Dagur - 17.08.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 17. ágúst 1987
íþróttic
Enski boltinn af stað:
Liverpool liðin
byrja vel
- en stóru Lundúnaliðin tapa
Enska deildakeppnin í knattspyrnu
hófst á laugardag. Að þessu sinni
leika 21 lið í 1. deild og 23 í 2. deild,
þannig að eitt liö situr yfir í hverri
umferö en að loknu þessu leiktíma-
bili verður liðum í 1. deild fækkað
niður í 20 en fjölgað í 24 í 2. deild. Á
þessu ári halda knattspyrnumenn í
Englandi upp á 100 ára afmæli knatt-
spyrnusambandsins og í vetur verð-
ur lögð sérstök áhersla á að koma á
röð og reglu meðal áhorfenda, sem
löngum hafa þótt erfiðir á Englandi.
Menn gera sér góðar vonir um að ef
ekki komi til óláta á leikvöllum í
vetur, verði enskum liðum aftur
leyft að leika í Evrópumótum á
næsta ári. Áhangendur Wolves í 4.
deild hafa þó misskilið þetta, því í
leik þeirra á útivelli gegn Scarboro-
ugh (nýliðunum í deildarkeppninni),
stóðu þeir fyrir ólátum sem hófust
áður en leikurinn hófst en honum
lauk með jafntefli 2:2.
En lítum þá á úrslitin í 1. og 2.
deild:
1. deild:
Arsenal-Liverpool 1:2
Charlton-Nottm.Forest 1:2
Chelsea-Sheff.Wed. 2:1
Coventry-Tottenham 2:1
Derby-Luton 1:0
Everton-Norwich 1:0
Oxford-Portsmouth 4:2
Southampton-Man.United 2:2
Watford-Wimbledon 1:0
West Ham-Q.P.R. 0:3
2. deild:
Birmingham-Stoke 2:0
Bradford-Swindon 2:0
Huddersfield-C.Palace 2:2
Hull-Blackburn 2:2
Ipswich-Aston Villa 1:1
Leicester-Shrewsbury 0:1
Man.City-Plymouth 2:1
Middlesbrough-Millwall 1:1
Sheff.United-Bournemouth 0:1
W.B.A.-Oldham 0:0
Barnsley-Leeds 1:1
Mesta athygli vakti viðureign
Arsenal og Liverpool. Yfir 50.000
áhorfendur voru mættir til þess að
sjá þessi tvö stórlið eigast við. Mikil
barátta var í leiknum og ekkert gef-
ið eftir. Liverpool náði forystu
snemma í fyrri hálfleik með marki
John Aldridge, eftir góðan undir-
búning nýju leikmanna liðsins,
Peter Beardsley og John Barnes.
Arsenal jafnaði 8 mín. síðar með
marki Paul Davis og þannig var
staðan í hálfleik. Bruce Grobbelaar
varð þó að taka á öllu sínu til þess
að verja þrumuskot frá Kenny Sam-
son í fyrri hálfleiknum. Arsenal hóf
síðari hálfleik með miklum látum en
Liverpool tókst að verjast öllum
sóknarlotum þeirra og leikurinn
jafnaðist aftur. Allt virtist stefna ■
jafntefli en leikmenn Liverpool
voru ekki sáttir við það og þegar
aðeins 3 mín. voru til leiksloka tókst
þeim að skora sigurmarkið. Bak-
vörðurinn Steve Nicol sem ekki
hafði leikið með liðinu síðan fyrir
síðustu jól, skoraði með skalla.
Leikmenn Arsenal hreinsuðu frá
marki sínu en Nicol kom aðvífandi
og ætlaði að skalla boltann aftur inn
að markinu en þess í stað sigldi hann
í hláhornið hjá John Lukic. Jafntefli
hefði þó verið sanngjörn úrslit í
leiknum.
Meistarar Everton léku án sex
fastamanna sinna gegn Norwich en
tókst þó að ná í öll stigin. Paul
Power skoraði á 35. mín. og þar við
sat. Norwich getur þó þakkað mark-
verði sínum Gurin fyrir að mörkin
urðu ekki fleiri, auk þess sem Dave
Watson átti skot í stöng. Það er
greinilegt að Everton lætur meist-
aratitilinn ekki af hendi baráttu-
laust.
Coventry og Tottenham léku
úrslitaleik bikarkeppninnar s.l. vor
og áreiðanlega hefur Tottenham
ætlað að hefna ófaranna í þeim leik
þegar liðin mættust aftur á laugar-
dag. Það fór þó á annan veg, því
Coventry hafði óvænta yfirburði og
sigraði næsta auðveldlega. David
Speedie sem var keyptur frá Chelsea
nýlega fyrir 750.000 pund, skoraði á
20. mín. og bakvörðurinn þunn-
hærði Greg Downs bætti öðru
marki við rétt fyrir ieikhlé. Gary
Mabbut minnkaði muninn 15 mín.
fyrir ieikslok fyrir Tottenham en þá
hefðu leikmenn Coventry hæglega
getað verið búnir að skora fleiri
mörk.
