Dagur


Dagur - 24.06.1987, Qupperneq 12

Dagur - 24.06.1987, Qupperneq 12
Akureyri, miðvikudagur 24. júní 1987 Hvað ertu bráðlátur? ^eáíomyndír Viltu fá myndirnar þínar eftir 3, 2 eða 1 klukkustund? Til þjónustu reiðubúin. Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520, Verkmenntaskólinn: Keypt húsgögn fyrir stjómunarálmu Til stendur að kaupa nokkurt magn af húsgögnum og innan- stokksmunum fyrir Verk- menntaskólann á Akureyri. Er þetta ætlað fyrir svokallaða stjórnunarálmu og er um að ræða borð og stóla og einnig eitthvað af hillum og léttum milliveggjum eða skilrúmum. Þorvaldur Jónsson, formaður skólanefndar Verkmenntaskól- ans, sagði að þetta yrði að mestu eða öllu leyti keypt frá Gamla kompaníinu í Reykjavík. Hann sagðist hins vegar ekki geta sagt fyrir um hvert verðið myndi verða en samkvæmt upplýsingum blaðsins mun það vera á bilinu tvær til þrjár milljónir. Enn hefur ekki verið gengið endanlega frá kaupunum þar sem arkitektinn er þessa dagana að athuga með ýmis smáatriði eins og áklæði o.fl. JHB Lögreglan á Siglufirði: Gert við klefana til bráðabirgða Horfið hefur verið frá því að hefja byggingu húss fyrir bæjarfógetaembættið og lög- regluna á Siglufirði í sumar íþróttafélagið Þór: Byggja 1000 fer- metra félags- heimili Á félagssvæði Iþróttafélagsins Þórs á Akureyri munu í júlí hetjast framkvæmdir við bygg- ingu félagsheimilis. í vetur var skipuð þriggja manna nefnd til að vinna að undirbúningi verksins og hönnun hússins er langt komin. Að sögn Aðalsteins Sigurgeirs- sonar formanns Þórs verður húsið, kjallari, hæð og ris, alls á milli 900 og 1000 fermetrar. Kjallari og hæð verða hvor um sig um 370 fermetrar. í kjallara verða vélageymsla, búningsher- bergi, ljósalampar, nudd, heitir pottar og fleira. Á hæðinni verð- ur síðan veitingaaðstaða og sam- komusalir. í risinu er ráðgert að hafa fundarherbergi fyrir deildir félagsins. Þessar hugmyndir eru þó ekki endanlegar, enda hönn- un ekki lokið. En það er fleira en félagsheim- ili á áætlun hjá Þórsurum. Norð- an hússins, sem staðsett verður vestan við hinn nýja grasvöll félagsins, er fyrirhugað að byggja sal fyrir veggtennis og vestan þess mun svo í framtíðinni rísa íþróttahús. Fljótlega verður haf- ist handa við að malbika tvo tennisvelli austan við malarvöll félagsins en undirbúningsvinnu við þá er lokið. Eins og áður segir'er fyrirhug- að að framkvæmdir hefjist í júlí og að sögn Aðalsteins verður reynt að klára húsið að mestu á ekki fyrir en heyrst hefur að kostnaður verði allt að 30 millj- ónir. ET eins og ráö var fyrir gert. í stað þess hefur verið ákveðið að hefja framkvæmdir næsta vor og á þeim að vera lokið á fyrri hluta árs 1989. Þetta þýðir að ekki er í sjónmáli lausn á vandamáli lögreglunnar á Siglufirði hvað fangageymslur varðar, en klefarnir hafa í langan tíma verið innsiglaðir að kröfu heilbrigðiseftirlits. Erlingur Óskarsson bæjarfó- geti á Siglufirði sagði þetta þýða, að gera yrði einhverjar bráða- birgðaráðstafanir við klefana svo haégt verði að brúka þá þar til nýja húsið kemst í gagnið. Taldi hann líklegt, að komið verði fyrir fölsku gólfi í klefunum og séð til þess að hægt verði að dæla vatni fyrirvaralaust úr þeim. Þá yrði að mála klefana vel. Erlingur kvaðst samt vera ánægður með að fá skriflcga stað- festingu á að nýja húsið verði klárað fyrir þennan ákveðna tíma. Aðeins fengust í verkið 5 milljónir af fjárlögum þessa árs og þótti sýnt að ekki yrði gert mikið fyrir þann pening. -þá Veiðidagur fjölskyldunnar var á sunnudaginn. Þessa veiðimenn hitti Ijós- myndari Dags við Ljósavatn. Þeir nutu þess greinilega að veiða í Ljósavatni - en um aflabrögðin skal ekki fjölyrt. Flugleiðir gefa Akureyri listaverk Á fundi bæjarráðs nýlega