Dagur - 17.08.1987, Blaðsíða 11
17. ágúst 1987 - DAGUR - 11
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Mörg mikilvæg mál
tekin til umræðu
- Þingið verður á Dalvík og stendur í
Fjórðungssamband Norðlend-
inga, sem eru elstu og stærstu
landshlutasamtök sveitarfélaga
í landinu boðar til síns árlega
fjórðungsþings á Dalvík 26. og
27. ágúst n.k. Þingstaður er
íþróttasalurinn í Víkurröst.
Þingssetning verður kl. 13.30.
Þinglok verða síðari hluta dags
27. ágúst og að kvöldi þess
dags verður kvöldverðarboð á
vegum Dalvíkurbæjar í veit-
Framkvæmdir við sundlaug í
Glerárhverfi hafa verið boðnar
út og er útboðsfrestur til 25.
ágúst 1987. A fundi bæjar-
stjórnar var samþykkt að
standa þannig að málinu og
Sigfús Jónsson bæjarstjóri gat
þess jafnframt að áætlað er að
verkinu verði lokið fyrir 29.
aprfl 1989.
Sigfús sagði að ákveðið hefði
verið að seinka áætluðum verk-
lokum í því skyni að freista þess
að fá hagstæðari tilboð í verkið.
Byggingaverktakar hefðu þannig
rýmri tíma til að ráðstafa vinnu
Um næstu helgi verður haldið
Krakkamót KEA ’87 í knatt-
spyrnu. Að þessu sinni verður
það á Þórsvellinum í Glerár-
Leiðrétting
Sú meinlega villa slæddist í grein
um unglinga á Grenivík að þorp-
ið væri í „Höfðahreppi“. Greni-
vík er að sjálfsögðu í Grýtu-
bakkahreppi. Lesendur Dags eru
beðnir afsökunar á þessum
mistökum.
Skakkt ártal
í viðtali við Bessa Þorsteins-
son, hótelstjóra á Blönduósi sem
birtist í Degi á fimmtudaginn var
sagt að Hótel Blönduós hafi
starfað síðan 1953. Ekki er þetta
alls kostar rétt því að hótelið tók
til starfa 10 árum fyrr eða 2. júní
1943. Beðist er velvirðingar á
þessu.
ingasal Víkurrastar, sem jafn-
framt verður staðarkynning og
skemmtikvöld með heima-
fengnum atriðum. í framhaldi
af fjórðungsþingi verður þing-
fulltrúum og gestum boðið 28.
ágúst n.k. að kynna sér iðnsýn-
ingu á vegum Akureyrarbæjar
og taka þátt í ráðstefnu um
iðnað og atvinnumál á
Norðurlandi sama dag á Hótel
KEA frá kl. 10.00-16.00.
sinni yfir vetrarmánuðina.
Sigríður Stefánsdóttir bæjar-
fulltrúi sagði að það væri Ijóst að
sundlaugin kæmist seinna í gagn-
ið en gert hafi verið ráð fyrir.
Hún varpaði fram þeirri hug-
mynd hvort ekki væri hægt að
koma upp barnasundlaug á lóð-
inni við Laugargötu og að hún
kæmist þá fyrr í gagnið en sund-
laugin í Glerárhverfi. Með
barnasundlaug sagði hún öryggi
barna aukast og einnig gæti fólk
þá synt sér til heilsubótar í Akur-
eyrarsundlaug en það mun oft
vandkvæðum bundið vegna
fjölda barna í lauginni. SS
hverfi og hefst laugardaginn 22.
ágúst klukkan 10 fyrir hádegi.
Gert er ráð fyrir að mótinu ljúki
kl. 16 sama dag. Þátttökutilkynn-
ingum ber að skila til Felix
Jósafatssonar, sími: 24506. Rétt
til þátttöku eiga yngstu flokkar
íþrótta- og ungmennafélaga við
Eyjafjörð, nánar tiltekið á félags-
svæði KEA. Hér er átt við 10 ára
og yngri. Krakkarnir fá pylsur og
holla drykki meðan á mótinu
stendur.
tvo daga
Rétt til þingsetu hafa 97 full-
trúar. Þingið sækja venjulega að
meðtöldum gestum um 120-150
manns.
Meginmál þingsins verða tvö:
Þriðja stjórnsýslustigið og breytt
verkefna- og fjárhagsskil á milli
ríkis og sveitarfélaga ásamt stað-
greiðslukerfi skatta. Sigurður
Helgason bæjarfógeti ræðir um
þriðja stjórnsýslustigið og Sig-
urgeir Sigurðsson bæjarstjóri
ræðir urn verkefna- og fjárhags-
skilin, einnig ræðir hann um stað-
greiðslukerfi skatta. í framhaldi
af framsöguerindum um aðalmál
þingsins mun Áskell Einarsson,
framkvæmdastjóri sambandsins
kynna nefndarálit um skipan hér-
aðsnefnda og byggðasamlaga.