Það var mikið skorað í leik
Oxford og Portsmouth. David
Langan skoraði fyrir Oxford í fyrri
hálfleik og í upphafi þess síðari
bætti Tommy Caton öðru marki við.
Paul Mariner sem nú lék sem mið-
vörður skoraði fyrir Portsmouth 2:1
en Billy Whitehurst skoraði tvö fyrir
Oxford áður en Clive Whitehead lag-
aði stöðuna fyrir Portsmouth.
Hinir nýliðarnir í 1. deild, Derby,
stóðu sig hins vegar betur og unnu
góðan sigur á Luton. John Gregory
skoraði í fyrri hálfleik en leikmenn
Luton léku þó aðeins 10 mestan
liluta lciksins, því miðherji þeirra
Mick Harford var rekinn útaf strax á
5. mín.
Watford sigraði Wimbledon með
marki Luther Blissett í fyrri hálfleik
en þetta var fyrsti leikurinn sem
Dave Bassett stjórnar liði Watford
en hann var áður framkvæmdastjóri
Wimbledon og náði ótrúlegum
árangri með þá.
Manchester United tókst ekki að
sigra Southampton á útivelli þrátt
fyrir að hafa tvívegis yfir í leiknum.
Norman Whiteside skoraði bæði
mörk Utd. í fyrri hálfleik en Danny
Wallace skoraði einnig tvö mörk
fyrir Southamton, sitt í hvorum hálf-
leiknum.
Chelsea sigraði Sheffield Wed.
2:1. Kerry Dixon skoraði snemma í
leiknum fyrir Chelsea en Lee
Chapman jafnaði fyrir Sheffield.
Gordon Durie skoraði síðan sigur-
mark Chelsea úr vítaspyrnu.
Q.P.R. afgreiddi West Ham í
fyrri hálfleiknum. Ray Stewart skor-
aði sjálfsmark og þeir Gary Bann-
ister og Kevin Brock sem keyptur
var frá Oxford bættu síðan við
mörkum fyrir leikhlé. Ekkert var
skorað í síðari hálfleik og óvænt
stórtap West Ham á heimavelli því
staðreynd.
Loks sigraði Nottingham Forest
lið Charlton á útivelli, eftir að
Charlton hafði yfir í hálfleik, með
marki Mark Reid úr vítaspyrnu.
Nýliðinn Lee Glover og fram-
kvæmdastjórasonurinn Nigel Clough
skoruðu fyrir Forest í síðari hálf-
leiknum.
í 2. deild urðu þau úrslit óvæntust
að Leicester sem lék í 1. dcild í
fyrra, tapaði á heimavelli fyrir
Shrewsbury. Þá má geta þess að
Tony Rees leikmaður Birmingham
varð fyrstur til að skora mark á
þessu keppnistímabili, hann skoraði
eftir aðeins 45 sek. gegn Stoke og
bætti síðan við öðru marki síðar í
leiknum. ÞA
Pétur Ormslev skorar fyrsta mark Fram úr mjög svo umdeildri vítaspyrnu.
Mynd: RPB
SL mótið 1. deild:
Vítaspyma að gjöf
- Dómari í stóru hlutverki þegar Fram lagði KA 0:31 gærkvöld
„Við gerðum of mikið af
mistökum sem gáfu þeim
sigurinn,“ sagði Hörður
Helgason þjálfari KA eftir að
liðið hafði orðið að Iúta lægra
haldi fyrir Fram. Úrslitin 0:3 í
frekar slökum leik.
Hörður vildi ekki setja út á
dómgæslu í leiknum þó svo að
henni hafi verið mjög ábótavant.
Kjartan Ólafsson gaf Frömurum
vítaspyrnu í fyrri hálfleik og eftir
það var ljóst hvert stefndi.
Leikurinn var mjög tíðindalítill
allt fram á 30. mínútu. Framarar
voru mun meira með boltami en
náðu ekki að skapa sér nein færi.
KA-menn héldu sig aftarlega á
vellinum en reyndu skyndisóknir
án árangurs.
Það var svo á 30. mínútu að
Kjartan gerði sín afdrifaríkustu
mistök í þessum leik. Ragnar
Margeirsson komst þá einn inn-
fyrir vörn KA allt þar til hann
mætti Ólafi Gottskálkssyni mark-
verði. Ólafur lagði sig og náði að
koma boltanum frá, Ragnar féll
og Kjartan var ekki í neinum
vafa og dæmdi umsvifalaust víta-
spyrnu. „Fáránlegur dórnur" var
samdóma álit þeirra sem rætt var
við. Pétur Ormslev skoraði úr
spyrnunni.
Petta atvik hafði slævandi áhrif
á KA-menn og virtist sem í þá
væri komin uppgjöf. Þeirra eina
færi í hálfleiknum kom þó
skömmu síðar þegar Sigurður
Harðarson átti skot sem Friðrik
varði.
