Dagur - 01.10.1986, Blaðsíða 11
Tilraunir með kynblöndun refa:
Möguleikamir
skipta þúsundum
- að sögn Páls Hersteinssonar
Á tilraunabúinu á Möðruvöll-
um í Hörgárdal og á tilrauna-
stöð Háskólans að Keldum
standa nú yfír tilraunir með
kynblöndun refa. Megintil-
gangur tilraunanna er að fá
fram hvítan ref með mikil feld-
gæði og frjósemi. Blárefír eru
mjög frjósamir og búa yfír
miklum feldgæðum en til þess
að fá fram hvíta litinn er not-
aður íslenskur fjallarefur eða
melrakki eins og hann er
gjarnan kallaður.
Af íslenska refnum eru til tvö
litaafbrigði hvítt og mórautt.
Þessi dýr eru að öðru leyti
nákvæmlega eins og má líkja
þessum mismunandi lit við blá og
brún augu í mönnum. Skipting
milli þessara tveggja lita er-bund-
in við ákveðin landsvæði. Víða á
hálendinu t.d. upp af Þingeyjar-
sýslu og Árnessýslu er hvíta
afbrigðið algengara en á strands-
væðum svo sem Snæfellsnesi,
Vestfjörðum og víðar er sá mó-
rauði algengari. Ef landið er tek-
ið allt þá er mórauða afbrigðið
algengara.
í fyrra var hafist handa við að
safna hvítum og mórauðum
yrðlingum víða af landinu. Þess-
um yrðlingum var komið fyrir á
Möðruvöllum og hvítum karldýr-
um æxlað saman við blárefslæð-
ur. Úr þessari blöndun fæddust í
vor mórauðir yrðlingar á Möðru-
völlum. Mórauði liturinn kemur
til af því að hvíti liturinn er víkj-
andi og kemur því ekki fram fyrr
en þessum blendingum hefur ver-
ið æxlað saman þ.e.a.s. næsta
vor. Tilraunirnar á Keldum eru
ári seinna á ferðinni og þar fæðist
því fyrsta blendingsafbrigði
næsta vor.
Eins og áður sagði er aðaltil-
gangur þessara tilrauna að fá
fram hvítan ref með mikla frjó-
semi og feldgæði. Afkomendum
þessara dýra sem fást á tilrauna-
búunum eða sæði úr þeim verður
síðan komið til loðdýrabænda
þar sem eiginleg ræktun hefst. En
áður en hægt er að senda nýjar
hálfvilltar tegundir út á búin þarf
að ganga úr skugga um að þau
beri ekki í sér sjúkdóma sem
valdið geta ómældum skaða á
refabúunum. Tilraunadýrin eru
því í sóttkví á tilraunabúunum
enn um sinn. Á þessu rúma ári
sem liðið er frá því tilraunir þess-
ar hófust hafa uppgötvast nokkrir
sjúkdómar sem ekki var vitað til
að hrjáðu íslenska refastofninn.
Má þar nefna svokallaðan refa-
vanka eða nosematosis en það er
ólæknandi sjúkdómur sem veldur
fósturláti og yrðlingadauða. Öll-
um dýrum sem greinast með
sjúkdóminn er lógað en þar sem
sjúkdómurinn getur legið niðri
um tíma verður að fylgjast nokk-
uð lengi með dýrunum. Smitandi
lifrar- og heilabólga hefur einnig
gert vart við sig og fyrir skömmu
fannst í fyrsta skipti eyrnamaur í
villtum ref.
Verkefni þetta er unnið í sam-
vinnu nokkurra aðila sem eru:
Rannsóknarstofnun landbún-
aðarins, Tilraunastöð Háskólans
að Keldum, veiðistjóraembættið,
Búnaðarfélag íslands og Sam-
band íslenskra loðdýraræktenda.
