Dagur - 24.10.1986, Qupperneq 1
69. árgangur
Akureyri, föstudagur 24. október 1986
200. tölublað
Byggðastofnun:
Akureyri fær fýrstu
stjómsyslumiðstöðina
- forstjóra Byggðastofnunar falið að hefja undirbúningsviðræður nú þegar
Á stjórnarfundi í Byggðastofn-
un í gær var samhljóða sam-
þykkt tillaga frá Stefáni
Guðmundssyni stjórnarfor-
manni Byggðastofnunar um að
stofnunin hafí forgang um
undirbúning að stofnun stjóm-
sýslumiðstöðva í kjördæmum
landsins. Jafnframt var for-
stjóra Byggðastofnunar falið
að hefja nú þegar formlegar
viðræður við ríkisstofnanir og
aðra aðila, sem til greina
koma, um undirbúning að
stofnun fyrstu stjórnsýsluníið-
stöðvarinnar á Akureyri.
Þessi afgreiðsla Byggðastofn-
unar kemur í beinu framhaldi af
samþykkt hennar frá því í júlí s.l.
um eflda og bætta þjónustu ríkis-
ins á landsbyggðinni og um sam-
starf opinberra stofnana í því
skyni. Þann 13. október S.l. barst
stjórn Byggðastofnunar bréf frá
Steingrími Hermannssyni for-
sætisráðherra þar sem hann gaf
samþykki ríkisstjórnarinnar við
framangreindri samþykkt.
Stjórn Byggðastofnunar telur
rétt að forgang skuli hafa að
koma upp stjórnsýslumiðstöðv-
um í þeim kjördæmum sem fjærst
eru Reykjavík. Með það í huga
samþykkti stjórnin að hefja
athuganir á og vinna að stofnun
stjórnsýslumiðstöðva á ísafirði,
Akureyri og Egilsstöðum. Skýrt
er kveðið á um að Akureyri verði
fyrst í röðinni.
„Við viljum gera þetta vel og
ljóst er að mikil undirbúnings-
vinna er framundan áður en
fyrsta stjórnsýslumiðstöðin verð-
ur að veruleika. En með þessari
samþykkt er stigið geysilega stórt
skref í þá átt að bæta þjónustu
ríkisins á landsbyggðinni.
Ég vona að menn átti sig á því
nú, að framsóknarmenn eru ekk-
ert að’ bregðast í byggðamálun-
um, eins og sumir hafa haldið
fram. Við höldum vöku okkar og
erum ekkert að gefast upp. Þegar
stjórnsýslumiðstöðvarnar komu
fyrst til tals hjá stjórn Byggða-
stofnunar á Isafirði í sumar,
héldu margir því fram, að við
værum að tala um hluti sem
aldrei yrðu framkvæmdir. Menn
ættu að sjá það núna að svo er
ekki,“ sagði Stefán Guðmunds-
son stjórnarformaður Byggða-
stofnunar að lokum. BB.
„Þetta er ekki
bara drápsfysni"
Poppfréttir
13
Erlendur
vettvangur
Svona gengur þetta. Pað þarf að halda áfram. Það er sama á
hverju gengur. Það verður að halda áfram. Þannig var það líka.
Menn unnu og menn hvíldu sig og menn urðu þreyttir eftir
geysiléga vinnu í tvo mánuði við gerð kvikmyndarinnar Stella í
orlofi. Árangurinn er kominn í ljós. Myndin er komin á hvíta
tjaldið.
Stella búin