Dagur - 10.09.1986, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 10. september 1986
DMUR
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON
(Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
(Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Ueiðari.____________________________
Ótvíræður
efnahagsbati
í þjóðhagsspá þeirri sem birt var í vikunni kemur
fram að verulegur bati er í efnahagslífi lands-
manna. Það kemur ekki á óvart, því ytri aðstæður
hafa verið ákaflega hagstæðar á árinu. Aflabrögð
hafa verið með besta móti og allt stefnir í að árið
1986 verði mesta aflaár íslandssögunnar. Reiknað
er með að sjávarvöruframleiðsla verði u.þ.b. 8%
meiri en í fyrra og heildarframleiðsluaukning verði
um 5%. Þá er talið að þjóðartekjur muni aukast um
7% frá fyrra ári og er það með því mesta sem þekk-
ist meðal Evrópuþjóða. Síðast en ekki síst hefur
lágt olíuverð komið sér vel fyrir þjóðarbúið og mun
spara okkur u.þ.b. tveggja milljarða króna útgjöld
á þessu ári. Þannig hefur margt lagst á eitt með að
skapa hagstæð ytri skilyrði í þjóðarbúskapnum.
Ótvíræður efnahagsbati hefur þó ekki alltaf fylgt
í kjölfar hagstæðra ytri skilyrða á undanförnum
árum. Til þess að hann skili sér þarf stjórn efna-
hagsmálanna að vera traust og markviss. Ríkis-
stjórn Steingríms Hermannssonar hefur sýnt fyrir-
hyggju við stjórn þessara mála og nægir að nefna
breytta vaxtastefnu og skynsamleg en afgerandi
afskipti af gerð síðustu kjarasamninga. Aðalmark-
miðið var að ná verðbólgunni niður án þess að það
bitnaði á kaupmætti almennings í landinu. Spá
Þjóðhagsstofnunar sýnir svo ekki verður um villst
að því markmiði hefur ríkisstjórnin náð. Verðbólg-
an í árslok verður í fyrsta sinn um langt árabil
mæld með einum tölustaf. Á sama tíma hefur
kaupmátturinn ekki einungis haldist, heldur auk-
ist og er á þessu ári meiri en nokkru sinni fyrr.
Þótt vissulega hafi birt til í íslenskum efnahags-
málum á árinu ber nokkurn skugga þar á. Ríkis-
sjóður er rekinn með talsverðum halla og ljóst er
að ekki mun takast að stemma stigu við erlendum
lántökum nema að litlu leyti. Talið er að erlendar
skuldir þjóðarbúsins til langs tíma verði 74 millj-
arðar króna í árslok eða 52% af landsframleiðsl-
unni. Það er hátt hlutfall.
Við megum því ekki ofmetnast og spenna bog-
ann of hátt. Við eyðum enn um efni fram og ekki
má mikið út af bera til þess að verðbólguhjólið taki
að snúast að nýju. í komandi kjarasamningum
verða hófsemin og skynsemin að fá að sitja í fyrir-
rúmi annað árið í röð. Gera þarf ráðstafanir til að
dreifa skattbyrðinni jafnar en nú er og ná til þeirra
sem ævinlega reyna að komast hjá því að greiða
það sem þeim ber. Búið er að leggja grundvöll til
bættra kjara á komandi árum og næsta skref er að
festa kaupmáttaraukninguna, sem þjóðhagsspá
sýnir fram á, endanlega í sessi. BB.
_y/óía/ dagsins.
Ármann Benjamínsson
„Feikilega mikið að gera
- segir hinn fjölhæfi Ármann Benjamínsson
Að þessu sinni er mættur I
viðtai dagsins Ármann Benja-
mínsson, ungur athafnamaður
hér á Akureyri. Hann hefur á
undanförnum árum rekið fyrir-
tæki, unnið sem smiður, stund-
að flug, lært mynd- og handíð
og fleira mætti teija. Að þess-
um upplýsingum fengnum
þótti okkur bráðnauðsynlegt
að fá drenginn til að segja nán-
ar frá störfum sínum og tók
hann þeirri umleitan Ijúfmann-
lega.
Ármann var að skipta um gler í
húsi við Bjarkarstíg er blaða-
menn bar að garði og eftir að við
höfðum komið okkur fyrir á gras-
inu var hann spurður um fyrir-
tækið.
„Þetta er lítið fyrirtæki sem við
Jón Sigurðsson stöndum að. Það
var stofnað í febrúar og kallast
NOMACO.“
- Hvað þá?
„Þú ert nú ekki sá fyrsti sem
hváir. Þetta er búið til úr nöfnun-
um okkar, Nonni og Manni og
endingin er náttúrlega company.“i
- Hvers eðlis er þetta fyrir-
tæki?
„Við tökum að okkur alhliða
viðhald á húsum, innanhúss sem
utan. Mest erum við þó innivið
og eru baðherbergi sérstaklega
vinsæl. Þau eru oft í slæmu ásig-
komulagi og þarfnast mikilla við-
gerða. Nú, þetta er ekki ein-
göngu viðhald sem við fáumst við
heldur smíðum við ýmsar smá-
innréttingar líka ef með þarf.
