Dagur - 13.04.1987, Page 7
lesendahomið.
13. apríl 1987 - DAGUR - 7
Lið Þórs sem vann sér sæti í 1. deild í handknattleik fær mikið hrós frá bréf-
ritara.
Ótrúlegur árangur!
Árangur handknattleiksliðs Þórs
hefur vakið mikla og verðskuld-
aða athygli. Liðið vann sig upp úr
3. deild í fyrra og beint upp í 1.
deild um daginn, sem er að sjálf-
sögðu einstakt afrek, miklu
meira afrek en margur gerir sér
grein fyrir.
Eg man eftir því þegar Þórslið
í knattspyrnu vann sig upp úr 3.
deild 1975, (eftir skiptingu ÍBA
liðsins) og strax árið eftir upp í 1.
deildina. Þetta þótti mikið afrek
hjá knattspyrnuliðinu, og mikið
skrifað um þennan árangur, að
sjálfsögðu, en munurinn á þess-
unt liðum er sá að í knattspyrnu-
liðinu var kjarni af fyrrverandi 1.
deildar leikmönnum með mikla
reynslu, en í handknattleikslið-
inu er enginn fyrrverandi kjarni
reynslumikilla leikmanna, heldur
er liðið mjög ungt og efnilegt.
Eg tel því árangur handknatt-
leiksmanna miklu athyglisverð-
ari.
f liðinu eru til dæmis, einn
leikmaður úr 3. fl., fimm leik-
menn úr 2. fl. og tveir leikmenn
tvítugir.
Ég efast um að svo ungt lið hafi
unnið sig upp í 1. deildar keppni í
boltaíþrótt áður. Því tel ég að
þessir stórefnilegu strákar, sem
eiga framtíðina fyrir sér, hafi
unnið einstakt afrek með þessum
árangri, og óska þeim góðs geng-
is í 1. deildar keppninni, sent
verður þeim örugglega erfið á
fyrsta árinu. En með góðum
undirbúningi og réttu hugarfari
veit ég að þeir vaxa við vandann.
Það sýndu þeir svo sannarlega í
síðasta leiknum í 2. deild gegn
ÍBV, sem var hreinn úrslitaleik-
ur. Þá spiluðu þeir af meira
öryggi en í öllum öðrum leikjum
vetrarins, og sigruðu, að sjálf-
sögðu.
Ekki má gleyma þætti Erlends
Hermannssonar þjálfara liðs-
ins sem er að stíga sín fyrstu skref
sem þjálfari og byrjar ekki dóna-
lega eins og sagt er. Árangur
hans er frábær og vonandi heldur
hann áfram því uppbyggingar-
starfi sem hafið er og treysti ég
honum fullkomlega til að fylgja
því eftir.
Því eins og góður maður sagði:
Þórsarar stefna alltaf á sigur, þó
mislangt sé í hann og hætta ekki
fyrr en honum er náð!
Til hamingju Þórsarar, og takk
fyrir skemmtunina í vetur!
Áfram Þór!
7476-3758.
Skoðanakönnun Dags og
Félagsvísindastofnunar
Norðurlandskjördæmi eystra:
Fjöldi % allra Þeir scm nefna flokk Skoð. könn- un 17. mars Kosn. '83 Þing- menn skoðana- könnun Þing- menn kosn. 1983
Alþýðuflokkur 46 11,2 13,1 16,9 11,0 1 0
Framsóknarflokkur 104 25,4 29,7 20,6 34.7 2 3
Sjálfstæðisflokkur 57 13,9 16,3 25,3 27,2 i 2
Alþvðubandalag 55 13,4 15,7 18,2 16,8 i i
Kvennaiisti 30 7,3 8,6 4.7 5,8 i 0
Flokkur mannsins 2 0,5 0,6 2,4 " - > 0 -
Þjóðarflokkur 15 3,7 4,3 3,4 - 0
Samtök jafnréttis og félagshysgju 22 5,4 6,3 8,1 0
Borgaraflokkur 19 4,6 5,4 - - 0 -
Kjósa ekki 15 3,7 3,5
Skila auðu 9 2,2 1,2
Neita að svara 16 3,9 4,9
Óákveðnir 19 4,6 4,9
Alls 409 100% 100% 100% 6 7*
* Bandalag jafnaðarmanna fékk 7. þingmanna kjördæmisins í síöustu kosningum en býður ekki fram nú.
Inni í töflunni hér að ofan eru einungis 6 kjördæmakjörnir þingmenn. Þingmenn kjördæmisins verða hins vegar 7
í kosningunum nú, sá 7. verður uppbótarþingmaður. Það fer eftir kosningaúrslitum á landinu í heild hvaða flokkur
hlýtur það sæti.
Norðurlandskjördæmi vestra:
Fjöldi % allra Þeir sent nefna flokk Skoð. könn- un 17. mars Kosn. '83 Þing- menn skoðana- könnun Þing- menn kosn. 1983
Alþýðuflokkur 31 8,3 9,9 14,3 7,2 0 0
Framsóknarflokkur 87 23,3 27,9 33,6 28,8 1 2
Sjálfstæðisflokkur 60 16,1 19,2 26,6 31,3 1 2
Alþýðubandalag 47 12,6 15,1 16,6 18,0 1 i
Kvennalisti 29 7,8 9,3 3,1 - 0 0
Flokkur mannsins 1 0,3 0,3 2,7 - 0 -
Þjóðarflokkur 13 3,5 4,2 3,1 - 0 -
Borgaraflokkur 44 11,8 14,1 - - 1 -
Kjósa ekki 19 5,1 5,7 ■
Skila auðu 7 1,8 2,2
Neita að svara 13 3,5 3,5
Óákveðnir 22 5,9 6,1
Alls 373 100% 100% 100% 4 5
Inni í töflunni hér að ofan eru einungis 4 kjördæmakjörnir þingmenn. Þingmenn kjördæmisins verða hins vegar 5
í kosningunum nú, sá 5. verður uppbótarþingmaður. Það fer eftir kosningaúrslitum á landinu í heild og atkvæðaleifð
í kjördæminu hvaða flokkur hlýtur það sæti. Á Norðurlandi vestra er Framsóknarflokkur með langmesta atkvæða-
leifð.
Skíða-
gleraugum
stolið
Móðir hringdi:
Dóttir mín fór á skíði um daginn
upp í Hlíðarfjall og hafði með sér
ný skíðagleraugu. Hún brá sér
inn í skíðahótelið í nokkrar
mínútur og skildi skíðaklossana
og gleraugun eftir í ganginum á
meðan. Þegar hún ætlaði að fara
út aftur sá hún að skíðagleraugun
voru horfin. Þegar hún spurði
þjálfara sinn (en stúlkan var á
skíðanámskeiði) að því livað hún
ætti að gera því gleraugunum
hefði verið stolið fékk hún þau
svör að við þessu væri ekkert að
gera, slíkir atburðir kæmu alltaf
fyrir við og við.
Það, sem ég vil benda á í þessu
sambandi, er ekki fyrst og fremst
peningalegt tjón, sem var ekki
mikið, heldur hvernig innræti
þess fólks eða barna er háttað
sem stundar þjófnaði af þessu
tagi. Foreldrar ættu líka að vera
vakandi fyrir því að börn komi
ekki heim með hluti sem þau eiga
ekki.
V
-v I
■
Htjómleíkar Bídavinafélagsins
Attu
boðsmiða?
Skipulagðar ferðir frá: Þórshöfn Mývatnssveit
Kópaskeri Ólafsfirði
1 Húsavík Dalvík
Sjáumst hress - Frambjóðendur