Dagur - 08.09.1986, Side 11
8. september 1986 - DAGUR - 11
f Jón H. Oddsson
húsgagnasmíðameistari, Akureyri
Fæddur 24. júlí 1912 - Dáinn 30. ágúst 1986
Á föstudaginn var, 5. sept. var
jarðsettur frá Akureyrarkirkju
Jón H. Oddsson húsgagnasmíða-
meistari og lengi framkvæmda-
stjóri Einis hf., húsgagnaverk-
stæðis og húsgagnaverslunar á
Akureyri. Um árabil hafði Jón að
vísu kennt dalandi líkamshreysti,
en vel var hann ferðafær og hress
í anda sem ungur væri. Fyrir
fáum vikum varð hann fyrir
heilsufarsáfalli, sem ekki varð við
ráðið. Hann lést í Landspítalan-
um í Reykjavík aðfaranótt 30.
ágúst sl., 74 ára að aldri.
Jón var einn af kunnustu iðn-
aðarmönnum á Akhreyri og átti
orðið langa starfsævi, þegar hann
féll frá. Má heita að ævistarf sitt
allt ynni hann á Akureyri. Þang-
að fluttist hann um tvítugsaldur,
nam húsgagnasmíði, fyrst hjá
Haraldi I. Jónssyni, en síðar
Ólafi Ágústssyni, gekk i Iðnskóla
Akureyrar og brautskráðist
þaðan. Varð hann gróinn og gegn
borgari í Akureyrarbæ og einn af
þeim sem settu svip á bæinn um
áratuga skeið.
Jón Halldór Oddsson var
fæddur 24. júlí 1912 á Kálfanesi í
Steingrímsfirði. Voru foreldrar
hans Oddur Lýðsson frá Skrið-
nesenni og kona hans Sigríður
Jónsdóttir frá Tröllatungu, bæði
af þekktum ættum þar vestra,
enda margt þjóðkunnra manna
meðal ættmenna þeirra beggja,
þótt hér verði ekki rakið nánar.
Oddur og Sigríður bjuggu stutt á
Kálfanesi, fluttust þaðan að
Klúku í Tungusveit, en síðan að
Hlíð í Kollafirði og bjuggu þar
lengst af sínum búskap. Árið
1935 flytjast þau hjón með börn-
um sínum, sem þá voru enn
heima og mörg ung að árum, að
Glerá við Akureyri. Þar andaðist
Oddur Lýðsson ári síðar, mjög
um aldur fram, en Sigríður hélt
áfram búskap á Glerá, fyrst með
Magnúsi syni sínum, bygginga-
meistara á Akureyri, en síðar
tóku þar við búi Ásgeir og
Sigurður Oddssynir og bjuggu
þar lengi. Sigríður lést á Ákur-
eyri árið 1958. Alls voru börn
þeirra hjóna 10 að tölu, og var
Jón næstelstur systkinanna.
Eftir að Jón lauk iðnnámi sínu
vann hann lengi á verkstæði
Ólafs Ágústssonar og um eitt
skeið hjá Þórði Jóhannssyni, en
báðir voru þeir Ólafur og Þórður
afbragðsiðnmeistarar, og hjá
þeim og undir þeirra handarjaðri
óx upp hópur ágætra smiða á
Akureyri, og var Jón Oddsson
meðal þeirra, enda mat hann þá
mikils. Stuttan tíma á heimsstyrj-
aldarárunum vann Jón að smíð-
um í Reykjavík, en gekk upp úr
því í félagsskap með Sigurbirni
Árnasyni og Kára Hermannssyni
um rekstur húsgagnaverkstæðis á
Akureyri og nefndu Nýja
kompaníið. Þeir félagar byrjuðu
smátt, en komu sér allvel fyrir,
reistu m.a. húsnæði fyrir verk-
stæðið í Hafnarstræti 81. Starfaði
Nýja kompaníið þannig nokkur
ár fyrir og eftir 1950, en 1952
varð sú breyting á að þeir félagar
stofnuðu nýtt húsgagnafyrirtæki
með Þórði Jóhannssyni og Gunn-
laugi Jóhannssyni og nefndu Eini
hf. Smíðaverkstæði Einis var í
Kaupvangsstræti 19, þar sem ver-
ið hafði verkstæði Þórðar, en
húsgagnaverslun Einis var rekin í
húsi Nýja kompanísins við Hafn-
arstræti. Rekstur Einis hf. var
hinn myndarlegasti. Eftir nokkur
ár kom þó að því að ýmsir frum-
herjanna að þessum félagsskap
hurfu að öðrum störfum. Jór
Oddsson varð nánast einn eftii
hinna upphaflegu Einismanna.
