Dagur - 09.12.1986, Síða 13

Dagur - 09.12.1986, Síða 13
9:' désémber Ið8é - DÁÖtÍR - 13 íþróttir Umsjón: Kristján Kristjánsson Knattspyrna: Konráð Óskarsson leikmaður Þórs í körfubolta lék sinn 100. meistaraflokksleik með liðinu gegn IS á laugardag. Konráð hefur verið einn af bestu leik- mönnum Þórsliðsins undanfar- in ár. Konráð er leikur sem bakvörð- ur er einn af stigahæstu leik- Ársþing KSÍ: Ellert áfram formaður Ellert B. Schram var endur- kjörinn formaður Knatt- spyrnusambands íslands á 41. ársþingi sambandsins sem fram fór að Hótel Loftleiðum um helgina. Mjög litlar breytingar urðu á stjórn sambandsins og í nefndum á þess vegum. Þingið þótti með rólegra lagi og var ekkert eitt mál sem stóð hærra en önnur. Fjölmargar nýj- ar tillögur og breytingar voru lagðar fram, t.d. um yngri flokka, kvennaknattspyrnu, auk margs annars. Þá lögðu Vals- menn fram tillögu um að félaga- skipti leikmanna í 1. aldursflokki séu óheimil frá 15. júní til 15. október. Er það m.a. gert til að koma í veg fyrir mál eins og kom upp í sumar í sambandi við Pétur Pétursson frá Akranesi. Tillagan var send til milliþinganefndar til umfjöllunar. mönnum 1. deildar og hann hefur verið hvað iðnastur við að skora þriggja stiga körfur í deildinni í vetur. Hann hefur verið valinn til þess að æfa með unglingalands- liðinu fyrir þau verkefni sem þar eru framundan og kemur það fáum sem til þekkja á óvart. Konráð er ungur að árum og á örugglega eftir að láta mikið að sér kveða í körfuboltanum í framtíðinni. Þórsarar sigruðu á Laugamótinu Þórsarar gerðu góða ferð á Laugamótið um helgina. A-liðið sigraði og B-lið- ið hafnaði í 3. sæti. Á myndinni eru leikmenn beggja liðanna. A-liðið fremst með Laugabikarinn og B-liðið fyrir aftan. Allra fremst er svo bílstjórinn Sig- urbjörn Viðarsson. Mynd: kk Körfubolti: Blómaleikur hiá Konráði Laugamótið í innanhússknatt- spyrnu fór fram að Laugurn í Reykjadal um helgina. Alls mættu 18 lið til leiks frá 12 félögum. Leikið var í fimm riðlum í undankeppninni og komust tvö lið áfram úr hverj- um riðli í þrjá milliriðila. Efstu liðin úr milliriðlunum léku síð- an til úrslita. Það var A-Iið Þórs sem sigraði á mótinu en liðið vann alla sína leiki, að einum undanskildum, sem endaði með jafntefli. í A-riðli léku Æskan, Geisli, Reynir A og KA A. KA A sigr- aði í riðlinum og komst áfram ásamt liði Reynis. í B-riðli léku UNP, Efling A, Reynir B og KA B. Reynir B sigraði í riðlinum og komst áfram ásamt A liði Efling- ar. í C-riðli léku lögreglan á Akureyri, Þór B, V.V. frá Seyð- isfirði og ÍMA B. ÍMA B sigraði í riðlinum og komst áfram ásamt Pór B. í D-riðli léku HSÞ A, Þór A og UMFP. Þór A sigraði og komst áfram ásamt HSÞ A. í E- riðli léku Vorboðinn, Efling B og HSÞ B. HSÞ B sigraði í riðlinum og komast áfram ásamt liði Vor- boðans. í fyrsta milliriðli léku ÍMA B, Reynir A og Efling A og urðu úrslit þessi: ÍMA A-Efling A 7:5 ÍMA A-Reynir A 3:4 Efling A-Reynir A 4:5 Það var lið Reynis sem sigraði í riðlinum og komst í úrslita- keppnina. I öðrum milliriðli léku Reynir B, Þór A og Vorboðinn og urðu úrslit þessi: ReynirB-ÞórA 1:6 Reynir B-Vorboðinn 2:7 Þór A-Vorboðinn 11:3 Það voru