Dagur - 13.04.1987, Page 15
13. apríl 1987 - DAGUR - 15
Einar frá Einarsstöðum var fædd-
ur 5. ágúst 1915, þriðja barn af
ellefu systkinum. Eoreldrar hans
voru Jón Haraldsson bóndi þar
og kona hans Póra Sigfúsdóttir.
Einar varð aldrei hár í lofti en
var þó hörku íþróttamaður, katt-
lipur og fylginn sér. Hann féll vel
í systkinahópinn en sá lengra og
meira en aðrir. Enginn vissi þá
hvert hlutverk honum var ætlað
síðar.
Einar gekk að venjulegum
sveitastörfum lengst af á Einars-
stöðum. Vann þó um tíma í
Reykjavík og var bílstjóri um
skeið og stofnaði með öðrum
„Bílstjórafélag Þingeyinga“ og
var fyrsti formaður þess. Sem
náttúruunnandi og maður lífsins
kaus Einar að lifa á Einarsstöð-
um.
Einar naut ekki langrar skóla-
göngu. Var þó við nám í Alþýðu-
skólanum að Laugum í Reykja-
dal en lífið sjálft varð honum
mesti og besti skólinn. Einar
leysti öll störf mjög vel af hendi
og skilaði afköstum í betra lagi.
Hann vakti ekki athygli með
fyrirgangi heldur fyrir það hversu
hann vann verk.sín hógværiega,
látlaust og fumlaust. En þannig
var öll framkoma þessa hátt-
prúða manns.
Hann hafði um langt skeið
agað sig strangt og náði slíkum
tökum á sjálfum sér að hann brá
ekki sýnilega skapi. Var þó ekki
skaplaus. Hann talaði á lægri nót-
unum og lét ekki lastyrði né
hvatreiðiorð af vörum falla.
Hann kom hýr og hlýr til fund-
ar hvar sem var en trúlega stafaði
mestur varminn frá honum er
hann bauð gestum í bæinn, þegar
frá er talin samveran í litla her-
berginu uppi þar sem mönnum
var gefið svo óendanlega mikið
og óskiljanlega mikið. Það var
einmitt þar sem starf Einars reis
hæst.
Árið 1956 var Einar talinn hæf-
ur og valinn sem endurvarpari
kærleiks- og líknarstarfa af þeim
sem nær voru komnir almættinu
en jarðarbúar. Þetta áttu og eiga
ýmsir erfitt með að trúa og skilja.
Gerðu jafnvel grín að. Vissu þó
vel undir niðri að þeir gátu ekki
gefið neitt slíkt af sér öðrum til
bata og heilla eins og Einar gat.
Það getur enginn með réttu
gert sér grein fyrir því hve mörg
góðverk Einar hefur gert né
hverjum ógnarfjölda hann hefur
hjálpað þar sem hann vék kvöl-
um og eymd burt svo að rúm varð
fyrir lifandi líf.
Minning:
Einar Jónsson
Einarsstöðum
vart gestum hans. En stærsta og
besta gjöfin varð þó sameign
þeirra, dóttirin Olga Marta.
Hamingja manna er oft upp-
spretta gleði og sællar ánægju
jafnvel þött veraldleg verðmæti
séu af skornum skammti. Þannig
var með Einar. Þótt hann miðlaði
svo mjög af sjálfum sér og tæki
þátt í annarra kvölum þá stafaði
frá honum gleðin. Gamansemi og
skemmtileg fyndni léku honum á
tungu og fylgdi nrönnum til dyra
að lokinni viödvöl. Menn sóttu til
hans gleði og lækningu. Slíkt var
ekki selt. Þetta var af stórum
hluta til gjöf frá Einari sjálfum
sem hann galt með minni tíma til
umsýslu viö bú sitt og bjó því við
minni efni en ella hefði orðið.
Af innsæi í æðri svið kaus hann
sér eða tók við þ'essu hlutverki og
hlutskipti frá æðri forsjón. Stað-
reyndin er því sú að er Einar
kvaddi þess’a veröld 24. febrúar
síðastliðinn, þá voru lítil verald-
leg verðmæti eftirlátin handa
hans ágæta samstarfsmanni Erlu
og dóttur þeirra.
Naumast getum við, sem mikið
höfum frá Einari þegið, vottað
þeim betur samúð okkar og sam-
hug en með því að gefa örlítið af
sjálfum okkur. T.d. með því efla
þann sjóð sem nú er verið að
stofna.
Það lýsi ég mína samúðar-
kveðju og læt fylgja blessunar-
óskir þeim til handa.
Björn H. Jónsson.
Minningarsjóður um
Einar Jónsson
Einarsstöðum
Nokkrir vinir Einars heitins á Einarsstöðum hafa stofnað
sjóð við útibú Landsbanka Islands á Húsavík til minning-
ar um Einar.
Verður fé úr sjóðnum varið til styrktar ekkju Einars og
dóttur þeirra hjóna og með þeim hætti reynt að létta
þeim lífsróðurinn.
Með því vilja þeir sem þarna eiga hlut að máli minnast
Einars og þjónustu hans við þá sem til hans leituðu í
margháttuðum erfiðleikum.
Jafnframt er minnst á hlut eiginkonunnar sem ávallt
stóð við hlið manns síns og studdi hann í þessum efnum
eins og best mátti verða.
Öllum þeim sem Einars vilja minnast er bent á sjóðinn
og hlutverk hans.
Reikningur nr. 5460.
Landsbanka íslands
Útibú Húsavík.
Þessi kafli líknarstarfsins var
oftast viðbót við langan vinnudag
í búverkum og náði ærið oft langt
fram á nótt.
Þegar líknar er von, ekki síst
eftir langtíma árangurslitla leit
um bata, er fast sótt á um hjálp
og tillitssemin oft minni en
skyldi. Lái það raunar enginn.
En sá þurfti að hafa af miklu að
má er brugðist gat svo jákvætt við
flestum eins og reyndin var með
Einar.
Það var Einari til gæfu, er inn í
líf hans kom kona, Erla Ingileif
Björnsdóttir, sem hann kvæntist
1969. Hún er mannkosta kona er
stóð við hlið Einars af ástríki,
skilningi og fórnfýsi og tók á sig
veitult starf gestrisninnar gagn-
Iðnaðarhúsnæði
Til sölu iðnaðarhúsnæði við Fjölnisgötu,
65 fm á jarðhæð.
Fullfrágengið. Laust nú þegar.
Uppl. í síma 22536.
Kristnesspítali óskar að
ráða í eftirtalin störf:
í þvottahús, við frágang á hreinu líni.
Við lóðir. Verkstjórn við garðyrkju o.fl.
Sjúkraþjálfara, að nýrri endurhæfingadeild.
Iðjuþjálfa, að nýrri endurhæfingadeild.
Uppl. gefur framkvæmdastjóri í síma 31100.
KRISTNESSPÍTALI.
Sjúkrahúsið á
Húsavík sf.
Óskum að ráða til sumarafleysinga:
Hjúkrunarfræðinga.
Sjúkraliða.
Starfsfólk á sjúkradeildir, í þvottahús og til ræstinga.
Fullt starf og hlutastarf.
Upplýsingargefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-41333.
Óskum eftir stúlku
til afgreiðslustarfa *Mtr
Þarf að vera vön.
Gott kaup fyrir góðan starfsmann.
Upplýsingar ekki veittar í síma
Brekkugötu 7b