Dagur - 15.09.1986, Síða 12
BBC-tölvur
* Bókhaldsforrít
+ Kennsluforrít
+ Leikjaforrít
Tölvutæki sf.
Gránufélagsgötu 4, 2. hæð • Akureyri • Sími 96-261551
Sauðárkrókur:
Fjórir sóttu
um stöðu
bæjarritara
Um starf bæjarritara á Sauðár-
króki, sem var fyrir stuttu aug-
lýst laust, bárust 4 umsóknir.
Umsóknirnar eru frá Elsu
Jónsdóttur sem hefur alllengi
starfað á bæjarskrifstofunni á
Sauðárkróki, Þorgeiri Inga Njáls-
syni fulltrúa sýslumanns, Guð-
mundi Pálssyni starfsmanni
svæðisstjórnar fatlaðra í Norður-
landskjördæmi vestra og Ragnari
Kárasyni skrifstofustjóra hjá
Trésmiðjunni Borg.
Starfi bæjarritara mun verða
úthlutað á næstunni. -þá
Þorskaflinn:
Jókst
um 13%
Um hclgina var réttað víða um Norðurland og var þessi mynd tekin í Illugastaðarétt á laugardag.
Bíræfinn
þjófnaður
Síðastliðið fimmtudagskvöld
var maður að þvo bOinn sinn á
þvottaplani Olís, þegar nokkr-
ir náungar komu aðvífandi og
fengu að líta á bflinn sem var
til sölu. Eigandinn hafði lagt
leðurjakkann sinn í framsæti
bflsins og þegar náungarnir
höfðu skoðað nægju sína
skunduðu þeir á brott, en þá
var leðurjakkinn horfínn.
Það eru vinsamleg tilmæli frá
eiganda jakkans að hann fái
veskið með skilríkjunum sínum
til baka og tökum við fúslega við
þeim hérna á Degi. Einnig má
koma þeim til skila í Herrabúð-
inni. Auðvitað má jakkinn fylgja
með. Þjófarnir hafa hvort eð er
ekkert gagn af honum því þetta
er eini jakkinn sinnar tegundar hér
á landi og auðþekktur þó hann sé
svartur. Þjófarnir geta losnað úr
klípunni með því að koma á
framfæri upplýsingum um það
hvar jakkann og veskið sé að
finna og þar með er málið leyst.
SS
Á Norðurlandi er afli fyrstu
átta mánuði ársins 5,75%
meiri en á sama tímabili í
fyrra. I ár hafa veiðst alls
167.955 tonn á móti 158.821 í
fyrra. Aukningin er mjög mis-
jöfn eftir tegundum og er
loðnuaflinn t.a.m. minni á
þessu ári.
Ef við lítum fyrst á bátana þá
hefur aflinn aukist milli ára úr
98.745 tonnum í 103.570 tonn.
Þar af hefur þorskafli aukist um
5284 tonn, 24.196 á móti 18.912,
og annar botnfiskur um 1052
tonn, 3436 á móti 2384.
Togararnir komu með 41.985
tonn af þorski að landi, á móti
39.512 tonnum í fyrra. Annar
botnfiskur var 22.400 tonn nú, en
20.564 tonn í fyrra. Þetta gerir
heildarafla upp á 64.385 tonn á
móti 60.076 tonnum fyrstu átta
mánuði síðasta árs.
Hjá öllum flotanum norðan-
lands hefur þorskafli því aukist
um 13,27%, alls 66.181 tonn á
móti 58.424. Annar botnfiskur er
25.836 tonn á móti 22.948. Veru-
leg aukning var á rækjuafla, eða
45,47% - 8772 tonn á móti 6030.
Hins vegar var loðnuaflinn nú
66.060 tonn á móti 69.931 í fyrra,
sem er 5,85% minnkun frá því í
fyrra. SS
Steinullarverksmiðjan:
Vatnsmálin hafa verið leyst
Vatnsmál Steinullarverksmiðj-
unnar virðast nú hafa verið
leyst og eru þar með neyslu-
vatnsmál Sauðkrækinga komin
í betra horf.
Eins og skýrt var frá í blaðinu
fyrir skömmu var gerður safn-
brunnur fyrir verksmiðjuna og
grunnvatnið virkjað. Með þess-
um hætti hefur tekist að ná 3 þús-
und rúmmetrum af vatni á
klukkustund, sem verksmiðjan
þarfnast til kælingar á bræðslu-
ofni og öðrum búnaði í véla-
samstæðu verksmiðjunnar.
