Dagur - 13.04.1987, Síða 13
13. apríl 1987 - DAGUR - 13
Þær segjast skemmta sér konunglega í skemmtinefndinni. Talið frá vinstri: Hanna B. Jónsdóttir, Kolbrún Þormóðs-
dóttir, Dórothea Bergs og Sigurlaug Gunnarsdóttir.
„Markmiðið að lyfta sér
upp fyrir lokaslaginn“
- segja skipuleggjendur Stórhátíðar framsóknarmanna
Framsóknarmenn í Norður-
landskjördæmi eystra halda
Stórhátíð á Hótel KEA á mið-
vikudagskvöldið og verður þar
mikið um dýrðir. Til að fræð-
ast nánar um hátíðina, truflaði
blaðamaður Dags skemmti-
nefndarfund í nokkrar mínútur
og tók nefndarmenn tali.
- Hvers vegna stórhátíð svo
skömmu fyrir kosningar?
„Það má nú eiginlega segja að
þetta sé síðbúin árshátíð. Þegar
við fórum að skipuleggja árs-
hátíðina kom í ljós að hún var
það stór að við ákváðum að
skella árshátíðinni og baráttuhá-:
tíð B-listans saman í eina stórhá-
tíð. Það verður ntikið um dýrðir,
eins og nafnið gefur reyndar til
kynna. Allt skemmtilegt fólk í
kjördæminu er að sjálfsögðu
velkomið á hátíðina og þótt ekki
sé skilyrði að veislugestir séu
framsóknarmenn, eigum við von
á að þeir verði í miklum meiri-
hluta.“
- Hvernig lítur dagskráin út?
„Húsið verður opnað klukkan
19.00 og verður gestum boðið upp
á fordrykk og menn geta rætt mál-
in fram til kl. 20.00. Þá hefst borð-
haldið og er veislumatseðillinn
þríréttaður. Skemmtiatriðin
verða mjög fjölbreytt. Þar má
nefna ávörp, fjöldasöng og frum-
samdar gamanvísur fluttar af
höfundum. Þá verða fjórir efstu
menn B-listans með sérstakt
skemmtiatriði. Heiðursgestur
kvöldsins er síðan Ingvar Gísla-
son fyrrverandi menntamálaráð-
herra ásamt konu sinni. Síðast en
ekki síst leikur Bítlavinafélagið
fyrir dansi eins og því einu er
lagið, þannig að unga fólkið ætti
ekki að láta þetta fram hjá sér
fara. Þá má geta þess að það
kemur sérstakur leynisöngvari
frant með Bítlavinafélaginu og á
eflaust eftir að slá í gegn...“
- Eru miðapantanir farnar að
berast?
„Það er nú líkast til. Við vilj-
unt ráðleggja þeint sem eru ekki
þegar búnir að koma því í verk,
að drífa í að panta miða á
skemmtiatriðin, því upplagið er
nánast á þrotum. Fólk getur
pantað miða á kosningaskrifstof-
unni og vitjað pantana þar. Og
við vekjum líka athygli á því að
miðar verða seldir sérstaklega á
dansleikinn fyrir þá sem það
vilja.“
- Eitthvað að lokum?
„Ja, við viljum bara hvetja fólk
til að fjölmenna. því markmiðið
er að lyfta sér upp fyrir loka-
slaginn og stilla strengina enn
betur saman. En þótt skemmti-
atriðin séu mörg, þá er aðal-
atriðið að fólk mæti með það í
huga að skemmta sér sjálft."
Hagkaup auglýsir
tilboð til páska á
Hangilæri m/beini ..... kr. 470.-
Hangilæri úrbeinað .... kr. 650.-
Hangiframpartur m/beini .... kr. 285.-
Hangiframpartur úrbeinaður . kr. 545.-
Bayonneskinka ........... kr. 598.-
Svínakambur ............ kr. 565.-
Londonlamb .............. kr. 498.-
Lambahamborgarhryggur ... kr. 385.-
Kalkúnar .............. kr. 522.-
Endur .................. kr. 477.-
HAGKAUP Akureyri
Hlutaljánitboð
Undirbúningsstjórn um stofnun fiskmarkaðar á
Norðurlandi auglýsir eftir hlutafjárloforðum í
fyrirhuguðu fyrirtæki.
Hlutir sem boðnir eru, eru að verðgildi kr. 25.000 og
kr. 100.000.
Skrifleg hlutafjárloforð berist starfsmanni undirbún-
ingsstjórnar Þorleifi Þór Jónssyni, Glerárgötu 30,
600 Akureyri fyrir 30. apríl.
Björn Sigurðsson • Baldursbrekku 7 • Símar41534 • Sérleyfisferðir •
Hópferðir • Sætaferðir • Vöruflutningar
Húsavík - Akureyri - Húsavík
12/4 - 25/4 1987
Frá Húsavík Frá Akureyri
Sunnudagur 12/4 kl. 18.00 kl.21.00
Mánudagur 13/4 kl. 11.00 kl. 16.15
Þriðjudagur 14/4 kl. 09.00 kl. 16.15
Miðvikudagur 15/4 aukaferð kl. 09.00 kl. 17.00
Fimmtudagur 16/4 skírdagur
Föstudagur 17/4 föstudagurinn langi
Laugardagur 18/4 engin ferð
Sunnudagur 19/4 páskadagur
Mánudagur 20/4 annar í páskum kl. 18.00 kl.21.00
Þriðjudagur 21/4 kl. 09.00 kl. 16.15
Miðvikudagur 22/4 aukaferð kl. 09.00 kl. 17.00
Fimmtudagur 23/4 sumardagurinn fyrsti
Föstudagur 24/4 kl. 09.00 kl. 17.00
Síðan venjuleg vetraráætlun.
Sérleyfishafi.
Smurstöð
við Tryggvabraut sími 21080.
Þvoum og bónum.
Hreinsum einnig teppi og sæti í bílnum þínum
Reynið okkar frábæru þjónustu.