Dagur - 17.03.1987, Síða 1
70. árgangur Akureyri, þriðjudagur 17. mars 1987 52. tölublað
3K
skyrtur Fjölbreytt úrval % jm HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599
Skoðanakönnun Dags og Félagsvísindastofnunar í Norðurlandskjördæmi eystra:
Flokksbrotin fylgislaus
- Stjórnarflokkarnir tapa fylgi, Framsóknarflokkurinn mest - Alþýðubandalagið vinnur á, Alþýðuflokkur
með sama fylgi og síðast ef fylgi Bandalags jafnaðarmanna er lagt við - Stefán Valgeirsson ekki inni
Samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar, sem Félagsvís-
indastofnun Háskóla Islands
vann fyrir Dag, um fylgi
stjórnmálaflokkanna í Norður-
landskjördæmi eystra, fær
Sjálfstæðisflokkurinn flest
atkvæði í kjördæminu í kom-
andi alþingiskosningum og tvo
þingmenn kjörna, Framsókn-
arflokkur fær næstflest
atkvæði og tvo menn, Alþýðu-
bandalag einn mann og Al-
þýðuflokkur einn. Alþýðu-
bandalag er svo næst því að
hljóta 7. þingsætið, sem er
uppbótarþingsæti, en það fer
þó að sjálfsögðu eftir úrslitum
annars staðar á landinu hvaða
flokkur hlýtur það. Samkvæmt
þessari skoðanakönnun er
Stefán Valgeirsson ekki inni og
aðrir flokkar eru langt frá því
að ná manni inn.
Alls svöruðu 346 manns í kjör-
dæminu. Spurt var: „Ef alþing-
iskosningar væru haldnar á
morgun, hvaða flokk eða lista
heldurðu að þú myndir kjósa?“
AIIs gáfu 259 manns upp ákveð-
inn flokk eða lista, 18 sögðust
ekki ætla að kjósa, 7 sögðust
skila auðu, 11 neituðu að svara
og 19 voru óákveðnir. Það voru
því hvorki meira né minna en
78,6% aðspurðra sem voru búnir
að ákveða hvaða stjórnmálaflokk
þeir ætluðu að kjósa. Það er
mjög hátt hlutfall og verður því
að telja könnunina mun mark-
tækari en aðrar skoðanakannanir
um þetta efni sem gerðar hafa
verið að undanförnu, auk þess
sem úrtakið er stórt.
Ef einungis eru teknir þeir sem
afstöðu tóku ætla 25,3% að kjósa
D-lista Sjálfstæðisflokks, 20,6%
kjósa B-lista Framsóknarflokks,
18,2% G-lista Alþýðubandalags
og 16,9% A-lista Alþýðuflokks.
8,1% segjast kjósa J-lista Sam-
taka jafnréttis og félagshyggju
(Stefán Valgeirsson), 4,7%
Kvennalista, 3,4% Þjóðarflokk-
inn, 2,4% M-Iista Flokks manns-
ins og 0,3% C-lista Bandalags
jafnaðarmanna.
Samkvæmt þessum niðurstöð-
| um tapar Framsóknarflokkurinn
Ólafur Þ. Harðarson Félagsvísindastofnun:
Skekkjumörk
em 4-5%
- Aðalbaráttan milli
„Skekkjumörkin í svona könn-
un eru mismunandi eftir því
hversu hátt prósentuhlutfall
flokkur fær. Flokkur sem fær
um 20% lendir í skekkjumörk-
um plús eða mínus 4% og þau
væru 5% ef flokkur væri með
30% atkvæða,“ sagði Ólafur
Þ. Harðarson hjá Félagsvís-
indastofnun Háskólans, sem
vann könnunina fyrir Dag
ásamt Stefáni Ólafssyni, for-
Háskóli á Akureyri:
Engar umsóknir
- um störf
námsbrautarstjóra
Fyrir nokkru auglýsti mennta-
málaráðuneytið laus til
umsóknar störf námsbrautar-
stjóra í hjúkrunarfræði og iðn-
rekstrarfræði við háskóla á
Akureyri. I gær höfðu engar
umsóknir borist um þessi störf.
Að sögn Árna Gunnarssonar
deildarstjóra í ráðuneytinu hefur
nú verið ákveðið að framlengja
frest til umsókna til 15. apríl. Þá
rennur einnig út frestur til að
sækja um starf forstöðumanns
háskólakennslunnar á Akureyri.
ET
Stefáns og Valgerðar
stöðumanni og Friðriki H.
Jónssyni.
Þetta þýðir með öðrum orðum
að það eru 95% líkur á því að
flokkur með 20% atkvæða sam-
kvæmt könnun með 350 svarend-
ur fái í kosningum 16-24%. Þetta
hljómar sem mikil skekkja, en að
sögn Ólafs er sú niðurstaða sem
könnunin gefur til kynna mjög
líklega nærri lagi, eins og staðan
var þegar könnunin var gerð, 10,-
13.mars.
