Dagur - 24.06.1987, Page 9

Dagur - 24.06.1987, Page 9
1. deild kvenna: Þór-ÍA - í kvöld kl. 20.00 í kvöld fara fram þrír leikir í 1. deild kvenna á íslandsmótinu í knattspyrnu. Þór og IA leika á Þórsvelli, Breiðablik og ÍBK í Kópavogi og Stjarnan og KR í Garðabæ. Allir leikirnir hefj- ast kl. 20. Þórsliðið hefur ekki enn kom- ist á blað í 1. deildinni. Liðið hef- ur leikið þrjá leiki, tapað öllum og aðeins tekist að skora eitt mark í þeim. í liðinu eru margir ágætir leikmenn og það býr mun meira í því en staða þess segir til um. Þórsurum hefur þó gengið illa að nýta þau færi sem hafa skapast og ekki bætti úr skák að aðalmarkaskorari liðsins, Inga Huld Pálsdóttir meiddist fyrir skömmu. Umsjón: Kristján Kristjánsson 24. júní 1987 - DAGUR - 9 V, IjF & ■ ■> V > J ffl'. mkm«- PHI' 1 8T ~ - JiSiSi : - ! >r VjX ,1 w W jm' mWjgá? fgm ff? 1 jffr * Æ ÍW * m > ^ § i x/ g. W-V-i 4’ \\ 1, "f ■K ¥■. Æ^mMi ■ ymí ÍA-liðið er mjög sterkt og er í íslenski landsliðshópurinn sem mætir Dönum í kvöld á Akureyri ásamt Guðna Kjartanssyni landsliðsþjálfara og Einari Gíslasyni sjúkraþjálfara. toppbaráttu. Liðið hefur leikið Mynd: KK þrjá leiki, unnið tvo og gert eitt _ mm r . jafntefli. Það er ljóst að róður Landsleikur á Akureyri í kvöld - Island-Danmörk U-21: Porsara verður erfiður 1 kvöld en ' „Danir alltaf verið með sterid lið í þessum aldursflokki“ Staðan 1. deild kvenna Staðan í 1. deild kvenna á íslandsmótinu í knattspyrnu er þessi: Valur KR Stjarnan ÍA UBK KA Þór ÍBK 4 4-0-0 14:0 4 3-0-1 7:2 4 3-0-1 3 2-1-0 3 1-0-2 4 0-1-3 3 0-0-3 3 0-0-3 12 9 9 7 3 1 0 0 - en við förum í leikinn með það að markmiði að vinna, segir Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari „Mér líst vel á þennan leik. Við förum í hann með það sama að markmiði og í aðra leiki, þ.e. að vinna. Eg vona bara að allir mínir menn verði heilir í kvöld, Sævar Jónsson á við meiðsli í baki að stríða en ég vona að hann geti spilað,“ sagði Guðni Kjartansson landsliðsþjálfari íslands U-21 árs í knattspyrnu í samtali við Dag. í kvöld fer fram stórleik- ur hér á Akureyri er ísland og Danmörk leika á aðalvellin- um. Leikurinn sem er liður í Evrópukeppninni hefst kl. 20. „Ég hef aldrei séð þetta danska lið en þeir hafa alltaf verið með sterkt lið í þessum aldursflokki og verið ófeimnir við að nota unga atvinnumenn sem ekki komast í „Stefni að því að kasta 78 metra í sumar - segir spjótkastarinn Sigurður Matthíasson ,íí Sigurður Matthíasson frá Dalvík, sigraði mjög örugglega bæði í spjótkasti og kúluvarpi á héraðsmóti UMSE um helg- ina, eins og kom fram í blaðinu í gær. Sigurður sem hefur dval- ið við æfingar erlendis undan- farin ár, nú síðast í Bandaríkj- unum, er að verða einn fremsti spjótkastari landsins og gefur þeim Sigurði Einarssyni og Einar Vilhjálmssyni lítið eftir. Sigurður Matthíasson spjótkastari frá Dalvík ætlar sér stóra hluti í sumar. Mynd: RÞB Blaðamaður hitti Sigurð að máli í vikunni og spurði hann fyrst hvar í Bandarkjunum hann væri og hvað hann væri að gera þar annað en að æfa spjótkast. „Ég er í skóla í Tuscaloosa í Alabama og er að læra bæði kvik- mynda- og fjölmiðlafræði.“ - Við hvernig æfingaaðstöðu býrð þú við þarna úti? „Æfingaaðstaðan er mjög góð. Ég æfi með Sigurði Einarssyni en við erum ekki með þjálfara okk- ur til aðstoðar." - Hvernig verður málum hátt- að hjá þér í sumar? „Ég verð hér heima að mestu í sumar við æfingar en einnig ætla ég að reyna komast eins mikið erlendis í keppnir og mér er unnt. Þá mun ég að sjálfsögðu keppa fyrir UMSE á landsmót- inu á Húsavík í sumar.“ - Hver er besti árangur þinn í spjótkasti? „Ég hef kastað lengst 73,50 m en það gerði ég á Bislet leik- vanginum í Osló í fyrrasumar. Ég hef sett mér það markmið í sum- ar að kasta 78 m, því þá get ég keppt á meðal þeirra bestu. Ég finn að ég er á uppleið og það er mikil hugur í mér,“ sagði Sigurð- ur Matthíasson. A-liðið. Þetta á að geta orðið sterkt hjá okkur, við erum með reynslumikla menn innan um en svo aftur menn með frekar litla reynslu,“ sagði Guðni ennfrem- ur. - Hvemig hefur þessum liðum gengið í Evrópukeppninni til þessa? „Okkur hefur ekki gengið nógu vel. Við töpuðum fyrir Tékkum hér á Akureyri í fyrra- haust, 0:4 og fyrir Finnum ytra 1:2. Danir töpuðu fyrir Tékkum en unnu Finna.“ - Hvernig kunna íslensku leik- mennirnir við sig hér á Akureyri? „Þeim líður mjög vel hér og eru ánægðir. Hér er ekkert vandamál að fá velli til að æfa á en það getur aftur skeð fyrir sunnan og þá er völlurinn sem leikið verður á í kvöld, góður. Andinn í hópnum er mjög góður, menn eru að kynnast en það eru ný andlit í hópnum að þessu sinni.“ - Saknarðu þess að hafa ekki Sigurð Jónsson í hópnum? „Það er alltaf styrkur í góðum mönnum ef þeir eru tilbúnir í slaginn en annars ekki. Sigurður er sennilega hræddur við meiðsli en það styttist í það að æfinga- tímabilið á Englandi hefjist að nýju. Strákarnir hér heima verða því bara að sýna að það kemur maður í manns stað,“ sagði Guðni Kjartansson. Hann von- aðist eftir góðum stuðningi áhorf- enda og þeir ættu ekki að láta sig vanta á völlinn í kvöld því hér er svo sannarlega um stórleik að ræða. í íslenska hópnum eru sex leikmenn úr Akureyrarliðunum, þeir Haukur Bragason, Þorvald- ur Örlygsson og Gauti Laxdal úr KA og Siguróli Kristjánsson, Hlynur Birgisson og Júlíus Tryggvason úr Þór. í landsliðshópnum sem mætir Dönum í kvöld eru m.a. þessir leikmenn frá Akureyrarliðunum KA og Þór. Mynd: kk

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.