Dagur - 17.03.1987, Blaðsíða 11

Dagur - 17.03.1987, Blaðsíða 11
17. mars 1987 - DAGUR - 11 Jeiklist. Að sýningu lokinni var leikurum vel fagnað og síðan voru þau Jón Kristinsson, Jóhann Ögmundsson, Guðmundur Gunnarsson og Björg Baldvinsdóttir heiðruð fyrir vel unnin störf í þágu leikfélagsins. Leikfélaginu voru færðar gjaf- ir og heillaóskir í tilefni afmælisins frá bæjarstjórn, Leikfélagi Reykjavíkur, Þjóðleikhúsinu og fleirum. Fjörugur KABARETT Á laugardagskvöldið frum- sýndi Leikfélag Akureyrar söng- leikinn KABARETT sem þeir Joe Masteroff, Fred Ebb og John Kander sömdu eftir sögu Christ- opher Isherwood. Þessi frumsýn- ing var ekkert venjuleg frumsýn- ing því yfir henni var hátíðar- bragur vegna 70 ára afmælis LA á þessu ári, nánar tiltekið þann 19. apríl. Flestir ættu að kannast við KABARETT, því leikritið hefur verið sýnt í Þjóðleikhúsinu og einnig var gerð mynd eftir sög- unni þar sem Liza Minelli lék Sally Bowles og vann þar mikinn leiksigur. Það þarf stórhuga fólk til að ráðast í sýningu af þessu tagi hjá ekki stærra leikhúsi, en LA hefur sýnt það á undanförn- um árum að það ræður vel við söngleiki og kemur þá fyrst upp í hugann My Fair Lady sem naut mikilla vinsælda og tókst einstak- lega vel. Söngleikurinn KABARETT gerist í Berlín um 1930, skömmu fyrir valdatöku nasista. Sagan gerist á tveimur vígstöðvum. í Kit Kat næturklúbbnum þar sem ólifnaðurinn er í algleymingi og heima hjá hinni siðprúðu frk. Schneider (Soffía Jakobsdóttir) sem leigir út herbergi. í verkinu er sagt frá Sally Bowles (Ása Hlín Svavarsdóttir) og rithöf- undnum Clifford Bradshaw (Ein- ar J. Briem). Þá koma frk. Schneider og Rudolf Schultz (Pétur Einarsson) mikið við sögu, einnig nasistinn Ernst Ludwig (Gestur Einar Jónasson), að ógleymdum siðameistaranum sem er leikinn af Guðjóni Pedersen. í smærri hlutverkum eru Inga Hildur Haraldsdóttir, sem leikur fr. Kost af stakri prýði, Skúli Gautason sem leikur tollvörð, Örn Viðar Birgisson leikur leigubílstjóra, þeir Skúli og Örn leika einnig þjóna, sjóliða og gesti á Kit Kat klúbbnum, ásamt þeim Ingólfi Stefánssyni, Jóhanni Möller og Marinó Þor- steinssyni. Að lokum eru það svo Kit Kat stelpurnar sem leiknar eru af þeim Alice Jóhanns, Örnu Valsdóttur, Guðbjörgu Thor- oddsen, Guðrúnu Marinósdótt- ur, Ólöfu Sverrisdóttur og Sigríði Guðnadóttur. Sagan byrjar á því að Clifford Bradshaw kemur til Berlínar og þar kynnist hann Sally Bowles, sem dansar og syngur í Kit Kat klúbbnum. Áður en hann veit af er Sally flutt inn til hans, en hann leigir hjá frk. Schneider. Það skiptast síðan á skin og skúrir hjá þeim og öðrum persónum leik- ritsins en það er óþarfi að rekja það nánar og skemma þannig fyr- ir þeim sem hafa hug á að sjá KABARETT. Það er óhætt að mæla með þessari sýningu LA. Leikdómur af þessu tagi verður að sjálfsögðu aldrei annað en mat einnar pers- ónu á verkinu, en ég skemmti mér mjög vel á frumsýningunni. Manni leiðist aldrei eina mínútu, það er söngur, leikur og dans og því eitthvað við allra hæfi, ef svo má að orði komast um leiksýn- ingu. Að öðrum leikurum ólöstuðum þótti mér þau Guðjón Pedersen í hlutverki siðameistar- ans og