Dagur - 01.09.1986, Síða 9

Dagur - 01.09.1986, Síða 9
Umsjón: Kristján Kristjánsson 1. september 1986 - DAGUR - 9 i T|í|íiíf-[ff Mynd: BV skorar eitt sex marka sinna. ið 2. deild - KA 13-Skallagrímur 0: ir og mús igvi Gunnarsson skoraði 6 mörk búin að draga sig úr keppni eftir aðra eins útreið og Skallagrímur er búinn að fá í 2. deild í ár og eiga þeir því virðingu skyldar fyrir íþróttamanns- iegt hugarfar þrátt fyrir að þeir hafi ekki átt erindi sem erfiði. í lokin vil ég gera athugasemd við athæfi það sem vallarstarfsmenn á Akureyrarvelli gerðu sig seka um er langt var liðið á leikinn og staðan orðin 13-0 fyrir K.A. Þá tilkynntu þeir að kvennalið sömu félaga hefðu leikið fyrr um daginn og endað með sigri K.A. 13-0. Þetta var ósmekkleg athugasemd og algerlega óþörf, því hún gerir ekki annað en særa enn meira þá ungu leikmenn Skallagríms sem áttu við ofurefli að etja í þessum leik sem flestum öðrum leikjum sín- um í sumar. gej- Mjóikurbikarkeppnin: ÍA meistari eftir sigur á Fram ÍA varð í gær bikarmeistari í knattspyrnu er liðið sigraði Fram í úrslitaleik Mjóikurbikarkeppn- innar með tveimur mörkum gegn einu. Pétur Pétursson gerði bæði mörk Skagamanna í síðari hálf- leik. Leikurinn var mjög fjörugur og skemmtilegur á að horfa. í hálfleik hafði hvorugu liðinu tekist að skora mark en bæði lið fengið ágæt færi. Snemma í síðari hálfleik ná Framarar forystu er Pétur Ormslev skorar laglegt mark. Um miðjan síð- ari hálfleikinn jafnaði Pétur Péturs- son fyrir Skagamenn og þannig var staðan fram á síðustu mínútur leiks- ins. Það var svo skömmu fyrir leikslok að Pétur Pétursson skoraði sigur- markið eftir sendingu frá Arna Sveinssyni. Allt ætlaði síðan vitlaust að verða er Eysteinn Guðmundsson dómari leiksins flautaði til leiksloka og sigur Í A í höfn. Hraðmót unglinganefndar KSÍ: Fram sigraði Víking í úrslitaieik Um helgina fór fram á vegum unglinganefndar KSÍ, hraðmót í knattspyrnu hér á Akureyri. Alls voru 8 lið með í mótinu og var keppt í tveimur fjögurra liða riðlum. Til úrslita á mótinu léku Fram og Víkingur og fór leikurinn fram á Akureyrarvellinum. Fram sigraði með tveimur mörk- um gegn einu og það voru þeir Eysteinn Jóhannsson og Jóhann Örn Kristjánsson sem skoruðu fyrir Fram. Mark Víkings skoraði Jörgen Magnússon. Nánar verður sagt frá mótinu í blaðinu á morgun. Islandsmótið 3. deild: Magni tapaði en slapp við fall Þrátt fyrir að hafa tapað fyrir Leiftri á laugardag, heldur Magni sæti sínu í 3. deildinni í knattspyrnu en síðasta umferð- in var leikinn þá. Liðið var í fallhættu en þar sem Valur frá Reyðarfirði tapaði fyrir Þrótti á Neskaupstað 3:0, sleppur Magni en Valur féll í 4. deild ásamt Leikni. Magnamenn náðu forystunni gegn Leiftri á Grenivík, strax á 3. mín. leiksins en þá skoraði Jón Ingólfsson fyrir heimamenn. Leiftur náði að jafna leikinn um miðjan hálfleikinn og var Óskar Ingimundarson að verki. í síðari hálfleik lék Leiftur undan sterkum vindinum og var þá nánast um einstefnu að ræða að marki Magna. Þrátt fyrir ágæt færi tókst Leiftursmönnum að- eins að bæta við einu marki og það gerði Halldór Guðmundsson þegar um 15 mín. voru til leiks- loka. Vildu heimamenn meina að markið hafi verið ólöglegt þar sem Halldór hafi lagt boltann fyr- ir sig með hendinni. Áður hafði Leiftur átt ein fjögur stangarskot. Þegar svo um 2 mín. voru eftir fengu Magnamenn vítaspyrnu en Tindastóll sótti Leikni Fá- skrúðsfírði heim, í síðustu umferð 3. deildar í knatt- spyrnu á laugardag og sigraði í miklum markaleik 6:3. Tindastóll komst í 3:0 fljótlega í fyrri hálfleik og skoruðu þeir Sverrir Sverrisson, Stefán Péturs- son og Eyjólfur Sverrisson mörkin. Arnar Ingason minnkaði muninn fyrir Leikni fyrir hlé og 3:1 í hálfleik. Strax í upphafi síðari hálfleiks bætti Eyjólfur við fjórða marki Þorvaldur Jónsson varði spyrnu Jóns Ingólfssonar. Úrslitin 2:1 fyrir Leiftur. Reynir vann Austra Reynir frá Arskógsströnd lauk keppni í 3. deildinni í knatt- spyrnu í ár með því að vinna Austra