Dagur - 01.09.1986, Page 15

Dagur - 01.09.1986, Page 15
1. september 1986 - DAGUR - 15 Kveðja: Margrét Thorarensen t Hinn 18. ágúst sl. lést í sjúkra- húsi í Reykjavík frú Margrét Thorarensen, Brekkugötu 35 á Akureyri. Hún var jarðsungin frá Háteigskirkju 22. ágúst sl. Enda þótt Margrét tæki alvar- iegan sjúkdóm fyrir nokkrum árum, höfðu vinir hennar og vandamenn vonað, að hún sigr- aði sjúkdóminn, en því yrði ekki öfugt farið. Sjálf barðist hún hetjulegri baráttu og var alltaf bjartsýn. Hún var reglulega til eftirlits og rannsókna hjá hinum færustu sérfræðingum, en allt kom fyrir ekki. „Maðurinn með ljáinn" bar sigur úr býtum löngu fyrr en sanngjarnt gat talist. Bæri heilsu Margrétar á góma, þegar hún kom úr eftirliti, sagði hún jafnan hress í bragði: „Mér líður ágætlega, ég fékk góða skoðun." Margrét fæddist í Reykjavík 2. júní 1931 og var dóttir hjónanna Theodóru Ellenar Sigurðardóttur og Ingólfs Gíslasonar læknis frá Papey. Hún var önnur í röðinni af 4 systkinum. Eldri er Theodór og yngri eru Steinunn og Gísli. Margrét ólst upp hjá foreldrum sínum og systkinum fyrst í Reykjavík og síðan á Djúpavogi, þar sem faðir hennar var héraðs- læknir, meðan heilsa hans leyfði. Hann fékk lausn frá embætti í janúar 1945 vegna alvarlegs heilsubrests. Flutti fjölskyldan þá til Reykjavíkur aftur og bjó þar síðan. Ingólfur lést 1981. Ung að árum eða í nóvember 1952 giftist Margrét eftirlifandi eiginmanni sínum Oddi C. Thor- arensen lyfsala á Akureyri og varð þeim fimm barna auðið. Þau eru: Ellen fædd 1953, Gunnlaug f. 1956, Oddur Carl f. 1958, Hild- ur Sólveig f, 1960 og yngst er Margrét Steinunn f. 1964. Öll eru börnin gjörvileg og hið mann- vænlegasta fólk, enda hafa þau hlotið gott uppeldi og góða menntun. Margrét var glæsileg kona, hávaxin og fyrirmannleg í fasi og vöktu þau Öddur athygli hvar- vetna fyrir glæsileika og prúð- mennsku. Margrét gekk í Zontaklúbb Akureyrar 19.1. 1970 og starfaði með okkur til hinsta dags. Af þeim 16 árum, sem hún var í klúbbnum, sat hún 10 ár í stjórn og þökkum við það samstarf af heilum hug. Hún tók jafnan já- kvæða afstöðu til allra góðra málefna, sem við börðumst fyrir og veitti þeim allt það lið, er hún mátti. Einnig veitti persónuleiki hennar, sem frá stafaði birtu og gleði, okkur aukna orku til fram- Bændur Aðalfundur Félags eyfirskra nautgripabænda verður haidinn að Hótei KEA fimmtudaginn 4. sept. kl. 21.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Jón Viðar Jónmundsson nautgriparækt- arráðunautur B.í. 3. Þórarinn E. Sveinsson mjólkursamlags- stjóri flytur stutt yfirlit um framleiðsluna á verðlagsárinu. 4. Ný reglugerð um stjórnun mjólkurfram- leiðslunnar. 5. Önnur mál. Áríðandi að sem allra flestir mæti á fundinn, kynni sér stöðuna og gerist félagar. Stjórnin. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Sunnuhlíð 13, Akureyri, þinglesinni eign önnu Eiriksdóttur, fer fram eftir kröfu Ásgeirs Thoroddsen hdl., Sigurðar G. Guðjónssonar hdl., Veðdeildar Landsbanka Islands, Ólafs B. Ámasonar hdl., Gunnars Sólnes hrl., Stein- gríms Þormóðssonar hdl, Útvegsbanka íslands, Hreins Páls- sonar hdl., bæjarsjóðs Akureyrar og innheimtumanns ríkis sjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 5. september 1986, kl. 14.45. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 114., 117. og 121 tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Fjólugötu 8, neðri-hæð, Akureyri, þingles- inni eign Bjargar Bjarnadóttur, fer fram eftir kröfu Skúla Bjarnasonar hdl., Tryggingastofnunar ríkisins, Róberts Á. Hreiðarssonar hdl., Veðdeildar Landsbanka Islands og Bæjarsjóðs Akureyrar á eigninni sjálfri föstudaginn 5. sept- ember 1986, kl. 15.15. Bæjarfógetinn á Akureyri. kvæmda. Ekki má gleyma að geta þess, að Margrét var mikil húsmóðir og bar glæsilegt heimili þeirra hjónanna og frábær gest- risni þeirra því glöggt vitni. Oft opnuðu þau heimili sitt fyrir okk- ur ásamt gestum okkar innlend- um sem erlendum og eigum við margar ánægjulegar minningar hjá slíkum gestaboðum heima hjá þeim. Við erum þakklátar fyrir að hafa fengið tækifæri til að kynnast slíkri konu. Blessuð sé minning hennar. Eftirlifandi eiginmanni hennar, móður, börnum, systkin- um og öðrum vandamönnum vottum við okkar dýpstu samúð. Zontasystur í Z.A. Viljum r afgreiðí Hafið sambarK Verslunin Byggðavegi 1 áða starfsfólk til ilustarfa sem fyrst d við eiganda, ekki í síma. Garðshorn 14, Akureyri. Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarforstjóra vantar að dvalar- og sjúkra- deild Hornbrekku, Ólafsfirði frá 1. nóvember. Umsóknarfrestur til 20. september. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 96-62480. Vegna yfirstandandi deilu Tknnlæknafélags Islands og Tiyggingastofnunar ríkisins um gjaldskrá tannlækna skal þeim aðilum, sem rétt eiga til endur- greiðslu á tannkostnaði ftá sjúkrasamlagi eða tryggingastofnun skv. lögum um almannatryggingar bent á eftirfarandi: Þar til samningar hafa tekist milli Tánnlæknafélags íslands og Tryggingastofnunar ríkisins um gjaldskrá fyrir tannlæknaþj ón- ustu eru skilyrði fyrir endurgreiðslu skv. 44. gr. almannatrygg- inga þessi: ?>S1S 1) að reikningur sé skv. gjaldskrá heilbrigðisráðhena frá 8. ágúst sl. 2) að reikningur sé sundurliðaður á eyðublöðum Trygginga- stofnunar ríkisins, smbr. mynd. Til að tryggja sér endurgreiðslu skal sjúklingum tannlækna ein- dregið bent á að ganga úr skugga um að tannlæknir gefi út reikning sinn á þennan hátt.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.