Dagur - 24.10.1986, Qupperneq 5
24. október 1986 - DAGUR - 5
Þetta er ekki
- Landsbankinn góðan dag.
- Já góðan daginn. Er hægt
að fá samband við Mumma Lár?
- Jú andartak. . .
- Halló.
- Guðmundur?
- Jú það er hann.
- Blessaður Eggert heiti ég
blaðamaður á Degi, máttu vera
að því að spjalla við mig stutta
stund?
- Það held ég að ætti að vera
í lagi, um hvað villtu tala?
- Ætli við byrjum ekki á golf-
inu mér skilst að það sé ofarlega
á vinsældalistanum hjá þér.
- Jú ég er búinn að stunda
golfið undanfarin tvö sumur og
þetta er alveg stórkostleg íþrótt.
Það var sjaldan að maður
sleppti úr degi í sumar og maður
fór þetta níu og upp í tuttugu og
sjö holur þegar best lét.
- Og hvernig var svo sumar-
ið?
- Þetta gekk bara vel held ég
að megi segja.
- Tókstu þátt í mótum?
- Já ég gerði það og mér gekk
bara vel ég náði mér í tvo silf-
urpeninga í sæmilega stórum
mótum. Ég lækkaði mig talsvert
í forgjöf og hef nú náð henni
niður í tuttugu. Ég stefni nefni-
lega á næsta landsmót sem verð-
ur haldið hér á Jaðri næsta sum-
ar og reikna með að spila þar í
þriðja flokki.
- Hvað kom til að þú fórst að
leika golf?
- Það kom nú að nokkru til af
því að ég lenti í slysi á fæti og
síðan aðgerðum upp úr því.
Þetta varð eiginlega til þess að
ég fór að stunda golfið því
eitthvað verður maður að hreyfa
sig. Ég var búinn að vera í
hlaupum og keppnisíþróttum
ýmiss konar áður, en golfið hent-
ar mjög vel núna. Þetta er mátu-
lega mikið labb og þarna er
maður sjálfs sín herra og getur
gert það sem maður vill. Þú ert
þarna upp á eigin ábyrgð og get-
ur engum kennt um eða þakkað
árangurinn nema sjálfum þér.
- Pannig að þú munt halda
þessu eitthvað áfram.
- Já það er engin hætta á
öðru. Eins og málin standa í dag
þá er þetta númer eitt hjá mér
og ef við fáum þennan þjálfara
eftir áramót þá reikna ég með
að æfa í vetur.
- Tekurðu golfið fram yfir
rjúpnaveiðar?
- Nei ég geri það nú ekki. En
það er svolítið gaman að því að
ég fór austur í Bárðardal um
daginn í rjúpur. Við sáum nú
heldur lítið af fugli þannig að ég
skellti mér í bæinn með fimmtán
rjúpur og upp á golfvöll og tók
níu holur.
- Hefurðu skotið mikið nú í
haust?
- Ég er búinn að fara nokkr-
um sinnum. Ég fór meðal ann-
ars með nokkrum félögum mín-
um austur á Hlíðarenda í Bárð-
ardal. Við gistum þar á vegum
ferðaþjónustu bænda. Ég var
þarna í tvo daga og var nú svona
tiltölulega rólegur vil ég segja en
þeir voru lengur að. En þetta
gekk vonum framar og ég held
að þeir hafi farið með um 180
rjúpur í bæinn fjórir saman eftir
fjóra daga.
- Hverju náðir þú sjálfur?
- Ég náði 36 úr þessari ferð
og alls er ég búinn að ná 98 það
sem af er og er búinn að fara
fimm daga.
- Eru þetta tölur sem má
treysta eða er þetta svona eins
og dæmigerðar veiðisögur?
- Ef þú vilt fá að vita þær
nákvæmlega þá eru þær 15, 21,
11, það bilaði byssan og ég gerði
við hana og ætlaði að prófa hana
hérna uppi í fjalli og fékk ellefu,
36 og 15.
- Ertu búinn að stunda þetta
lengi?