Soffía Jakobsdcttir í hlut- verki frk. Schneider einna eftir- minnilegust. Ég hafði það á til- finningunni að Guðjón lifði sig virkilega inn í sitt hlutverk og reyndar má segja það sama um alla leikarana því leikgleðin var í fyrirrúmi hjá öllum, enda býður þetta verk upp á slíkt. Ása Hlín Svavarsdóttir gerir Sally Bowles góð skil en það sem mér þótti helst skorta á hjá Ásu er meiri styrkur í söngnum, en það má vera að söngurinn hafi ekki borist nógu vel upp á efsta bekk á svölum, en þar sat ég. Einar Jón Briem þótti mér passa mjög vel í hlutverk rithöf- undarins og það sama má segja um Gest Einar Jónasson í hlut- verki nasistans. Pétur Einarsson hljóp í skarðið fyrir Þráin Karls- son og lék Rudolf Schultz mjög vel, hann var ekta gyðingur. Aðr- ir voru í smærri hlutverkum og skiluðu þeim með prýði. Það sem mér fannst þó eiginlega best við sýninguna voru dansarnir sem komu einstaklega skemmtilega út, þá samdi Kenn Oldfield en hann hefur gert dansa fyrir tvær sýningar hjá Þjóðleikhúsinu, Gæja og píur og Chicago. Það væri ekki of mikið að segja að Karl Aspelund eigi heiður skilinn fyrir hönnun leikmyndar og búninga í KABARETT. Leik- rnyndin er frábær og búningarnir góðir. Leikritið gerist í lest, á tveimur stöðum heima hjá frk. Schneider og í Kit Kat klúbbnum og allar skiptingar ganga hratt og vel fyrir sig. Ingvar Björnsson, Ijósameistari stendur fyrir sínu, að mínu viti var lýsingin góð. Þetta er að mínum dómi mjög góð sýning sem Bríeti Héðins- dóttur, leikstjóra hefur tekist að skapa þarna og virkilega eftir- minnileg. Fólk ætti að rífa sig frá sjónvarpinu, myndbandstækinu og myndlyklinum og drífa sig í leikhús, það er þess virði og meira en það og að lokum vil ég þakka þeim sem að þessari sýn- ingu standa fyrir skemmtilega kvöldstund. -HJS Stakfélagar Fundur í Alþýðuhúsinu 4. hæð þriðjudaginn 17.03. kl. 20.30. Dagskrá: 1. Kynntur nýr kjarasamningur. 2. Almennar umræður. Kosning um aðalkjarasamninginn verður: Á skrifstofu STAK miðvikudaginn 18/3 kl. 15-19 og fimmtudaginn 19/3 kl. 15-19. Á FSA miðvikudaginn 18/3 kl. 14-17 og fimmtudag- inn 19/3 kl. 14-17. Stjórnin. AKUREYRARBÆR Rafmagnstækni- fræðingur Rafveita Akureyrar vill ráða rafmagnstæknifræð- ing í starf tæknifulltrúa (forstöðumanns tækni- deildar). Laun samkvæmt kjarasamningum Akur- eyrarbæjar. Upplýsingar um starfið veitir rafveitustjóri. RAFVEITA AKUREYRAR Getum bætt við okkur starfsfólki í málningar- og hreinlætisvörudeild. Uppl. veitir verksmiðjustjóri í síma 21165. Efnaverksmiðjan Sjöfn. Hljóðbylgjan hf. Ný útvarpsstöð sem hefur útsendingar í apríl óskar eftir að ráða í eftirtalin störf: 1. Útvarpsstjóra. 2. Auglýsingastjóra. 3. Fréttamann. 4. Dagskrárgerðarfólk. Með öllum umsóknum verða að fylgja upplýsingar um nafn, aldur, starfsferil og menntun. Farið verður með allar umsóknir sem algjört trúnaðarmál. Umsóknir sendist til Hljóðbylgjunnar hf. Ráðhústorgi 1. Pósthólf 908, 602 Akureyri fyrir 25. mars 1987. Lyftaramaður Duglegur maður með lyftararéttindi óskast til lager- starfa. Upplýsingar á staðnum. K. Jónsson & Co hf. Niðursuðuverksmiðja.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.