Dagur - 16.07.1987, Page 11
16. júlí 1987- DAGUR- 11
Veitingastaður opnaður í Tungusveit
Við skólasetrið Steinsstaði í
Tungusveit hefur myndast
nokkur þyrping húsa. Hverfið
er hreinlegt og þjónusta er á
staðnum s.s. sundlaug og stutt
í verslun að Varmalæk, sem er
steinsnar handan Svartár. Fyr-
ir stuttu var opnuð veitingasala
í Bakkafiöt skammt sunnan
Steinsstaða. Það eru hjónin
Sigurður Friðriksson og Klara
Jónsdóttir ábúendur þar sem
standa fyrir þessum veitinga-
rekstri.
Þegar Dagur var þarna á ferð
var Sigurður ekki heima við, en
Klara var tekin tali og spurð út í
þennan rekstur. Hún sagði hann
vera í smáum stíl enn sem komið
er. Þau ætluðu að vera með veit-
ingasölu að sumrinu og verið væri
að útbúa gistiaðstöðu í risi húss-
ins á Bakkaflöt, sem á að vera til-
búin að vori.
„í rauninni hefðum við þurft
að byrja fyrr, því það var svo
mikil umferð hérna í Laugar-
hvammi við hliðina, í kringum
blómasöluna í vor,“ sagði Klara.
Þau útvega hesta ef fólk vill
skreppa á hestbak og leigja einn-
ig út fjórhjól. Klara sagði mikla
aðsókn hafa verið í fjórhjólin.
Klara Jónsdóttir, Bakkaflöt.
Aðspurð, vegna hinnar miklu
umræðu um fjórhjólin undanfar-
ið, hvort ekki hafi verið erfitt að
fá leyfi til þess að vera með
fjórhjól, kvað hún ekkert leyfi
hafa þurft til þess. Þau væru með
ábyrgðartryggingu á hjólunum og
reyndu að fylgjast með því að
ekki væri unnið tjón á landi með
þeim. Sagði Klara Sigurð bónda
sinn ætíð biðja fólk um að aka
ekki á hjólunum utan vegar.
Þau bjuggu áður í Laugardal
með sauðfé, en lögðu niður
búskap fyrir ári og seldu jörðina.
Þá ákvörðun sagði Klara hafa
verið tekna af þeim hjónum í
sameiningu og hafi hún verið
grundvölluð á hinu versnandi
ástandi í landbúnaðinum síðustu
árin. Hún kvað Sigurð bónda
sinn ætíð hafa unnið með bú-
skapnum. Hann hefur verið með
vörubíl og á sumrin verið í verk-
takastarfsemi. „Mér finnst að
þeir sem hætta búskap en vilja
samt vera í sveit, eigi að vera þar
áfram og byrja þá á einhverju
nýju,“ sagði hún og að það hefði
verið maður sinn sem átti hug-
myndina að veitingastaðnum.
Aðspurð sagði hún einnig þó
nokkuð mikla umferð hafa verið
í Steinsstaðahverfið í sumar. Þar
hafi t.d. verið ættarmót 2 síðustu
helgar og verði einnig 2 þær
næstu. Þó nokkuð margir gestir
hefðu komið á þeim hálfa mán-
uði sem veitingasalan á Bakka-
flöt hefur verið opin og t.d. verið
þar nokkuð margir í kaffi daginn
áður. Hestana sagði hún hafa
komið daginn þann, svo það væri
engin reynsla komin á vinsældir
þeirra ennþá. Á Bakkaflöt er
hægt að fá alla algengustu skyndi-
rétti og að auki kaffi, öl, sælgæti
o.fl. -þá
Akureyri:
Grjóthrun af bílpöllum
Undanfarið hefur nokkuð bor-
ið á kvörtunum í þá veru að
vörubifreiðir á Akureyri, sem
eru í malarakstri eða flytja
mold, séu ekki búnar tilskild-
um búnaði á palli til að hindra
að grjót eða mold hrynji af.
Fyrir utan óþrifnað veldur slíkt
stundum beinlínis hættu í
umferðinni.
Það skal tekið fram að enginn
einn aðili virðist vera sekari um
þetta en annar. Stærstu útgerðar-
Engin umsókn hefur borist um
embætti dýralæknis með
aðsetur á Þórshöfn. Bárður
Guðmundsson dýralæknir á
Húsavík hefur þjónað hérað-
inu frá því í aprfl er þáverandi
dýralæknir hætti störfum.
Ragnheiður Árnadóttir deild-
arstjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu sagði að málið hlyti að fara
að leysast. Þessi tími væri hvað
rólegastur hjá dýralæknum, en
dýralækni yrði að fá til starfa fyrir
sláturtíð. „Við setjum kraft í
málið og ég hef enga trú á öðru
en dýralæknir fáist til starfa fyrir
menn vörubifreiða á Akureyri
eru Akureyrarbær, Möl og sand-
ur hf. og Stefnir. Auk þess eiga
nokkur byggingafyrirtæki í bæn-
um vörubifreiðir. Að sögn Ólafs
Ásgeirssonar, aðstoðaryfirlög-
regluþjóns, er ekki mikið um að
lögreglan þurfi.að hafa afskipti af
grjóti eða öðrum farmi sem fellur
af vörubifreiðum en komist þeir
að slíku er venjulega haft sam-
band við viðkomandi. Einnig
hefur komið fyrir að bílar hafa
skemmst þegar menn hafa ekið á
haustið,“ sagði Ragnheiður. Hún
sagði að nú væru nokkrir dýra-
læknar að fá leyfi til að stunda
dýralækningar, en svo virtist sem
menn vildu heldur störf sem byð-
ust í þéttbýli. Einnig nefndi
Ragnheiður að verið gæti að ein-
hverjir settu vegalengdir fyrir sig,
en dýralæknir með aðsetur á
Þórshöfn þjónar einnig Vopna-
firði og þangað eru um 80 kíló-
metrar.
