Dagur - 21.08.1987, Síða 2

Dagur - 21.08.1987, Síða 2
2 - DAGUR - 21. ágúst 1987 SMÁBÁTAEIGENDUR BRUNAKERFI FYRIR SMÁBÁTA FYRIRLIGGJANDI. EINNIG FÁANLEG MEÐ LEKAAÐVÖRUN OG AÐVÖRUNARLJÓSI í MASTRI. Kerfin eru viöurkennd af Siglingamálastofnun ríkisins. Sala, uppsetning og eftirlit. HORDmiÚSIIf. RAFVERKTAKAR FURUVÖLLUM 13 - 600 AKUREYRI SiMAR (96)25400 & 25401 Hljómsveit Ingimars Eydal heldur uppi dúndurstuði föstudags- og laugardags- kvöld. Golli og Siggi þeyta diskóskífunum af sinni alkunnu snilld. - Frítt inn fyrir Aðgangseyrir kr. 500. matargesti Snyrtilegur Ingimar Eydal leikur undir klæðnaður Eigendur Kristjánsbakarís samankomnir framan við hina nýju og glæsilegu byggingu. F.v. Júlíus Snorrason, Snorri Kristjánsson og Birgir Kristjánsson. Mynd: rþb Kristjánsbakarí 75 ára: Ákváðum að gefa okkur þessa byggingu í afmælisgjöf - Ný brauðbúð opnuð í fyrramálið Klukkan 8.00 í fyrramálið geta árrisulir Akureyringar fengið sér morgunkaffi í nýju og glæsilegu Kristjánsbakaríi. Er Jónas Sigurjónsson búinn að taka upp japanskt tímatal á Valsmíði? Þessi spurning heyrðist á dögunum og þótti full ástæða til að bera hana undir Jónas. Hann svaraði því til að ekki væri búið að breyta tímatalinu á Valsmíði en hins vegar væri verið að taka upp vinnufyrirkomulag sem stund- um er kennt við Japani og kall- ast „Just in time“. „Við erum að reyna að koma upp kerfi sem heitir „Just in time“ og höfum reyndar verið með vísi að því. Það byggir mikið á almennri skynsemi og samstarfi og miðast við það að eiga sem mest hálfsmíðað og tilbúið til þess að stytta afgreiðslutímann," sagði Jónas. Hann gat þess þó að ekki væri um að ræða birgðasöfnun heldur væri stefnt að því að eiga ýmsa grunnhluti í innréttingarnar til- búna en þær eru síðan sérsmíð- Geta menn valið um að drekka kaffi sitt í búðinni sjálfri eða tekið brauðið með sér heim. „Við ákváðum að gefa okkur aðar eftir óskum hvers og eins. „Taka minna fyrir í einu en oftar og ekki vera með eins dýrt lager- hald, bara vera nógu lifandi í þessu,“ eins og Jónas orðaði það. Hann sagði að fyrirtækjum væri nauðsynlegt að stytta afgreiðslutímann. „Maður stend- ur frammi fyrir því að ef maður getur ekki afgreitt pantanir innan eins og hálfs mánaðar þá missir maður viðskiptavinina beint í innfluttar innréttingar. Þeir í inn- flutningnum segja afgreiðslu- frestinn 6 vikur og við megum ekki fara yfir þann tíma,“ sagði Jónas. „Það er bara svo mikið að gera hjá okkur að við höfum ekki haft tíma til að reka endahnútinn á þetta kerfi. En ég er heppinn að hafa góða starfsmenn því þetta byggist nokkuð mikið á mannleg- um samskiptum, almennri skyn- semi og samstarfi allra aðila,“ sagði Jónas að lokum. SS þessa byggingu í afmælisgjöf,“ sagði Snorri bakari sem ásamt sonum sínum fjórum rekur Kristjánsbakarí. Brauðgerð Kr. Jónssonar, sem er hið formlega nafn átti nýverið 75 ára afmæli. Það var þann 12. júní fyrir 75 árum sem Kristján Jónsson faðir Snorra hóf rekstur brauðgerðar hér á Akureyri og var fyrst til húsa að Strandgötu 41, en flutti síðar í hús númer 37 við sömu götu. Árið 1978 var brauðgerðin flutt í Hrísalund og gólfflötur þar er um 1900 fermetrar. Afmælis- gjöfin, eða nýja brauðbúðin er um 200 fermetrar að stærð á tveimur hæðum. Á neðri hæðinni er brauðbúðin þar sem marmar- inn ræður ríkjum, eða eins og Snorri orðaði það sjálfur, „Þetta verður marmarabúð.“ Á efri hæð verða skrifstofur og kaffistofur starfsfólks, en um 70 manns vinna hjá brauðgerðinni. Byrjað var á byggingunni í maí og verið var að leggja síðustu hönd á verkið er blaðamenn skoðuðu húsakynni. Byggingin kostar þegar allt er talið um 15 milljónir króna. Hátt í 200 teg- undir af brauði og kökum eru framleidd hjá Kristjánsbakaríi og í framleiðsluna eru notuð um 4 tonn af eggjum á mánuði og 40 tonn af mjöli. Snorri og synirnir Júlíus og Birgir voru óhræddir við sam- keppnina, enda sögðu þeir sam- keppni öllum til góðs. „Við höf- um haldið okkar hlut og vel það, á þessu ári hefður orðið um 20% magnaukning hjá okkur og við erum nokkuð ánægðir með það,“ sagði Júlíus. mþþ Trésmiðjan Valsmíði: Stefnt að styttri afgreiðslutíma - með „Just in time“ kerfinu Sauðárkrókur: Nýtt tækniþjónustufyrirtæki Þessa dagana er að fara af stað nýtt fyrirtæki á Sauðárkróki. Friðrik Jónsson, véltækni- fræðingur er eigandi þess en þetta fyrirtæki veitir ýmsa þjónustu á sviði ráðgjafar og hönnunar á vélbúnaði. Friðrik sagði að húsnæði hefði nú fengist undir starfsemina og yrði það tilbúið á næstu dögum. Verkefni fyrirtækisins sagði hann vera aðallega á sviði ýmiss konar tækniráðgjafar og hönnun- ar og einnig dæluverkefni, aðstoð við innkaup, þróunarverkefni og ýmislegt fleira. Til dæmis gæti fyrirtækið tekið að sér hönnun fyrir nýsmíðar fyrirtækja. Tækniþjónusta sem þessi hefur ekki verið starfrækt fyrr á Norðurlandi vestra og sagði Friðrik að hingað til hafi fyrirtæki þurft að leita eftir henni á Reykjavíkursvæðinu. „Þetta er bara einn liður í að halda lands- byggðinni við með því að bjóða fólki upp á þjónustu sem þessa heima í héraði,“ sagði Friðrik. „Menn eru alltaf með fullan magann af hugmyndum og það er ýmislegt í gerjun. Ég er hæfilega bjartsýnn á að þjónusta sem þessi gangi. Fyrirtækin hafa tekið þessu vel og sýnt þessu áhuga.“ JÓH

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.