Dagur - 13.04.1987, Blaðsíða 5
13. apríl 1987 - DAGUR - 5
Skagafjarðarsýsla:
Sauðfé
fækkar enn
- og útlit fyrir meiri samdrátt
á þessu ári
Sauðfjáreign dróst mjög sam-
an í Skagafjarðarsýslu á síðasta
ári, eða um 4.424 fjár. Eftir
skýrslum að dæma varð þessi
fækkun hlutfallslega mest í
Hofshreppi, Haganeshreppi og
Holtshreppi. Am í sýslunni
hefur fækkað um 30% frá
1978, en þá voru þær flestar,
úr 53.689 í 37.544. Allar líkur
eru á að sauðfé fækki enn frek-
ar í sýslunni á þessu ári vegna
niðurskurðar gegn riðu, en
ekki er talið að því fækki eins
mikið og á síðasta ári. Naut-
gripaeign í sýslunni er mjög
svipuð og undanfarin ár, en
hrossaeign aðeins meiri.
Þórarinn Sólmundarson hjá
Búnaðarsambandi Skagafjarðar
taldi ekki líkur á að sauðfé fækk-
aði meira á þessu ári en sem
næmi niðurskurði vegna riðu.
Vegna niðurskurðarins sagði
hann meiri líkur til að ekki þurfi
að koma til skerðing á fram-
leiðslurétti í dilkakjötsfram-
leiðslu næstu árin, svo framarlega
sem samningar við ríkisvaldið
yrðu á svipuðum nótum áfram.
Að sögn Sigurðar Sigurðssonar
dýralæknis á Keldum er meining-
in að halda áfram niðurskurði
vegna riðu í ár á öilum riðuveiki-
svæðum í landinu og framundan
eru viðræður við bændur um það
mál. Sagði hann greinilegan vilja
stjórnvalda til þessara aðgerða,
en ekki enn ljóst hversu mikið
fjármagn fengist í bætur til
bænda og því ekki vitað hvort um
1 eða 2 ára verkefni sé að ræða.
í Skagafirði virðist riðan nú
vera mest áberandi í Fljótunum
og í Seylu- og Lýtingsstaða-
hreppi. I þessum sveitum var
skorið niður í haust'og talsverðar
líkur á að svo verði einnig gert á
næsta hausti. -þá
Kannast þú við þessa mynd?
Mynd þessi er að öllum líkindum
tekin í Eyjafirði í kringum 1920.
Ef hún prentast vel sést að í
hægra horninu, niðri, er áletrað:
„Ungherjakofi A.S.V. Akur-
eyri“ sem gæti staðið fyrir „Akur-
eyrarskátasveit" eða eitthvað í
þeim dúr.
Þeir sem veitt gætu upplýsingar
um við hvaða tækifæri myndin er
tekin, ellegar þekkja einhverja á
myndinni, eru vinsamlegast
beðnir um að senda Degi nokkr-
ar línur um málið. Æskilegt væri
að auðkenna umslagið „A.S.V."
Leyfi til söltunar grásleppuhrogna:
90 umsóknir á Norðurlandi
- svipaður fjöldi og í fyrra
Eins og komið hefur fram hef-
ur grásleppuveiöi gengið illa
það sem af er vertíðinni. Þeir
menn sem rætt var við voru þó
bjartsýnir um betri tíð. Hjá
Ríkismati sjávarafurða hafa nú
um 90 aðilar sótt um leyfi til að
salta grásleppuhrogn á vertíð-
inni og er það að sögn Jóns Þ.
Ólafssonar hjá RS svipaður
fjöldi og í fyrra.
Á Norðurlandi vestra eru það
um 50 aðilar sem þegar hafa sótt
um leyfi en um 40 aðilar á
Norðurlandi eystra. Algengt er
að grásleppusjómenn salti hver
sinn afla en einnig er til að menn
leggi upp hjá stærri fyrirtækjum
sem salta þá talsvert magn. Jón
sagðist búast við fleiri umsóknum
um leyfi en ekki er um að ræða
nein tímamörk til að sækja um.
Til þess að fá leyfi til að salta
hrogn þurfa aðilar að uppfylla
ákveðin skilyrði um hreinlæti,
búnað og húsnæði samkvæmt
reglugerð frá 1985. Ríkismatið
hefur einnig sent frá sér ákveðnar
leiðbeiningar um himnuhreinsun,
síun, söltun, geymslu og merk-
ingar á hrognunum en úr þeim er
unnin rándýr lúxusvara svo sem
kavíar. ET
Páskar
á Hótel
Húsavík
Frá 15.-26. apríl býður Hótel
Ilúsavík gestum sínum 20%
afslátt af gistingu auk þess sem
börn hótelgesta fá ókeypis gist-
ingu, þetta tilboð gildir fyrir
gesti sem dvelja fimm nætur
eða lengur á hótelinu.
Hljómsveitin Kaskó frá
Reykjavík mun leika í Hlíðskjálf
um páskana öll kvöld sem leyfi-
legt er að hafa opið og á laugar-
dagskvöld verður haldið jazz-
kvöld í samstarfi við Jazzþing.
Veitingasalur hótelsins verður
opinn um páskana og þar verður
boðið upp á kaffihlaðborð alla
páskadagana. Sjávarréttaveisla
verður á skírdag og föstudaginn
langa, sjávarréttahlaðborð í
hádeginu en á kvöldin verður sér-
stakur fiskréttamatseðill.
Á laugardag, páskadag og ann-
an í páskum verða hefðbundnir
páskaréttir á matseðlinum s.s.
lambakjöt og kjúklingar.
Leikfélag Húsavíkur mun sýna
Ofurefli eftir Michael Cristofer,
10., 14., 18. og 21. apríl og á
hótelinu er hægt að panta pakka,
þ.e.a.s. leikhúsmiða, mat og/eða
gistingu. IM
Heiðursgestur hátíðar-
innar: Ingvar Gíslason
fyrrverandi mennta-
málaráðherra ásamt
frú.
Itl
Veislustjóri: Guð-
mundur Stefánsson.
Bítlavinafélagið leikur
fyrir dansi til kl. 03.00.
Hver verður leynigest-
urinn sem syngur með
hljómsveitinni?
Stórhátíð K.F.N.E. og Framsóknarfélags
Akureyrar verðurhaldin að Hótel KEA
miðvikudaginn 15. apríl. (Ath. daginn fyrir skírdag.)
Hátíðin hefstmeð lystauka kl. 19.00.
Borðhaldkl. 20.00.
Stórhátíðarnefnd.
Frambjóðendur B-list-
ans taka þátt í fjöl-
breyttri skemmtidag-
skrá.
Miðar seldir á skrif-
stofu Framsóknar-
flokksins að Hafnar-
stræti 90. Sími 27405.
Verð miða kr. 1.500.-
Miðapantanir óskast
sóttar eigi síðar en 12
á hádegi á miðviku-
dag.
Kl. 23.30 verður húsið
opnað fyrir aðra en
matargesti.
Fjölmennið og takið
með ykkur gesti.