var lagt fram bréf frá Flugleiðum þar sem tilkynnt er að stjórn Flugleiða hafi samþykkt að færa Akureyri að gjöf útilista- verk sem komið verði fyrir á stað sem bærinn tilgreini og minni á upphaf flugstarfsemi á Akureyri fyrir fimmtíu árum. Efnt verður til samkeppni meðal myndlistarmanna um gerð þessa listaverks. Dómnefnd verð- ur skipuð fulltrúum Flugleiða, Akureyrarbæjar og Bandalags íslenskra listamanna. Þær tillögur sem berast verða til sýnis á sér- stakri sýningu sem haldin verður hér á Akureyri. Bæjarráð þakkaði þessa gjöf og hefur tilnefnt Gunnar Ragnars formann menningarmálanefndar í dómnefnd. Verkinu hefur ekki verið valinn staður en bæjarráð hefur falið skipulagsnefnd, að höfðu samráði við menningar- málanefnd, að tilgreina stað fyrir útilistaverkið. JOH Mjólkurframleiðendur í Skagafirði: Fer helmingur þeirra yfir fullvirðisrétt? „Ástandið í kvótamálunum er síst betra hér en annars staðar. Mér sýnist allt stefna í að inn- vegin mjólk til samlagsins verði 300-500 þúsund lítrar fram yflr fullvirðisrétt og rúm- lega helmingur innleggjenda fari yfir,“ sagði Snorri Everts- son samlagsstjóri Mjólkursam- lags Skagfírðinga. Fullvirðisréttur samlagssvæðis- ins er 8.380.449 lítrar. í lok maí, þegar 9 mánuðir voru liðnir af verðlagsárinu var búið að fram- leiða 71% af honum. Um miðjan júní stefndi í milljón lítra innlegg í mánuðinum, en hefði þurft að vera 810 þús. lítrar þann mánuð og næstu 2, til að fullvirðisréttar- markinu í lok verðlagsárs verði náð. Snorri sagði að fyrstu innleggj- endurnir hefðu farið yfir í síðasta mánuði og nokkrir færu yfir í þessum. Ástæðurnar taldi hann vera, góð hey í vetur, tíðina undanfarið og líklega bjartsýni margra á að fá greitt fyrir umframframleiðsluna. -þá Skortur á bygginga- lóðum á Siglufirði jarðrask í Hólsdal veldur óánægju Byggingalóðir eru af skornum skammti á Siglufírði og hafa bæjaryfírvöld gripið til þess ráðs að búa til lóðir. Flatlendi er lítið og þær lóðir sem fyrir eru bjóða upp á hús með kjall- ara. Slík hús eru dýr í byggingu og því var gripið til þess ráðs að aka efni í tjörn sunnan til í bænum og búa þannig til lóðir fyrir einlyft hús. Aðspurður sagði ísak Ólafsson bæjarstjóri að þrír einstaklingar biðu eftir því að komast á þetta svæði sem nú er verið að útbúa. „Það hefur verið sáralítið um byggingar hérna. Það var eitt ein- býlishús byggt hér í fyrra. En það er náttúrlega það sem mönnum gremst að lífeyrissjóðspeningarn- ir fara héðan úr peningastofnun- um og koma svo ekki til baka í formi lána,“ sagði ísak. Efnið í þessar lóðir er tekið inni í Hólsdal og hefur efnistakan og það jarðrask sem henni fylgir vakið nokkra óánægju hjá fólki. Því finnst illa farið með fallegan dal sem blasir við úr bænum. „Ástæðan fyrir því að við tökum efnið inni í Hólsdal er einfaldlega sú að það kostar óhemju mikið að aka efni. Þetta er bara spurn- ing um peninga,“ sagði ísak. Hann bætti því við að það væri til ákveðið vinnuplan fyrir Hóls- dalinn í sambandi við efnistöku og í því plani væri gert ráð fyrir að bæjaryfirvöld rnyndu ganga frá þessum svæðum eftir sig. „Það má kannski segja að það hafi skort á að því hafi verið fylgt eftir að ganga almennilega frá námunum en það hefur þó verið viðleitni í þá áttina. Það er verið að taka ákveðin svæði núna og ganga frá þeim eins og hægt er, sá í og útbúa tjarnir," sagði ísak. Hann sagði að þetta væri mikið rót meðan á þessu stæði og að ein náma væri ekkert endilega tæmd á einu ári. Raskið stæði oft yfir í lengri tíma en menn hefðu áætlað og ekki þýddi að græða svæðin fyrr en búið væri að taka úr þeim það sem þyrfti að nota og ekki fyrirsjáanlegt að þau yrðu notuð á næstunni. SS

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.