Þá (1959) keypti Guðbrandur
Sigurgeirsson húsgagnasmíða-
meistari hlut í fyrirtækinu og
störfuðu þeir Jón saman að
rekstri þess í blíðu og stríðu
næstu 15 ár.
Á árunum um og eftir 1970
voru að gerast miklar breytingar
á þeim grundvelli sem húsgagna-
smíðin hafði byggst á hér á landi.
Rekstrarvandi tók að hrjá hús-
gagnaiðnaðinn og fóru Einis-
menn ekki varhluta af því. Er-
lend samkeppni tók að segja til
sín og opinber aðstoð iil endur-
skipulagningar smíðaiðnaði eng-
an veginn fullnægjandi. Einis-
menn freistuðu þess eigi að síður
að endurskipuleggja rekstur sinn
frá rótum, réðust í húsbyggingu
og hugðu á vélakaup, en skilyrði
reyndust ekki fyrir hendi til þess
að láta drauma rætast um fram-
tíðarrekstur Einis hf. Urðu það
þeim félögum, Jóni og Guð-
brandi, mikil vonbrigði, og kom
að því að nýbyggingin var seld og
áreiðanlega ekki að skaplausu.
Enn varð Jón einn síns liðs í Eini,
og tók sér nú fyrir hendur að reka
áfram húsgagnaverslun undir
Einisnafni næstu ár. Að því kom
að hann varð að draga sig í hlé
frá störfum, enda heilsan farin að
bila.
Síðustu ár voru Jóni friðsæl.
Þrátt fyrir nokkuð rénandi lík-
amshreysti og andbyr í atvinnu-
rekstrinum bar hann allt slíkt
með stakri prýði og lét sem ekk-
ert amaði að sér, enda var það
sanni næst. Hann hefði að sjálf-
sögðu haft meiri fjárráð, ef Einir
hefði gengið nógu vel og eftir
þeim áætlunum, sem hann hafði
látið gera um reksturinn. í þeim
efnum var þó við öfl og aðstæður
að glíma, sem ekki var hægur
vandi að kljást við. Þessar svipt-
ingar í iðnrekstrarmálum bitnuðu
á fleirum en Jóni á þessum árum,
og gekk á ýmsu hvernig úr
•ættist.
Jón H. Oddsson var hamingju-
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 1., 27. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985
á fasteigninni Norðurgötu 32, Akureyri, talin eign Jakobs
Tryggvasonar o.fl. fer fram eftir kröfu Ragnars Steinbergsson-
ar hrl. og bæjarsjóðs Akureyrar á eigninni sjálfri föstudaginn
12. september 1986, kl. 13.45.
Bæjarfógetinn á Akureyrl.
maður í einkalífi sínu. Til er
spakmæli síðan úr fornöld sem
segir: „Hver er sinnar gæfu
smiður.“ En það merkir blátt
áfram að hver maður ræður því
sjálfur hvort hann er „hamingju-
maður“ eða ekki, þ.e. hvort hann
er sáttur eða ósáttur við hlut-
skipti sitt í lífinu. Jón Oddsson
var þannig skapi farinn að hann
var fullfær um að smíða sér - í
þessari merkingu - gæfu af sjálfs-
dáðum. En hann var líka svo
lánsamur að kona hans, Sigur-
veig Árnadóttir frá Þverá í Svarf-
aðardal, stóð honum ekki að baki
í gæfusmíð. Vita allir sem til
þekkja að hún er meistari í þess
háttar smíðum. Hjá þeim Jóni
var sérstakur heimilisandi, eins
konar opið hús, sem margir
fengu að njóta. Voru þau hjón
með fádæmum vinsæl, enda svo
hjálpfús og góð vinum sínum að
seint verður þakkað. Við hjónin
og börn okkar áttum vináttu
þeirra Jóns og Veigu í ríkum
mæli. Sérstaklega eru Jóni færðar
þakkir frá Siggu Ingvars, sem nú
er langt í burtu og í fjarlægu
landi, en naut á sínum tíma frá-
bærs atlætis á heimili Veigu og
Jóns. Allt er það geymt en ekki
gleymt.