Þórsarar sem sigruðu í riðlinum og komust í úrslita- keppnina. I þriðja milliriðli léku KA A, Þór B, HSÞ B og HSÞ A og urðu úrslit þessi: KA A-Þór B 3:5 HSÞ B-HSÞ A 2:5 KA A-HSÞ A 7:8 HSÞ B-Þór B 1:5 HSÞ B-KA A 5:10 Þriðji riðill var með fjórum lið- um og því komust tvö lið áfram úr honum, HSÞ A og Þór B. í úrslitariðlinum léku því Þór B, HSÞ A, HSÞ B, Reynir A og Þór A. Léku allir við alla og urðu úrslit þessi: Þór B-HSÞ A 2:8 Þór A-Reynir A Þór B- Revnir A HSÞ A-Þór A Þór A-Þór B HSÞ A-Reynir A Þór A kom best út úr úrslita- keppninni eins og áður sagði og sigraði. HSÞ A varð í öðru sæti og Þór B í því þriðja. Desembermót Úðins: Agætur árangur skriðsundi Desembermót sundfélagsins Óðins á Akureyri fyrri hluti, fór fram á laugardag og sunnu- dag. Keppt var í 1500 m og 800 m skriðsundi karla og kvenna og náðist ágætur árangur. Eitt Akureyrarmet var sett á mót- inu, Hlynur Tuliníus bætti metið í flokki sveina 12 ára og yngri í 800 m skriðsundi. Einnig var mikið um það að keppendur settu persónuleg met. Annars urðu úrslitin þessi: 1500 m skriðsund kvenna: 1. Elsa M. Guðmundsd. 22:31,7 2. Birna H. Sigurjónsd. 22:33,0 1500 m skriðsund karla: 1. Svavar Þór Guðmundsson 18:33,4 2. Ottó Karl Tuliníus 21:45,0 3. Magnús Arnarson 22:53,7 4. Kristján G. Magnússon 23:24,0 800 m skriðsund kvenna: 1. Elsa M. Guðmundsdóttir 11:42,9 2. Birna H. Sigurjónsdóttir 11:45,1 3. íris Thorleifsdóttir 13:30,3 4. Vala Magnúsdóttir 13:32,5 5. Hrafnhildur Örlygsd. 14:03,5 6. Kolbrún Magnúsdóttir 14:15,7 800 m skriðsund karla: 1. Svavar Þór Guðmundsson 9:48,9 2. Ottó Karl Tuliníus 11:15,9 3. Magnús Þór Arnarson 11:44,1 4. Kristján G. Magnússon 12:00,5 5. Gunnar Ellertsson 12:17,2 6. Hlynur Tuliníus 12:17,2 7. Kristján Gestsson 14:17,9 Hlynur Tuliníus setti Ak.-met á Dcsembermóti Óðins um helgina. 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 Þorbjörg vann og skorar á Sigurð Stefán Gunnlaugsson sagði um daginn að hann gæti vel hugsað sér að tapa fyrir kvenmanni í getraunaleiknum og skoraði á Þorbjörgu Traustadóttur. Honum varð að ósk sinni því Þorbjörg rúllaði Stef- áni upp, var með 9 leiki rétta á móti 7 leikjum hans. Þorbjörg held- ur því áfram og hún hefur skorað á Sigurð Sigurðsson, SS Byggi í næstu umferð. Sigurður vonast eftir sigri en gerir sér fulla grein fyrir því, að erfítt verði að sigra Þorbjörgu í keppninni. En hér er spá þeirra: Konráð Óskarsson lék sinn 100. leik bolta á laugardag. með meistaraflokksliði Þórs í körfu- Mynd: KK Þorbjörg Sigurður Aston Villa-Man.Utd. 2 Luton-Everton 1 Man.City-West Ham x Newcastle-Nottm.Forest 2 Norwich-Arsenal 1 Q.P.R.-Charlton 1 Southampt.-Coventry x Tottenham-Watford 1 Wimbledon-Sheff.Wed. 1 Blackburn-Oldham x Plymouth-Derby 1 Sheff.Utd.-Portsmouth x Aston Villa-Man.Utd. 2 Luton-Everton 1 Man.City-West Ham x Newcastle-Nottm.Forest 2 Norwich-Arsenal 2 Q.P.R.-Charlton 1 Southampt.-Coventry 1 Tottenham-Watford 1 Wimblcdon-Sheff.Wed. x Blackburn-Oldham 2 Plymouth-Derby x Sheff.Utd.-Portsniouth 1 Tipparar munið að skila seðlunum inn fyrir hádegi á fímmtudög- um svo enginn verði nú af vinningi. 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.