Verkefnið er fjármagnað með
styrk úr rannsóknarsjóði Rann-
sóknarráðs ríkisins og umsjón
með því hafa Eggert Gunnarsson
dýralæknir, Páll Hersteinsson
dýrafræðingur og Stefán Aðal-
steinsson erfðafræðingur. Meðal
þess sem þessar tilraunir hafa
gefið af sér eru nýjar erfðareglur
sem gilda fyrir silfurref og heim-
skautaref og alla blendinga þar á
milli. Stefán er aðalhöfundur
þessara reglna sem valda byltingu
í allri blendingsræktun. Hingað
til hefur ekki verið hægt að segja
fyrir um lit þessara blendinga en
þ.á m. er t.d. hið svokallaða
Golden island afbrigði. Nú verð-
ur slíkt mögulegt. Þessar reglur
voru kynntar á þingi í Finnlandi í
september og var þeim tekið
tveim höndum.
Á Möðruvöllum hefur komið
fram móhvítt afbrigði en slíkt
hefur hvergi áður fundist í heim-
inum. Þegar hefur verið falast
eftir slíkum dýrum frá Finnlandi
en út frá þeim er líklegt að hægt
verði að rækta afbrigði og blend-
inga af afbrigðum sem gætu gefið
af sér verðmeiri skinn en Golden
island afbrigðið sem nú gefur af
sér einhver verðmestu skinnin.
Að sögn Páls Hersteinssonar
telur hann grundvöll fyrir svona
búi mjög góðan því þar sé hægt
að vinna mjög gott starf sem get-
ur skilað sér í verðmeiri skinnum
með því að ráðleggja bændum
hvað þeir skuli rækta á hverjum
tíma. Til þess að svo verði telur
hann þó að flytja þurfi inn sem
flest afbrigði af silfurref og bláref
og þá skipti ræktunarmögu-
leikarnir þúsundum. ET
(Grein þessi er byggð á upplýsingum frá Páli
Hersteinssyni.)
Aðalfundur
Framsóknarfélags Akureyrar
verður haldinn að Hótel KEA sunnudaginn 5. okt-
óber kl. 16.00.
Kosningar.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Framsóknarfélags Akureyrar.
Verkstjórnarfræðslan
á Akureyri
Námskeið haustið 1986 og vorið 1987
Verkstjórnarfræðslan er 180 stunda grunnnám fyrir verk-
stjóra, stjórnendur og aðra sem starfa með og stjórna fólki
og þurfa að:
- standast áætlanir, áætla aðföng, mannafla og kostnað við
verk
- hagræða rekstri, koma á breytingum og fá samþykki fyrir
þeim
- bæta mannleg samskipti og samstarf á vinnustað.
Verkstjórnarfræðslan heldur 6 fjögurra daga námskeið á
Akureyri haustið 1986 og vorið 1987 og er hvert námskeið
sjálfstæður námsáfangi, samtals 36 stundir. Það skiptir ekki
máli í hvaða röð þau eru tekin, en að loknum þessum nám-
skeiðum útskrifast menn sem verkstjórar frá Verkstjórnarfí*
/peðslunni.
I hluti. Stjórnun I.
6. okt.-9. okt. og 16. mars-19. mars ’87.
Sérstaklega fyrir konur.
Farið er yfir undirstöðuatriði í stjórnun og mannlegum
samskiptum.
II hluti. Stjórnun II. 12.-15. jan. ’87.
Farið er yfir undirstöðuatriði í verktilsögn og fyrirmælum,
stjórnun breytinga og hegðun einstaklinga við vinnu.
III hluti. Vinnuumhverfismál. 23.-26. febrúar ’87.
Farið er yfir helstu atriði í vinnulöggjöf og bótarétti, skyldur
verkstjóra og ábyrgð, öryggismál, slysavarnir og brunavarn-
ir.
IV hluti. Vinnuhagræðing. 26.-29. nóv.
Farið er yfir undirstöðuatriði vinnurannsókna og hagræðing-
ar í fyrirtækjum ásamt helstu launakerfi.
V hluti. Verkskipulagning. 27.-30. apríi ’87.
Farið er yfir undirstöðuatriði í skipulagningu verka og áasK'
.Ipnagerðir.
