Dagur - 31.08.1987, Blaðsíða 5
31. ágúst 1987 - DAGUR - 5
Joseph hefði átt að hafa samband
við geðlækni. En hugsunin um að
eitthvað gæti verið að honum
komst aldrei að. Hann byrjaði að
njósna um Susan hvert kvöld og
faldi sig í kirkjugarðinum meðan
hann hlustaði á kórsönginn. Sus-
an söng einsönginn í Ave Maria
en það lag þoldi Joseph alls ekki
því einmitt þetta lag hafði hann
aldrei getað sungið án þess að
vera laminn í æsku. Hann ákvað
því að drepa Susan.
Síðasta kvöldið hafði hann fal-
ið sig á bak við stóran legstein í
kirkjugarðinum þegar Susan
gekk framhjá. Hann stökk á fæt-
ur og stakk hnífnum sínum mörg-
um sinnum í stúlkuna, sem gat
enga björg sér veitt gegn þessari
óvæntu árás.
Það var söngfélagi hennar úr
kórnum sem kom fyrstur á
staðinn. Lögreglan upplýsti síðar
að 30 hnífsstungur hefðu verið í
líkinu. Enginn skildi neitt í
neinu og ekki datt nokkrum
manni í hug hvers vegna aum-
ingja stúlkan hafði verið ráðin af
dögum. Það eina sem lögreglan
hafði til að fara eftir var barm-
merki með áletruninni „Guð er
kærleikur.“
Stuttu síðar barst lögreglunni
til eyrna að maður að nafni
Joseph Stout gengi einmitt með
svona merki á sér. Þegar Joseph
var kvaddur til yfirheyrslu gat
hann ekki gefið neina skýringu á
því hvers vegna merkið vantaði í
jakkann og viðurkenndi síðan að
hafa myrt Susan Stevenson.
Hann var dæmdur í lífstíðarfang-
elsi og geðlæknar sáu ekki annað
en maðurinn hefði verið ábyrgur
gerða sinna þegar verknaðurinn
var framinn.
„Ég fór til Reykjavíkur í fjóra
daga og þegar ég kom aftur var
búið að stela öllu grænmetinu úr
garðinum, nema rósakálinu og
svolitlu af hvftkáli," sagði Helga
Sigríður í samtali við Dag. „Eg
setti niður brokkál, blómkál,
hvítkál og rósakál í vor og það
var orðið vel sprottið þegar ég fór
suður. Ég var að hugsa um að
taka það upp áður en ég fór en
það varð ekkert úr því. Daginn
eftir að ég kom heim ætlaði ég út
í garð að sækja mér hvítkál í
hrásalatið og þá sá ég hvers kyns
var. Það var mjög snyrtilega
gengið frá öllu þannig að ég get
varla ímyndað mér að börn hafi
verið þarna að verki, en ég get
samt ekki gert mér í hugarlund
hver hefur gert þetta.“
Sagðist Helga hafa heyrt af
öðrum garði sem grænmeti var
stolið úr og það fólk hefði einmitt
verið að heiman í nokkra daga.
„Nei, nei, þetta er ekkert fjár-
hagslegt tjón, en ég er óneitan-
lega svekkt yfir þessu. Ég hef ald-
rei sett niður grænmeti áður og
þetta var því tilraun hjá mér,“
sagði Helga að lokum. HJS
Ritvélar
Olympía frá kr. 19.700.-
Bdrother frá kr. 22.700.-
Facit frá kr. 43.200.-
■Bókabúðin EddaH
■■I Hafnarstræti 100 Akureyri Sími 24334 HHi
i r® ® /Wy
rmrmrm rm rm nn iifiTirrnT m rm rm i 1111 IIll LLl mlffl m m m a
rd rjíj rffi itn rm rm ffl rffi rffi m rm rm 1 n f TTT rm rm m rm rfn i ni rm rm rm
Ul lii ií ffl a æ" 1 b ffl S ffl 1 S”i~l
Frá öldungadeild
Menntaskólans á Akureyri
Innritun í öldungadeild fer fram dagana 1.-7.
september á skrifstofu skólans.