- Ég er búinn að ganga til
rjúpna í 24 ár. Ég fékk nú ekki
að vera með byssu fyrstu árin.
Þá fékk ég bara að rölta með,
tína upp og snúa úr hálsliðnum
og þess háttar.
- Hvernig sýnist þér vertíðin
ætla að verða?
- Stofninn er sterkur en það
er bara erfitt að eiga við hana.
Það hafa verið óhagstæð veður-
skilyrði. En menn detta svona
inn. Þú getur verið í vitlausum
fugli en svo allt í einu róast hann
smá stund og þá geturðu lent í
honum. Hún hefur verið svolítið
stygg núna finnst mér og maður
hefur enn ekki komist í neitt
magn.
- Segðu mér nú eina góða
veiðisögu.
- Þú getur ekki farið fram á
það maður, ha. Einhverja
rjúpnaveiðisögu? Þetta blandast
allt saman. Þær eru allar góðar.
Allar veiðiferðir eru góðar því
þær hafa allar eitthvað við sig.
Ég get kannski sagt þér frá ferð-
inni þegar ég fékk flestar, hún er
mjög eftirminnileg. Þá fór ég
austur að Hlíðarenda. Það var
snjór og ég fór af stað um níu-
leytið um morguninn. Ég fór
þarna upp í skóginn og hann var
hvítur af rjúpum sem sátu uppi á
greinunum. Klukkan hálfþrjú
varð ég að hætta skotfæralaus
búinn að skjóta 61 rjúpu. Þegar
ég gekk niður má segja að ég
hafi talað við hópana og það var
dálítil sálarkvöl að geta ekkert
aðhafst.
- Er það einungis veiðieðlið
sem dregur þig á veiðar eða er
það útiveran?
- Ég get sagt þér að einn
besti og skemmtilegasti veiðitúr
sem ég hef farið var þegar ég fór
eitt sinn vestur á Öxnadalsheiði.
Ég gekk þar upp á fjallið, upp úr
þokunni. Aldrei þessu vant var
ég með nesti með mér og ég sat
þarna í einn og hálfan tíma og
horfði vítt og breitt á fjallstinda
og labbaði svo í bílinn og lét það
nægja þann daginn. Þannig að
þetta er ekki bara drápsfýsnin.
- Þakka þér fyrir spjallið
Mummi, vertu blessaður.
- Jú það var ekkert, blessað-
ur. ET
Fjölbreytt f
úrv al tímarí
★ Norsk blöð.
★ Sænsk blöð.
★ Dönsk blöð.
★ Ensk blöð.
★ Amerísk blöð.
★ Tölvublöð.
★ Frönsk blöð.
★ ítölsk blöð.
★ Þýsk blöð.
★ Askríftarþjónusta
Bókabúðin EDDA
Hafnarstræti 100 - Pósthólf 633 - Akureyri - Sími 24334.
Harmonikudansleikur
verður haldinn í Lóni Hrísalundi 1, laugardaginn
25. okt. 1. vetrardag kl. 22.00-03.00.
Allir velkomnir.
Félag harmonikuunnenda.
Merktar Carlsberg
bjórsvuntur
fyrir hugmyndaríka bjórgerðarmenn
og góða eiginmenn.
Opið laugardag 10-12.
Skemman
Glerárgötu 34 • Sími 96-23504
Aðalfundur
Félagar munið aðalfundinn laugardaginn 25. okt.
kl. 14.00 í Húsi aldraðra.
Samtök um kvennaathvarf á Norðurlandi.
LAUT
RESTAURANT
Restaurant Laut auglýsir:
Nýir réttir á matseðli helgarinnar.
Opnum kl. 18.00 fyrir matargesti.
Kaffihlaðborð alla daga frá kl. 14.30.
Verið velkomin.
Borðapantanir í síma 22525.
xRestaurant Laut • Hótel AkureyrL
Sjallaverð á
efnum í Skennnunni
Riffluð flauel og kaky terelinstyrkt.
200 kall metrinn.
Opið laugard. 10-12.
^emman
GLERÁRGATA 34 SÍMI 96-23504