Ef svo skyldi fara að enginn
dýralæknir fæst til starfa á Þórs-
höfn fyrir haustið, „verður gripið
til ráðstafana,“ sagði Ragnheið-
ur. mþþ
steina sem hafa dottið af bílpöll-
um. í slíkum tilvikum hafa bætur
verið greiddar umyrðalaust.
Sigurður Indriðason hjá
Bifreiðaeftirlitinu sagði að tölu-
verður misbrestur væri á að bíl-
stjórar notuðu gafl eða annan
búnað til að koma í veg fyrir
grjóthrun. Þessi mál kæmu þó
ekki til umfjöllunar hjá Bifreiða-
eftirlitinu en í umferðarlögum
væru greinileg ákvæði þess efnis
að tryggilega skyldi gengið frá
farmi bifreiða þannig að ekki yrði
tjón af hans völdum eða óþrifn-
aður.
„Okkar bílar hafa verið í 7 vik-
ur í vegagerð í Skagafirði þannig
að ef eitthvað hefur gerst undan-
farið þá er það ekki frá okkur
komið. En misbrestur hefur verið
á að reglugerð um búnað palla
hafi verið framfylgt því þetta er
mjög erfitt í framkvæmd. Þegar
bílar fara í möl og mold til skiptis
er erfitt að vera sífellt að skipta
um; gaflarnir fara af eða bogna
þegar moldarhlassið fer í einu
lagi niður. Við erum sjálfsagt
jafnsekir og bærinn og Stefnisbíl-
arnir í þessu efni. Við erum ein-
göngu með gafla á vögnunum því
þar henta þeir vel. Heppilegra er
að vera með s.k. vör en það er
spjald eða upphækkun aftast á
pallinum sem lokar ekki alveg
fyrir. En mesta hrunið kemur af
hliðum vörubíla sem eru með lág
skjólborð,“ sagði Hólmsteinn
Hólmsteinsson hjá Möl og sandi
hf. EHB
Þórshöfn:
Enginn dýralæknir enn
- „setjum kraft í málið fyrir sláturtíð,"
segir Ragnheiður Árnadóttir deildarstjóri
fMinningarorð:
Snorri Guðmundsson
byggingameistari, Akureyri
Eftir því, sem árin færast yfir,
verða vissir atburðir, fremur en
fyrr, til að rifja upp gamlar
minningar. Svo fór t.d. er ég nam
úr útvarpi fregn um andlát
Snorra Guðmundssonar. Ég
þekkti hann raunar lítið. En þó
er hann tengdur ýmsurn fyrirbær-
um lífsins frá yngri árum mínum.
Nefni ég þar byggingu Kristnes-
hælis og skólahússins á Hólum og
ekki þó síður karlakórnum Geysi
frá árunum kringum 1930. Og ég
finn það betur og betur, hvílík
minningastjarna Geysir er frá
þessum árum, svo sem á afmælis-
hátíð Hólaskóla 1932. Að vísu
voru þar ýmsir aðrir en Snorri,
sem enn frekar Iýsa þær minning-
ar, t.d. Gunnar Magnússon, en
VEISLA í HVERRI DÓS
KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ KEA
AKUREYRI SÍMI: 96-21400
Snorri er þó í vitundinni í ein-
valaliði kórsins. Ég minnist þess
að Snorri heimsótti mig á mann-
dómsárum mínum hér eystra - á
árunum jtegar lífsorkan hló í
brjósti. Á þingmannsárum mín-
um kynntist ég systkinum hans,
en Snorri var Austur-Skaftfell-
ingur. Allt þetta safnaðist í huga
minn við andlátsfregnina. En
aðalatriðið er manngerðin sjálf.
Til þess að friða kennd í brjósti
mínu eru þessar línur til orðnar.
Og til að segja það sem ég vil
segja, þá enda ég með setningu
sem sagan greypti mér í minni:
Þá minnist ég hans er ég heyri
góðs manns getið.
Jónas Pétursson.
Blaöaljósmyndari
Dagur óskar eftir að ráða Ijósmyndara í fullt starf
frá og með 1. september n.k.
Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi góða þekkingu á
öllu því er viðkemur Ijósmyndun. Góð laun í boði
fyrir réttan mann.
Nánari upplýsingar veitir Áskell Þórisson í síma
24222.
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga í heilsugæslu-
stöðvum eru lausar til umsóknar nú þegar:
1. Staða hjúkrunarforstjóra við Heilsugæslustöðina í
Ólafsvík.
2. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á
Þórshöfn.
5. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina í
Fossvogi, Reykjavík.
6. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina í
Reykjahlíð, Mývatnssveit.
7. Hálf staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina
á Isafirði.
8. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöðina á
Þingeyri.
9. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð
Suðurnesja í Keflavík.
10. Staða hjúkrunarfræðings við Heilsugæslustöð
Hlíðasvæðis í Reykjavík.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf við
hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu,
Laugavegi 116, Reykjavík.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 13. júlf.