Dagur - 16.07.1987, Blaðsíða 9
Umsjón: Kristján Kristjánsson
16. júlí 1987 - DAGUR - 9
1. deild kvenna:
IBK vann KA
- Hjördís Úlfarsdóttir rekin af leikvelli
KA varð að lúta í lægra haldi
fyrir ÍBK í fyrrakvöld, er liðin
áttust við í Keflavík I 1. deild
kvenna á íslandsmótinu í
knattspyrnu. Hjördís Úlfars-
dóttir, leikmaður KA, var rek-
in af leikvelli í lok fyrri hálf-
leiks, eftir mjög umdeilt atvik.
KA-stelpurnar náðu forystunni
eftir 10 mínútna leik, er Hjördís
skoraði af öryggi úr vítaspyrnu
Staðan
1. deild kvenna
Valur sigraði ÍA á Akranesi í
gærkvöld, með tveimur mörk-
um gegn einu í 1. deild kvenna
á íslandsmótinu í knattspyrnu.
Með sigrinum komst Valur í
toppsætið á ný. Staðan í deild-
inni er því þessi:
Valur
ÍA
Stjarnan
KR
ÍBK
KA
UBK
Þór
8 6-2-0 19:3
8 6-1-1 17:5
7 5-0-2 11:7
6 3-1-3 7:4
6 2-1-3
8 1-2-5
6 1-1-4
6 0-0-6
20
19
15
10
5:12 7
7:15 5
5:12 4
2:15 0
sem dæmd var á einn varnar-
manna ÍBK sem varði með hendi
á marklínu. í lok fyrri hálfleiks-
ins dæmdi dómarinn síðan mjög
umdeilda vítaspyrnu á KA. Anna
María Sveinsdóttir tók spyrnuna
en skaut hátt yfir. Þá lét dómar-
inn endurtaka spyrnuna þar sem
hann taldi að Bára hefði hreyft
sig í markinu og Anna María
skoraði í seinni spyrnunni. KA-
stelpurnar voru ekki sáttar við
þann dóm að spyrnan yrði endur-
tekin og létu þá skoðun í ljós við
dómara leiksins. Þeim viðskipt-
um lauk með því að Hjördísi var
vikið af leikvelli.
KA-stelpurnar léku því einum
færri í síðari hálfleik en áttu þó
mun meira í leiknum. Þær fengu
fjölmörg marktækifæri sem ekki
nýttust. ÍBK-stelpurnar fengu
aðeins tvö til þrjú færi í síðari
hálfleik og þegar aðeins tvær
mín. voru til leiksloka ná þær að
skora sigurmarkið. Tekin var
aukaspyrna að marki KA sem
Bára varði, hún hélt hins vegar
ekki boltanum sem barst til Krist-
ínar Blöndal og hún skoraði
sigurmarkið.
Þorvaldur Þorvaldsson þjálfari
KA, var ekki ánægður með
frammistöðu dómarans í leiknum
og sagði í samtali við Dag að
þetta hefði verið með því rosa-
legasta sem hann hefði kynnst á
sínum ferli.
Á sunnudagskvöld fer fram
stórleikur á Akureyrarvellin-
um í SL mótinu 1. deild í
knattspyrnu. Þórsarar fá
Islandsmeistara Fram í heim-
sókn í fyrsta leik liðanna í
seinni umferð mótsins og hefst
hann kl. 20. Þórsarar hafa ver-
ið að ná sér á strik að undan-
förnu, liðið hefur unnið þrjá
síðustu leiki sína í deildinni og
leikinn við KA í bikarnum.
Framarar hafa einnig verið að
sækja í sig veðrið og ekki síst eft-
ir að Ragnar Margeirsson gekk til
liðs við félagið. Það má því búast
við hörkuleik á sunnudagskvöld.
KA og Völsungur leika bæði
útileik á sama tíma og Þór og
Fram leika á Akureyri. Völsung-
ur sækir ÍBK heim í Keflavík og
Golfmót
hjá Ós
Um helgina fór fram meistara-
mót golfklúbbsins Óss á Blöndu-
ósi. Keppt var á hinum glæsilega
velli sem golfklúbburinn á í
Vatnahverfi. Aðeins var keppt í
karlaflokki og var þátttaka mjög
dræm. Sigurvegari varð Jón
Jóhannsson sem lék 36 holurnar
á 181 höggi, annar varð Páll
Valgeirsson á 197 höggum og
þriðji varð Einar Jóhannesson
sem lék á 209 höggum. nj
KA og KR leika á KR-vellinum
við Frostaskjól. Völsungar mættu
Keflvíkingum heima í sínum
fyrsta 1. deildarleik í vor en töp-
uðu þá 2:4.