Skrifstofan er opin kl. 8.00-15.00 virka daga, og auk
þess veröur kennslustjóri þar til viðtals kl. 15.00-
16.30 innritunard.agana.
Sími skrifstofunnar er 25660. Við innritun ber að
greiða innritunargjald kr. 4.500.- Sérstök athygli er
vakin á því að stefnt er að því að bjóða framvegis
upp á nám á ferðamáiabraut (leiðsögulínu) auk
hefðbundinnar málabrautar. Á ferðamálabraut verð-
ur auk tungumála lögð áhersla á náttúrufræði,
landafræði, ferðamálafræði og fleiri greinar tengdar
leiðsögu ferðamanna.
Skólameistari.
Atvinna - Kvöldvinna
Viljum ráða nú þegar eða seinna konur og karla til
starfa. Bónusvinna.
Viljum einnig ráða konur
til starfa frá kl. 17-22.
K. JÓNSSON & CO HF.
NIÐURSUÐUVERKSMIÐJA
Sími 96-21466 602 Akureyri
NÁTTLJRUVERNDARRÁÐ
Hverfisgötu 26 • 101 Reykjavík • Sími 22520
ðtarf þjóðgarðsvarðar
í Skaftafelli
Náttúruverndarráð auglýsir starf þjóðgarðsvarð-
ar í Skaftafelli laust til umsóknar frá 1. janúar
1988.
Þjóðgarðsvörður er búsettur í Skaftafelli. Starf hans
útheimtir m.a. haldgóða þekkingu á náttúrufræði og
hefur hann umsjón með starfsemi þjóðgarðsins.
Laun eru skv. launakerfi opinberra starfsmanna.
Skriflegar umsóknir er greina frá menntun, aldri, fyrri
störfum og öðru sem máli skiptir, skulu berast Nátt-
úruverndarráði, Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík, fyrir
25. september 1987.
Náttúruverndarráð.
Með einu bréfi bjóðast
þér 6 tækifærí
til að láta peningana
vinna fyrír þig.
Einfalt og öruggt.
9-11,4% vextir umfram verðbólgu.
Ásíöasta ári stofnaöi Iðnaðarbankinn Verðbréfamarkað
Iðnaðarbankans hf. til að geta boðið viðskiptavinum
sínum jafngóða þjónustu í verðbréfaviðskiptum og í
bankaviðskiptum. Nútímaþjónustu sem er í senn
áreiðanleg, ánægjuleg og jáægileg.
Kjörorð Verðbréfamarkaðsins er að gera verðbréfavið-
skiptin einföld og örugg. Sem dæmi má nefna Verð-
bréfareikninginn en hann er sérstaklega hentugur þeim
sem búsettir eru utan Reykjavíkur. Til að fá upplýsingar
um hvernig við hjálpum fólki við að ávaxta peninga þarf
ekki annað en að fylla út meðfylgjandi miða og póst-
senda hann til okkar. Við munum svara án tafar. Sýnið
fyrirhyggju og látið okkar fólk um að ávaxta peningana.
Vextirnir á traustum skuldabréfum eru nú 9-11,4% um-
fram verðbólgu en það hefur jafngilt um 32-33% árs-
vöxtum f rá áramótum. Hjá okkur eru verðbréfaviðskiptin
einföld og örugg.
Vinsamlegast sendið upplýsingar um þau atriði sem merkt er við.
□ Verðbréfareikningur
□ Eftirlaunasjóðireinkaaðila
□ Sjóðsbréf 1 og Sjóðsbréf 2
□ Skammtímaskuldabréf Iðnaðarbankans
□ Skuldabréf Glitnis hf.
□ Mánaðarfréttir Verðbréfamarkaðs
Iðnaðarbankans
Nafn
Heimili
Sendist til Verðbréfamarkaðs Iðnaðarbankans hf., Ármúla 7,108 Reykjavík.
Síminn er 91-68-10-40.
■|§ Verðbréfamarkaður
1= iðnaðarbankans hf.