Dagur - 01.09.1986, Page 4
4 - DAGUR - 1. september 1986
á Ijósvakanum
isjónvarpM
MÁNUDAGUR
1. september
19.00 Úr myndabókinni.
17. þáttur. Endursýndur
þáttur frá 26. ágúst.
19.50 Fréttaágrip á tákn-
máli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.35 Hrein torg, fögur
borg.
Kynningarmynd frá
Tæknisýningu Reykjavíkur
um starfsemi Hreinsunar-
deildar borgarinnar.
Kvikmyndun: Sigurður
Jakobsson.
Texti: Ólafur Bjami
Guðnason.
Þulur: Arnar Jónsson.
20.45 Poppkorn.
Tónlistarþáttur fyrir tán*
inga.
Gísli Snær Erlingsson og
Ævar Öm Jósepsson
kynna músíkmyndbönd.
Samsetning: Jón Egill
Bergþórsson.
21.15 íþróttir.
Umsjónarmaður: Bjarni
Felixson.
21.45 Skyndibitastaðurinn.
(The Cafeteria)
Bandarískt sjónvarps-
leikrit gert eftir sam-
nefndri smásögu eftir
nóbelsskáldið Isaac Bas-
hevis Singer.
Leikstjóri: Amram Novak.
Aðalhlutverk: Bob Dishy
og Zohra Lampert.
Leikritið gerist að mestu á
matsölustað i New York
þangað sem gyðingar
venja komur sínar. Þekkt-
ur rithöfundur kynnist þar
flóttakonu sem lifað hefur
af ofsóknir nasista og set-
ur sú reynsla svip á sam-
skipti þeirra.
Þýðandi: Jóhanna Þráins-
dóttir.
22.35 ísak í Ameríku.
Svipmynd af höfundir
sögunnar hér á undan.
Rætt er við Isaac B. Singer,
fylgst með ferli hans og
ferðum og vitnað í verk
hans.
Þýðandi: Veturliði Guðna-
son.
23.25 Fréttir í dagskrárlok.
'rás 1 i
MÁNUDAGUR
1. september
7.00 Veðurfregnir • Fréttir.
Bæn • Séra Baldur Krist-
jánsson flytur (a.v.d.v.).
7.15 Morgunvaktin.
- Páll Benediktsson, Þor-
grímur Gestsson og
Hanna G. Sigurðardóttir.
7.30 Fréttir • Tilkynningar.
8.00 Fréttir • Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Fréttir á ensku.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Hús 60 feðra“ eftir
Meindert Dejong.
Guðrún Jónsdóttir les þýð-
ingu sína (3).
9.20 Morguntrimm - Jón-
ína Benediktsdóttir • Til-
kynningar • Tónleikar,
þulur velur og kynnir.
9.45 Búnaðarþáttur.
Sigurgeir Þorgeirsson
sauðfjárræktarráðunautur
talar um breytingu á kjöt-
matsreglum.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Einu sinni var.
Þáttur úr sögu eyfirskra
byggða.
Umsjón: Kristján R. Krist-
jánsson. (Frá Akureyri)
11.00 Fréttir.
11.03 Á frívaktinni.
Þóra Marteinsdóttir kynnir
óskalög sjómanna.
12.00 Dagskrá • Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir • Til-
kynningar • Lesið úr for-
ustugreinum landsmála-
blaða.
13.30 í dagsins önn - Heima
og heiman.
Umsjón: Hilda Torfadóttir.
(Frá Akureyri).
14.00 Miðdegissagan:
„Mahatma Gandhi og
lærisveinar hans" eftir
Ved Mehta.
Haukur Sigurðsson les
þýðingu sína (3).
14.30 Sígild tónlist.
15.00 Fréttir • Tilkynningar
• Tónleikar.
15.20 Landpósturinn.
M.a. brot úr svæðisútvarpi
Akureyrar og nágrennis
liðna viku. (Frá Akureyri)
16.00 Fréttir • Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 íslensk tónlist.
17.00 Fróttir.
17.03 Barnaútvarpið.
Umsjón: Kristín Helga-
dóttir og Sigurlaug M. Jón-
asdóttir.
17.45 Torgið - Við upphaf
skólaárs.
Umsjón: Adolf H.E. Pet-
ersen og Vernharður
Linnet.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir • Dag-
skrá kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar • Tón-
leikar.
19.40 Um daginn og veginn.
Einar Hannesson talar.
20.00 Lög unga fólksins.
Þóra Björg Thoroddsen
kynnir.
20.40 Þættir úr sögu Evrópu
1945-1970.
Fyrsti þáttur.
Umsjón: Jón Þ. Þór.
21.10 Gömlu dansarnir.
21.30 Útvarpssagan: „Sögur
úr þorpinu yndislega"
eftir Sigfried Lenz.
Vilborg Bickel-ísleifsdóttir
þýddi. Guðrún Guðlaugs-
dóttir les (8).