Einar Einarsson framleiðslu-
stjóri sagði að verksmiðjan hafi
verið keyrð í viku á þessu vatni
og ekkert benti til annars en
þetta yrði í lagi. Einar sagði að
þrifabónus sem tekinn var upp í
verksmiðjunni í byrjun ágúst lof-
aði góðu. Verksmiðjan hefði
gjörbreytt um svip og bónusinn
skilaði starfsmönnum svolitlúm
kaupauka.
Sala á steinull frá verksmiðj-
unni hefur gengið vel að undan-
förnu, en lítið lagerpláss hefur
gert það að verkum að geymslu-
vandamál hafa skotið upp kollin-
um, þegar sala hefur dregist
saman, þó ekki sé nema í stuttan
tíma í einu. -þá
Bílvelta og árekstur
Á föstudagskvöldið fór bíll út
af veginum á móts við
Ásbrekku í Vatnsdal. Bíllinn
fór eina veltu en ökumaður og
farþegi sluppu lítið meiddir.
Þctta er annað óhappið sem
verður á þessum stað á rúmum
hálfum mánuði. Þarna er
blindhæð og síðan kemur
beygja og þar við bætist að
vegurinn er slæmur. Sannköll-
uð slysagildra.
Laust eftir hádegið í gær varð
síðan harður árekstur á Siglu-
fjarðarvegi við Gálgabrú á blind-
hæð skammt vestan við Sleitu-
staði. Þá skullu saman tveir bílar
með þeim afleiðingum að tvennt
var flutt á sjúkrahús. í öðrum
bílnum voru hjón með 2 börn og
var yngsta barnið í bílstól aftur í
en aðrir voru ekki spenntir niður.
Eiginkonan meiddist lítillega í
andliti.
Ökumaður hinnar bifreiðar-
innar var einnig fluttur á sjúkra-
hús en meiðsli hans munu ekki
hafa verið alvarlegs eðlis. BB.
Húsvaröarstarf í skólum:
„Erfitt og erilsamt"
„Ég vil bera það til baka, sem
fram kemur í frétt Dags um
störf húsvarða við skóla bæjar-
ins, að þetta sé rólegt starf fyr-
ir vinnulúna menn. Þeir staiifs-
menn sem ráðnir eru í
húsvarðarstöður hjá bænum
eru fullfrískir enda eru slík
störf ekki öðrum mönnum
bjóðandi,“ sagði Karl Jör-
undsson starfsmannastjóri
Akureyrarbæjar í samtali við
Dag.
Karl sagði að hann þættist vita
að sá misskilningur sem fram
kemur í fréttinni væri ekki sök
viðkomandi blaðamanns, ákveð-
inn hópur manna áliti að starf
húsvarðar væri rólegheitastarf og
hann sjálfur hefði orðið var við
þennan misskilning hjá einstaka
mönnum í atvinnuleit.
„Mér er kærkomið að leiðrétta
þennan misskilning. Þetta er erf-
itt starf og erilsamt. í aðalatrið-
um er húsvörðum ætlað að fylgj-
ast með ástandi húss og lóðar og
lagfæra það sem skemmist eða
slitnar. Þeir hafa vcrkstjórn með
ræstingu og hreinsa snjó frá dyr-
um og tröppum og rusl af leik-
svæði. Auk þess er þeim ætlað að
hafa eftirlit með nemendum og
sinna þeim störfum öðrum sem
skólastjóri eða húsameistari felur
þeim. Yfir sumarmánuðina vinna
húsverðir að viðhaldi húsnæðis-
ins. Vinnutíminn er alls ekki
sveigjanlegur, þetta er fastur tími
og löng viðvera sem bæði felst í
vinnu og eftirliti.
Ég tel að Akureyrarbær hafi á
að skipa afbragðs húsvörðum
sem rækja starf sitt af alúð og
kostgæfni og það sést best á því
hversu skólum og öðrum stofn-
unum bæjarins er vel við haldið,“
sagði Karl Jörundsson. BB.
Frá torfærukeppni Bílaklúbbs Akureyrar í gær, en sigurvegari í þessari grein
sést hér „á fullu“. Mynd: RÞB