Ekki leið á löngu uns Framarar
bættu öðru markinu við. Ragnar
Margeirsson skoraði þá eftir. góð-
an samleik við Guðmund Steins-
son, staðan orðin 0:2.
Stórar breytingar urðu ekki á
leiknum eftir hlé. Framarar sóttu
en KA-menn vörðust með þá
Erling og Steingrím sem kletta í
vörninni.
Á 57. bætti Pétur sínu öðru
marki og þriðja marki Fram við.
Pétur fékk sendingu inn í víta-
teig, lék á einn varnarmann og
sendi fastan bolta í bláhornið
með viðkomu í fæti KA manns.
Eftir þetta þriðja mark má
segja að KA-menn hafi komist
inn í leikinn og fengið hættuleg-
ustu færin. Á 83. mín. komst
Þorvaldur innfyrir vörn Fram en
skot hans náði ekki yfir Friðrik
sem kom langt út á móti.
Skömmu síðar áttu KA-menn
þunga sókn og þá fékk Sigurður
Harðarson ágætis færi. Fyrra
skotið fór beint á Friðrik en hið
síðara í stöng og þaðan í hendi
eins leikmanns Framliðsins án
þess að nokkuð væri dæmt.
Bjarni átti síðast ágætt skot af 25
Þórsarar fóru með hangandi
haus og fimm mörk á bakinu af
Skipaskaga í gær eftir að hafa
verið teknir í kennslustund af
heimamönnum, einn ganginn
enn. Úrslitin, 5:2, gefa nokkuð
rétta mynd af leiknum sem var
opinn og fjörugur, marktæki-
færi á báða bóga. Staðan í hálf-
leik var 3:2.
Þórsarar byrjuðu leikinn vel og
náðu forystu á 11. mín. þegar
Guðmundur Valur átti góða
sendingu inn fyrir vörn Skaga-
manna á Halldór Áskelsson sem
skallaði í fjærhornið. Glæsilegt
mark. Á 25. mín. jöfnuðu Skaga-
menn og var þar Sigurður Lárus-
son að verki eftir hornspyrnu.
Sex mínútum síðar kom Val-
geir Barðason Skagamönnum
yfir með skallamarki eftir að hafa
fengið góða sendingu frá Heimi
Guðmundssyni. Þórsarar gáfust
ekki upp og jöfnuðu metin á 33.
mín. Kristján tók þá hornspyrnu,
Sigurbjörn sneiddi boltann við-
stöðulaust beint á „pönnuna“ á
Nóa sem afgreiddi hann í netið.
Staðan orðin 2:2 eftir rúmlega
hálftíma leik og ekki þurftu
menn að bíða lengi eftir fimmta
markinu. Á 36. mín. skoraði
Sveinbjörn Hákonarson þriðja
mark Skagamanna, eftir mikinn
klaufaskap Einars Arasonar, að
sögn tíðindamanns okkar á
Skaganum.
I seinni hálfleik voru Þórsarar
hins vegar heillum horfnir en áttu
samt fyrsta tækifærið er Halldór
metra færi en rétt framhjá.
Erlingur, Steingrímur og Jón
Sveinsson voru bestu menn KA
og Ólafur stóð fyrir sínu í mark-
inu. Hjá Fram var Ragnar bestur
en hann þyrfti að yfirgefa völlinn
á 50. mín vegna meiðsla. Pétur
Arnþórsson var einnig- mjög
sterkur og vörnin vann vel
saman. ET
- er IA vann Þór 5:2
átti skot frá markteigshorni rétt
framhjá. Eftir þetta gerðu Skaga-
menn oft harða hríð að marki
Þórsara, enda vörn hinna síðar-
nefndu gjörsamlega á hælunum.
Á 70. mín. skoraði Valgeir
Barðason 4. mark Skagamanna
eftir skyndisókn, en þá höfðu
Þórsarar sýnt nokkra tilburði í þá
átt að jafna leikinn. Þetta mark
dró endajaxlana úr Þórsurunum
og ekki bætti úr skák þegar Guð-
björn Tryggvason skoraði 5.
3. deild:
Þróttur sigr-
aði HSÞ-b
- í Mývatnssveit
Staða HSÞ-b í B-riðli 3. deild-
ar á íslandsmótinu í knatt-
spyrnu, versnaði heldur um
helgina, en á laugardag tapaði
liðið fyrir Þrótti frá Neskaup-
stað er liðin léku á Krossmúla-
velli í Mývatnssveit.
Þróttarar voru mun ákveðnari
í leiknum frá upphafi til enda og
sigruðu með einu marki gegn
engu. Ólafur Viggósson komst í
gegnum vörn HSÞ-b um miðjan
síðari hálfleik og skoraði af
öryggi. Mývetningar náðu ekki
að ógna marki Þróttara að neinu
ráði og Þróttarar voru nær því að
bæta við marki en að Mývetning-
ar næðu að jafna leikinn.
SL mótið 1. deild:
Leikur marktæki