Námskeiðin verða haldin i húsnæði Flugbjörgunarsveitar Akureyrar,
Galtalæk, frá kl. 8.45-17.00 alla daga.
Hvert námskeið kostar kr. 9.540. Innifalin eru öll námsgögn og kaffi.
Skráið þátttöku strax eða fáið sendan bækling frá Iðntæknistofnun
íslands, sími 91-68700, Árna Birni Árnasyni, Verkstjórafólagi Akureyr-
ar, vinnusími 96-21300 og heimasími 96-21249 eða skrifstofu Verk-
stjórafélags Akureyrar og nágrennis milli kl. 14 og 17, sími 25446.
1. október 1986 - DAGUR - 11
Körfuknattleiksdeild
Þórs
Æfingatímar
Meistaraflokkur:
Mánudaga kl. 20.30-22.00. Skemman.
Þriðjudaga kl. 21.30-23.00. Höllin.
Fimmtudaga kl. 19.00-20.30. Höllin.
3. flokkur:
Þriðjudaga ki. 20.00-21.00. Glerárskóli.
Fimmtudaga kl. 21.00-22.00. Glerárskóli.
4. flokkur:
Miðvikudaga kl. 17.00-18.00. Glerárskóli.
Fimmtudaga kl. 22.00-23.00. Glerárskóli.
5. flokkur og byrjendur:
Sunnudaga kl. 13.30-14.25. Glerárskóli.
Ókeypis verdur inn á alla leiki meistaraflokks í
vetur fyrir 12 ára og yngri.
Geymið auglýsinguna.
Verkamenn óskast
nú þegar
NORÐURVERKhf.
Akureyri • Simi 21777
Duglegt afgreiðslu-
fólk óskast
Þarf að hafa starfsreynslu.
Upplýsingar á skrifstofunni, ekki í síma.
A söluskrá
Fjólugata: Tilboð óskast í einbýlishús, til endurbyggingar
vegna bruna.
Háhlíð: Endaíbúð í raðhúsi, með bílskúr.
Þórunnarstræti: 6 herb. sérhæð 149 fm ásamt bílskúr,
herb. og sameign á neðri hæð.
Hafnarstræti: 2ja herb. íbúð, laus strax.
Hafnarstræti: íbúðarhús 3 hæðir og rishæð, grunnflötur
ca. 70 fm. Mögulegt sem einbýlis- eða tvíbýlishús, með
plássi fyrir verslun eða léttan iðnað á jarðhæð.
Gránufélagsgata: 2ja herb. íbúð.
Lyngholt: 3ja herb. íbúð á neðri hæð í tvíbýli.
Eiðsvallagata: 2ja herb. íbúð á jarðhæð, sér inngangur.
Hrísalundur: 2ja herb. íbúð á 4. hæð.
Smárahlíð: 2ja herb. íbúð á 3. hæð. Snyrtileg íbúð.
Tjarnarlundur: 2ja herb. íbúðir, afh. 1. okt. og 1. nóv.
Reykjasíða: Einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr.
Langahlíð: Eldra einbýlishús, hæö og kjallari, eign á góð-
um stað.
Sólvellir: 4ra herb. íbúð á 3. hæð, hugsanleg skipti á
stærri íbúð.
Mánahlíð: íbúðarhús á tveimur hæðum, 146 fm x 2. Á efri
hæð er 6 herb. íbúð en á neðri hæð er 2ja herb. íbúð,
bílskúr og geymslur. Ástand húss mjög gott.
Geislagata 12: Tveggja hæða hús, ásamt verkstæðis-
húsnæði (bakhúsi). Húseignin er seld sem ein heild, eða í
þrennu lagi.
Símsvari tekur við skilaboðum
allan sólarhringinn.
Fasteign. salan hf opið frá
Gránufélagsg itu 4, . . _ _
efri hæð, sími 21878 Kl. 5~7 e.n.
Hreinn Pálsson, lögfræðingur
Guðmundur Jóhannsson, viðskiptafræðingur
Hermann R. Jónsson, sölumaður