Dagur - 21.08.1987, Blaðsíða 13
21. ágúst 1987 - DAGUR - 13
Háhlíð 2, eigendur Ásta Sigurðardóttir og Þór Árnason. Enginn var heima þegar blaðamenn bar að,
en við tókum okkur þó bessaleyfi til myndatöku. Garður þessi er ákaflega fallegur eins og hinir garð-
arnir sem við skoðuðum.
Núpasíða 6h, eigendur Helena Sigtryggsdóttir og Ei-
ríkur Rósberg Arelíusson. Það var Valur Halldórsson
13 ára sem gaf okkur leyfi til myndatöku, en hann
sagðist hafa hjálpað til við að vinna í garðinum, sér-
staklega matjurtagarðinum sem var mjög snyrtilegur.
Sunnuhlíð 8, eigendur Anna Pála Baldursdóttir og Eggert Eggertsson.
Eggert var önnum kafinn við slátt þegar myndataka fór fram, en vildi ekki
vera með á mynd. Hann sagði mesta vinnuna liggja í slætti, en Eggert segist
þurfa að slá á fimm daga fresti og alltaf tví-slá. Eggert spilar golf og leit flötin
hjá honum líka út eins og fallegustu „grín“ gera.
sem skarað hafa fram úr fengið
viðurkenningu. Garðyrkju-
félagið vill benda á að ef fólk og
fyrirtæki heldur áfram að skara
fram úr, geta þeir fengið viður-
kenningu að nýju eftir 10 ár.
Félagið vekur einnig sérstaka
athygli á þeirri framför sem orð-
ið hefur á snyrtimennsku í
Breiðholti. Þar hafa margir tek-
ið sig myndarlega á þó að víða
megi betur fara. VG
Ránargata 9, eigendur Guðrún Aspar, Jóhann Kristinsson, Sólveig Jóhannsdóttir og
Þröstur Vatnsdal. Guðrún var heima er blaðamenn bar að garði, og sagðist hún vera
með mikið af fjölærum plöntum. Hún á eftir að taka betur til ■ garðinum áður en
hann verður sýndur, en núna er hún önnum kafin í berjatíðinni.
Sýning í Gamla Lundi
Laugardaginn 22. ágúst 1987, kl.
16.00 verður opnuð sýning í Gamla
Lundi við Eiðsvöll, á höggmyndum
Hallsteins Sigurðssonar. Hallsteinn
er vel þekktur listamaður og prýða
verk hans ýmsa staði, svo sem
Menntaskólann á ísafirði, Vistheim-
ilið að Vífilstöðum, 7 myndir hans
eru í eigu Listasafns Borgarness, 5
myndir í eigu Reykjavíkurborgar, 2
í eigu Listasafns Islands og 1981
gerði hann minnismerki látinna sjó-
manna á Húsavík.
Hallsteinn Sigurðsson er fæddur
1945 og stundaði nám við Handíða-
og Myndlistarskólann í Reykjavík
1963-1966. Síðan hélt hann til
London og stundaði nám þar 1966-
1972 þar af 3 ár í St. Martin’s School
of Art.
Hallsteinn hefur haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum bæði innanlands og utan:
Korpúlfsstöðum 1975, F.Í.M.-saln-
um 1980, Útísýning á Skólavörðu-
holti 1967 og 1968, sýningum Mynd-
höggvarafélagsins 1974, 1978, og
1979 og sýningunni Ungir Myndlist-
armenn, Kjarvalsstöðum 1973.
Young Artists 1973 í New Yourk,
18 íslenskir myndlistarmenn í Berg-
en 1975, útisýning Nordisk
Skulptur, Sveaborg Finnlandi 1978,
Middelheim Biennal í Antwerpen í
Belgíu 1979, sýning norskra mynd-
höggvara í Osló 1980 og sýning á
Álandseyjum 1982.
Forráðamenn Gamla Lundar
standa að þessari sýningu. Tíma-
setningin var valin m.a. vegna 125
ára afmælis Akureyrarbæjar og má
líta á þessa sýningu sem framlag
Gamla Lundar til hátíðarhaldanna.
Sýningin stendur til 30. ágúst og
er opin frá kl. 17-20 daglega, en frá
kl. 15-22 urn helgar.
Miðvikudaginn 26. ágúst verður haldið
Krakkamót KEA ”87 í knattspyrnu
á Þórsvellinum í Glerárhverfi
og hefst klukkan 10 fyrir hádegi.
Gert er ráð fyrir að mótinu ljúki kl. 16. sama dag.
Þátttökutilkynningum ber að skila til
Felix Jósafatssonar, sími 24506.
Rétt til þátttöku eiga yngstu flokkar
íþrótta- og ungmennafélaga við Eyjafjörð,
nánar tiltekið á félagssvæði KEA.
Hér er átt við 10 ára og yngri.
Krakkarnir fá pylsur og holla drykki
meðan á mótinu stendur.
★ Athugið breyttan leikdLag! ★