„Það sem einkennir niðurstöðu
þessarar könnunar er raunar það
fyrst og fremst hvað úrslitin virð-
ast ætla að verða tvísýn, allt er
opið og hvað sem er getur gerst,“
sagði Ólafur í samtali við Dag.
Hann sagði að Sjálfstæðisflokk-
urinn virtist öruggur með tvo
menn og aðalbaráttan stæði milli
Stefáns Valgeirssonar og Val-
gerðar Sverrisdóttur. Töluvert
vantaði á að Alþýðubandalag og
Alþýðuflokkur blönduðu sér í þá
baráttu.
Þess má geta að þegar DV ger-
ir sínar kannanir á landsvísu er
úrtakið 600 manns og þar af um
60 í Norðurlandi eystra. Gefur
auga leið að niðurstaða þessarar
könnunar sent unnin var fyrir
Dag ætti að vera mun marktæk-
ari, þar sem svarendur voru 346.
HS
verulegu fylgi og einum þing-
manni, fær tvo, en reyndar var
nær útséð að svo færi vegna
breyttra kosningalaga, Sjálf-
stæðisflokkur tapar lítillega en
heldur sínum þingmönnum,
Alþýðubandalag bætir lítillega
við sig 'en fær einn mann og er
líklegast til að fá uppbótarþing-
sætið í kjördæminu og Alþýðu-
flokkur kemur út með sama fylgi
og Alþýðuflokkur og Bandalag
jafnaðarmanna fengu samtals í
síðustu kosningum og fær einn
mann, hafði engan síðast en
Bandalag jafnaðarmanna á nú
einn uppbótarþingmann í kjör-
dæminu.
J-Iistinn er talsvert frá því að
koma inn manni og aðrir flokkar
eru alls ekki inni í myndinni um
þingsæti og virðast atkvæði
greidd smærri flokkunum ónýtast
með öllu.
Sjá nánar um skoðanakönnun-
ina á bls. 3 og ummæli efstu
manna listanna á bls.3 og 8.BB.
Síöastliöinn sunnudag hélt kór Barnaskóla Akureyrar mikla söngskemmtun í Alþýðuhúsinu. Kórinn heldur í vor til
Færeyja og var skemmtunin haldin til fjáröflunar fyrir ferðina. Mynd: rþb
Kennaraverkfallið:
14 gmnnskólakennarar
í verkfalli á Akureyri
- starfsemi MA liggur niðri
- stundakennarar kenna áfram við VMA
Verkfall háskólamcnntaðra
kcnnara, sem hófst á miðnætti
aðfaranótt mánudags, hefur
þau áhrif að öll kennsla fellur
niður í Menntaskólanum á
Akureyri. I Verkmennta-
skólanum á Akureyri kenna
einungis stundakennarar. í
grunnskólum Akureyrar hefur
vcrkfallið misntikil áhrif eftir
því hversu margir kennarar eru
félagar í félagi háskóla-
menntaðra kennara.
Menntaskólinn á Akureyri
verður opinn nemendum til
sjálfsnáms, a.m.k. fyrir hádegi,
þann tíma sem verkfall stendur.
Þeir kennarar Verkmenntaskól-
ans, sem ekki eru í verkfalli,
munu kenna sína föstu tíma og
að öðru leyti verður aðstaða opin
fyrir þá nemendur sem vilja nýta
sér húsnæði skólans til náms og
vinnu.
í Gagnfræðaskólanum á Akur-
eyri eru sex fastráðnir kennarar í
verkfalli auk eins stundakennara.
Að sögn Sverris Pálssonar, skóla-
stjóra, falla rúmlega 20%
kennslustunda niður af þessum
sökum. Verkfallið veldur því
talsverðri röskun á starfsemi
skólans.
í Glerárskóla er enginn kennari
í verkfalli og ekki heldur í
Lundarskóla. í Barnaskóla Akur-
eyrar eru fjórir kennarar í verk-
falli. í Síðuskóla er einn kennari í
verkfalli. Háskólamenntaðir
skólastjórar og yfirkennarar
sinna stjórnunarstörfum en ekki
kennslu meðan á verkfalli
stendur.
„Það eru tveir kennarar í verk-
falli hérna, og forskólakennsla
fellur af þessum sökum niður,
einnig danska í 9. bekk og að
hluta til kennsla í 3. bekk. Þá
fellur kennsla í bókasafninu
niður. Þetta hefur því ekki nein
stóráhrif hjá okkur," sagði Ind-
riði Úlfsson, skólastjóri Oddeyr-
arskóla, um verkfallið. EHB