Dagur - 31.08.1987, Side 3
Hvað framkvæmdir varðar þá
höfum við verið í samráði við
Náttúruverndarráð og land-r
græðsluna með framkvæmdir og
endurbætur í Dimmuborgum.
Það á að lagfæra þar plan, laga
veginn upp að borgunum og
merkja vel gönguleiðir. Það er
verið að reyna að ganga þannig
frá að fólk haldi sig á ákveðnum
leiðum. Þar sem hafa verið léleg-
ar gönguleiðir fer fólk oft til hlið-
ar og þá er fljótt að troðast niður.
Framkvæmdum við hitaveitu
er lokið. Það er að vísu verið að
gera endurbætur á henni. Það er
smá vandamál með hana, það er
útfelling. Vatnið er hitað upp í
103-4 stig til að ná úr því súrefni.
Það er svolítið vandamál að
halda því í þessu hitastigi og ef
það fer upp fyrir það þá myndast
útfelling í því. Það kemur út sem
leðja í kerfinu og getur þá farið
þannig til notenda og stíflað þar.
Þetta gerðist nokkrum sinnum
síðasta vetur. Það frysti nokkrum
sinnum snögglega og þá jókst
notkunin. Þá fer stillingin úr
skorðum. En það hafa verið
gerðar endurbætur og við vonum
að það dugi í vetur.
Svo er reyndar ein framkvæmd
í gangi hjá okkur núna. Við ætl-
um að auka vatnsöflun fyrir
vatnsveituna. Það hefur tæplega
verið nóg vatn. Þessi framkvæmd
gefur 4 sekúndulítra af vatni. Við
virkjum rennsli sem kemur und-
an hrauni. Þetta er á svæði sem
heitir Austraselslindir. Það er
virkjað á því svæði þannig að við
bætum bara inn á kerfið. Þetta er
því ekki dýr framkvæmd.“
- Hvernig er fjárhagsleg
staða hreppsins núna og hvað eru
álögð gjöld há?
„Staðan hefur verið svona upp
og ofan, hún hefur ekki verið nógu
góð, en er alltaf að batna. Það
hafa verið töluverðar lausaskuld-
ir. Það var ákveðið við fjárhags-
áætlun að ná þeim verulega niður
og það lítur út fyrir að það takist.
Það er gert með aðhaldi í rekstri
og framkvæmdum, en ekki með
langtímalánum. Alögð útsvör og
aðstöðugjöld eru 15,5 millj. kr.
Það er aðeins hærra en við gerð-
um ráð fyrir í fjárhagsáætlun fyrir
árið. Fasteignagjöld eru 3,7 millj.
kr. á þessu ári,“ sagði Jón Pétur
að lokum. HJS
Árleg keppni
Sjóslanga-
veiðifélags
Akureyrar
Hin árlega sjóstangaveiði-
keppni Sjóstangaveiðifélags
Akureyrar verður haldin 4.-5.
september. Mótið verður sett
fimmtudagskvöldið 3. sept. í
Alþýðuhúsinu á Akureyri.
Dagskráin er á þá leið að á
fimmtudagskvöldið kl. 20.00 er
mótið sett og þátttakendur greiða
keppnisgjöld sín og taka keppnis-
gögn. Daginn eftir er haldið frá
Akureyri kl. 6 að morgni með
rútu áleiðis til Dalvíkur. Farið er
frá bryggju á Dalvík kl. 7 og veitt
til kl. 14.00 eða 15.00. Um kvöld-
ið verður komið saman og spjall-
að um atburði dagsins.
Dagskráin á laugardeginum
verður með sarna hætti nema
keppendur munu hittast klukkan
19.00 um kvöldið í Alþýðuhúsinu
og þar verða úrslitin kynnt og
verðlaun afhent. EHB
Mývatnssveit:
Veðurfræðingar
tíunda súldartölur
af ströndinni
- erum óánægðir með
þjónustu Veðurstofunnar
segir Arnþór Björnsson
„Það er búið að vera mjög gott
veður hérna í sumar, oftast
glaðasólskin og blíða, á með-
an veðurfræðingar tíunda súld-
artölur af ströndinni,“ sagði
Arnþór Björnsson hótelstjóri á
Hótel Reynihlíð, en hann telur
að veðuríýsingar í sumar hafi
spillt fyrir umferð íslendinga
um Mývatnssveit.
Sagði Arnþór að ítrekað hefði
verið reynt að fá veðurlýsingu frá
Mývatnssveit, þar sem nrikill
munur er á veðri í Mývatnssveit
annars vegar og á Staðarhóli í
Aðaldal hins vegar. Samkvæmt
veðurfréttum hefði sumarið því
ekki verði sérlega gott í Mývatns-
sveit, „en raunin er allt önnur,“
sagði Arnþór.
Magnús Tónsson veðurfræðing-
ur sagði að allt að 10 stiga hita-
munur gæti verið í Mývatnssveit
og á Staðarhóli, en veðurfréttir
frá Grímsstöðum væru brúklegar
fyrir Mývetninga.
Hlynur Sigtryggsson veður-
stofustjóri kannaðist ekki við að
erindi hefði borist frá Mývetning-
um um veðurlýsingar þaðan.
Kostnaður við veðurathugunar-
stöð og sendingar sagði Hiynur
vera um 100 þúsund krónur á ári,
en það færi eftir hversu oft væri
lesið af. Hlynur sagði að ef koma
ætti á fót veðurathugunarstöð sem
þjónaði byggðarlaginu um tak-
markaðan tíma og í tengslum við
ákveðna atvinnuvegi kæmi til
greina að heimamenn kostuðu
það að hluta til. „Fyrir því eru
fordæmi," sagði Hlynur. mþþ
ÖKUM EINS OG MENN!
Drögum úr hraða
- ökum af skynsemi!
yUMFERÐAR
RÁÐ
31. ágúst 1987 - DAGUR - 3
AEG RYKSUGANÁ FULW...
406 ryksugan frá AEG er 1000 W og því
sérlega kraftmikil, hún er með stillanlegum sogkrafti,
inndreginni snúru og snúningsbarka, svo fátt eitt
ísé nefnt.
Þetta er slíkt gœðatœki að við leyfum okkur að full-
yrða að þú fáir hvergi jafn fjölhœfa ryksugu á svo frá-
Kr.8.392.-
(STAÐGREITT)
estur-þýsk gœði á þessu verði. - Engin spurning!
AFRARÆRU
VERÐI!
AEG
ALVEG
EINSTÖK
GÆDI
Áratuga reynsla og þjónusta hefurgert
AEG að einu mest selda merki í raf-
magnstœkjum á Akureyri og víðar.
A E G heimilistœki
- því þú hleypir ekki hverju sem er í húsverkin!