Dagur - 08.09.1986, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 8. september 1986
DMUR
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON
(Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
(Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDfS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASfMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
_JeiðariL__________________________________________
Jöfn byggðaþróun
þjóðfélagslega hagkvæm
Nú eru sérstök þáttaskil í byggðaþróun í landinu,
er niðurstaða Byggðanefndar þingflokkanna, sem
nýlega sendi frá sér athyglisverða skýrslu um
þessi mál. Helstu ástæðurnar fyrir þessu eru eftir-
farandi, að mati nefndarinnar:
1. Útfærsla landhelginnar, skuttogarabyltingin
og sú aflaaukning sem fylgdi í kjölfarið er um garð
gengin.
2. Frumvinnslugreinar atvinnulífsins búa nú, og
e.t.v. um næstu framtíð, við sóknar- og fram-
■leiðslutakmarkanir.
3. Vaxandi markaður er fyrir ferskan fisk á er-
lendum mörkuðum. Ný tækni í flutningum gerir
kleift að koma ferskum fiski á markað frá öllu land-
inu. Fjárfesting og atvinna í fiskiðnaði virðist frem-
ur í rénun en vexti.
4. Ný störf sem til verða í atvinnulífinu eru yfir-
gnæfandi á sviði þjónustugreina, sem vaxa mest é
höfuðborgarsvæðinu, eins og reynslan sýnir.
5. Aldursskipting íbúa landsins er þannig ac
hlutfallslega fleira ungt fólk býr nú á landsbyggð-
inni en á höfuðborgarsvæðinu. Þar er því meiri þörf
nýrra starfa, ef jöfnuður á að komast á í byggða-
þróun. Þróunin hefur verið þveröfug.
í skoðanakönnun sem gerð var í fyrra fyrir Hús-
næðisstofnun kom fram að ungt fólk vill helst af
öllu búa í heimabyggð sinni, sé þess kostur. í alveg
nýrri skoðanakönnun kom fram að mikill meirihluti
landsmanna vill jafna búsetuskilyrðin í landinu, þó
það kosti meiri þjóðarútgjöld. Skýrsla þingflokk-
anna sem hér er vitnað til bendir til eindregins
vilja þingflokkanna til að snúa þeirri óheillaþróun
við, sem verið hefur undangengin ár. Síðustu ár
hefur beinlínis fækkað fólki á landsbyggðinni.
í álitsgerð nefndarinnar er það undirstrikað að
stórfelld - jafnvel aukin - byggðaröskun hafi ekki
einungis í för með sér verulegan félagslegan
vanda í þjóðfélaginu heldur beina og óbeina van-
nýtingu verðmæta og félagslegan kostnað. Þá er
einnig bent á það að Reykjavík, ásamt með
nágrannasveitarfélögunum, sé nú þegar orðin
mjög öflug höfuðborg, sem gegni sínu hlutverki
sem miðstöð stjórnsýslu, menningar og lista í
landinu. Ör vöxtur hennar hafi haft þann kost fyrr
á árum að ungt fólk hafi fremur valið höfuðborgina
til búsetu en erlenda stórborg. „Nú er engin slík
þörf fyrir öran vöxt höfuðborgarsvæðisins heldur
þvert á móti. Jöfn þróun í byggð landsins er því
þjóðfélagslega hagkvæm. Það gildir um höfuð-
borgarsvæðið jafnt og önnur byggðarlög í landinu"
segir í skýrslu Byggðanefndar þingflokkanna. HS
viðtal daosins.
Kasparov er bestur
- segir Tómas Hermannsson
Skáksveit Gagnfræðaskóla
Akureyrar hefur verið nokkuð
í fréttum að undanförnu vegna
sérstaklega góðrar frammi-
stöðu. Sveitin varð í fyrsta sæti
á Akureyrarmóti grunnskóla,
með fullt húsi stiga og síðan í
öðru sæti á íslandsmótinu þar
sem hún þurfti að lúta í lægra
haldi fyrir sveit Seljaskóla í
Reykjavík. Þessa sigursælu
sveit skipa fjórir piltar, þeir
Bogi Pálsson, Rúnar Sigur-
pálsson, Skafti Ingimarsson og
Tómas Hermannsson. Fyrr í
sumar voru þeir allir fjórir
valdir í tuttugu manna ungl-
ingalandslið íslands sem tefldi
í Bandaríkjunum í júlí og nú á
dögunum tefldi sveitin ásamf
sveit Seljaskóla á Norður-
landamóti grunnskóla sem
fram fór í Reykjavík. Þar lentu
þeir í 4. sæti en sveit Seljaskóla
sigraði. Á fyrsta borði í sveit
G.A. teflir Tómas Hermanns-
son fimmtán ára gamall en
hann er Akureyrarmeistari í
unglingaflokki.
- Tommi, hvenær lærðir þú að
tefla?
„Ætli ég hafi ekki verið sex eða
sjö ára gamall. Fyrstu árin tefldi
ég nú bara eins og flestir við
bræður mína og aðra fjölskyldu-
meðlimi. Pað var ekki fyrr en
1983, held ég, sem ég fór að
mæta niður í skákfélag og tefla á
rnótum."
