Dagur - 08.09.1986, Page 3

Dagur - 08.09.1986, Page 3
8. september 1986 - DAGUR - 3 Starfsstúlkur í þingeyska básnum kynntu ýmislegt góðgæti frá Húsavík og Mývatnssveit. Básinn vakti almenna hrifningu á meðal nágranna á sýningunni. Mynd: jhb Góðgæti frá Húsavík og Mývatnssveit kynnt á „Heimilinu ’86“ „Já, ég held að það sé óhætt að segja að við séum orðnar nokkuð vinsælar hér, a.m.k. hjá þeim sem eru í nágranna- básunum. Þau eru alltaf að koma annað slagið og fá að smakka,“ sagði Jónína Hall- grímsdóttir, en hún stjórnaði bás á „Heimilinu ’86“ þar sem fram fór kynning á alls kyns góðgæti frá Húsavík og Mývatnssveit. Maturinn sem kynntur var frá Húsavík var frá Kaupfélagi Þing- eyinga og Fiskiðjusamlagi Húsa- víkur. „Við skiptum þessu niður á milli daga,“ sagði Jónína. „Við byrjuðum að kynna hérna laufa- brauð og magál og síðan höfum við kynnt m.a. jurtakryddað Lado Iamb, Kúttersíld, grófbrytj- aða sperðla sem reyktir eru við tað og ýmislegt fleira. Þetta hefur gengið mjög vel og ég er ánægð með viðtökurnar sem við höfum fengið, það er búið að vera mikið af fólki í kringum básinn allan tímann. Að vísu er ég ekki alveg. nógu ánægð með aðsóknina á sýninguna, ég bjóst við að sjá fleiri,“ sagði Jónína Hallgríms- dóttir. JHB Loðnan: Útboð Olíufélagiö Skeljungur hf. óskar eftir tilboðum í ann- an áfanga bensínstöövar við Hörgárbraut, Akureyri. Lagnir - uppsteypa sökkuiveggja, plana og fl. Útboösgöng veröa afhent á Verkfræðistofu Norður- lands hf. Skipagötu 18, Akureyri, frá og meö þriðju- degi 9. september 1986. Tilboð verða opnuð á sama stað föstudaginn 19. september 1986 kl. 14.00. í\ |\ TONLISTARSKÓLINN Á AKUREYRI Haustinnritun, staðfesting á umsóknum frá s.l. vori, greiðsla skólagjalda eða samningar um greiðslufyrir komulag fer fram í Tónlista- skólanum á Akureyri, Hafnar- stræti 81 3. hæð á eftirtöldum dögum: Miðvikudaginn 10. sept., fimmtudaginn 11. sept. og föstudaginn 12. sept., kl. 13-18. Eftirfarandi nám er í boði: Forskóli fyrir 5-10 ára börn (hópkennsla 2svar í viku), söngur, strokhljóöfæri (fiðla, lágfiöla, selló og kontrabassi), gítar, rafgítar, rafbassi, píanó, orgel-harmonium, pedalorgel, harmonika. Öll helstu málm- og tréblásturshljóðfæri, ásláttarhljóöfæri, jassdeild, tónfræöi, tónheyrn, hljómfræöi, tónlistarsaga. Mikil áhersla lögö á samleik og hljómsveitarleik. Nemendur eru beðnir að skila afriti af stundarskrám viö aðra skóla. Skólagjöld á haustönn: 2x1/2 klst. á viku einstaklingskennsla + hóptímar kr. 5.700. 1x1/2 klst. á viku einstaklingskennsla + hóptímar kr. 3.500. Forskóli .......................................... 3.100. Innritum ekki í gegnum síma nema fyrir utanbæjarfólk. Þegar orðið fullt í sumum kennslugreinum. Skólastjóri. Súlan komin með sex þúsund tonn „Skipið kom inn á þriðjudags- morguninn vegna brælu á mið- unum. Auk þess á skipshöfnin tveggja sólarhringa frí í mánuði, svo ákveðið var að taka fríið í framhaldi af þessari brælu,“ sagði Sverrir Leósson útgerðarmaður hins kunna aflaskips Súlunnar EA 300. „Það eru miklar sveiflur í veðr- inu núna og segir okkur að nú er farið að hausta og má því búast við brælum. Skipið fór svo út fyr- ir helgina,“ sagði Sverrir. Súlan hefur aflað um 6 þúsund tonna af loðnu á þessari vertíð og sagðist Sverrir vera ánægður með það, enda hefur sigling á miðin styst verulega. Hún var um 30 tímar þegar lengst var, en er nú um 20 tímar og er loðnan á leið- inni upp, eða nær landinu," sagði Sverrir og reiknaði með góðri loðnuveiði. gej- Eyjafjörður: Mikið um gæsir - en treg veiði fram að þessu „Fram til þessa hefur veiðin ekki verið góð og fuglinn er horaður ennþá. það er ekki fyrr en upp úr miðjum sept- ember sem menn fara að veiða fyrir alvöru,“ sagði Sigmundur Ofeigsson formaður Skotveiði- félags Eyjafjaröar er hann var inntur eftir gæsaveiði fram til þessa. Sigmundur sagði að veiðimenn væru farnir að fara til veiða, en erfitt væri aö eiga við fuglinn, því hann héldi sig hátt til fjalla, „væri í berjamó,” eins og Sigmundur orðaði það. „Þetta fer ekki að ganga fyrr en harðnar á dalnum og gæsin færir sig neðar og niður á túnin, að von er á góðri veiði. Þegar ég tala um góða veiði á ég við að tveir menn fái 4 til 5 gæsir í ferð.“ Góð veiðilönd þykja í Eyja- firði, Hörgárdal og Skagafirði og sagði Sigmundur að óvenjumikið væri af heiðagæs í Skagafirði og hún væri mun betur á sig komin hvað holdafar snerti en grágæsin. „að þessu sinni er mjög mikið af grágæs í Eyjafirði og er von til þess að góð veiði verði þar, þegar menn fara að hugsa sér til hreyf- ings,“ sagði Sigmundur. gej- AUGLÝSING UMINNLAUSNARVERÐ VERÐTRYGGÐRA SPARISKlRTEINA RlKISSJÓÐS FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* 10.000 GKR. SKÍRTEINI 1972-2. fl. 15.09.86 kr. 23.248,02 1973-1. fl.A 15.09.86-15.09.87 kr. 17.041,83 1974-1. fl. 15.09.86-15.09.87 kr. 10.327,12 1977-2. fl. 10.09.86-10.09.87 kr. 3.371,15 1978-2. fl. 10.09.86-10.09.87 kr. 2.153,75 1979-2. fl. 15.09.86-15.09.87 kr. 1.404,03 FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00 1973-1. fl. 15.09.86-15.09.87 10.000 gkr. skírteini 50.000 gkr. skírteini 897,25 4.486,25 *lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót. Innlausn spariskírteinaog árgreiðslumiða fer fram í afgreiðslu Seðlabanka Islands, Hafnarstræti 10, og liggja þarjafnframtframmi nánari upplýsingar um skírteinin. Athygli skal vakin á lokagjalddaga 2. flokks 1972, sem er 15. september n.k. Reykjavík, ágúst 1986 SEÐLABANKIÍSLANDS

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.