frá Eskifirði á laugadag 2:0 á Árskógssandi. Austramenn virtust áhugalaus- ir með öllu og réðu Reynismenn gangi leiksins allan tímann. í fyrri hálfleik lék Reynir á móti sterkum vindi og skoraði þá eitt mark. Það gerði Júlíus Guð- mundsson snemma í hálfleikn- um. í síðari hálfleik jókst sóknar- þungi Reynismanna til muna og var nánast um einstefnu að ræða. Seinna markið kom þegar um 15 mín. voru til leiksloka og það skoraði Örn Viðar Arnarsson beint úr aukaspyrnu. Þrátt fyrir mörg góð marktæki- færi tókst Reynismönnum ekki að bæta við mörkum og úrslitin 2:0. Tindastóls úr vítaspyrnu. Síðan gera Leiknismenn tvö mörk, fyrst Svanur Kárason og svo Magnús Guðmundsson og staðan orðin 4:3. Tindastólsmenn settu þá á fulla ferð í lokin og bættu við tveimur mörkum áður en flautað var til leiksloka. Fyrra markið skoraði Birgir Rafnsson eftir hornspyrnu og síðan Eiríkur Sverrisson á síð- ustu mínútu leiksins og úrslitin 6:3 fyrir Tindastól. Staðan 2. deild Staðan í 2. deild íslands- niótsins í knattspyrnu er þessi: Þróttur-Selfoss 2:1 KA-Skallagrímur 13:0 Völsungur-ÍBÍ 1:0 KS-UMFN 3:0 Einherji-Víkingur 1:0 KA 16 104- 2 48:13 34 Völsungur 16 10-2- 4 35:15 32 Víkingur 16 9-3- 4 45:19 30 Einherji 16 9-2- 5 26:20 29 Selfoss 16 8-4- 4 29:13 28 KS 16 7-3- 6 29:21 24 Þróttur 16 6-2- 8 30:29 20 ÍBÍ 16 3-6- 7 26:32 15 UMFN 16 4-2-10 27:44 14 Skallagrímur 16 0-0-16 4:94 0 Markahæstir: Tryggvi Gunnarsson.KA 25 Andri Marteinsson,Víkingi 16 Jón Gunnar Bergs,Selfoss 11 Kristján Olgeirsson.Völsungi 11 3. deild Lokastaðan í b riðli 3. deild- ar varð þessi: Magni-Leiftur 1:2 Þróttur-Valur 3:0 Leiknir-Tindastóli 3:6 Reynir-Austri 2:0 Leiftur 14 11-2- 1 35:10 35 Tindastóll 14 94- 1 37:14 31 Þróttur N 14 7-6- 1 32:15 27 Reynir Á 14 6-3- 5 18:16 21 Austri E 14 5-3- 6 18:18 18 Magni 14 34- 7 20:25 13 Valur Rf 14 3-2- 9 17:32 11 Leiknir F 14 0-0-14 6:54 0 Markahæstir: Eyjólfur Sverrisson,Tindastól 15 Óskar Ingimundarson,Leiftri 12 2. deild kvenna Lokastaðan í A-riðli 2. dcildar kvenna varð þessi: KA 10 10-0-0 52: 3 30 Afturelding 10 7-1-2 47:13 22 Grindavík 10 6-1-3 17:13 19 Grundarfj. 10 2-1-7 9:28 7 Skallagrímur 10 2-1-7 8:43 7 Stokkseyri 10 0-2-8 6:39 2 ÍR hætti keppni og eru leikir liðsins því strikaðir út. Tindastóll sigraði í markaleik Úrslitakeppni 4. deildar: Hvöt tapaði fyrir Sindra og situr eftir - Ótrúlega jöfn og spennandi keppni - öll liðin jöfn að stigum Á laugardag léku Sindri og Hvöt síðasta leikinn í úrslita- keppni 4. deildar, Norðaustur- landsriðli. Leiknum lauk með sigri Sindra, 2:1. Það verða því HSÞ-b og Sindri sem leika í 3. deild að ári en Hvöt situr eftir. Leikurinn á laugardag sem fram fór á Hornafirði var nokkuð jafn í fyrri hálfleik. Eina umtals- verða færið í hálfleiknum var skot sem Hvöt átti í stöngina á marki Sindra. í síðari hálfleik náði Sindri yfirhöndinni og komst liðið í 2:0. Guðmundur J. Óskarsson gerði bæði mörkin. Þegar urn þrjár mínútur voru eftir af leiknum náðu Hvatarmenn að minnka muninn og úrslitin 2:1. Ekki fékkst uppgefið hver hafi skorað markið fyrir Hvöt. Þessi úrslit þýða það að HSÞ-b og Sindri komast í 3. deild en Hvatarmenn sitja eftir með sárt ennið. Fyrir þennan leik var allt í járnum í keppninni og gátu öll liðin þrjú komist upp. Úrslitakeppnin var ótrúlega jöfn og spennandi. Liðin þrjú unnu öll sína heintaleiki og vannst heimaleikur með sarna ntun og tapaðist úti. Sem dærni vann HSÞ-b, Sindra 3:0 í Mývatnssveit en tapaði 4:1 á Hornafirði. Hvöt vann Sindra 2:1 á Blönduósi og tapaði með sama mun þar á laugardag. HSÞ-b og Sindri vinna sér sæti í 3. deild á því að skora fleiri ntörk en Hvöt en öll urðu liðin jöfn að stigum. Lokastaðan varð þessi: HSÞ-b 4 2-0-2 7:7 6 Sindri 4 2-0-2 7:7 6 Hvöt 4 2-0-2 6:6 6 Það sem HSÞ-b og Sindri eru jöfn að stigum og nteð sama markahlutfall er ekki ljóst hvort liðið leikur til úrslita við Aftur- eldingu um sigur í 4. deildinni. Kemur hlutkesti þar til greina.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.