KA-menn töpuðu hér heima
fyrir KR í vor með einu marki
gegn engu og liðið á þvf harma að
hefna. KA-liðinu hefur ekkert
gengið neitt allt of vel að undan-
förnu en liðið nær sér vonandi á
strik gegn KR á sunnudaginn.
Steinar Ingimundarson í baráttu við Guðmund Erlingsson markvörð í leiknum gegn Þrótti í gærkvöld. Mynd: kk
Knattspyrna 2. deild:
Þróttur átti aldrei
möguleika gegn Leiftri
SL mótið 1. deild:
Stórleikur
á Akureyri
- á sunnudag er Þórsarar fá Framara í
heimsókn - KA mætir KR og Völsungur ÍBK
Leiftursmenn fóru í gegnum
fyrri umferð 2. deildar í knatt-
spyrnu, án þess að tapa leik á
heimavelli og einnig án þess að
fá á sig mark á heimavelli. Lið-
ið fékk Þrótt frá Reykjavík í
heimsókn í Ólafsfjörð í gær-
kvöld í síðasta leik liðsins í
fyrri umferð og eins og í öðrum
heimaleikjum fór Leiftur með
öruggan sigur af hólmi. Úrslit-
in 3:0, eftir að staðan í hálfleik
hafði verið 2:0. Með þessum
sigri hefur Leiftur komið sér
þægilega fyrir í 2. sæti deildar-
innar.
Heimamenn voru ekki lengi að
finna leiðina í mark Þróttara.
Óskar Ingimundarson skoraði
með skalla eftir aðeins 7 mín.,
eftir að hafa fengið gullsendingu
frá Steinari bróður sínum fyrir
markið. Á 28. mín. bættu Leift-
ursmenn síðan við öðru marki úr
vítaspyrnu. Gústaf Ómarsson
náði boltanum af einum varnar-
manni Þróttar, komst inn í teig
og lék á Guðmund Erlingsson í
markinu, sem sá þann kost
vænstan, að brjóta á Gústaf og
því réttilega dæmd vítaspyrna.
Gústaf tók spyrnuna sjálfur en
skaut í stöng og framhjá. Dómari
leiksins taldi að einn leikmanna
Þróttar hefði staðið inni í teig er
spyrnan var tekin og lét því
endurtaka hana. Þá tók Sigur-
björn Jakobsson að sér að taka
vítið og hann skoraði af miklu
öryggi. Þróttarar tóku smá kipp
eftir markið og fékk liðið m.a.
þrjár hornspyrnur í röð með
skömmu millibili. Úr einni þeirra
átti Sigurður Hallvarðsson
hörkuskalla en rétt yfir Leifturs-
markið. Þróttarar héldu áfram að
sækja fram að leikhléi, án þess þó
að skapa sér nein veruleg mark-
tækifæri.
Þróttarar mættu frískir til leiks
í síðari hálfleik og sóttu nokkuð
fyrstu mínúturnar. Leiftursmenn
áttu á móti mjög hættulegar
skyndisóknir. Á 65. mín. átti
Steinar gott skot rétt framhjá
marki Þróttar, þar sem hann stóð
utarlega í teignum og skömmu
síðar var Halldór Guðmundsson
á ferðinni með skot einnig rétt
framhjá. Hinum megin skall hurð
nærri hælum er Kristinn Gunn-
arsson komst í gegnum vörn
Leifturs en Þorvaldur bjargaði
vel skoti hans með úthlaupi. Síð-
asta marktækifæri Þróttara kom á
75. mín. er þeir áttu hættulegt
skot að marki Leifturs eftir horn-
spyrnu en bjargað var á línu.