22.00 Fréttir Dagskrá
morgundagsins • Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 í reynd.
Þáttur um málefni fatl-
aðra.
Umsjón: Ásgeir Sigur-
gestsson.
(Áður á dagskrá 7. júlí sl.)
23.00 Frá tónlistarhátíðinni
í Berlín 1985.
24.00 Fréttir • Dagskrárlok.
'rás 21
MANUDAGUR
1. september
9.00 Morgunþáttur
i umsjá Ásgeirs Tómas-
sonar, Kolbrúnar Halldórs-
dóttur og Kristjáns Sigur-
jónssonar. Elísabet Brekk-
an sér um barnaefni kl.
10.05.
12.00 Hlé.
14.00 Flugur.
Þorgeir Ástvaldsson kynn-
ir ný og gömul dægurlög.
16.00 Allt og sumt.
Helgi Már Barðason
stjórnar þætti með tónlist
úr ýmsum áttum, þ.á.m.
nokkrum óskalögum hlust-
enda á ísafirði, í Bolungar-
vík og í Strandasýslu.
18.00 Dagskrárlok
3ja mín fréttir kl. 9, 10, 11,
15, 16 og 17.
17.03-18.30 Ríkisútvarpið
á Akureyri - Svæðisút-
varp.
17.03-18.30 Ríkisútvarpið á
Akureyri - Svæðisútvarp.
Fallhlífarstökk er nokkuð sem flestir þekkja, í það minnsta
til afspurnar. En fallhlífarstökk með farþega er nokkuð
sem færri þekkja og enn færri hafa prófað. Fyrir helgi var
hér bandarískur fallhlífastökkvari, Larry Bagley og stökk
hann með þá sem vildu. Þeir voru fjölmargir er lögðu leið
sína út á flugvöll til að fylgjast með eða til að stökkva með
Larry.
Á myndunum hér í dálkinum má sjá Ármann Ólafsson
sem stökk með Larry. Það var með Armann eins og hina
sem stukku með Larry að þeir voru ansi fámálir fyrst eftir
lendinguna. Þó mátti greina orð eins og frábært, ótrúlegt,
o.s.frv. Þegar Ármann var spurður að því hvað hann hafi
hugsað rétt áður en hann stökk svaraði hann: „Alveg ótrú-
lega margt, manni flaug ýmislegt í hug.“ Hvað þetta ýmis-
lega var sem Ármann hugsaði vitum við ekki, en innan
fárra augnablika hafði hann gert sér grein fyrir því að þetta
var alveg stórkostlegt, og hann var alveg til í að reyna aftur.
Myndir: BV
# Ráðningar-
raunir
Loksins er Ijóst hver verft-
ur ráðinn skólastjóri Síðu-
skóla. Þetta mál ailt hefur
verið hið skondnasta.
Fyrst voru umsækjend-
urnir fjórlr og meirihluti
skólanefndar Akureyrar,
tveir fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks og fulltrúi Alþýðu-
flokks, tóku þá ákvörðun
utan fundar að veita
stöðuna Viktori A. Guð-
laugssyni skólastjóra á
Akranesi. Þessa ákvörðun
átti að staðfesta formlega
á næsta fundi skólanefnd-
ar. En þá kom babb i
bátínn. Viktor dró umsókn
sína til baka og fulltrúar
meirihiutans frestuðu
ákvörðunartöku um
nokkra daga.
Tímann notuðu þeir til að
komast að samkomulagi
um einhvern hinna
þriggja umsækjendanna
en það tókst ekki.
# Vantraust?
Á fundi skólanefndar í
síðustu viku kom þetta
mál enn til afgreiðslu. Þá
klofnaði skólanefnd í
afstöðu sinni til umsækj-
enda, því þrír fulltrúar
mæltu með Davíð Óskars-
syni, einn með Þóreyju
Eyþórsdóttur en einn sat
hjá. Wlenntamálaráðherra
tók svo af skarið á mið-
vikudaginn og skipaði
Davíð Óskarsson í stöð-
una.
En það sem vekur athygli
varðandi afgreiðslu skóla-
nefndar Akureyrar á mál-
inu er að atkvæðagreiðsl-
an var leynileg. Það heyrir
til undantekninga í svo
fámennum nefndum að
atkvæðagreiðsla sé leyni-
leg. Nú veit enginn hver
kaus hvern og hvort
meirihfutinn splundraðist
í þessu máli eða ekki. Þó
má telja það liklegt og
þess vegna hafi verið far-
ið fram á leynilega
atkvæðagreiðslu. Eins
konar leynilegur klofning-
url
Reyndir menn í nefndar-
formennsku hafa reyndar
sagt að þeir hefðu aldrei
leyft leynilega atkvæða-
greiðslu undir þessum
kringumstæðum. Slíkt
skapaði trúnaðarbrest
milli nefndarmanna og
gæfi til kynna að menn
þyrðu ekki að standa við
skoðanir sínar opinber-
lega. Svo mörg voru þau
orð.