Dagur - 01.10.1986, Side 2
2 - DAGUR - 1. október 1986
iMflm
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON
(Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
(Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðari._____________________________
Bandalag jafnaðar-
manna innlimað
Það dró til tíðinda í pólitíkinni síðasta dag
septembermánaðar. Bandalag jafnaðar-
manna var lagt niður, enda orðið lítið annað
en nafnið, því fylgjendurna vantaði. Það var
innlimað í Alþýðuflokkinn, þaðan sem það
átti rætur að rekja.
Þegar svona lagað gerist verða menn að
reyna að halda andlitinu og það þykjast for-
svarsmenn Bandalags jafnaðarmanna gera
með því að stofna Félag frjálslyndra jafnað-
armanna, sem æskir síðan aðildar að Alþýðu-
flokknum. En þetta er bara skollaleikur til
þess gerður að reyna að slá ryki í augu fólks.
Bandalag jafnaðarmanna var svo gott sem
dautt pólitískt fyrirbrigði. Því var ætlað að
hrista duglega upp í flokkakerfinu og þeirri
spillingu sem bandalagsmenn töldu sig sjá
hvarvetna. Að sumu leyti höfðu þeir töluvert
til síns máls, einkum hvað varðar áhrif stjórn-
málaflokka inn í embættismannakerfið og
e.t.v. bankana, auk tengsla við fyrirtæki og
hagsmunaárekstra í þessu sambandi.
Það fór ekki framhjá neinum sem fylgdist
með pólitískri umræðu að Bandalag jafnað-
armanna og Alþýðuflokkurinn virtust eiga
fátt sameiginlegt, enda það fyrrnefnda klofn-
ingur út úr Alþýðuflokknum á sínum tíma og
hatrammar deilur voru um grundvallaratriði í
stjórnmálum milli þessara tveggja flokka. Nú
eru þeir á ný komnir saman í eina sæng og þá
er forvitnilegt að minnast þess frá síðastliðnu
hausti og vetri, þegar Jón Baldvin Hannibals-
son biðlaði hvað mest til Bandalags jafnað-
armanna um sameiningu eða a.m.k. sam-
vinnu. Þeim málaleitunum var jafnan neit-
að mjög kröftuglega.
Nú hefur flokkunum sem fulltrúa eiga á
þingi sem sagt fækkað um einn. Kratarnir eru
komnir saman á nýjan leik og geta nú farið að
biðla með auknum þunga til íhaldsins. Það er
áreiðanlega engin tilviljun að þessu gervifé-
lagi sem stofnað var úr rústum Bandalags
jafnaðarmanna var valið nafnið Félag frjáls-
lyndra jafnaðarmanna. Bæði ætti frjáls-
hyggjumönnunum í Sjálfstæðisflokknum að
hugnast nú nafngift ágætlega, auk þess sem
hún er vænleg til að slá örlítið á hendur ung-
liðahreyfingar Alþýðuflokksins, sem hefur
haft tilhneigingu til þess undanfarið að líta
svolítið til vinstri og horfa hýru auga til æsku-
lýðsfylkingar Alþýðubandalagsins. HS
- Kristín Friðriksdóttir, Kópaskeri í viðtali dagsins
Kristín Friðriksdóttir er versl-
unarstjóri hjá KNÞ á Kópa-
skeri. Hún féllst á að svara
nokkrum spurningum um
verslunina og einnig um mann-
líflð.
- Kristín, er þetta ekki eina
verslunin á staðnum?
„Þetta er eina matvöruverslun-
in, en hér er einnig véladeild og
pakkhús þar fást málninga- og
byggingavörur."
- En í þessari verslun seljið
þið svo til allt milii himins og
jarðar.
„Já, alla matvöru og ýmislegt
annað, vefnaðarvöru, vinnufatn-
að, einnig sportvörur, veiðidót
og fleira slíkt, skófatnað til dæm-
is stígvél."
- Hvað þjónið þið stóru
svæði?
„Við þjónum Vestursléttunni
og síðan hálfa leið að Ásbyrgi, en
við Ásbyrgi er útibú héðan og
það þjónar Kelduhverfi og þeim
hluta Öxarfjarðar sem er nær
þeirri verslun.“
- Hvernig gengur að reka
svona fjölþætta verslun á svona
litlum stað?