Tveimur mínútum síðar gerði syo
Halldór Guðmundsson út um
leikinn er hann bætti við þriðja
marki Leifturs. Tekin var auka-
spyrna úti á velli, boltinn gefinn
inn fyrir vörn Þróttar og þar náði
Halldór honum og skoraði með
góðu skoti af frekar stuttu færi.
Leiftursmenn léku þennan leik
af krafti og má segja að Þróttarar
hafi aldrei átt möguleika í leikn-
um. Liðið lék allt vel í þessum
leik en að öðrum ólöstuðum bar
mest á þeim Halldóri Guðmunds-
syni og Steinari Ingimundarsyni.
Hjá Þrótti var Sigurður Hall-
varðsson einna sprækastur.
Guðmundur Sigurðsson dæmdi
leikinn og gerði það ágætlega.
Knattspyrna 2. flokks kvenna:
KR sigraði KA og Þór
Annars flokks lið KR var á
ferð á Akureyri í gær og fyrra-
dag og lék gegn Þór og KA á
íslandsmótinu í knattspyrnu.
Liðið lék gegn Þór í fyrrakvöld
og vann nokkuð öruggan sigur
4:1.
KR-stelpurnar náðu forystu í
fyrri hálfleik en Anna Gunnars-
dóttir jafnaði fyrir Þór. KR bætti
við öðru marki fyrir hlé og síðan
tveimur í síðari hálfleik og sigr-
aði sem fyrr sagði 4:1.
í gærkvöld lék liðið gegn KA
og sigraði einnig í þeim leik 4:1.
Staðan var 1:0 í hálfleik fyrir KR.
Liðið bætti síðan þremur mörk-
um við í seinni hálfleik en Linda
Hersteinsdóttir minnkaði mun-
inn fyrir KA.
KA-stelpurnar léku tvo leiki
fyrir sunnan um helgina. Fyrst
gegn Val og lauk þeim leik með
jafntefli 0:0, þrátt fyrir að KA
hafi vaðið í færum nánast allan
leikinn. Daginn eftir var leikið
gegn UMFA og sigraði KA í
þeim leik 2:1. Eydís Marinós-
dóttir og Linda Hersteinsdóttir
skoruðu mörk KA.
Knattspyrna yngri flokka:
Úrslitaleikir
- í Norðurlandsriðli
Þór og KA leika um helgina í
Norðurlandsriðli yngri flokka í
knattspyrnu og er óhætt að
tala um að um úrslitaleiki sé að
ræða, a.m.k. 3. og 4. flokki.
I 5. flokki veröur úrslitaleikur-
inn á milli KA og Völsungs.
Annað kvöld kl. 20 leika Þór
og KA í 3. flokki en á morgun í
5. flokki kl. 13 og strax á eftir eða
kl. 14.10 í 4. flokki. KA-menn
eru taplausir í öllum þremur
flokkunum en Þórsarar í 4. og 3.
flokki.
Staðan
1. deild
Fram sigraði ÍBK með tveim-
ur mörkum gegn engu er liðin
áttust við í Keflavík í gærkvöld
í SL mótinu 1. deild í knatt-
spyrnu. Staðau í deildinni er
því þessi:
Valur 9 5-3-1 17:6 18
KR 9 4-4-1 16:6 16
ÍA 9 5-1-3 13:11 16
Þór 9 5-0-4 16:15 15
Fram 8 4-2-2 10:7 14
KA 9 3-2-4 7:8 11
ÍBK 9 3-2-4 15:20 11
Völsungur 8 2-3-3 9:10 9
Víöir 9 0-6-3 4:12 6
FH 9 1-1-7 7:19 4
2. deild
Úrslit leikja í 2. dcild íslands-
mótisins í knattspyrnu í gær-
kvöld og staðan í deildinni er
þessi:
UBK-Einherji 2:0
Leiftur-Þróttur 3:0
Selfoss-Víkingur 2:1
Víkingur 9 6-1-2 18:12 19
Leiftur 9 5-1-3 12:6 16
ÍR 9 4-2-3 18:14 14
Þróttur 9 4-1-4 17:15 13
ÍBV 9 3-4-2 15:14 13
UBK 9 4-1-4 10: 9 13
Selfoss 9 3-3-3 17:19 12
Einherji 9 3-3-3 9:13 12
KS 9 3-2-4 13:17 11
ÍBÍ 9 1-0-8 9:17 3