Áð líkum lætur að þau voru
börnum sínum og fjölskyldum
þeirra sannir heillavættir. Jón og
Sigurveig eignuðust 3 börn, elsta
barn sitt misstu þau í frum-
bernsku, dreng sem Árni hét.
Eftirlifandi börn þeirra eru Árni
Sævar og Sigríður, sem bæði eru
gift og búsett á Akureyri og eiga
afkomendur.
Jón Oddsson gaf sig ekki að
opinberum málum í venjulegum
skilningi, en hafði vakandi áhuga
á pólitík, fylgdi Framsóknar-
flokknum og tók mikinn þátt í
flokksstörfum, einkum fyrr á
árum. Þótt honum væri eiginlegt
að búa að sínu upp á gamla
bændavísu, þá var hann félags-
lyndur og samhyggjumaður.
Hann hafði trú á samtakamætti
fólksins því til mannheilla og
kjarabóta. En umfram allt var
hann góðviljaður og óhlutdeil-
inn, en hafði sínar skoðanir fyrir
sig. Um hann eiga vinir hans og
samferðamenn ekkert nema góð-
ar minningar.
Ingvar Gíslason.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var (13., 20. og 24. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Frostagata 3B, B-hluta, Akureyri, talinn eign
Sigurðar Ákasonar, fer fram eftir kröfu bæjarsjóðs Akureyrar,
Iðnlánasjóðs og Sigurðar G. Guðjónssonar hdl. á eigninni
sjálfri föstudaginn 12. september 1986, kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var 113., 20. og 24. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Eiðsvallagata 9, neðri hæð, Akureyri, þingles-
inni eign Sigfúsar Hansen, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes
hrl. og veðdeildar Landsbanka íslands á eigninni sjálfri föstu-
daginn 12. september 1986, kl. 16.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 13., 20. og 24. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Glerárgata 34, 1. hæð, Akureyri, þinglesinm
eign Haraldar S. Gunnarssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars
Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 12. september 1986,
kl. 14.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 1., 4. og 7. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986 á
Flóabátnum Drang, Akureyri, þinglesinni eign Drangs hf., fer
fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs, Tryggingastofnun-
ar ríkisins og Gunnars Sólnes hrl. við skipshlið, föstudaginn
12. september 1986, kl. 15.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 13., 20. og 24. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986
á fasteigninni Gránugata 14, (gripahús), Akureyri, talin eign
Hauks Tryggvasonar, fer fram eftir kröfu bæjarsjóðs Akureyr-
ar á eigninni sjálfri föstudaginn 12. september 1986, kl. 17.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Hólabraut 15, 2. hæð, Akureyri, þinglesin
eign Magnúsar Tryggvasonar o.fl. fer fram eftir kröfu Gunnars
Sólnes hrl., veðdeildar Landsbanka íslands, Inga Ingimundar-
sonar hrl., Brunabótafélags Islands, innheimtumanns rikis-
sjóðs og bæjarsjóös Akureyrar á eigninni sjálfri föstudaginn
12. september 1986, kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
INNLAUSNARVERÐ
VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA
SPARISKlRTEINA RlKISSJÓÐS
Í2.FLB1985
Hinn 10. september 1986 er annar fasti gjalddagi vaxtamiöa verötryggöra
spariskírteina ríkissjóðs meö vaxtamiöum í 2. fl. B1985.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 2 verður frá og með 10. september n.k. greitt sem hér segir:
Vaxtamiöi með 50.000,- kr. skírteini
kr. 1.979,00
Ofangreind fjárhæð er vextiraf höfuöstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. mars 1985 til 10. september 1986 aö viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1239 hinn 1. september 1985
til 1486 hinn 1. september 1986.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða nr. 2 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands,
Hafnarstræti 10, Reykjavík, og hefst hinn 10. september n.k.
Reykjavík, 29. ágúst 1986
SEÐLABANKI ÍSLANDS