Siðar mun Bárður Halldórsson,
skrifstofustjóri kynna Háskólann
á Akureyri og Lárus Jónsson
fyrrverandi bankastjóri mun
kynna fjárfestingafélög lands-
hlutanna.
Samkvæmt venju mun formað-
ur sambandsins gera grein fyrir
starfi fjórðungsstjórnar, ásamt
starfi samstarfshóps landshluta-
samtakanna og leggja fram tillög-
ur fjórðungsstjórnar til nefnda
þingsins. Framkvæmdastjóri mun
flytja skýrslu sína og leggja fram
ársreikninga og fjárhagsáætlun.
Landskeppni í skák:
Færeyingar
sigruðu
Landskcppni í skák á milli
Islendinga og Færeyinga fór
fram fyrir skömmu. Keppnin
fór fram í tveimur hlutum,
þannig að annað liðið var ein-
göngu skipað austfírskum
skákmönnum og hitt norð-
lenskum.
Færeyingar unnu fyrri viður-
eignina með 8 vinningum á móti
tveimur hjá ísléndingum, en
íslendingarnir höfðu betur í
þeirri síðari er þeir hlutu 6 vinn-
inga á móti 4 hjá Færeyingum.
Leikar fóru því svo að Færey-
ingarnir fóru með sigur af hólmi
og er það í fyrsta sinn sem þeir
vinna þessa landskeppni.
Aiujtýsendur takið eftir!
AugCýsingar þurfa að berast augíýsingadáíd fyrir fd. 12
dagiruifyrir iUgáfudag.
í mánudagsbCað fyrir fd. 12 föstudaga.
|DJ Aiwj týs i ntj ade i (d.
Strauíftjcitu 31, Akurcyri svmi 96-24222.
Bamasundlaug
við Laugargötu?
Krakkamót KEA
um næstu helgi
Neytendafélag Akureyrar og nágrennis
Skrifstofan, Gránufélagsgötu 4, III. hæð er opin mánudaga
til föstudaga frá kl. 11.00 til 15.00.
Símatími er frá kl. 13.00 til 14.00 mánudaga til föstudaga.
Sími félagsins er 22506.
Fulltrúi Neytendasamtakanna á Akureyri er Steinunn S. Sigurðardóttir.
Húsnæði óskast
Óskum eftir einbýlishúsi, raðhúsi eða
rúmgóðri íbúð til leigu.
Upplýsingar gefur Gunnar Oddur og Margrét. Vinnusími
22008 og 22449. Á kvöldin 22006.
-Verslunarhúsnæði-
Til leigu húsnæði í Verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð.
Húsnæðið er talið 116 fm. brúttó og leigist í lengri eða
skemmri tíma.
Fasteigna- og skipasala Norðurlands.
Meiraprofsbílstjorar
Óskum eftir að ráða meiraprófsbílstjóra strax.
MOL&SANDUR HF.
v SULUVEG - PÓSTHÓLF 618 - 602 AKUREYRI - SÍMI (96)21255
Bya Hjukrunar-
fræðingar
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings á
sjúkra- og ellideild Hornbrekku í Ólafsfirði.
Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofuna, Ólafsvegi
4 Ólafsfirði, fyrir lok ágústmánaðar 1987.
Nánari upplýsingar veita undirritaður í símá 62151
og hjúkrunarforstjóri í síma 62480.
Bæjarstjórinn í Ólafsfirði.
Verslunarstjóri
Tískuvöruverslun óskar eftir að ráða verslunar-
stjóra sem fyrst.
Æskilegur aldur 23-35 ára.
Góð laun í boði.
Skriflegar umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri
störf sendist afgreiðslu Dags merkt:
„Verslunarstjóri-Tískuverslun“.
Starfsfólk óskast
í eftirtaldar deildir:
Brauðgerð, pökkunarstörf.
Fóðurvörudeild, verkamenn.
Gúmmíviðgerð, verkamenn.
Kjötiðnaðarstöð, kjötvinnsla og pökkun.
Matvörudeild, verslunarstörf.
Timburvinnsla, verkamenn.
Vöruinnkaupadeild, ritari.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma 21400.
Kaupfelag Eyfirðinga
rm
vWMC
______Sjúkraliðar
Laus er til umsóknar staða sjúkraliða á
sjúkra- og ellideild Hornbrekku í Ólafsfirði.
Umsóknum skal skila á bæjarskrifstofuna, Ólafsvegi
4 Ólafsfirði, fyrir lok ágústmánaðar 1987.
Nánari upplýsingar veita undirritaður í síma 62151
og hjúkrunarforstjóri í síma 62480.
Bæjarstjórinn í Ólafsfirði.
Atvinna
Viljum ráða nú þegar eða seinna konur og karla til
starfa, bónusvinna.
Upplýsingar hjá verkstjórum.
K. JÓNSSON & CO HF.
NIÐURSUÐUVERKSMIÐJA
Sími 96-21466 • 602 Akureyri