Dagur - 17.08.1987, Blaðsíða 5
17. ágúst 1987 - DAGUR - 5
Ursula Andress.
Fjölbreytni í hattavali meðal
fræga fólksins er mikil og greini-
legt að ekki þarf endilega að
bera 10 gallona JR-hatt til að
láta taka eftir sér, það sést á
myndunum. Þarna sjáum við
Karl prins, Audrey Landers,
fyrrum kúreku úr Dallas,
Ursulu Andress, sem sennilega
er þekktust fyrir að hafa verið í
slagtogi með James gamla Bond
og síðast en ekki síst Reagan
hjónin sem frægust eru fyrir að
ráðskast með kanana og gefa
skæruliðum aura.
Og þau taka sig svo sannarlega
vel út, ekki satt. Hvernig hald-
iði að Róbert Arnfinnsson,
Vigdís Finnbogadóttir,
Steingrímur Hermannsson og
Bryndís Schram myndu líta út
með svona lagað? Ja, svei mér
ef þau yrðu ekki sæt.
Lyfjakostnaður hefur aukist verulega:
Pyrst og fremst um aukna
lyfjaneyslu að ræða
- Opinberar aðgerðir geta haft áhrif á neyslu iyfja,
segir Guðmundur Bjarnason
Heildarútgjöld ríkissjóðs vegna
lyfjakostnaðar eru um 1,6 millj-
arðar. Lyfjakostnaður hefur
aukist veruíega umfram aðra
þætti heilbrigðisþjónustunnar,
ástæðan er þó ekki sú að lyfja-
verð hafí hækkað hlutfallslega
því samanborið við framfærslu-
vísitölu hafa lyf ekki hækkað
til samræmis við hana. Því
virðist fyrst og fremst vera um
aukna lyfjaneyslu að ræða.
Um það bil 18% af útgjöldum
sjúkratrygginga eru vegna lyfja
og af rekstri sjúkrahúsa eru á milli
6-8% vegna lyfja. Nefnd sem
skipuð var af fyrrverandi heil-
brigðisráðherra kannaði fyrir-
komulag álagningar á lyf. „Ég vil
endurskipuleggja þessa nefnd og
útvíkka starfsemi hennar þahnig
að við fáum betri heildarmynd af
streymi fjármuna vegna lyfja. Ég
vil að farið verði rækilega ofan í
að kanna verðmyndun lyfja og
hvernig hún er samsett og hvaða
áhrif ávísunarvenjur lækna hafa á
lyfjakostnað,“ sagði Guðmundur
Bjarnason heilbrigðisráðherra í
samtali við Dag.
1»
liðið vann síðan seinni leikinn en
hin liðin töpuðu. Og nú er ekkert
eftir hjá þessum flokki nema
haustmótið."
- Er allur þessi skari sem þú
þjálfar að keppa?
„Nei, nei, ekki allir. Þeir
yngstu sem keppa eru fæddir ’79-
’80 en ég er líka með yngri stráka
sem ekki eru farnir að keppa
ennþá.“
Það er greinilega gaman á
æfingunni, liðin eru að keppa og
Þorvaldur fær að vita að staðan
sé 2-1 fyrir gulum. Hann hleypur
þá að hliðarlínunni og hvetur
rauða til dáða. Þegar hann kemur
aftur spyr ég hvernig áhuginn sé?
„Blessaður vertu, hann er
alveg óbilandi,“ segir Þorvaldur.
„Það eru æfingar fimm daga vik-
unnar og þessir krakkar eru yfir-
leitt klukkustund í einu. Þau æfa
líka á grasi á hverjum degi og
þessi frábæra aðstaða ýtir undir
áhugann.“
Að öðrum ólöstuðum vekur
Smásöluálagning á lyf hér á
landi er 68% og sagði Guðmund-
ur það rökstutt með því að minni
lyfjaverslanir úti á landi þurfi svo
háa álagningu til að geta staðið
undir rekstrinum og haldið uppi
vörulager sem oft er dýr. „Ég vil
skoða hvort hægt er að jafna
þetta með öðrum hætti en hárri
álagningu og þegar upplýsingar
liggja fyrir munum við athuga til
hvaða aðgerða best er að grípa.
Ég held að nauðsynlegt sé að efla
verðskyn neytandans á því hvað
lyf raunverulega kosta og hann sé
þátttakandi í að ná kostnaði
niður, því að lokum bitnar þessi
kostnaður á okkur öllum,“ sagði
Guðmundur, en í dag borgar
sjúklingur um 20% af lyfjaverð-
inu. Þó þannig að um fasta
krónutölu er að ræða, en ekki
Eftir jafnteflisleik var farið í vítaspyrnukeppni. Imba fyrirliði fylgist grannt
með einni spyrnunni.
einn leikmaður í hópnum tví-
mælalaust mesta athygli. Þetta er
stúlka, sú eina í hópnum, sem
heitir Ingibjörg Harpa Ólafsdótt-
ir og hún er fyrirliði 6. flokks.
Ingibjörg þykir geysilega efnileg
sem sést sennilega best á að hún
var kjörin besti varnarmaður
Tommamótsins í Vestmannaeyj-
um í sumar. En skyldi strákunum
ekki finnast skammarlegt að hafa
stelpu sem fyrirliða?
„Nei, alls ekki,“ segir Þorvald-
ur og hlær. „Þeir eru ákaflega
stoltir af fyrirliðanum sínum og
fylgja henni í einu og öllu. Ég
held ég geti óhræddur sagt að
hún sé leiðtogi hópsins. Þeim
hefur stundum verið strítt á þessu
af öðrum liðum og það er gaman
að sjá hvað þeir verða hneykslað-
ir á þessari þröngsýni.“
Nú stöðvar Þorvaldur leikinn,
jafntefli er staðreynd. Hann
smalar hópnum upp að öðru
markinu, vítaspyrnukeppni er
framundan en við þökkum fyrir
okkur og laumumst í burtu. JHB
20% af verði einstaks lyfs.
Sýklalyf, hjartalyf, meltingar-
færalyf og geðlyf hafa hækkað
umfram önnur. Guðmundur sagði
athyglisvert að opinberar aðgerð-
ir geta haft áhrif á neyslu lyfja.
Fyrir nokkrum árum fór neysla
sterkra lyfja vaxandi og var þá
gripið til þess ráðs að minnka
skammtana sem smám saman dró
úr neyslu þeirra. Nú hefur neysla
svefnlyfja farið mjög vaxandi að
sögn Guðmundar og sagði hann í
athugun hvort gripið yrði til svip-
aðra aðgerða hvað þau varðar.
í vikunni kom út rit sem fjallar
um notkun lyfja á árunum 1975-
86 og þar er að finna upplýsingar
um flokkun lyfja, lyfjanotkun og
lyfjaverð, en mikil umræða hefur
verið í þjóðfélaginu að undan-
förnu um lyfjamál. mþþ
Heilhveitikex
Hafrakex
Rúgkex
Smjörkex
Bragðast
sem
heimabakað
Ijúffengt
og hollt kex.
Brauðaerð