Dagur - 01.09.1986, Side 10

Dagur - 01.09.1986, Side 10
‘ TO - DAGUR -1. seþtémbér 1986 „Það er að mínu matí óþarfí að rifja upp forsöguna og aðdraganda þessa slyss, því nóg var skrifað um það á sínum tíma. Hins vegar er ég tilbúinn að segja þér hvernig tíminn hefur liðið hjá mér eftir það,“ sagði Vilhelm Agústsson eða Villi Agústar eins og hann heitir meðal vina og annarra sem þekkja hann af afspurn. Hann kom á ritstjóm Dags fyrir stuttu, var að koma úr endurhæfingu á Bjargi. Var haltur nokkuð, en hress að vanda. Þær sögur höfðu nefni- lega borist norður yfír heiðar að hann hafí verið hrókur alls fagnaðar og haldið uppi fjöri, ef segja má svo um stofnun eins og Grensásdeild Borgarspítalans í Reykjavík. Enda er það svo, að þeir sem til hans þekkja, vita að það er líf, fjör og dugnaður þar sem Villier. Fyrstu skrefín eftir slysið og brosandi að vanda. upplyfting fyrir marga sem voru þakklátir fyrir að við yngri mennirnir skyldum gera eitthvað til að hafa ofan af fyrir fólki. Það má ekki gleyma því að á þessum tíma var heimsmeistara- keppnin í knattspyrnu í Mexíkó og það stytti stundirnar mikið fyrir bæði mér og öðrum. Svo reyndum við að sprella líka og var ýmislegt brallað til að koma lífi í mannskapinn. Það voru messur annan hvern fimmtudag hjá okkur og ætluðum við eitt sinn að gifta þarna par sem var eitthvað að gefa hvort öðru auga. Við biðum spenntir eftir athöfninni, því við vorum búnir að undirbúa hana. Það vildi þó ekki betur til en svo að brúð- guminn hafði sofnað um kvöldið og mætti ekki til athafnarinnar og urðum við reiðir yfir þessu kæru- leysi hans. Ég er hræddur um að eitthvað hefði gerst í þessum málum ef maðurinn hefði ekki sofið þetta af sér. Það voru ekki bara sjúkling- arnir sem reyndu að skemmta sér, því starfsfólk á deildinni er með þeim ágætum að einstakt er. Allir sem einn, er óhætt að segja, gerðu allt sem þeir gátu til að okkur liði sem best og verð ég að gefa heilbrigðiskerfinu á íslandi fyrstu einkunn. Allt frá því lækn- ar og hjúkrunarfólk tóku við mér á Borgarspítalanum og þar til ég Fyrir þá sem vita lítið um málið, þá gerðist það að Vilhelm var á ferð á vélsleða ásamt þrem- ur öðrum mönnum á hálendi landsins. Er þeir áttu skammteft- ir í Gæsavötn ók hann fram af gilbrún og féll um 20 metra niður í Rjúpnabrekkukvísl. Við það slasaðist hann mikið. Síðan var farið að reyna björgun við mjög erfiðar aðstæður. En að lokum komst hann undir læknishendur í Reykjavík. „Fyrst var ég fluttur á Borgar- spítalann og hafður þar í gjör- gæslu í eina og hálfa viku. Síðan var ég á slysastofunni þar í viku- tíma og þaðan var ég fluttur á Grensásdeildina. Eins og menn vita er Grensásdeildin að mestu endurhæfingardeild fyrir Borgar- spítalann. Er ég var sendur þang- að flaug það í huga minn hvað ég væri eiginlega að gera þangað til að byrja æfingar, því ég gat með naumindum reist höfuð frá kodda. Strax næsta dag mætti ég hjá sjúkraþjálfara og hann byrj- arði að kanna ástand mitt, hvað ég gæti og hvað ekki með þessum brotnu skönkum. En æfingarnar eru þyngdar dag frá degi eftir því sem þrekið vex og heilsan leyfir. Það er óhætt að segja að Grensásdeild sé ansi líflegur staður, því þar er ekki beint um sjúklinga að ræða, heldur fólk í eftirmeðferð vegna rýrnunar- sjúkdóma og annars og sett þarna í þrekuppbyggingu. Þarna var líka fólk eins og ég sem hafði lent í slysi. Nú, þarna var ég í stöðug- um æfingum í 5 vikur. Æfði einn og hálfan tíma á morgnana, einn tíma eftir hádegi og síðar þegar umbúðir voru teknar og sár og bein gróin fór ég í sund líka, auk klukkutíma í iðjuþjálfun, sem er þjálfun með smærri og fínni, hreyfingar en gerist í sjúkraþjálf- uninni. Þarna var indælis félagsskapur, ungt og hresst fólk innan um eldra. Við reyndum að gera okk- ur margt til skemmtunar þegar menn voru ekki við æfingar og var margt skemmtilegt gert. Við héldum kvöldvökur, röbbuðum saman. Við leigðum okkur vídeómyndir og var það mikil „Það var kjaftur á mér eins og fyrri daginn“ - segir Vilhelm Ágústsson og spjallar um dvölina á Grensásdeildinni fór þaðan var allt gert til að létta manni lífið og er færni og dugn- aður þessa fólks til fyrirmyndar. Vingjarnlegheit þessa fólks eru líka stór þáttur í lækningunni. Ég þakka minn skjóta bata og árangur í öllu sem viðkemur því að bjarga sér því hversu vinn- ubrögð þessa fólks og hæfni eru fullkomin. Án þess væri ég ver á vegi staddur í dag. Þetta fólk er með mann í fanginu frá fyrstu tíð, finnur til með manni, gerir æfingar og þjáist með manni og vil ég þakka þessa hraðferð mína til fulls bata þessu góða fólki. Andlegi þátturinn er stór hluti af batanum. Ég sá fólk sem var misjafnlega á sig komið á Grens- ásdeildinni. Þegar menn voru að gera æfingar sem voru erfiðar fyr- ir suma, þá sá maður fólk grát- andi með tárin lekandi niður kinnarnar, en allt gert í hljóði og tekið á eins og mögulegt var. Aðrir voru hljóðandi og æpandi við minnstu hreyfingu. Það er óhætt að segja að það var kjaftur á mér eins og fyrri daginn og ég var oft að reyna að púrra upp fólk í kringum mig. Man ég sér- staklega eftir einu tilfelli þar sem ég lá rennandi sveittur á mínum bekk við æfingar og á næsta bekk var kona sem kölluð var Magga. Hún hljóðaði og vældi við minnstu hreyfingu og vorkenndi sér mikið. Ég segi við hana, Magga mín hertu upp hugann, sýndu hörku og bíttu á jaxlinn. Þá segir hún, ég hef enga. Það var svarið sem ég fékk frá henni Möggu og hætti að hvetja þann daginn.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.