjallanum
fyrir allt að 10 milljónir króna.
Éins og fram kom í blaðinu í
gær vísaði bæjarráð erindinu
til atvinnumálanefndar.
Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
sagðist furða sig á þessu erindi
Akursmanna og sagðist gjarnan
vilja fá nánari upplýsingar um
þetta mál. M.a. væri fróðlegt að
fá að vita hverjum fleirum en
Akureyrarbæ hefðu verið boðin
hlutafé í fyrirtækinu til kaups.
„Er hér ekki verið að snúa við
blaðinu," sagði Úlfhildur, „þetta
er fyrirtæki sem hingað til hefur
hampað einkarekstrinum, en
snýr sér nú til bæjarfélagsins og
vill fá það inn í reksturinn."
Engar umræður urðu um málið
á fundinum, en væntanlega mun
koma í Ijós á næstu dögum hvort
Akureyrarbær hyggst fjárfesta í
rekstri Sjallans, því atvinnumála-
nefnd mun koma saman eftir
helgina.
Mikil forföll voru á fundinum.
Þannig voru allir kjörnir bæjar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins fjar-
verandi svo og annar bæjarfull-
trúi Alþýðubandalagsins. Sátu
því 5 varamenn fundinn.
Sigfús Jónsson sat í gær sinn
fyrsta fund sem bæjarstjóri.
Félagsmálastofnun:
Milljon
í viðbót
Á fundi bæjarráðs Akureyrar
á fímmtudaginn var sam-
þykkt að veita Félagsmála-
stofnun Akureyrar einnar
milljón króna aukafjárveit-
ingu til liðarins „fjárhagsað-
stoð“.
Undir þennan lið falla bæði
lán og styrkir sem Félagsmála-
stofnun veitir þeim einstakling-
um sem eiga í erfiðleikum með
að framfleyta sér og sfnum.BB.