- Hvernig fara æfingar hjá
ykkur fram?
„Ja, það var nú lítið um æfing-
ar fyrst þeir misstu nefnilega
húsið. En núna er félagið komið í
nýtt húsnæði. Þarna hittumst við
bara eins og við viljum en ætli
það verði ekki æfingar svona
tvisvar í viku í vetur. Það er eng-
inn sérstakur þjálfari, við bara
teflum saman og æfumst þannig,
svo eru líka alltaf mót. Helgi
Ólafsson kom hingað norður um
daginn og hélt námskeið.“
- Liggið þið eitthvað í
bókum?
„Já dálítið.“
- En fjöltefli. Hefurðu tekið
þátt í slíku?
„Já, já ég hef til dæmis teflt við
Jóhann Hjartarson og við vorum
þrír sem unnum hann. Svo hef ég
líka tapað fyrir De Firmian."
- Hvernig tilfinning er það nú
að sigra stórmeistara?
„Það er bara mjög góð tilfinn-
ing, stórmeistaratilfinning.“
- Segðu mér nú aðeins af
þessu móti í Bandaríkjunum, var
þetta landslið Bandaríkjanna
sem þið teflduð við?
„Ja þetta var svona hálfgert
landslið. Þarna voru krakkar úr
alla vega átta fylkjum. Þessi hóp-
ur er kallaður Collin’s Kids. John
W. Collins sem er með þennan
hóp var aðalþjálfari Fischers á
sínum tíma. Hann er orðinn
eitthvað um áttrætt en er samt
þrælgóður að tefla ennþá.“
- Hvernig gekk þér nú sjálfum
þarna úti?
„Ég tefldi á 6. borði og vann
allar mínar skákir þannig að mér
gekk mjög vel.“
- Hvernig var nú ferðin svona
í heildina?
„Þetta var náttúrlega rosalega
gaman. Við vorum þarna í rúma
viku og gistum á Concorde hótel-
inu sem er eitthvað um 200 km
fyrir utan New York. Þetta er
alveg æðislega flott hótel, fimm
stjömu. Þama er næststærsti golf-
wöllur í heimi og 50 tennisvellir
úti. Svo eru einhverjir tennisvell-
ir inni og einhver slatti af sund-
laugum. Við vorum öll boðin
heim til hans Collins og þar voru
náttúrlega myndir af honum og
Fischer upp um alla veggi. Svo
sýndi hann okkur taflmenn sem
Fischer hafði gefið honum. Þeir
tefldu alltaf með þessum mönn-
um sín á milli og hann sagði okk-
ur endilega að snerta mennina og
setjast í stólinn þar sem Fischer
sat alltaf. Hann sýndi okkur líka
miða með fyrstu skákinni sem
Fischer skrifaði sjálfur upp. Á
miðanum eru líka skýringar Fisc-
hers sjálfs við skákina. Honum
hefur verið boðið of fjár í þennan
miða.“
- Nú svo er það þetta mót í
Reykjavík um daginn. Þið urðuð
frægir fyrir að hafa bjargað sigr-
inum hjá sveit Seljaskóla, gerðuð
þið það?
„Ég veit það ekki, við hjálp-
uðum eitthvað til. Þeir hefðu
ekki unnið ef við hefðum tapað
öllum skákunum á móti norsku
sveitinni. En jafntefli hefði senni-
lega verið nóg.“
- Nú þið lentuð í 4. sæti á
þessu móti. Ætlið þið ykkur ekki
að komast á næsta Norðurlanda-
mót í Finnlandi?
„Jú við reynum það náttúrlega
en til þess þurfum við að vinna
mótið hér heima í vetur. Það er
bara landið sem heldur mótið
sem fær að senda tvær sveitir.“
- Jæja svona að lokum um
skákina hver er nú uppáhalds-
skákmaðurinn?
„Það er Kasparov.“
- Tekst honum að sigra
Karpov aftur?
„Já alveg örugglega. Hann
malar þetta kannski ekki en hann
vinnur. Kasparov er miklu vin-
■sælli en Karpov og flestir hér
styðja hann.“
- Hvað með önnur áhuga-
mál?
„Ég er í fótbolta á sumrin og
veturna og ég var í handbolta en
hætti því um áramótin í vetur.“
- Var það út af skákinni?
„Já maður hefur ekki tíma til
að vera í þessu öllu og ég tek
skákina fram yfir handboltann.
Það er hins vegar erfiðara að gera
upp á milli skákarinnar og fót-
boltans."
- Varstu að vinna eitthvað í
sumar?
Já, ég vann á KA-vellinum
og líkaði bara vel“
- En nú er skólinn að byrja í
dag, hlakkarðu til?
„Alveg rosalega!“
- Hvað með framtíðina, er
það stórmeistaratitill?
Já, já, auðvitað,“ segir Tommi
drýgindalega og glottir, „nei ég
veit það ekki, ég er ekki farinn að
hugsa svo langt.“ ET