Verkefnin eru margvísleg í þess-
ari grein og vonlaust að segja frá
öllu sem við gerum, en við reyn-
um að uppfylla óskir viðskipta-
vinanna.“
- Hvar eru höfuðstöðvarnar?
„Ja, við erum með skúr að
Grundargötu 3 og telst fyrirtækið
þar til húsa. En við höfum unnið
ansi mikið í gegnum Bynor, sem
er þjónustufyrirtæki. Davíð hef-
ur verið mjög duglegur við að
redda okkur verkefnum, jafnvel
of duglegur."
- Það er sum sé nóg að gera?
„Já, alveg yfirdrifið. Þó að það
sé lægð í byggingariðnaði, nánast
engar nýbyggingar, þá er nóg að
gera í viðhaldinu.“
- Vannstu kannski við
nýbyggingar áður?
„Já, meðal annars. Ég var
smiður hjá Aðalgeiri og Viðari
og einnig hjá Hamri.“
- Nú hefur þú rekið Tækja-
leiguna um nokkurt skeið.
Hvernig gengur það fyrirtæki?
„Blessaður vertu, hún hefur
aldrei verið neitt, nema nafnið
kannski. Ég held að það sé eng-
inn grundvöllur fyrir rekstri á
svoleiðis fyrirtæki hér. Hún er til
ennþá, en við höfum lítið sinnt
henni. Svona fyrirtæki ganga
stórvel í Reykjavík veit ég, en
hérna dugar innkoman ekki einu
sinni fyrir viðhaldi á tækjunum.
Samt er þetta eina leigan á svona
minni tækjum og verkfærum hér í
bæ.“
- Einhvers staðar gróf ég það
upp að þú værir með flugmanns-
próf. Getur það staðist?
„Jú, jú, það er rétt. Ég kom
mér upp einkaflugmannsprófi
fyrir tæpu ári síðan, keypti mér
flugvél, flaug henni nokkrum
sinnum og seldi hana svo. Síðan
hef ég ekkert flogið, enda áhug-
inn farinn að dofna. Nei, ég lenti
ekki í neinum ævintýrum sem
tóku úr mér kjarkinn, en sumir
segja það mottó hjá mér að byrja
á sem flestu en klára aldrei
neitt.“
- Þú ert þá hálfgerður dellu-
karl. Var það ein dellan þegar þú
fórst að læra myndíð?
„Já, kannski. Ég tók tvo
áfanga í Handmenntaskólanum,
þetta er reyndar bréfaskóli. Þeir
senda manni verkefni sem maður
vinnur og sendir þeim aftur. Síð-
an fær maður þau leiðrétt til
baka. Þetta var aðallega teikning
og málun og jú, vissulega var
gaman að þessu. Ég fyllist alltaf
gríðariegum áhuga á hlutum í
fyrstu, en oft vill hann fjara út.
Ármann er fæddur og uppalin
á Akureyri og hefur búið alla
sína tíð í foreldrahúsum,
Byggðavegi 143. Hann á afmæli í
dag, kom í heiminn 10. septem-
ber 1960. Hann segir það vera á
döfinni að koma sér upp þaki yfir
höfuðið, en gæti hann hugsað sér
að búa annars staðar en á Akur-
eyri?
„Ég hef nú lítið ferðast og veit
svo sem ekki um annan stað sem
væri fýsilegri til búsetu en Akur-
eyri. Það væri kannski frekar
annað land, en mér líkar stórvel
hér.“
- Nú ert þú vinnuhross, gefst
einhver tími til að sinna áhuga-
málum?
„Ætli vinnan sé ekki helsta
áhugamálið. Að minnsta kosti fer
mestur tími í hana. En frístundir
eru fáar, varla að maður geti
skellt plötu á fóninn. Ég hef ekki
tekið mér sumarfrí ennþá. Nonni
fór á skútu til Skotlands í sex vik-
ur og það var nóg að gera hjá mér
á meðan, en kannski að maður
taki sér vetrarfrí. Svo er það
þannig þegar maður vinnur hjá
sjálfum sér, að það er hægur
vandi að taka sér frí í miðri viku
ef svo ber undir. Þannig að ég á
að geta hvílt mig eða sinnt öðrum
málum þó ég taki ekki venju-
bundin helgarfrí og svoleiðis."
- Eru iðnaðarmenn að
drukkna í vinnu?
„Það er feikilega mikið að
gera í viðhaldinu og mér skilst að
það sé mjög erfitt að ná í iðnað-
armenn. Margir fluttu úr bænum
þegar lægðin var sem mest en ég
er bjartsýnn á uppbyggingu
atvinnumála. Ég held örugglega
áfram í þessu í vetur.“
- Það er gott að heyra
Ármann. En að lokum. Hvernig
líkar þér við Dag?
„Ég les Dag alltaf upp til agna.
Hann er kominn áður en ég fer í
vinnuna og er gott að líta í hann
áður en maður hefst handa. Mér
fannst það þarft framtak að gera
hann að dagblaði og það hefur
tekist vel.“
Þá er best að tefja hann ekki
frekar enda maðurinn önnum
kafinn. Um leið og við kvöddum
og þökkuðum fyrir spjallið, var
Ármann farinn að munda verk-
færin uppi á vinnupallinum í
hetjulegri baráttu við öldrunar-
sjúicdóma hússins. SS