„Það gengur ekki nógu vel.“
- Eru gerðar miklar kröfur til
ykkar hvað vöruval varðar?
„Það er ætlast til að við séum
með sérverslanir á mörgum
Ur versluninni.
sviðum, annars eru viðskiptavin-
irnir misjafnir, sumir eru alltaf
kvartandi en í öðrum heyrir mað-
ur aldrei."
- Verslunin er í nýju húsnæði.
„Það var byggt við húsið og í
viðbyggingunni er verslunin og
lagerrýmið, þetta húsnæði var
tekið í notkun 8. júlí í fyrra, hér
er rúmt um okkur og aðstaðan
mjög góð, “
- En verslunarstjórinn, ert þú
frá Kópaskeri?
„Ég er fædd hér á staðnum og
hef átt heima hérna alla mína tíð
að undanskildu einu ári en þá
vann ég á Akureyri.“
- Nú ert þú ung kona, segðu
mér hvað unga fólkið gerir í tóm-
stundum sínum hérna?
„Það er misjafnt eftir því
hvaða áhugamál menn hafa. Ég
stunda ekki mikið böllin, er hætt
að nenna því nema þegar eru
þorrabót, hjónaböll og slíkar
samkomur hérna á staðnum. En
það er ýmislegt fleira til en böll.“
- Hvað er hægt að gera?
„Við erum til dæmis í blaki á
veturna, yngri konurnar og svo
erum við með kóræfingar í hverri
viku hjá kirkjukórnum. Við hitt-
umst í hverri viku þó að ef til vill
sé ekki messað nema einu sinni í
mánuði. Karlmennirnir eru líka í
blaki og hér er kvenfélag og
Kiwanisfélag. Mér finnst fólk
Myndir: IM
hérna ekki vera í vandræðum
með tímann sinn, frekar að það
geti ekki tekið þátt í öllu sem það
mundi vilja sinna. Eftir kosning-
arnar í vor var skipuð ný
umhverfisnefnd og það lofar
mjög góðu með þessa nefnd.
Hún hefur strax hafið störf og
fyrstu helgina í september var
byrjað að þekja íþróttavöllinn.
Hérna í anddyrinu er skrá yfir
fólkið sem tekið hefur þátt í
þessu verkefni, ég held að það
séu um hundrað manns sem lagt
hafa hönd á plóginn eða annar
hver maður, því tæplega tvö
hundruð manns búa í plássinu.
Þetta hefur gengið mjög vel, að
vísu er þetta mikil vinna og þök-
urnar eru þungar en fólk hjálpast
að og mér finnst þetta gott fram-
tak hjá nefndinni.
Það á að reyna að ljúka við að
þekja völlinn fyrir snjóa og næsta
vor hefur nefndin í hyggju að láta
hreinsa grjót úr brekkum sem
liggja að vellinum, þekja þær og
útbúa áhorfendapalla. Þessi völl-
ur hefur ekki nýst sem skyldi
vegna þess að á honum var möl
og þar var mjög vont að spila fót-
bolta og æfa íþróttir.“
- Hvað með sundlaugarmál?
„Það er sundlaug í Lundi en ég
veit að krakkarnir notuðu sund-
laugina miklu meira ef hún væri á
staðnum. En það sem mér finnst
brýnasta málið hjá hreppnum er
að koma upp þjónustuíbúðum
fyrir aldraða. Hér býr margt fólk
sem komið er yfir miðjan aldur,
kannski ein manneskja í heilu
húsi eða tvær til þrjár manneskj-
ur í stórum húsum. Ég veit að
þetta fólk vill gjarnan komast í
minna húsnæði. Það er orðið það
fullorðið að það á erfitt með að
sjá um sín hús, sumir eru hættir
að vinna og orðnir lasburða. Mér
finnst vanta að það sé einhver
þjónusta við þetta eldra fólk, t.d.
húshjálp. Fólk hefur verið að
sækja um á Hvammi, dvalar-
heimili aldraðra á Húsavík en þar
er langur biðlisti og fólk hérna
vill frekar vera í sínum húsum
heldur en að fara til Húsavíkur.
Þó að erfitt sé að koma þessum
málum í horf held ég að það væri
fræðilegur möguleiki." IM
j/iðtal dagsins.
n
Kristín Friðriksdóttir.
Fólk ekki í vandræðum
með að eyða tímanum