Dagur - 10.09.1986, Síða 3
10. september 1986 - DAGUR - 3
Tónlistarskólinn á Akureyri:
Svipaður nemenda-
fjöldi og í fyrra
Á morgun miðvikudag hefst
innritun nemenda í Tónlistar-
skólann á Akureyri. „Það má
eiginlega segja að þetta sé síð-
ari hluti innritunar sem hefst
nú á miðvikudaginn. Fyrri
hlutinn fór fram síðastliðið vor
en það voru þá kannski frekar
þeir sem voru þá í skólanum og
eru að halda áfram sem not-
færðu sér það. Við reiknum
með að taka inn u.þ.b. 150
nýja nemendur en einstaka
hljóðfæri eru að verða mjög
umsetin. Það má t.d. nefna
fiöluna en þar eru þegar komn-
ar um níutíu umsóknir. Það
getur orðið erfitt að taka við
öllum þeim fjölda þar sem enn
hefur ekki tekist að ganga frá
ráðningu fiðlukennara. Hins
vegar er hægt að bæta við tölu-
verðum fjölda til dæmis á
gítar, píanó og ýmis blásturs-
hljóðfæri“ sagði Jón Hlöðver
Áskelsson skólastjóri Tónlist-
arskólans í samtali við blaðið.
„Nemendur við Tónlistarskól-
ann voru um 500 í fyrra og við
reiknum með svipuðum fjölda í
vetur þó að aðsókn virðist vera
meiri. Skólanum eru settar
nokkrar skorður af húsnæði og
fjármagni. Skólagjöld verða nær
óbreytt frá því í fyrra og töluvert
lægri en gengur og gerist í
Reykjavík. Kennararáðningar
eru nokkurt vandamál og við eig-
um enn eftir að ráða 1-2 kennara.
Það er hörgull á tónlistarkennur-
um en hins vegar er töluverður
fjöldi þeirra í námi.“
Að sögn Jóns er óeðlilega erfitt
að fá kennara hingað til Akureyr-
ar. „Tónlistarfólk sækir mest til
Reykjavíkur, þar eru tækifærin.
Ekki bara í kennslu heldur einnig
hvað varðar tónlistarflutning. Þar
á eftir virðast koma ýmsir smærri
staðir sem þá bjóða upp á fríðindi
eins og frítt húsnæði."
í sumar hafa verið nokkrar
framkvæmdir í skólanum en
vegna mistaka í hönnun og fram-
kvæmd þurfti að skipta unr milli-
veggi á 3. hæðinni til þess að bæta
hljóðeinangrun.
„Ég er frekar bjartsýnn á vet-
urinn og framtíðina því Tónlistar-
skólinn virðist njóta vaxandi
vinsælda hjá fólki,“ sagði Jón að
lokurn. ET
- til stuðningsmanna Framsóknarflokksins
í Norðurlandskjördæmi eystra
frá Níelsi Árna Lund
Á næstu dögum verður fram-
kvæmd skoðanakönnun í kjör-
dæminu þar sem valdir verða
menn til að skipa framboðslista
Framsóknarflokksins við næstu
alþingiskosningar.
Ég hef síðustu tvö kjörtímabil,
eða frá 1979, skipað 4. sæti á lista
flokksins í kjördæminu og þar
með verið fyrsti varaþingmaður
flokksins þar. Það hefur verið
mér bæði ánægjulegt og fróðlegt
og gefið mér kost á að kynnast
mörgu því sem ég hefði ekki vilj-
að missa af. Einnig vona ég að ég
hafi getað látið nokkuð gott af
mér leiða fyrir kjördæmið, þótt
eflaust hefði betur mátt gera. Ég
vil þó taka það fram að varaþing-
mannsstarf er allt annað en þing-
mannsstarf og staða varamanns
er allt önnur til að koma sínum
málum á framfæri. Þetta veit ég
að menn gera sér fulla grein fyrir.
Af margvíslegum ástæðum
sem ekki verða raktar hér hef ég
ákveðið að gefa ekki lengur kost
á mér á framboðslista flokksins í
þessu ágæta kjördæmi og finnst
rétt að skýra opinberlega frá
þeirri ákvörðun áður en til skoð-
anakönnunar kemur.
Þessi ákvörðun mín breytir þó
engu um að ég mun áfram styðja
Framsóknarflokkinn. Þá mun ég
einnig, hér eftir sem hingað til,
hugsa hlýtt til kjördæmisins og
íbúanna þar og ljá málefnum
þeirra lið eftir því sem kostur er
á. Kynni mín af ykkur eru öll á
einn veg; með miklum ágætum.
Þið hafið sýnt mér mikið traust
og vináttu sem ég þakka fyrir.
Sjáumst ætíð heil og hress og
megi uppstilling listans takast
vel.
Níels Árni Lund.
KÞ Húsavík:
Bensínsjálfsali settur upp
Um síðustu helgi var settur
upp fyrsti sjálfsali fyrir bensín
á Húsavík.
Hægt er að versla í sjálfsalan-
um á þeim tímum sem bensín-
afgreiðslan er lokuð en bensín er
Bridds:
afgreitt með venjulegum hætti
meðan afgreiðslan er opin. Sjálf-
salinn tekur við hundrað króna
seðlum og afgreiðir tvær tegundir
af bensíni auk gasolíu.
Tvímenningskeppni Bridge-
sambands Norðurlands verður
haldin á Akureyri í næsta mán-
uði og er öllum briddsspilurum
á Norðurlandi eystra og vestra
heimil þátttaka. Þetta verður í
fyrsta sinn sem Norðurlands-
mót í tvímenningi er haldið.
Spilaðar verða tvær umferðir
eftir Mitchell-fyrirkomulagi, 32
spil í hvorri umferð. Keppnis-
stjóri verður Ólafur Lárusson,
framkvæmdastjóri Bridgesam-
bandsins en Margrét Þórðardótt-
ir verður reiknimeistari. Þátt-
tökugjald er kr. 1500 á parið.
Keppnin hefst klukkan 10
laugardagsmorguninn 4. október
og verður spilað í Félagsborg.
Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borist formönnum briddsfé-
laganna fyrir 1. október n.k.
Á Norðurlandi eru margir góð-
ir briddsspilarar og eflaust er
marga farið að kitla í fingurgóm-
ana eftir spilaleysi sumarsins.
BB.
Þorgeir Magnússon afgreiðslumaður og Jónas Egilsson deildarstjóri.
Mynd: IM
Noröurlandsmót
í tvímenningi
„Nú getum við státað af því að
hafa opið allan sólarhringinn,"
sagði Jónas Egilsson deildarstjóri
Olíusöludeildar KÞ. „Við höld-
um að þetta muni þjóna nokkuð
vel þeim sem nauðsynlega þurfa
að fá bensín á nóttunni s.s.
sjúkrabílum, lögreglu og björg-
unarsveitum.” IM
og sölusýning á
rafsuðuvélum frá
IWALLIUS
verður haldin í hinum
nýju húsakynnum
málmiðnaðardeildar
Verkfnenntaskólans
á Eyrarlandsholti
föstudagjnn 12.
sept. frakl. 14-17 og
iaugardaginn 13.
sept. frá{kl. 10-15.
Á sýningunni verður mikið úrval raf-
suðuvéla, allt frá handhægum litlum
rafsuðutrönsurum til fullkominna marg-
nota málmsuðuvéla fyrir iðnað.
4
Verkfræðingur frá Wallius ásamt
umboðsmönnum kynna vélarnar.
Sérstakt kynningarverð
Wallius - Elga umboðið.
Akureyri Fell hf. sími 25455.
Opið bréf