Dagur - 04.02.1987, Blaðsíða 6

Dagur - 04.02.1987, Blaðsíða 6
■■■■■■ fullri ferð 4. febrúar 1987 - DAGUR - 7 6 - DAGUR - 4. febrúar 1987 Halldórssyni og báöir Iofuöu þessir höfðingjar gestum stór- kostlegu kvöldi. Og svo gengu þeir í salinn, hin- ir þeldökku snillingar í hljóm- sveitinni frá New Orleans. Sveifl- an var strax tekin föstum tökum og það tók þá ekki nema nokkrar mínútur að „hita salinn upp“. Og svo var hann kynntur, maðurinn sem selt hefur yfir 100 milljónir hljómplatna. Fats Domino gekk í salinn undir dúndrandi fagnaðar- látum og það var strax „tekið til starfa". Það sem á eftir fór mun lengi lifa í minningunni. Hvert gull- kornið rak annað, „Jambalaya“, „Aint that a shame“, „I want to walk you home“, „Red sails in the sunset", „So long“ og „Blue monday“ svo aðeins nokkur séu nefnd. Fólkið var vel með á nót- unum, enda á ferðinni lög sem allir þekkja og Fats Domino gæti spilað klukkustundum saman lög sem náð hafa heimsfrægð. Domino var ekkert að slappa af á milli laga þótt keyrt væri á fullri ferð. Áhorfendur fengu ekki tækifæri til að klappa fastar og hærra þegar lögunum lauk því strax hafði verið byrjað á nýju lagi og svona gekk það allan tímann. í lokin héldu blásararnir svo út í salinn sem fyrr sagði og Domino tók píanóið og „spark- aði“ því á undan sér um dansgóif- ið og sveiflan dundi. En allt tekur enda og þrátt fyr- ir að áhorfendur gerðu sitt besta til að fá kappana fram á sviðið að nýju gekk það ekki. Domino hélt upp á efri hæðina inn í afdrep sitt þar og nú var sest niður til að árita plötur sem höfðu verið til sölu í húsinu. Þar hitti ég hann aðeins að máli og spurði hann hvort hann væri ánægður með tónleikana. „Ég skemmti mér konunglega og ég vona að fólkið hafi gert það líka,“ var svarið, stutt og skor- inort. Svo brosti þessi snillingur brosinu fræga sem hann sendir áhorfendum sínum svo oft. gk-. Það er erfitt að finna hin réttu lýsingarorð sem ná yfir þá gríðarlegu stemmningu sem ríkti í Sjallanum á mánudagskvöldið er hinn heimsfrœgi Fats Domino hélt þar sínafyrstu tónleika ásamt hinni stórkostlegu hljómsveit sinni. Þessir kappar heilluðu gesti hússins gjörsamlega upp úr skónum og þegar blásarahópurinn hélt í gönguferð út í salinn í lok tónleikanna og blés í leiðinni kröftuglega hið þekkta „When The Saints...“ ætlaði þakið bókstaflega að rifna af húsinu. Þakið hélt þó að þessu sinni enda ýmsu vant, en aldrei hefur önnur eins sveifla dunað í Sjallanum. Hljómsveitin sem að uppistöðu var skipuð blásurum fór á kostum. Hér er Domino lagður af stað með flygilinn á undan sér um dansgólFið og áhorfendur risnir úr sætum og livetja kappann. I „gönguferð“ um salinn léku þeir „When The Saints...“ og fólkið var vel með á nótunum. Myndir: RÞB Tr.BDon.too. Fats Domino og hljómsveit í Sjallanum: Undirritaður sem hafði ekki tækifæri á að sjá til kappans er hann heimsótti ísland á síðasta ári taldi fullvíst að þar með hefði endanlega farið tækifærið að sjá til Fats Domino á sviði, og hrifn- ingin á þessum einstæða lista- manni sem varað hefur í um 20 ár, yrði áfram að vera úr fjarlægð. En svo komu tíðindin, Olafi Laufdal tókst að fá hann aftur til landsins og norður til Akureyrar skyldi hann fara. f*ví- lík tíðindi, og þvílík eftirvænting að fá að berja goðið augum. Já eftirvæntingin var mikil er Sjallagestir höfðu komið sér fyrir og Ingimar Eydal og Grímur Sig- urðsson höfðu hitað upp með léttri „dinnertónlist". Ingimar tók síðan til máls ásamt Björgvin „Grínarínn“ í hópnum hafði í frammi alls kyns tilburði eins og sjá má. Allt í fullum gangi. Hljómsveitarstjórinn virðist eitthvað áhyggjufull- ur en það er sá í jakkanum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.