Dagur - 01.10.1986, Blaðsíða 12
Akureyri, miðvikudagur 1. október
Öll þjónusta fyrir
háþrýstislöngur
tengi & barka
1 bílinn, skipið eða vinnuvélina
Pressum tengin á • Vönduð vinna
Góðar markaðshorfur
í loðdýraræktinni
Hrísey:
Byrjað að
helluleggja
Á mánudagsmorguninn var
hafíst handa við að helluleggja
gatnakerfíð í Hrísey. I fyrsta
áfanga verða lagðar hellur á
um 1000 fermetra og á verkið
að taka um 10 daga.
Að sögn Guðjóns Björnssonar
sveitarstjóra var upphaflega
meiningin að hefja framkvæmdir
í sumar en ætlunin er að hellu-
leggja allar götur í þorpinu alls
um 9000 fermetra og verður unn-
ið við verkið í vetur. Leitað var
tilboða í verkið og þegar flutn-
ingskostnaður var tekinn með í
reikninginn reyndist hagstæðast
að kaupa hellur frá Hellusteyp-
unni hf. á Akureyri. ET
Dráttarbraut Húsavík:
Eitt til-
boðbarst
Tilboð í smíði hliðarfærslu við
dráttarbrautina á Húsavík hafa
verið opnuð, eitt tilboð barst,
er það frá Naustum hf. að upp-
hæð 1.408.828 kr. Kostnaðar-
áætlun sem gerð var af
hönnuðum verksins, Tækni-
þjónustunni hf. hljóðaði upp á
1.218.431 kr.
Tilboð Nausta er 15,6% yfir
kostnaðaráætlun, verið er að yfir-
fara tilboðið og ekki er búið
að taka afstöðu til hvort því verð-
ur tekið. Húsavíkurbær er eig-
andi dráttarbrautarinnar en
Naustir leigja aðstöðuna. Hlið-
arfærslan sem á að byggja er fyrir
einn bát og þegar smíði hennar
verður lokið verður hægt að
vinna við tvo báta samtímis í
dráttarbrautinni. Þessi hliðar-
færsla verður byggð til suðurs en
í framtíðaráformum fyrirtækisins
er gert ráð fyrir að tvær hliðar-
færslur til viðbótar verði byggðar
og þá til norðurs. IM
Síðastliðið mánudagskvöld var
haldinn á Hótel KEA kynning-
arfundur á vegum Loðdýra-
ræktarfélags Eyjafjarðar og
Búnaðarsambands Eyjafjarð-
ar. Fundinn sóttu loðdýra-
bændur víða að úr Eyjafírði
auk annarra alls um 40 manns.
Gestur fundarins var Fleming
Larsen aðstoðarframkvæmda-
stjóri Saga Furs of Scandinavia
sem er sölufyrirtæki fyrir loð-
skinn á öllum Norðurlöndum.
Fyrirtækið var stofnað fyrir 33
árum og að því standa um 16 þús-
und loðdýrabændur á Norður-
löndum. Eftir næsta aðalfund
fyrirtækisins, sem haldinn verður
innan skamms, verða íslenskir
loðdýrabændur aðilar að fyrir-
tækinu. Á fundinum voru horfur
í markaðs- og sölumálum kynntar
og síðan svaraði Fleming Larsen
fyrirspurnum fundargesta. Einn-
ig var á fundinum dreift drögum
að nýrri reglugerð um skinnasýn-
ingar en í vetur verða haldnar
skinnasýningar á vegum allra
félaga loðdýrabænda og síðan
ein landssýning.
Að sögn Arvid Kro formanns
Loðdýraræktarfélags Eyjafjarðar
eru horfur í sölumálum góðar og
fyrir skömmu hækkaði verð á
minkaskinnum um 47% og á
refaskinnum um 20% og er verð-
ið þá heldur hærra en fyrir lækk-
unina í fyrra. ET
Þórshöfn:
Ný loðnu-
verk-
smiðja
Frá því í febrúar hefur verið
unnið við uppsetningu loðnu-
verksmiðju á Þórshöfn og er
því verki nú lokið. Yerksmiðj-
an er í eigu Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar. Á laugardaginn
voru 50 tonn af beinum og öðr-
um úrgangi keyrð í gegn og að
sögn Jóhanns A. Jónssonar
framkvæmdastjóra stöðvarinn-
ar gekk það mjög vel.
Vélasamstæðan í verksmiðj-
una var keypt notuð frá Noregi
og þegar hafist handa við upp-
setningu. Árið 1965 var byggð
síldarverksmiðja á Þórshöfn og
eftir að síldin hvarf var hún not-
uð í beinavinnslu. Þegar ljóst var
að verulegrar endurnýjunar var
þörf var sá kostur tekinn að
kaupa þessi tæki frá Noregi.
