Dagur - 14.01.1987, Blaðsíða 5

Dagur - 14.01.1987, Blaðsíða 5
14; janúar 1987 — DAGUR - 91 Chamberlain leikur Casanova Það vita allir hver leikarinn Richard Chamberlain er. Það nýjasta sem við íslendingar fengum að sjá af afrekum hans voru fram- haldsþættirnir um Raoul Wallen- berg. Nú er Chamberlain á Spáni við upptökur á sjónvarpsmynd um Casanova sjálfan. Af upptökustað er það helst að frétta að hann hringdi í móður sína, Elsu, sem er 84ura ára gömul og býr í Los Ang- eles. Chamberlain tjáði móður sinni að hann saknaði hennar svo mikið að hún skyldi bara koma til Spánar og dvelja þar meðan á upp- tökum stæði. Sú gamla yar ekki sein á sér og dreif sig á staðinn. Þá vitum við allt um það. Tómstunda- bækur Iðunnar Iðunn hefur sent frá sér tvær fyrstu bækurnar í nýjum flokki fyrir börn og unglinga, Tóm- stundabækur Iðunnar. Nefnast þær Leikir og grín og Prautir og galdrar. í þá fyrrnefndu hefur verið safnað saman fjölda leikja, bæði gamalla og nýrrá og kemur bók af þessu tagi sér vel við hin ýmsu tækifæri þar sem krakkar eru saman komnir til að skemmta sér. En í þeirri síðarnefndu er eins og nafnið bendir til að finna safn þrauta og galdra. Hér er hægt að skyggnast inn í leyndardóma hins fullkomna töframanns og tileinka sér hin ótrúlegustu brögð og brellur. Sem dæmi má nefna ýms- ar þrautir með spil, eldspýtur, vasaklúta o.s.frv. Þetta eru bækur sem tilvalið er að draga fram í góðum félags- skap. Þær eru þýddar úr dönsku. Sigurður Bjarnason þýddi. Góð aðsókn hefur verið á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli að undanförnu enda hef- ur veðrið verið með afbrigðum gott. Fólk á öllum aldri hefur streymt í „Fjallið“ og hér má sjá einn lítinn polla fá aðstoð við að gera sig kláran fyrir átökin í brekkunum. Mynd: rpb Þorrablót Þorrablót Arnarneshrepps verður haldið í Hlíðarbæ laugardaginn 23. janúar og hefst stundvíslega kl. 20.30. Teklð verður á móti miðapöntunum hjá Sillu í síma 26349 og hjá Boggu í síma 22486, í síðasta lagi miðvikudaginn 21. janúar. Látið heyra tímanlega frá ykkur og svo sjáumst við í banastuði á blótinu. Nefndin. Utvegsmenn Norðurlandi Útvegsmannafélag Norðurlands boðartil fundar fimmtudaginn 15. janúar á Hótel KEA, Akureyri kl. 14.00. Stjórnin. rengivika / I síáuíht SprefiQivtbi HSC potturmn fimm Yniljjóriir VrtAÍ vecfar hann mns ? getraunir —leifeur fyrir aíla! V / \ / V

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.