Afkastageta nýju verksmiðjunn-
ar er um 500 tonn af loðnu á sól-
arhring og munu tíu menn vinna
við hana. Fyrsti báturinn landaði
600 tonnum af loðnu strax á
mánudaginn og hófst bræðsla í
gær. ET
„Hér hefur verið meira um
ferðamenn i sumar en nokkru
sinni áður. Ætli skýringin sé
ekki sú að nokkuð vel hefur
verið staðið að ferðakynning-
um og öðru sem að því lýtur,“
sagði Arnþór Björnsson hótel-
stjóri í Hótel Reynihlíð við
Mývatn.
„Því má ekki gleyma að veðrið
var tiltölulega gott hér í sumar,
svo fólk hefur frekar komið hing-
að þess vegna. Þar á ég við
íslendinga, því þeir voru mjög
margir í sumar. Það hefur líka
verið meira af erlendum ferða-
mönnum á þessum slóðum, svo
það er mikil fjölgun," sagði
Arnþór.
Miklar framkvæmdir hafa átt
sér stað við tjaldstæði í sveitinni.
Nú er komið baðhús fyrir ferða-
menn sem var nauðsynlegt. Þær
framkvæmdir voru á vegum
hreppsins. Einnig opnaði Arnþór
svefnskála fyrir þá sem ekki gistu á
hótelinu og sagði hann að mikil
þörf hefði verið fyrir þessa skála,
því þeir hefðu verið mikið notað-
ir.
Nýting á Hótel Reynihlíð var
góð í sumar, en nú hefur nokkuð
dregið úr, enda fáir á ferð á þess-
um árstíma.
Hjá Hótel Reykjahlíð fengust
þær upplýsingar að góð aðsókn
hefði verið í sumar, eða svipuð
og undanfarin sumur. Mikið var
að gera í júlí og ágúst. Hótel
Reykjahlíð er einungis opið á
sumrin og var lokað þar í byrjun
september. gej-
BKNE og skólastjórar á Norðurlandi eystra:
Mótmæla vinnubrögöum
menntamálaraðuneytis
Á sameiginlegum fundi skóla-
stjóra á Norðurlandi eystra
sem haldinn var í Stórutjarna-
skóla á föstudaginn og á
almennum félagsfundi BKNE
sem haldinn var sama dag, var
samþykkt harðorð áiyktun
vegna vinnubragða mennta-
málaráðuneytisins við af-
greiðslu á áætlun um kennslu í
grunnskólunum næsta skólaár.
f ályktuninni er varað sérstak-
lega við þeirri mismunun sem
felst í vinnubrögðum mennta-
málaráðuneytisins. Bent er á að
þessi munur sé einkum áberandi
varðandi stuðnings- og sér-
kennslu og lýsi sér í því að sum
umdæmi hafi fengið samþykkt
16-17% til viðbótar heildar-
kennslukvóta á sama tíma og
önnur umdæmi hafi einungis
fengið 6-7% til þessara þarfa. Þá
eru leidd rök að því að meðaltals-
þörf almennra grunnskóla í
Reykjavík fyrir stuðningskennslu
og sérkennslu sé minni en víðast
úti á landsbyggðinni, þar sem sér-
stofnanir á vegum ríkisins fyrir
fatlaða og atferlistruflaða nem-
endur séu fyrst og fremst í
Reykjavík.
Fundurinn harmar að mennta-
málaráðuneytið skuli ekki taka
tillit til sérstakra þarfa skóla-
hverfa varðandi stundafjölda til
að uppfylla ákvæði námsskrár og
auglýsingar um skiptingu
kennslustunda. Því er mótmælt
að ráðuneytið skeri niður raun-
hæfar áætlanir fræðslustjóra um
kennslu og rekstur skóla án þess
að forsendum þeirrar þjónustu,
sem skólarnir eiga að veita, sé
breytt.
í ályktuninni er bent á að
löngu áður en grunnskólalög
voru samþykkt hafi Reykjavík
verið tilbúin til að framkvæma
marga þætti þeirra laga, en enn
þann dag í dag séu margir skólar
utan Reykjavíkur vanbúnir til að
sinna sérkennslunni, vegna þess
að ekki hafi verið vilji til að
byggja þar upp sérfræðiþjónustu
í sama mæli og í Reykjavík. Því
sé ekki hægt að sætta sig við að
afgreiðsla áætlana miðist ein-
göngu við framkvæmd fyrri ára,
en ekki sé hugað að því að
tryggja sama eða sambærilegt
þjónustustig hvarvetna á landinu.
Hugmyndum um niðurskurð
skólaaksturs, mötuneyta og
gæslu á heimavistum er mótmælt
og það talið óviðunandi að hug-
myndirnar skuli settar fram með
þeim hætti sem gert hefur verið.
í lok ályktunarinnar er þeim
tilmælum beint til alþingismanna
Norðurlandskjördæmis eystra að
þeir beiti sér fyrir úrlausn ofan-
greindra mála þegar í stað. Að
öðrum kosti verði ekki hægt að
tala um sambærilegar aðstæður
til skólahalds um land allt. BB.